Dagblaðið Vísir - DV - 20.08.2010, Blaðsíða 28
Í gegnum tíðina hef ég haft skoðanir á samfélaginu og stjórnmálum. Bara ef ég gæti beðist afsökunar á hverri einni og einustu. Í dag held ég að ég
sé blessunarlega laus við þann öm-
urlega mannlega eiginleika, að hafa
hugsjónir um samfélagið. Hugsjóna-
fólk er heimskasta og ömurlegasta
fólk sem til er. Mannkynssagan hefur
bara kennt okkur eitt; það er bara ein
leið til þess að stjórna hlutunum, hin
illa. Svo það er sama hvort Davíð Oddsson
eða Steingrímur Joð sitja í brúnni, við gætum
alveg eins haft einn Labrador, sama niður-
staða. Hvers á ég að gjalda?
Afhverju þarf ég að vakna upp
á hverjum morgni og hlusta
á gjálfrið í Atla Gíslasyni, eða
horfa framan í greppitrýnið á
Sigmundi Davíð. Af hverju þurfti mín kynslóð að horfa upp á Davíð
Oddsson verða ritstjóra Morgunblaðsins, Kristján Arason „finta“ sig út
úr kúluláni og RÚV spila rassinn svo ærlega upp úr brókinni, að heilu
kynslóðirnar sem ekki hafa fengið snefil af menningu eða skemmti-
efni af hálfu ríkisins í fleiri ár, eru virkilega að horfa á eftir Spaugstof-
unni með söknuði.
Það er líklega búið að eyðileggja þetta land. Efni er of dýrt, hið andlega of rýrt. Ef það væri ekki fyrir blómlegt menningarlíf og listir, þá myndi ég persónulega bera eld að landinu í heild sinni, í von um að hægt væri að byrja upp á nýtt fyrir aurinn úr
tryggingunum. Uppbyggingin er ekki nærri því hafin, niðurrifið er rétt
að byrja.
Það er fátt jafn leiðinlegt og meinhorn, „sem verða að komast
af þessu skítaskeri,“ en
ég má segja þetta því
ég er á förum.
Ég er á leiðinni til Þýskalands, en ekki til Berlínar eins og ann-
ar hver fötuhaus úr
Breiðholtinu sem
kynnst hefur léttleik-
anum í Prenzlau-
er Berg. Nei ég er að
fara til smábæjarins
Giessen, rétt fyrir utan
Frankfurt. Þar sem
Augustiner-bjórinn
er kaldur eins og íshafið sem umlykur Grænland, og „curriwurstið“
gjörsamlega öskrar á eftir manni á hverju götuhorni. Ég er að fara í
skiptinám. Listnám í Þýsklandi og það fyrsta sem ég ætla að gera er
að grjótleika feisbúkk síðunni minni. A) Ég vil ekki að vinir mínir geti
njósnað um mig, þegar ég gjörsamlega ríf öll höft, kem fram nakinn
og blóðugur á listasýningu gargandi setningar upp úr Snorra Eddu á
meðan þýskur „kunst-professor“ mjálmar: „schön“ og brotnar á end-
anum niður vegna þess menningarlega álags sem ég hef lagt á hann.
B) Ég vil ekki láta jafn aumkunarverða hluti og internetið og Íslend-
inga trufla mig á meðan ég gjörsamlega drekk í mig allt sem Þjóðverj-
inn hefur upp á að bjóða. C) Ég vil ekki að Giessen verði
Íslendinganýlenda, þegar ljóst verður að hægt er að
halda partíinu gangandi annars staðar.
Það er undarlegt að vera 25 ára drengur og líta á Þýskaland sem fyrirheitna landið. Einu sinni var það Danmörk, en í síðustu ferð minni neyddist ég til að skipta á ein-
um iPhone 3gs og kebab á sléttu, og í ljósi einok-
unarverslunarinnar þá fannst mér ég bara ekki
eiga það skilið. Danir hafa hvort eð er ekki
verið „ligeglad“ síðan Kim Larsen varð fast-
eignajöfur. Fyrir mig verður það Þýskaland,
Þýskaland, ofar öllu.
Svo held ég heim þegar ég verð búinn að gjörsamlega móta mér nýtt útlit þarna, verð eins og hinn dæmigerði Vestur-Þjóðverji í bland við eitthvað
það tilgerðarlegasta sem ég finn í þýskum
verslunum. Vel greiddur, skeggjaður, með
byssupúður blandað í rakspíra, svo ég lykti
eins og Reichstag-ið í maí 1945. Svo þegar
ég lendi í Keflavík, man ég skyndilega eftir
því hvernig sumarið og veturinn mætast
á vorin í Mosfellsdalnum, hvernig íslensk
tunga getur glatt bæði hug og hörund. Og
ég skrökva að öllum að ég hafi gert ótrú-
lega gott mót í Þýskalandi. Ég verð Garðar
Hólm, alveg eins og allir hinir aumingj-
arnir. Og viti menn, á meðan á dvöl minni
stóð, óx eitt blóm í smáíbúðahverfinu. Og
ég vitja þess, og ég segi: „das bin ich, dein
Vater.“ Bravó.
Á fund Garð-
arS Hólm
28 umræða 20. ágúst 2010 föstudagur
dóri dna skrifar
helgarpistill
Ég sé á netinu að ýmsir eru að agnú-
ast út í þá bloggsíðu sem Björgólfur
Thor Björgólfsson hefur nú opnað og
birtir fullt af skjölum og upplýsing-
um um fjármál hans og bissniss, allt
frá því að hann, ásamt föður sínum
og Magnúsi Þorsteinssyni, eignað-
ist Landsbankann á sínum tíma og
þangað til hrunið reið yfir.
Sumir virðast hneykslast á því í
sjálfu sér að Björgólfur Thor opni
þessa síðu þar sem hún hljóti að vera
eintóm sjálfsréttlæting fyrir hann og
ekkert að marka neitt sem þar kemur
fram. Þess sjónarmiðs hefur jafnvel
orðið vart, sýnist mér, að vegna þess
að Björgólfur Thor átti þátt í hruninu
2008, þá skuli hann ekki voga sér að
bera hönd fyrir höfuð sér með þess-
um hætti – það sé hrein ósvífni. Hann
eigi bara að þegja úti í sínu horni.
DAVÍÐ OG JÓN ÁSGEIR
BIRTI SÍNA HLIÐ
Aðrir hafa viðrað þá skoðun að þótt
máske sé í lagi að hann opni svona
vefsíðu, þar sem hann setur fram sín
sjónarmið og birtir skjöl sem hann
telur sér hagstæð, þá eigi fjölmiðlar
ekki að rjúka upp til handa og fóta og
taka þátt í því með honum að auglýsa
þetta einkablogg.
Ég verð eiginlega að vera ósam-
mála öllum þessum röddum. Í fyrsta
lagi finnst mér í hæsta máta eðlilegt
að Björgólfur Thor birti efni af þessu
tagi, jafnvel þótt það hljóti náttúrlega
að miðast fyrst og fremst við hann
sjálfan og hans sjónarmið. Ég myndi
líka telja mikinn feng í því ef Davíð
Oddsson birti efni úr sínum fórum.
Það væri mjög fróðlegt og auðvitað
væri ekki hægt að ætlast til þess að
hann legði sig beinlínis í líma við að
birta eitthvað sem kæmi honum illa.
Ég myndi líka fagna því ef Jón Ás-
geir birti sem mest af sínum plögg-
um – þó að í hans tilfelli munum við
kannski fá að sjá meirihlutann af því
sem hann lumar á, þar sem hann
leggur slík plögg væntanlega fram í
þeim réttarhöldum sem fram undan
eru hjá honum.
Í stuttu máli sagt, því meira sem
birt er og frá þeim mun fleiri aðil-
um sem komu við sögu hrunsins, því
betra.
DULARFULLT HÁTTERNI
SEÐLABANKASTJÓRA
Í öðru lagi er ljóst að í þeim plöggum
sem Björgólfur Thor hefur nú birt er
ýmislegt hnýsilegt. Ég hef ekki lesið
þetta nærri allt ennþá, en bara upp-
lýsingar eins og þær sem komu fram
í skýrslu Björns Jóns Braga sonar
sagnfræðings gera birtingu skjal-
anna fyllilega réttlætanlega.
Þótt ekki sé það gleðiefni sem þar
kemur fram. Fjölmiðlar birtu tölu-
vert úr þessari skýrslu í gær, ekki síst
lýsingar á hátterni seðlabankastjóra
sumarið 2008. Það virðist hafa verið
mjög dularfullt, svo ekki sé nú fast-
ar að orði kveðið. Á þeim örlagaríku
vikum þegar við héldum að stjórn-
völd í landinu hefðu sameinast um
að stækka gjaldeyrisforðann til að
forða veseni í bankakerfinu, þá vann
Davíð Oddsson seðlabankastjóri
beinlínis gegn því að forðinn yrði
stækkaður og lán tekin erlendis.
Ekki veit ég hvort það hefði bjarg-
að bankakerfinu þótt gjaldeyrisforð-
inn hefði verið stækkaður. Sennilega
ekki, en það hefði þó líklega gefist
tóm til þess að vinda ofan af kerfinu,
þannig að hrunið hefði ekki þurft
að verða jafnalgert og ömurlegt og
raunin varð.
VORU GLÆPAMENN
Í BÖNKUNUM?
Sumir munu kinka kolli þegar þeir
lesa í skýrslunni að Davíð hafi sagt
við mann og annan þetta sumar að
við stjórn í bönkunum væru „glæpa-
menn“ sem þyrfti að losna við, og
segja sem svo að það hafi nú heldur
betur komið í ljós. Vissulega kom á
daginn að maðkar voru í mysu bank-
anna, þótt persónulega muni ég ekki
nota orðið „glæpamenn“ fyrr en sekt
hefur verið sönnuð samkvæmt regl-
um réttarríkisins, en það er þó öld-
ungis ljóst að maður í embætti seðla-
bankastjóra átti ekki að fara um með
slíku gaspri á mjög viðkvæmum tím-
um – hann átti að hafa önnur ráð til
að temja bankana, en beinlínis koma
þeim á kné.
En öll sú saga um hvernig hefði
getað farið verður auðvitað aldrei
skrifuð nema í viðtengingarhætti.
Við sitjum uppi með þá sögu sem
gerðist – við sitjum uppi með hátt-
erni Davíðs, réttarhöld Jóns Ásgeirs,
bloggsíðu Björgólfs Thors ...
Síðasta atriðinu, að fjölmiðlar
hefðu ekki átt að „auglýsa“ bloggsíðu
Björgólfs Thors svo mjög sem raun-
in var, er ég líka ósammála. Það er
ekki í öllum tilfellum sama hvaðan
gott kemur (eins og það var orðað!),
en þegar málið snýst um upplýsing-
ar er það vissulega raunin. Og fjöl-
miðlar og allur almenningur eiga að
taka fagnandi þeim skjalabunkum
og skýrslum sem Björgólfur hefur nú
birt. Að sjálfsögðu hljóta menn að
lesa öll þessi plögg með fyrirvara um
hvaðan þau eru komin og alltaf hafa
bak við eyrað að ekki sé endilega víst
að öll sagan sé sögð – en það myndi
nú gilda í flestöllum tilfellum hvort
sem er, hvaðan sem upplýsingar af
þessu væru komnar. Mér finnst því
framtak Björgólfs Thors gott og vona
að sem flestir feti í fótspor hans.
VEFSÍÐA LÁRU HÖNNU HORFIN
En af því tilefni langar mig líka til að
vekja athygli á því að aðeins nokkr-
um dögum áður en síða Björgólfs
Thors opnaði, þá hvarf af netinu vef-
síða Láru Hönnu Einarsdóttur, en
þar hafði hún – auk þess að setja fram
eigin skoðanir í bloggformi – safnað
gríðarlegu magni af upplýsingum
úr sjónvarpi, útvarpi, blöðum og
upp úr allskonar skýrslum – og laut
allt að hruninu, aðdraganda þess
og viðbrögðum. Ég þarf ekki að fjöl-
yrða neitt um vefsíðu Láru Hönnu,
allir sem fylgjast með samfélagsum-
ræðu þekkja síðuna hennar. Hún
var síðast vistuð á Eyjunni, en fyr-
ir skömmu tilkynnti Lára Hanna að
hún yrði að hætta að sinna síðunni
sinni, þar sem hún hefði hreinlega
ekki efni á því lengur að gera það allt
í sjálfboðavinnu. En hún hefur aldrei
fengið neins konar borgun fyrir alla
sína stórmerku vinnu við að halda
saman heimildum um þá merkilegu
tíma sem við lifum nú. Afleiðingin af
því að Lára Hanna hefur nú þurft að
fara að sinna sínu brauðstriti er sem
sagt sú að hin stórmerka síða henn-
ar er nú horfin og þar með allt það
gríðarlega magn af upplýsingum og
heimildum sem þar voru vistaðar.
MEIRA BRUÐL
Ég veit ekki nákvæmlega hvernig
annaðhvort hið opinbera eða stofn-
anir þess, eða jafnvel bara einkafyr-
irtæki, gætu farið að því að liðsinna
Láru Hönnu við að varðveita heim-
ildasafn sitt og bloggsíðu – en hitt
veit ég að víða í opinberu kerfi og
rekstri fyrirtækja á sér stað meira
bruðl en myndi felast í því að halda
utan um þetta merkilega safn og að-
stoða Láru Hönnu við að auka enn
við það.
Ég fagna sem sagt bloggsíðu Björ-
gólfs Thors. Ég mundi fagna því enn
meira ef bloggsíða Láru Hönnu gæti
líka haldist opin. Upplýsingar á þess-
um síðum gefa kannski misjafna sýn
á hrunið, en vafalaust jafnnauðsyn-
lega þegar upp verður staðið.
trésmiðja illuga
Ég myndi líka telja
mikinn feng í því
ef Davíð Oddsson
birti efni úr sínum
fórum.
Illugi Jökulsson telur feng að bloggsíðu Björgólfs Thors Björ-
gólfssonar, en mikinn missi að því að bloggsíða Láru Hönnu er
horfin af netinu
BlOGGIð HanS
BJÖrGólfS