Dagblaðið Vísir - DV - 16.07.2010, Side 36
36 viðtal 16. júlí 2010 föstudagur
Þær Alma Guðmundsdóttir, Klara El-
íasdóttir og Steinunn Camilla Sigurð-
ardóttir í hljómsveitinni The Charl-
ies sóttu sjálfan klámkónginn Hugh
Hefner heim á dögunum en hann var
gestgjafinn í svokölluðu „ESPY pre
party“ sem er haldið fyrir ESPY-verð-
launahátíðina. Veislan var haldin á
Playboy-setri Hefners í Los Angeles
sem er talið til glæsilegustu híbýla í
Hollywood. Stúlkurnar feta þar með
í fótspor Íslendinga á borð við Ásdís
Rán og Önnu Möll en þær hafa báðar
notið gestrisni klámkóngsins.
Geggjað partí
Þegar blaðamenn DV heyrðu í stelp-
unum var klukkan aðeins 9 um
morguninn eftir veisluhöldin og voru
þær heldur rámar enda nývaknaðar.
„Partýíið var alveg geggjað. Setrið
sjálft og garðurinn er ekkert smá stór
og flottur,” segir Alma Guðmunds-
dóttir eða Alma Goodman eins og
hún er kölluð í Bandaríkjunum. Það
var rosalega fínn matur og opinn
bar.“
Stúlkurnar skemmtu sér stórkost-
lega og sáu fjöldann allan af kvik-
myndastjörnum. „Við sáum stjörnur
á borð við Jamie Foxx, Joaquin Pho-
enix, Paul Shore og Kim Kardashian,
en þar sem þetta var ESPY All Star-
partí var líka mikið af þekktu íþrótta-
fólki þarna. Við sáum ekki Hugh
Hefner sjálfan.“ segir Alma. Kim Kar-
dashian er einmitt nýbúin að sitja
fyrir nakin í Playboy og var mynda-
þátturinn með henni einn sá stærsti
frá upphafi. Setur Hughs Hefner er
risavaxið, yfir 2.000 fermetrar og eru
29 herbergi í húsinu sem er kallað
Edengarðurinn. Ásdís Rán fór í partí
á borð við það sem Ölmu og stöll-
um hennar var boðið í, og sagði hún
í viðtali við Vísi að húsið
hefði verið troðfullt af
hálfnöktu kven-
fólki – enda í
Eden. Má því
gera ráð fyrir
því að veisl-
an hafi verið
ansi villt.
Með sama útgáfufyrirtæki
og Queen
The Charlies eru á samningi hjá
Hollywood Records sem hefur
meðal annars haft umboð fyrir
Queen og eru þær stöllur nánast
alla daga í stúdíóinu að taka upp
tónlist. Hollywood Records er
í eigu Disney-samsteypunn-
ar og hefur einbeitt sér
að skjólstæðingum fyr-
ir yngri markhópa á
borð við Miley Cirus
og Jonas Brothers.
Stúlkurnar búa saman í lítilli íbúð í
LA.
„Það gengur rosalega vel hjá okk-
ur stelpunum hérna. Við erum bara
á fullu í upptökum og fljótlega fer að
skýrast hvenær við komum til með
að gefa út fyrsta lagið okkar,“ segir
Alma og kveður enda er klukkan að-
eins níuað morgni hjá þeim Charl-
ies-skvísum og eftir partí hjá Hugh
Hefner er nokkuð ljóst að það þarf að
sofa út!
Hittu Kim
Kardashia !
Skvísurnar í The Charlies fóru í heimsókn til hins eina sanna Hughs Hefner á Playboy-setrinu:
Bombur á setrinu Skvísurnar í The Charlies voru logandi heitar við gosbrunninn á
setrinu.
Jamie Fox Sprellarinn Jamie Foxx var
svo heppinn að vera í sama partíi og
pæjurnar í The Charlies.
Playboy-setrið Hugh heldur villtustu
partíin í Hollywood.
Hugh Hefner 84 ára og enn í fullu fjöri!
Kim Kardashian Kim birtist nakin á
síðum Playboy á dögunum. The Charlies
sáu þokkadísina í partíinu.
Í kvennafans Hugh Hefner
með nokkrum kanínum í
ESPY-veislunni sem þeim
stöllum í Charlies var boðið til.