Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Síða 4
4 | Fréttir 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Langþreyttir á lokunum:
Seyðfirðingar
vilja fá göng
Bæjarstjórn Seyðisfjarðar krefst þess
að samgönguyfirvöld setji göng
undir Fjarðarheiði á dagskrá. Tíðar
lokanir hafa verið á Fjarðarheiði að
undanförnu með tilheyrandi ein-
angrun bæjarins og óþægindum
fyrir íbúa.
Bæjaryfirvöld lýsa sig reiðubúin
til viðræðna um að göngin verði fjár-
mögnuð með veggjöldum geti það
flýtt fyrir ákvörðun stjórnvalda.
„Ekki er á neinn hallað þó fullyrt
sé að ekkert byggðarlag hér á landi
býr nú við jafn miklar truflanir og
jafnvel einangrun að vetrarlagi og
Seyðisfjörður. Tölur tala sínu máli
þar um,“ segir í ályktun bæjarstjórn-
ar Seyðisfjarðar.
Bent er á að frá 10. nóvember hafi
Vegagerðin aðeins skráð Fjarðar-
heiði greiðfæra 8 sinnum og dögum
saman hafi verið snjóþekja og hálka
á heiðinni. Af þeim 12 sólarhringum
sem liðnir eru frá áramótum hefur
Fjarðarheiðin verið skráð ófær alls
11 daga, að hluta eða öllu leyti. Bæj-
aryfirvöld segja að ákvörðun um að
Fjarðarheiðargöng verði sett á dag-
skrá þoli ekki lengri bið.
Akureyringar
á kafi í snjó
Á meðan sinueldar kvikna í Reykja-
vík vinna á þriðja tug vinnuvéla að
snjómokstri á Akureyri vegna þess
gríðarlega fannfergis sem er í bæn-
um. Bærinn hefur hreinlega verið á
kafi í snjó undanfarið.
Bæjaryfirvöld á Akureyri segja að
kostnaður vegna snjómoksturs nemi
um 2 til 2,5 milljónum króna á dag
og því hefur gengið á sjóði bæjarins
vegna ástandsins.
Meðfylgjandi mynd af snjónum
á Akureyri var tekin á fimmtudags-
morgun.
FYRRI EIGENDUM
MILESTONE STEFNT
n Þrotabú Milestone þingfesti tíu stefnur n Stefnurnar beinast gegn fyrri eigendum
Milestone n Þrotabúið vill rifta fimm milljarða greiðslum til Ingunnar Wernersdóttur
n Leitast við að ná fjármunum frá Karli, Steingrími og Ingunni Wernersbörnum
Þrotabú eignarhaldsfélagsins Mile-
stone hefur stefnt fyrrverandi eig-
endum og stjórnendum félagsins
vegna nokkurra mála sem tengj-
ast rekstri þess. Meðal þeirra sem
er stefnt eru Karl, Steingrímur og
Ingunn Wernersbörn, fyrrverandi
eigendur félagsins, og Guðmund-
ur Ólason, fyrrverandi forstjóri
Milestone. Tíu stefnur gegn þeim,
og nokkrum öðrum, voru þing-
festar í Héraðsdómi Reykjavíkur á
fimmtudagsmorgun. Skiptastjóri
Milestone er Grímur Sigurðsson
hæstaréttarlögmaður.
Milestone var fjárfestingarfélag
barna Werners Rasmusson, þeirra
Karls, Steingríms og Ingunnar. Fé-
lagið var mjög umsvifamikið í fjár-
festingum á Íslandi á árunum fyrir
hrunið og átt meðal annars trygg-
ingafélagið Sjóvá, stóran hlut í
Glitni, fjárfestingarbankann Askar
Capital og fjármálafyrirtækið Invik
í Svíþjóð. Félagið varð gjaldþrota
árið 2009 og skilur eftir sig tugmillj-
arða króna skuldir.
Stefnt í Ingunnarmálinu
Stefnurnar sem um ræðir snú-
ast flestar um mál sem áður hefur
verið rætt um í fjölmiðlum, með-
al annars kaup þeirrra Karls og
Steingríms á hlutabréfum Ingunn-
ar í Milestone fyrir fimm milljarða
króna árin 2005 og 2006. Komið
hefur fram í fjölmiðlum að skipta-
stjóri Milestone telur að skoða
verði greiðslurnar sem lán til Ing-
unnar þar sem ekkert hafi komið á
móti milljörðunum inn í þrotabú
Milestone. Hann telur að greiðsl-
urnar til Ingunnar geti verið brot
á lögum um einkahlutafélög. Til-
gangur bræðranna með greiðsl-
unni til Ingunnar var sú að þeir
væru með henni að kaupa eign- arhlut í Ingunnar í Mile stone og
tveimur dótturfélögum og notuðu
þeir peninga eignarhaldsfélagsins
til þess.
Tilgangurinn með stefnunni
í málinu er að reyna að ná þeim
fimm milljörðum króna sem fóru
út úr búi félagsins í viðskiptunum
aftur inn í búið. Systkinunum er
öllum stefnt í málinu ásamt for-
stjóra Milestone, Guðmundi Óla-
syni.
Um viðskiptin við Ingunni seg-
ir í endurskoðendaskýrslu sem
Ernst & Young vann fyrir þrota-
bú Mile stone að hluti peninganna
sem Ingunn fékk hafi komið frá
tryggingafélaginu Sjóvá: „Við vilj-
um benda á að 600.000.000, sem
Milestone ehf. greiddi til Ingunn-
ar Wernersdóttur í byrjun desem-
ber 2006, voru teknar að láni frá
Sjóvá-Almennum tryggingum hf.
og færðar á viðskiptareikningin til
skuldar við Sjóvá-Almennar trygg-
ingar hf. Sjóvá-Almennar trygging-
ar hf. tóku umræddar 600.000.000
að láni hjá Ingunni Wernersdóttur,
sbr. fjóra 150 milljóna lánasamn-
inga um víkjandi lán þar um, dag-
setta 1. desember 2006. Þannig
fara 600.000.000 frá Ingunni Wern-
ersdóttur til Sjóvá-Almennra trygg-
inga hf. og þaðan til Milestone ehf.
og að lokum þaðan, aftur til Ing-
unnar Wernersdóttur.“
Riftun á Aurlákaviðskiptunum
Skiptastjóri Milestone stefnir þeim
Karli og Steingrími einnig vegna
viðskipta dótturfélags Miles-
tone, L&H Eignarhaldsfélags, með
hlutabréf í lyfjaverslunum Lyfja og
heilsu í lok mars 2008. Hlutabréf-
in í Lyfjum og heilsu voru þá seld
til Aurláka út úr Lyfjum og heilsu.
Sú krafa byggir á því að eignar-
haldsfélagið Leiftri á Bresku Jóm-
frúareyjum, sem var í eigu Karls
og Steingríms, eigi að láta þrota-
bú Milestone fá aftur 900 milljóna
kröfu sem notuð til að greiða hluta
af kaupverði lyfjaverslananna.
Um 2,5 milljarðar voru greiddir
með yfirtöku skulda af hálfu Aur-
láka og 900 milljónir við „fyrsta
hentugleika“, eins og segir í fundar-
gerðinni þar sem salan var ákveðin.
Stjórnendur Milestone eignuðust
900 milljóna króna kröfu á hend-
ur Aurláka í viðskiptunum og var
hún síðar færð til Leiftra. Engir
fjármunir komu því inn í bú Mile-
stone af sölunni á Lyfjum og heilsu.
Þrotabú Milestone gerir tilkall til
kröfunnar með stefnunni og mun
svo væntanlega reyna að fá hana
greidda frá Aurláka. Stefnan snýst
ekki um að ná Lyfjum og heilsu
inn í búið heldur aðeins að fá um-
rædda kröfu.
Í skýrslu Ernst & Young eru eig-
endur Milestone vændir um lög-
brot í viðskiptum Aurláka með
hlutabréf í Lyfjum og heilsu. Í
skýrslunni segir að tæpur milljarð-
ur af greiðslu Aurláka, sem Karl og
Steingrímur eiga enn í dag, fyrir
Lyf og heilsu hafi verið greiddur ári
eftir að viðskiptin áttu sér stað í lok
mars 2008. Aurláki greiddi kröfuna
með skuldajöfnun. Í skýrslunni
segir: „Það virðist því sem viðskipt-
in með kröfuna á Aurláka ehf., hafi
í raun átt sér stað í febrúar 2009, en
hafi hinsvegar verið dagsett aftur
í tímann og færð á dagsetninguna
31. mars 2008. Ef það er raunin, er
hér um að ræða brot á lögum um
bókhald.“ Viðskiptin með kröfuna
sem notuð var til að greiða þann
hluta viðskiptanna sem ekki var
yfir taka skulda virðist því hafa átt
sér stað löngu eftir að viðskiptin
fóru fram.
Auk þessara tveggja mála er
meðal annars stefnt vegna arð-
greiðslna frá Milestone til Karls og
Steingríms Wernerssona, gjafar til
Hrossaræktarbúsins Fets og gjald-
miðlaskiptasamnings við Fjárfest-
ingarfélagið Mátt upp á 2,5 millj-
arða króna.
1. Mál gegn Sáttum, Karli Wernerssyni,
Steingrími Wernerssyni og Guðmundi
Ólasyni.
2. Mál gegn Ingunni Wernersdóttur,
Karli Wernerssyni, Steingrími
Wernerssyni og Guðmundi Ólasyni.
3. Mál gegn Leiftra ltd., Aurláka ehf.,
Karli Wernerssyni og Steingrími
Wernerssyni.
4. Mál gegn Steingrími Wernerssyni.
5. Mál gegn Karli Wernerssyni.
6. Mál gegn Karli Wernerssyni.
7. Mál gegn Ráðgjöf og efnahagsspám
ehf.
8. Mál gegn Lyfjum og Heilsu ehf.
9. Mál gegn Hrossaræktarbúinu Feti
ehf.
10. Mál gegn Fjárfestingarfélaginu
Mætti ehf.
Stefnur þrotabúsins:„Ef það er raunin,
er hér um að ræða
brot á lögum um bókhald.
Dregin fyrir dóm Karl, Steingrímur
og Ingunn Wernersbörn hafa verið
dregin fyrir dóm af þrotabúi Mile-
stone. Tíu stefnur þrotabús Milestone
voru þingfestar á fimmtudaginn.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is