Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2010, Síða 53
18. júní 2010 föstudagur 53
Argentínumaðurinn Gonzalo Hi-
guain er fæddur í Brest í Frakklandi,
10. desember árið 1987. Hann spil-
ar í dag knattspyrnu með stórliðinu
Real Madrid en hann kom þaðan frá
öðru stórliði, River Plate í Argentínu.
Higuain var keyptur aðeins nítján
ára gamall til Real Madrid og gat ekki
einu sinni keypt sér mark til að byrja
með. Endalaust traust á honum skil-
aði sér að lokum og í dag skorar hann
nánast að vild í spænsku úrvalsdeild-
inni. Hann var á fimmtudaginn fyrsti
maðurinn til að skora þrennu á HM
þegar Argentína lagði Suður-Kóreu,
4-1. Þetta var aðeins sjöundi lands-
leikur Higuains með Argentínu,
en það leið langur tími þar til hann
fékk kallið frá goðsögninni Diego Ar-
mando Maradona. Litlu munaði þó
að Higuain hefði aldrei spilað fyrir
Argentínu.
Næstum í fótspor Trezeguets
Það er ekki annað hægt að segja í
dag en að Higuain hafi tekið hárrétta
ákvörðun um að spila með Argentínu
en ekki Frakklandi. Allavega miðað
við ástina og kærleikann sem ríkir
í því liði og hvernig honum gengur,
5 mörk í 7 leikjum, á meðan enda-
laus óeining og pirringur ríkir inn-
an franska liðsins. Árið 2006 hafnaði
Higuain landsliðskalli frá bæði Arg-
entínu og Frakklandi því hann var
ekki viss um með hvoru liðinu hann
vildi spila. Hann hefði auðveldlega
getað fetað í fótspor framherjans
Davids Trezeguet, fyrrverandi mar-
kamaskínu franska landsliðsins, sem
fæddist Argentínumaður en spilaði
með Frakklandi. Þegar Frakkar köll-
uðu á hann í leik gegn Grikkjum árið
2006 höfðu þeir ákveðið að hann
myndi leika í treyju númer 26, alveg
eins og Trezeguet gerði fyrst.
Í febrúar árið 2008 spilaði Higua-
in tvo leiki með ólympíuliði Argent-
ínu og skoraði eitt mark. Það var síð-
an í byrjun árs 2009 að hann ákvað
framtíð sína. Hann vildi spila fyrir
Argentínu og bað um að vera keyrð-
ur í næsta sendiráð svo hann gæti
lýst yfir þjóðerni sínu.
Lengi að fá kallið
Maradona hefur verið mikið gagn-
rýndur fyrir leikmannaval sitt frá
því hann tók við og þá einna mest
fyrir að velja aldrei hinn sjóðheita
Higuain sem gjörsamlega lék sér að
varnarmönnum og markvörðum í
spænsku deildinni. Kallið kom þó
loks fyrir tvo síðustu leiki Argentínu
í undankeppninni, gegn Perú og Úr-
úgvæ. Higuain var ekki lengi að kom-
ast á blað og skoraði eitt mark í 5-4
sigri liðsins á Perú. Hann var síðan
í byrjunarliðinu sem tryggði sér far-
seðilinn til Suður-Afríku með sigri á
Úrúgvæ og bætti svo við öðru lands-
liðsmarki sínu í æfingaleik gegn
Þýskalandi sem Argentína vann, 1-0.
Því var ekki annað hægt fyr-
ir Maradona en að kalla á Higuain í
lokahópinn á HM og svaraði hann
kallinu strax í öðrum leik, gegn Suð-
ur-Kóreu á fimmtudaginn. Higuain
tók sig til og skoraði þrennu og voru
öll mörkin klassísk framherjamörk
sem snerust um það að vera á réttum
stað á réttum tíma. Hann fékk síðan
heiðursskiptingu og má segja hann
hafi endanlega tryggt sér sæti í byrj-
unarliði Maradona, svona allavega
þar til Maradona fær einhverja aðra
hugdettu, en það gæti gerst hvenær
sem er.
Erfitt uppdráttar
Higuain byrjaði að spila 16 ára með
River Plate í Argentínu og á að baki
32 leiki og 15 mörk með því liði. Það
var eftir að hann skoraði tvö mörk í
Superclásico-leiknum, nágrannaslag
Boca Juniors og River Plate, að liðið
gat ekki haldið honum lengur. Real
Madrid keypti hann og liðsfélaga
hans í janúar 2006 fyrir stórfé. Sagði
þjálfari River Plate að Higuains biðu
miklir hlutir. Real Madrid hugsaði
til framtíðar og gerði sex og hálfs árs
samning við piltinn.
Fyrsta hálfa árið gekk ekkert hjá
Higuain sem hefði ekki getað keypt
sér mark þótt líf hans lægi við. Að-
eins tvö mörk í nítján leikjum ollu
gífurlegum vonbrigðum og var fast-
lega búist við því að hann yrði seld-
ur og myndi falla í gleymskunn-
ar dá hjá þessu mikla stórliði. Árið
eftir skoraði hann átta mörk í tut-
tugu og fimm leikjum og hefði getað
skorað svo miklu, miklu fleiri. Hann
brenndi af endalausum færum en
hafði alltaf traust til að spila næsta
leik.
Higuain hélt framherjum á borð
við Raúl, Nistelrooy og Huntelaar
fyrir aftan sig og á endanum borg-
aði þetta endalausa traust sig. Á þar-
síðustu leiktíð fóru hæfileikar hans
að skína í gegn þegar hann skor-
aði tuttugu og fjögur mörk í öllum
keppnum. Það var síðan á síðasta
tímabili hann sannaði sig endanlega
sem ofurstjarna. Hann skoraði tut-
tugu og sjö mörk í deildinni, tuttugu
og níu í öllum keppnum auk þess að
leggja upp sæg af mörkum fyrir fé-
laga sína.
Uppgangur Higuains hefur ver-
ið hraður og þegar þetta er skrifað
er hann markahæsti leikmaður HM
2010. Enginn ætti að veðja gegn því
að hann endi sem sá markahæsti
því hann virðist skora fleiri og fleiri
mörk með hverjum deginum sem
líður.
Gonzalo Higuain, Argentínumaður sem fæddist í Frakklandi, tók þá ákvörð-
un fyrir tveimur árum að leika fyrir Argentínu en ekki Frakkland. Hann varð fyrsti
maðurinn til að skora þrennu á HM í Suður-Afríku en uppgangur þessa 22 ára pilts
hefur verið með ólíkindum. Félagslið hans Real Madrid hefur borið mikið traust til
hans, sem svo sannarlega borgaði sig. Það leið langur tími þar til hann fékk kallið í
argentínska landsliðið en hefur svo sannarlega sýnt að þar á hann heima.
Rétt ákvöRðun
HiG ai s
Tómas þór þórðarsoN
blaðamaður skrifar: tomas@dv.is
næstuleikiR
18. júní kl. 11:30:
Þýskaland - serbía
í D-riðli
n Tvö lið sem byrjuðu mótið á
algjörlega ólíkan hátt. Þjóðverjar
völtuðu yfir Ástrali á meðan Serbar
töpuðu fyrir Gana og ollu þvílíkum
vonbrigðum. Hvað gera Þjóðverjar
gegn skipulagðri evrópskri þjóð?
18. júní kl. 14:00:
slóvenía -
bandaríkin í C-riðli
n Lykilleikur fyrir bæði lið upp á 16
liða úrslitin. Bandaríkin eru sterkari
á pappírnum en Slóvenar gerðu
margt fínt gegn Alsír í fyrsta leik og
hafa þrjú stig, en Kanarnir bara eitt.
18. júní kl. 18:30:
england - alsír í C-riðli
n Það er eins gott fyrir Englendinga
að vinna þennan, annars verður
einfaldlega allt vitlaust. Rooney og
Ashley Cole eru klárir þannig að
sigur er skylda hjá enskum. Verður
Green í markinu?
19. júní kl. 11:30:
Holland - japan
í E-riðli
n Hollendingar voru alls ekki
sannfærandi gegn Dönum en unnu
samt. Japanir voru aftur á móti
flottir í sigri sínum á Kamerún.
Þetta verður fróðlegur leikur
þó þeir appelsínugulu séu mun
sigurstranglegri.
19. júní kl. 14:00:
gana -Ástralía
í D-riðli
n Gana byrjaði mótið á flottum sigri
á Serbíu. Ástralir voru rassskelltir af
Þjóðverjum og verða án Tims Cahill
í leiknum, síns besta manns. Gana
getur nánast komið sér í 16 liða
úrslitin annað mótið í röð með sigri.
19. júní kl. 18:30:
kamerún - danmörk
í E-riðli
n Bæði lið eru með bakið upp við
vegg og verða hreinlega að vinna.
Þetta er leikurinn sem allir voru
að bíða eftir í riðlinum en Japanir
hleyptu honum svo sannarlega upp
með sigri á Kamerún. Það breytir því
ekki að tapliðið hér er úr leik.
20. júní kl. 11:30:
slóvakía -
paragvæ í F-riðli
n 1-1 jafntefli var niðurstaðan í
báðum leikjum F-riðils í fyrstu
umferð og er riðillinn því á pari.
Slóvakar voru kjánar að halda ekki
sigri gegn Nýja-Sjálandi á meðan
Paragvæjar náðu í gott stig gegn
heimsmeisturum Ítala.
20. júní kl. 14:00:
ítalía - nýja-sjÁland
í F-riðli
n Stuðullinn er ekki hár á Nýja-Sjá-
landi þó það hafi náð í sitt fyrsta
stig á HM frá upphafi í fyrsta leik.
Þegar Ítalía og Nýja-Sjáland mætast
vita allir hver vinnur..
20. júní kl. 18:30:
brasilía - fílabeins-
ströndin í G-riðli
n Fílabeinsströndin og Portúgal ollu
miklum vonbrigðum í fyrstu umferð
og er ekki ólíklegt að Sven stilli
áfram upp í vörn gegn Brössunum.
Þarna ættum við samt að geta séð
smá takta.
Þrenna Higuain skoraði
þrennu gegn Suður-Kóreu.
myNd aFP