Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 47
StíliSti og hönnuður bloggar um hönnun
Ólöf Jakobína Ernudóttir hönnuður og húsmóðir í Vesturbænum heldur úti dásamlegu
bloggi um allt sem viðkemur innanhússhönnun. Ólöf Erna er annáluð smekkmann-
eskja og þekkir ansi vel til, enda sér hún um stíliseringar í Gestgjafanum, stýrði Húsum
og híbýlum um tíma, starfaði í Epal og er þar að auki menntaður innanhússhönnuður.
Bloggið ber vott um fagmennsku og brennandi ástríðu Ólafar Jakobínu en þar birtir
hún myndir af því heitasta í hönnunarheiminum, fjallar um tímalaus meistaraverk og
miðlar hugmyndum. Einstaka sinnum selur hún einhver dýrindi, stundum eftir sjálfa
sig. Sjá olofjakobina.blogspot.com.
lífsstíll 18. júní 2010 föstudagur 47
Veldu sundföt
út frá vaxtarlagi
lítil brjóSt
Stór mynstur fela smæð brjóstanna en þú getur líka komist upp með að nota
fíngerð mynstur. Mynstur sem fylgir og undirstrikar lögun brjóstanna gerir
það að verkum að þau virðast stærri.
Sundföt með rykkingu í kringum brjóstin geta haft sömu áhrif. Þú getur
klæðst litlum retró bikinítopp með böndum sem liggja upp frá brjóstaskor-
unni og mynda þríhyrning um hálsmálið og litið vel út. Það sama gildir um
hlýralausan topp.
Ef þú vilt ýkja brjóstaskoruna getur þú fengið bikinítoppa með fyllingu.
Pífur, rykkingar og önnur smáatriði geta líka dregið athyglina að barminum
og gert mikið fyrir hann.
Stór
magi
Til að draga athyglina frá stórum
maga er gott að velja dökka liti og
mynstur með dökkum grunni. Ef
sundfötin eru tvílit er mikilvægt
að dekkri liturinn sé undir þeim
ljósari. Stórgerð blómamynstur og
djörf mynstur trufla augað og fela
magann. Þú ættir að forðast þverr-
öndótt sundföt, ef þú vilt endi-
lega röndótt sundföt er betra er að
rendurnar liggi niður eða á ská.
Rykkt föt eru góð, sérstaklega ef
rykkingin liggur yfir magann. Ann-
ar möguleiki er að velja sundföt
með smáatriðum á brjóststykkinu
sem draga athyglina að efri hlutan-
um. Tankini felur bumbuna en þá
þarf að passa að toppurinn sé nógu
langur til að ná niður á buxurn-
ar svo það myndist ekki ber skil á
miðri bumbu.
breiðar
mjaðmir
Stór mynstur með dökkum und-
irlit draga úr umfangi mjaðm-
anna. Best er að forðast smágerð
mynstur. Veljið helst einlit sund-
föt í dökkum lit.Tvílit föt geta líka
gengið ef buxurnar eru til dæmis
dökkar en toppurinn litríkur eða
mynstraður. Hverskonar smá-
atriði á brjóststykkinu draga at-
hyglina að efri hlutanum og frá
mjöðmunum.
Stór
brjóSt
Dekkri litir, litablokkir þar sem
dekkri liturinn er ofan á og stór
mynstur eru best. Forðist lárétt-
ar rendur, veljið frekar sund-
föt með lóðréttum röndum eða
skáröndóttum sem breikka ekki
líkamann.
Veljið sundföt með V-háls-
máli eða djúpu hálsmáli sem
teygir úr líkamanum og dregur
úr brjóstastærðinni, án þess að
fela skoruna.
Breiðir hlýrar eða tvíbundnir
toppar tryggja góðan stuðning
og undirstrika grannar axlir.
Forðist spaghettí-hlýra og toppa
sem eru ekki bundnir, þar sem
þeir leggja enn meiri áherslu á
þetta svæði. Brjóstaskálar með
vírum gefa einnig nauðsynlegan
stuðning og lyftingu.
JarðarberJa-
draumur
fyrir sex
KexKöKur
Hráefni:
n 1 ½ bolli hveiti
n 1 ½ matskeið sykur
n 1 ½ tsk. lyftiduft
n ¼ tsk. salt
n ¼ tsk. matarsódi
n ¼ bolli af köldu ósöltuðu smjöri sem
búið er að skera niður í litla ferninga
n ¾ bolli mjólk
n 1 msk. rjómi
Setjið ofnskúffuna í miðjan ofninn og hitið
hann upp í 218°C.
Hveiti, sykur, lyftiduft, salt og
matarsódi eru sigtuð í skál. Blandið
smjörinu saman við þurrefnin með
fingrunum. Hellið mjólkinni út í og
hrærið í deiginu með gaffli þar til
það hefur tekið á sig mynd.
Þá skuluð þið þekja undirlag með
hveiti og setja hveiti á hendurnar.
Hnoðið deigið á hveitibornu und-
irlaginu. Fletjið deigið út og skiptið
því niður í sex jafnar kökur. Bleyt-
ið toppinn aðeins með mjólk eða
rjóma til að fá fallega áferð á kökurn-
ar. Bakið þær í 12 til 15 mínútur eða
þar til þær verða gullinbrúnar og
fallegar. Kælið kökurnar áður en fyll-
ingin er sett á.
fylling
Hráefni:
n 1,3 kíló eða 7 ½ bolli af jarðarberjum,
hreinsuðum og skornum í ferninga
n 1/3 – ½ bolli af sykri, eða eftir smekk
n 1 bolli rjómi
n ¼ bolli sýrður rjómi
n 1 ½ msk. af fínmöluðum sykri
n ½ tsk. vanilla
n 6 mjólkurkex, sjá uppskrift
Jarðarber eru sett í stóra skál og
sykri stráð yfir. Jarðarberin eru lát-
in standa óhreyfð í skálinni í fimm
mínútur. Pressið berin varlega svo
safinn fari úr þeim en varist að
mauka þau alveg. Látið jarðarberin
standa í 45 til 60 mínútur og hrærið
reglulega í þeim.
Þá skuluð þið blanda rjóma,
sýrðum rjóma, fínmöluðum sykri
og vanillu saman í skál og þeyta á
meðalhraða þar til blandan heldur
lagi sínu ágætlega án þess að vera
orðin stíf.
Skiptið kexkökunum upp í helm-
inga og setjið jarðarberin, jarðar-
berjasafann og þeytta rjómablönd-
una á milli og njótið.
Nú þegar sumarið er komið og sólin
er farin að skína er tilvalið að skarta
fallegum sumarkjólum og flagga
leggjunum. Þótt húðin sé auðvit-
að fljót að taka við sér og fá fallegan
tón í sólinni er engin ástæða til að
vera næpuhvít þar til það gerist. Til
að brúa bilið er oft gott að nota brún-
kukrem í smá tíma. Njóttu þess svo
að liggja í sólbaði og sundi á meðan
húðin fær sinn fullkomna sumarlit.
Áður en brúnkukrem er borið á
er best að jafna yfirborð húðarinn-
ar og fjarlægja dauðar húðfrum-
ur með kornakremi, skrúbbi eða til
þess gerðum hanska. Því næst skaltu
dreifa brúnkukreminu jafnt yfir húð-
ina. Gott er að vera í einnota hönsk-
um þegar kremið er borið á, þannig
kemur þú í veg fyrir að brúnar skellur
myndist á höndunum. Annars skaltu
þvo hendurnar reglulega á meðan þú
berð kremið á líkamann. Strjúktu létt
yfir hendur, olnboga og hné. Þegar
kremið er borið á andlit og hendur
getur verið gagnlegt að nota förðun-
arsvamp eða bómullarskífu. Forð-
astu sár, þurrkbletti og staði sem hafa
orðið fyrir ertingu. Ekki setja brúnku-
krem í augabrúnir eða hárlínuna.
Bíddu í korter áður en þú klæð-
ir þig í föt, til þess að koma í veg fyr-
ir smit, og berðu húðmjólk á húðina.
Annars er mikilvægt að lesa alltaf
leiðbeiningarnar á kremunum, því
það er misjafnt hvað þarf að gera til
að ná hámarksárangri. Sumum þyk-
ir reyndar best að byrja rólega með
húðmjólk sem gefur lit eða kremum
sem gefa stigvaxandi brúnku.
sumarleg og sæt Fyrirsæturnar skört-
uðu sólbrúnum leggjum á tískusýningu
Versace fyrir vorið 2010.
Taktu lit heima í stofu