Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
Lúxuslíf í skugga
milljarða skulda
Björn Leifs-
son, betur
þekktur sem
Bjössi í líkams-
ræktarstöðinni
World Class, hefur
ekki látið fjárhags-
erfiðleika fyrir-
tækis síns koma í
veg fyrir íburðar-
mikinn lífsstíl. Hann er að byggja
150 fermetra sumarbústað í dýrasta
og vinsælasta sumarbústaðahverfi
landsins við Þingvallavatn og er ný-
kominn úr lúxusferð með fjölskyldu
sinni til Mexíkó og Bandaríkjanna. Á
myndum úr ferðinni, sem birtar eru á
netinu og DV birti á mánudag, má sjá
fjölskylduna synda með höfrungum
og flatmaga á strönd í Mexíkó og sitja
í limmósínu í New York í Bandaríkj-
unum.
Sleppur við
skuldahalann
Skuld
eignar-
haldsfélags Lúð-
víks Bergvinsson-
ar, fyrrverandi
þingmanns Sam-
fylkingar, nemur
rúmum milljarði
króna. DV greindi
frá því á mánu-
dag að Landsbankinn hefði leyst fast-
eign félagsins til sín í febrúar í fyrra.
Lánið er í vanskilum um nærri hálfan
milljarð. Skuldir félagsins eru um 400
milljónum hærri en virði eigna. Lúð-
vík hætti þingmennsku í fyrra í kjölfar
hrunsins. Í skýrslu rannsóknarnefnd-
ar Alþingis kemur fram að Lúðvík hafi
verið fjórði skuldugasti þingmaður-
inn á árunum fyrir hrunið en skuldir
tengdar hans nafni námu 755 milljón-
um króna samkvæmt skýrslunni.
Skuldugasti
bankastjórinn
Þorvald-
ur Lúðvík
Sigurjónsson, for-
stjóri fjárfestinga-
bankans Sögu,
skuldar vel á ann-
an milljarð króna.
Skuldirnar eru í
eignarhaldsfélagi
og á honum per-
sónulega. Þorvaldur skuldar kaup-
verð hlutabréfa í Sögu Capital og þá
fékk hann lán frá Sögu fyrir flugskýli.
Þorvaldur Lúðvík er meðal annars
þekktur fyrir að hafa hætt í Kaupþingi
árið 2006 þar sem hann gegndi stöðu
framkvæmdastjóra eigin viðskipta
bankans. Hann var skráður með
rúmlega 1.600 milljóna króna lán
hjá Kaupþingi árið 2006, samkvæmt
lánabók bankans.
Fréttir vikunnar í DV
1 2 3
Opið virka daga kl. 9 -18
og á laugardögum kl. 11 - 16
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
AIR-O-SWISS
rakatækin
Bæta rakastig og vinna gegn:
• Slappleika og þreytu
• Höfuðverkjum
• Augnþurrki
• Astma
Auka vellíðan og afköst
Verð 23.950 kr.
Matthíasar enn saknað:
Bíllinn fannst
brunninn
Rússajeppi sem talinn er tilheyra
Matthíasi Þórarinssyni, sem leitað
hefur verið síðan á mánudaginn,
fannst brunninn til kaldra kola á
fimmtudag skammt frá malarnám-
um á Kjalarnesi. Matthías var ekki
í bílnum og þar
var heldur engar
frekari vísbend-
ingar að finna
um ferðir hans.
Samkvæmt lög-
reglu er greini-
legt að jepp-
inn brann fyrir
nokkru.
Ekkert hefur
spurst til Matthí-
asar síðan fyrir jól. Að sögn lögreglu
mun hann vera mikill einfari en
hefur þó alltaf látið fjölskyldu sína
reglulega vita af ferðum sínum.
Hann hætti því hins vegar rétt fyrir
jól.
Talið er hugsanlegt að síðast hafi
sést til Matthíasar á Selfossi í vikunni
fyrir jól. Þá var hann staddur á Aust-
urvegi á móts við mjólkurbú Flóa-
manna á leið til austurs.
Samkvæmt lögreglu sker Matthí-
as sig töluvert úr hvað klæðaburð
varðar og klæðist gjarnan fötum
sem hann saumar sjálfur. Þegar sást
til hans síðast var hann klæddur
í græna úlpu og gallabuxur. Þá er
hann oft með svart svokallað buff á
höfðinu.
Kvörtun leiddi
til fíkniefnafundar
Talsvert af fíkniefnum fannst við hús-
leit í íbúð í miðborginni í nótt en þang-
að fór lögreglan eftir að henni barst
kvörtun vegna hávaða. Innandyra
voru þrír karlar í miður góðu ástandi
og voru þeir allir handteknir og fluttir í
fangageymslu. Í íbúðinni voru greini-
leg merki um fíkniefnaneyslu. Við
frekari leit fundust fíkniefni, meðal
annars amfetamín, hass og marijúana,
en talið er að þau hafi verið ætluð til
sölu. Á sama stað var einnig lagt hald
á muni sem grunur leikur á að séu þýfi.
Þremenningarnir, tveir á fertugsaldri
og einn um fimmtugt, hafa allir áður
komið við sögu hjá lögreglu.
„Maðurinn minn er sendibílstjóri
og hefur unnið við það í 35 ár.
Vinnuframboð í þeim geira datt nið-
ur eins og alls staðar annars stað-
ar í kreppunni og hann sá fram á
að hafa lítið að gera. Hann fór því
að líta í kringum sig og sá tækifæri
í kreppunni,“ segir Sigrún Unn-
steinsdóttir sem ásamt eiginmanni
sínum Árna Hafþóri Kristjánssyni
rak sendibílaþjónustu og ákvað
að færa út kvíarnar í kreppunni og
bjóða upp á ódýrari leið fyrir ferða-
menn til að ferðast um Ísland á hús-
bíl. Þessu sjá þau ekki eftir enda fyr-
irtækið á hraðri uppleið. Þau líta
björtum augum á framtíðina.
Vöntun á markaðnum
Undanfarin tvö ár hefur ferða-
mannahópurinn sem sækir land-
ið heim orðið fjölbreyttari og um
leið sú þjónusta sem ferðamönnum
býðst. Þau hjónin tóku eftir skorti á
valkostum fyrir fólk sem vill ferðast
um landið án þess að þurfa að sofa
í tjaldi eða eiga engra annarra kosta
völ en borga hátt verð fyrir gisti-
þjónustu eða leigja dýra húsbíla.
Þau ákváðu því að stökkva á tæki-
færið.
Árni hefur rekið sendibílaþjón-
ustu síðan 1998 en sumarið 2009
datt honum í hug að kaupa gamlan
Volkswagen Transport-bíl og breyta
honum í svokallaðan svefnbíl, eins
og Sigrún orðar það. Það segir hún
vera bíl með svefnaðstöðu og lág-
marksaðstöðu til eldunar. Seinna
keypti hann sex bíla til viðbótar og
notaði veturinn 2009 til að gera þá
upp. Í kjölfarið opnuðu þau fyrir-
tækið Snail.is sem hluta af gamla
fyrirtækinu, en fram að þessu hefur
Snail.is einungis verið starfrækt yfir
sumarmánuðina. „Hann Árni fékk
hugmyndina að vörumerkinu en
svo fengum við grafískan hönnuð til
að búa til síðuna fyrir okkur og okk-
ur finnst hafa tekist vel til,“ segir Sig-
rún og er greinilega stolt af fyrirtæk-
inu sem þau hjónin hafa byggt upp
af eigin rammleik.
Ódýrara fyrir útlendinga
Sigrún segir viðskiptavini þeirra að-
allega vera útlendinga sem vilji geta
ferðast um landið á ódýran máta.
Hún segir Þjóðverja verið dugleg-
asta að nýta sér þjónustuna. Flestir
viðskiptavinirnir koma í gegnum er-
lenda bókunarsíðu og á eftir Þjóð-
verjum hafa Frakkar, Spánverjar og
Belgar mikið leigt bíla hjá þeim. „Ís-
lendingar fussa bara og sveia yfir
þessu verði, þó það sé alls ekki svo
hátt miðað við hvað hinar leigurnar
eru með. En þetta er auðvitað miklu
ódýrara fyrir þá sem borga í evr-
um. Fólk sem leigði bíla hjá okkur í
fyrrasumar sagði okkur að það hefði
aldrei getað gert þetta fyrir hrun.“
Engir lúxusbílar
Árni og Sigrún ákváðu að notfæra
sér áralanga reynslu Árna sem bíl-
stjóra og nota þekkingu hans til að
kaupa gamla bíla og gera þá upp í
stað þess að fjárfesta í nýjum. „Þetta
eru engir lúxusbílar en þetta er eitt-
hvað sem var ekki til á Íslandi. Í boði
voru annaðhvort fólksbílar eða þá
flottir húsbílar, ekkert þar á milli.
Þarna datt honum í hug að bjóða
fjórhjóladrifsbíl sem er þá hægt að
fara á aðeins út fyrir alfaraleið, sem
er ekki hægt á hinum hefðbundna
húsbíl,“ segir hún. Bílarnir eru vel
útbúnir og búa yfir öllum helstu lág-
marksþægindum. Þeim fylgja sæng-
ur, útilegustólar, pottar, pönnur og
borðbúnaður en einnig er hægt að
fá aukatjöld og -svefnpoka ef fólk
hefur áhuga á því. Sigrún segist vera
bjartsýn á að ferðamannaflaumur-
inn taki við sér næsta sumar en eld-
gosið í Eyjafjallajökli hafði sín áhrif
í fyrrasumar. Sigrún segir að við-
skiptavinir þeirra hafi verið mjög
ánægðir með þjónustuna og hafa
nokkrir þeirra talað um að koma aft-
ur seinna og sjá þá meira af landinu
og dvelja þá lengur í senn.
Atvinnuskapandi
Í dag er Snail.is með tíu bíla á sín-
um snærum og eru starfsmenn fyr-
irtækisins að gera upp tvo til viðbót-
ar. Fyrirtækið vex því hægt og rólega
og sjá þau Árni og Sigrún fram á að
hafa nóg að gera í framtíðinni. „Ég
er að vinna á fasteignasölu í 50 pró-
senta starfi á veturna þegar bílaleig-
an liggur niðri. Áður var ég að vinna
í 100 prósenta starfi á fasteigna-
sölunni en ég þurfti að minnka við
mig starfshlutfall eftir hrun. Í sum-
ar gefst mér því tækifæri til að vera í
tveimur störfum og þá í fullri vinnu.
Árni er ennþá að keyra sendibíla á
veturna en hann er vakinn og sofinn
yfir bílaleigunni allt árið. Ef hann er
ekki að breyta eða gera við bíla þá er
hann að þrífa þá.“
Eitt af því sem Sigrún segir já-
kvætt við að kaupa gamla bíla í stað
nýrra er að það skapar um leið at-
vinnu hér heima „Þetta er í raun
og veru endurnýting. Við kaupum
bílana hér og fáum bólstrara til að
bólstra sætin og þurfum að kaupa
alls konar innlenda þjónustu til að
gera þá upp og breyta bílunum. Það
hefur því skapað helling af atvinnu
fyrir fleiri en bara okkur. Eins hafa
allar okkar tekjur af þessu hingað
til verið í gjaldeyri, svo þetta færir
gjaldeyri inn í landið í leiðinni.“
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
n Sköpuðu sér tækifæri eftir að hafa séð fram á atvinnuleysi n Gerðu upp
gamlan sendibíl og stofnuðu fyrirtæki n Horfa bjartsýn til framtíðar
„Fólk sem leigði
bíla hjá okkur í
fyrrasumar sagði okkur
að það hefði aldrei getað
gert þetta fyrir hrun.
SÁU TÆKIFÆRI
Í KREPPUNNI
Fjölskyldufyrirtæki Sigrúnu og Árna
fannst vanta framboð á ódýrum húsbílum
fyrir ferðamenn og stofnuðu fyrirtækið
snail.is.
Komast víða Bílarnir eru fjórahjóladrifnir
og komast því á fleiri staði en hefðbundnir
húsbílar. Hægt er að sofa í bílunum en einnig
er í þeim eldunaraðstaða.
Matthías
Þórarinsson