Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Qupperneq 27

Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Qupperneq 27
„Alveg klárlega.“ Ágúst Þór Ágústsson 22 árA, leikskólAkennAri. „ekkert endilega.“ Jakobína guðmundsdóttir 45 árA, sölustjóri. „já, mér finnst það.“ Viktor richardson 21 árs, nemi og bArþjónn. „já, mér finnst það svo sannarlega.“ katrín bJörnsdóttir 19 árA, nemi. „já, það finnst mér.“ guðrún guðmundsdóttir 50 árA, dAgmóðir.“ Eiga ríki og kirkja að vEra aðskilin? sólVeig hlín sigurðardóttir gekk ásamt fjölda starfsfólks og vistmanna sumarbúðanna í reykjadal í sólarhring til þess að bjarga búðunum úr fjárhagskröggum. Vegna göngunnar söfnuðust 18 milljónir inn á styrktarreikning, en einnig var söfnunarsími til staðar. sólveig er forstöðumaður sumarbúðanna, en þar geta börn og ungmenni sem eiga við fötlun að stríða átt góðar stundir, líkt og önnur ungmenni í sumarbúðum. til stóð að loka sumarbúðunum vegna niðurskurðar hjá reykjavíkurborg, en söfnunin hefur komið í veg fyrir það. Hamingjan, Heilsan og gleðin Það merkilegasta við að koma heim eftir mátulega langa dvöl ann- ars staðar er að sjá hvað lítið hef- ur breyst. Þegar ég for utan síðasta sumar var Icesave helsta umræðu- efnið. Þegar ég kom heim tveim mánuðum síðar var það enn helsta umræðuefnið, og myndi vera langt fram eftir vetri. Þegar ég fór í burtu núna var það ólögmæti myntkörfu- lána. Enn er allt í óreiðu og ekkert hefur gerst. Ætli veturinn fari ekki í þetta líka. Það sem maður er helst spurður um í útlöndum þessa dagana er um- sókn Íslands í ESB. Eftir að gosi lauk virðist þetta vera það sem helst er fréttnæmt héðan. Hér heima virðast fæstir vilja af þessari umsókn vita. Umræðan virðist þó hægt og rólega vera að fara í gang og er eins ómál- efnaleg og hugsast getur. Spurning- in virðist snúast um það hvort mað- ur sé með eða á móti nasismanum. Á lægra plani getur það varla verið. Virki sjálfstæðisflokksins Samkvæmt nýjustu könnun Capa- cent er fylgi flokkanna nú komið í sama horf og fyrir hrun. Vinstri- grænir voru þeir sem komu út úr hruninu með hreinan skjöld, en virðast staðráðnir í að sóa þeirri góðvild í innherjadeilur. Samfylk- ingin fer þá að virðast skynsamari í samanburðinum og hækkar lítil- lega. Besti flokkurinn var bjartasta vonin, en þrátt fyrir að leiðtoginn láti mynda sig í kjól er flokkurinn óðum farinn að verða bara enn einn stjórnmálaflokkurinn. Með því er ef til vill tilvistargrundvöllurinn horf- inn, og hann er mögulega kominn við hlið hreyfingaflokkanna sem þurrkast líklega út í næstu kosning- um. Það hefði verið gaman að sjá hvað hefði gerst ef þessi nýju fram- boð hefðu tekið sig saman. En þar sem hugmyndirnar grassera er erfitt að koma sér saman um neitt, þetta vita Vinstri-grænir best. Á móti stendur virki Sjálfstæðisflokksins. Þaðan heyrist bara ein rödd, og hún er hávær. guðlaugur Þór: maður fólksins? Líklega mun Framsókn hafa þetta af þrátt fyrir allt, og flokkakerfið stend- ur eftir óhaggað. Jafnvel Guðlaug- ur Þór Þórðarson, sem var nánast holdtekning styrkjastjórnmálanna þegar hann horfði niður á skrílinn á Austurvelli í jakkafötum sínum, virðist vera að eiga endurkomu. Það kom í ljós að hann hafði þegið hærri styrki en flestir, en hann tók út viðtal þar sem hann stillti sér upp sem ein- mana riddara gegn klíkukerfi Sjálf- stæðisflokksins og nú, í peysu og með skeggbrodda, er hann á góðri leið með að stilla sér upp sem væri hann maður fólksins. Eitt og hálft ár er langur tími í stjórnmálum. Mesta hættan sem steðjar að ríkisstjórninni er þó ekki ESB-um- sóknin, myntkörfulánin eða sund- urlyndi hennar. Mesta hættan liggur þvert á móti í velgengni hennar. Því þrátt fyrir gengdarlausan pólitískan vandræðagang hefur hún staðið sig undarlega vel í efnahagsstjórnun landsins. Svo virðist sem kreppan verði minni og skemmri heldur en nokkur gerði ráð fyrir, ekki síst sjálf- stæðismenn sjálfir. Fram í næsta góðæri En um leið og henni tekst að koma landinu á réttan kjöl er hlutverki hennar lokið. Vinstristjórn get- ur aldrei starfað hérlendis nema með samþykki Sjálfstæðisflokks- ins. Hann hefur sín ráð, svo sem að kaffæra hana með Icesave, þeg- ar honum hentar. En það undarlega er að í hvert sinn sem sjálfstæðis- menn virðast við það að fella stjórn- ina draga þeir í land. Líklega hefur það hentað þeim vel að vera ekki við stjórn í kreppunni. Fólk man að þegar þeir voru síðast við völd var góðæri. Síðan tekur vinstristjórn við og þarf að taka allar erfiðu ákvarð- anirnar og sjá um niðurskurðinn. En þegar því verki er lokið og efna- hagurinn fer að rétta úr sér er kom- inn tími til fyrir þá að taka við á ný. Þannig fá sjálfstæðismenn að ráð- stafa auðnum í næsta góðæri, og all- ir sjá að vinstrimenn kunna ekki að fara með peninga. Er það ekki alltaf þannig? Allt hljótt á heimavígstöðvunum myndin hver er konan? „sólveig Hlín sigurðardóttir, forstöðu- kona reykjadals.“ hvað drífur þig áfram í lífinu? „brosið hennar matthildar maríu minnar á morgnana, gleðin í reykjadal og svo lífið sjálft.“ hverjar eru fyrirmyndirnar? „án efa foreldrar mínir og hann afi jói heitinn.“ hvað færðu þér í morgunmat? „ristuð beygla og rjúkandi gott grílukan- ilkaffi. eða Cheerios. reyndar frekar oft Cheerios.“ hvar ólst þú upp? „Í Hafnarfirði. Ég bý þar enn og mun sennilega búa í þessum yndislega bæ það sem eftir er.“ hver eru áhugamálin? „náttúran, sund, yndislegar stundir með manninum mínum og litlu dóttur okkar og síðast en ekki síst frábæra vinnan mín í reykjadal.“ gekk gangan eins og í sögu? „svo sannarlega! eins og í fallegu ævintýri þar sem draumar allra rætast í lokin.“ hvað er fram undan? „Ég get sagt með stolti að ég er að fara að skipuleggja veturinn í reykjadal.“ hvaða bók last þú seinast? „tuesdays with morrie. mannbætandi bók sem minnir mann á hvað er mikilvægast í lífinu.“ hvað er mikilvægast í lífinu? „Hamingjan, heilsan og gleðin og fólkið mitt sem er mér svo dýrmætt.“ maður dagsins dómstóll götunnar kjallari föstudagur 20. ágúst 2010 umræða 27 „Jafnvel Guðlaugur Þór Þórðar- son, sem var nánast holdtekning styrkjastjórnmálana þegar hann horfði niður á skrílinn á Austurvelli í jakkafötum sínum, virðist vera að eiga endurkomu. Valur gunnarsson rithöfundur skrifar Veðurblíða einmuna veðurblíða hefur verið vítt og breitt um landið að undanförnu. reykvíkingar nutu góða veðursins eins og aðrir í almenningsgörðum og víðar. nú er menningarnótt framundan og líkur eru á hæglætis veðri, jafnvel þótt ögn taki að kólna. mynd sigtryggur ari
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.