Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Qupperneq 8
8 | Fréttir 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
– VERKIN TALA
Gylfaflöt 32 • 112 Reykjavík • Sími 580 8200
www.velfang.is • velfang@velfang.is
Fr
um
Nýtt og traust umboð
fyrir á Íslandi
varahlutir
þjónusta
verkstæði
vélar
Skarphéðinn Berg Steinarsson hef-
ur höfðað skaðabótamál á hendur
Ríkissjóði Íslands. Það gerir hann
vegna þeirrar ákvörðunar tollstjóra,
að undirlagi skattrannsóknarstjóra í
apríl, að kyrrsetja eignir hans í tengsl-
um við rannsókn skattayfirvalda á FL
Group. Héraðsdómur Reykjavíkur og
Hæstiréttur Íslands komust að þeirri
niðurstöðu að ekki væri lagaheimild
til þessarar kyrrsetningar, sem einn-
ig náði til annarra forsvarsmanna FL
Group á árunum 2006 til 2007, þeirra
Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, Hann-
esar Smárasonar og Jóns Sigurðsson-
ar. Skarphéðinn Berg var stjórnarfor-
maður FL Group á sínum tíma.
Fyrirtaka í skaðabótamáli hans á
hendur Ríkissjóði Íslands fór fram í
Héraðsdómi Reykjavíkur á fimmtu-
dag.
Skarphéðinn Berg sendi frá sér
yfirlýsingu vegna frétta fjölmiðla af
þessum kyrrsetningaráformum í lok
apríl í fyrra. Þar sakaði hann skatt-
rannsóknarstjóra um að hafa upplýst
fjölmiðla um þessa ætlan sína enda
hafi hann sjálfur ekki heyrt af rann-
sókn skattrannsóknarstjóra á skatt-
skilum FL Group í rúmt ár, eða frá því
hann var kallaður til skýrslutöku hjá
embættinu. Tók hann fram að ekkert
þeirra atriða sem til skoðunar voru
vörðuðu sig persónulega.
Tollstjórinn, að undirlagi skatt-
rannsóknarstjóra, fór fram á að
eignir Skarphéðins að fjárhæð 90
milljónum króna yrðu kyrrsettar
til tryggingar greiðslu væntanlegr-
ar fjársektar vegna rökstudds gruns
um að Skarphéðinn hefði gerst sekur
um refsiverða háttsemi sem stjórn-
armaður í FL Group. Sem fyrr segir
hnekkti héraðsdómur og Hæstiréttur
þessari kyrrsetningu.
Telur Skarphéðinn að íslenska
ríkið hafi bakað sér skaðabótaskyldu
með þessum ólögmætu aðgerðum á
sínum tíma og hyggst því leita réttar
síns. mikael@dv.is
Höfðar skaðabótamál á hendur ríkinu vegna kyrrsetningar eigna:
Skarphéðinn vill fá bætur
Vill bætur Hér sést stjórnarformaðurinn
fyrrverandi ásamt Hannesi Smárasyni,
fyrrverandi forstjóra FL Group.
Halla vill engu svara:
„Ótrúleg frétt“
„Þetta er bara ótrúleg frétt. Ég bara
hef aldrei, hvorki sem blaðamaður
né aðstoðarmaður eða hvað annað
sem ég hef verið að gera, séð annað
eins,“ segir Halla Gunnarsdóttir, að-
stoðarmaður Ögmundar Jónassonar
innanríkisráðherra. Þannig hljóðaði
svar Höllu, sem líkti staðgöngu-
mæðrun við barnasölu og vændi í
viðhorfspistli í Morgunblaðinu fyrir
fjórum árum, þegar hún var spurð
hvort hún væri enn sömu skoðunar
og hvort afstaða hennar hefði ein-
hver áhrif í ráðuneytinu.
Fjallað var
um málið á DV.is
á fimmtudag-
inn. Í frétt DV.is
kom fram að
einhverjir kynnu
að staldra við
þessar skoðan-
ir Höllu vegna
starfs hennar
sem aðstoðarmanns ráðherra. Þá
var einnig sagt að töluverðrar tregðu
gætti hjá innanríkisráðuneytinu við
að veita Jóel Færseth, fæddum með
aðstoð staðgöngumóður á Indlandi,
íslenskt vegabréf. Alþingi veitti Jóel
íslenskan ríkisborgararétt þann 18.
desember, en hann er enn vega-
bréfslaus. Innanríkisráðuneytið
hefur aðkomu að útgáfu vegabréfa í
gegnum sýslumannsembættin, sem
heyra undir ráðuneytið.
Halla brást ókvæða við símtali
blaðamanns og krafðist svara um
hvaða pappíra hann fullyrti að for-
eldrar drengsins hefðu í höndunum.
Helga Sveinsdóttir, móðir Jóels,
tjáði sig um þá pappíra, sem Halla
krafði blaðamann svara um, í Kast-
ljósþætti í vikunni. Hún sagði að til
staðar væru allir þeir pappírar sem
krafist væri á Indlandi, þar á meðal
yfirlýsing frá eiginmanni staðgöngu-
móðurinnar um að hann gerði ekk-
ert tilkall til barnsins og að þetta
væri ekki hans barn. Helga segir að
allir pappírar hafi verið stimplaðir
löglegir með alþjóðlegum stimpli í
utanríkisráðuneytinu í Nýju-Delí.
solrun@dv.is
VILL RIFTA VIÐSKIPTUM
MILESTONE OG MÁTTAR
Þrotabú Milestone hefur stefnt
þrotabúi Fjárfestingarfélagsins
Máttar ehf. vegna kröfu upp á 2,5
milljarða króna sem síðarnefnda
félagið eignaðist á hendur því fyrr-
nefnda í lok árs 2008, eftir íslenska
efnahagshrunið. Krafa Máttar á
hendur Milestone var tilkomin
vegna gjaldmiðlaskiptasamnings á
milli félaganna tveggja sem gerður
var í janúar. Eigendur Milestone,
þeir Karl og Steingrímur Werners-
syni, áttu um helmingseignarhlut í
Mætti á móti eignarhaldsfélögum
sem eru í eigu Einars og Benedikts
Sveinssona. Telur skiptastjóri Mile-
stone, Grímur Sigurðsson, að um
gjafagerning hafi verið að ræða þar
sem Milestone hafi verið gjaldþrota
á þeim tíma.
Þetta kemur fram í stefnu þrota-
bús Milestone á hendur Mætti sem
þingfest var í Héraðsdómi Reykja-
víkur á fimmtudagsmorgun ásamt
níu öðrum.
Talinn vera málamynda-
gerningur
Fjárfestingarfélagið Máttur fékk
ekki greidda kröfuna frá Milestone
í peningum en félagið lýsti kröf-
unni í þrotabú Milestone í lok árs
2009 á þeim forsendum að hún
væri réttmæt. Það sem hefur gerst
eftir þetta er að Fjárfestingarfé-
lagið Máttur hefur verið tekið til
gjaldþrotaskipta og er ekki lengur
stjórnað af sömu aðilum og áður,
meðal annars Karli Wernerssyni,
fyrrverandi aðaleiganda Mile-
stone.
Þrotabú Milestone vill að Mátt-
ur skili kröfunni vegna þess að
Milestone hafi ekki verið gjaldfært
félag, það er að segja tæknilega
gjaldþrota, vegna þess að skuldir
félagsins hafi verið meiri en eign-
ir þess, og að um málamyndagern-
ing hafi verið að ræða sem engar
viðskiptalegar forsendur voru fyr-
ir. Bú Milestone telur þvert á móti
að um gjafagerning hafi verið að
ræða og vísar því til stuðnings í
skýrslu sem endurskoðendafyrir-
tækið Ernst & Young vann fyrir
þrotabú Milestone.
Í stefnunni segir: „Ekki verð-
ur séð að viðskiptalegar forsendur
séu fyrir umræddum samningi. Í
skýrslu Ernst og Young bls 113 -115
segir að umræddur gjaldmiðla-
skiptasamningur hafi verið skað-
legur fyrir Milestone ehf. Samn-
ingurinn er gerður á milli tengdra
félaga og virðist vera málamynda-
gerningur á þeim tíma, til þess
gerður að færa fjármuni frá Mile-
stone ehf. til stefnda.“
10,5 milljarða millifærslur
Bankahrunið hafði hins vegar þau
áhrif að þegar til stóð að ganga frá
gjaldmiðlaskiptasamningnum í
árslok 2008 voru ekki lengur for-
sendur til þess að Milestone gæti
greitt upphæðina til Máttar. Í byrj-
un árs 2008 lá hins vegar ekki ljóst
fyrir að bankahrunið myndi skella
á með tilheyrandi skakkaföllum
fyrir Milestone þó að félagið hafi
verið orðið ógjaldfært vegna skulda
og fjármögnunarerfiðleika. Upp-
gjör á gjaldmiðlaskiptasamningn-
um hefði því farið fram og má ætla
að Milestone hefði greitt Mætti um-
rædda upphæð.
Milestone gerði fleiri slíka
samninga á árinu 2008 og telur
þrotabú Milestone að tilgangur
þeirra hafi verið að færa fé frá Mile-
stone og til dótturfélaga. Þannig
segir til dæmis í stefnunni: „Eini til-
gangur samningins virðist því hafa
verið sá að færa til fjármuni innan
Milestone-samstæðunnar, þ.e. frá
Milestone ehf. til dótturfélaga þess,
þ.m.t. stefnda. Alls námu milli-
færslur frá Milestone ehf. á grund-
velli þessara samninga árið 2008
10,5 milljörðum króna og högnuð-
ust dótturfélög félagsins um sömu
fjárhæð.“
Ef dæmt verður þrotabúi Mile-
stone í hag mun búið eignast kröfu
á sjálft sig og krafan því falla nið-
ur. Þrotabú Máttar ehf. mun því
ekki eiga kröfu upp á 2,5 milljarða
sem hugsanlegt er að verði sam-
þykkt í bú Milestone. Samkvæmt
stefnunni er málið enn eitt dæm-
ið um að mörg af viðskiptum Mile-
stone á árinu 2008 hafi ekki verið
gerð á viðskiptalegum forsendum.
„Samningurinn var ósanngjarn og
ekki gerður í viðskiptalegum til-
gangi,“ segir meðal annars í stefn-
unni.
Þrotabú Máttar ehf. mun verjast
stefnu þrotabús Milestone í mál-
inu.
n Þrotabú Milestone vill fá 2,5 milljarða kröfu frá Mætti n Í stefnu segir
að viðskipti eignarhaldsfélaganna fyrir hrun hafi ekki verið á viðskipta-
legum forsendum n Karl og Steingrímur Wernerssynir áttu Milestone en
voru einnig eigendur Máttar á móti Einari og Benedikt Sveinssonum„Samningurinn
var ósanngjarn
og ekki gerður í
viðskiptalegum tilgangi.
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
8 FÖSTUDAGUR 30. apríl 2010 FRÉTTIR
EINA VON HÖNNU
n Augu Hönnu Birnu Kristjáns-
dóttur borgarstjóra virðast vera
að opnast fyrir því að litlar líkur
séu á því að
hún haldi borg-
arstjórastóln-
um. Borgar-
stjórinn sagði í
nýlegu við-
tali að eðlilegt
væri að mynda
eins konar
þjóðstjórn hjá
Reykjavíkurborg eftir kosning-
ar. Skýring á afstöðubreyting-
unni er sú að Hanna Birna sér í
hendi sér að oddviti Framsókn-
arflokksins, Einar Skúlason,
mun halla sér til vinstri og ekki
mynda með henni meirihluta.
Þá þykir víst að ólíkindatólið Jón
Gnarr, leiðtogi Besta f lokksins,
muni vinna með Samfylkingu.
Ekki þarf að fjölyrða um VG eða
Samfylkingu sem munu vinna
saman í borgarstjórn. Eina von
Hönnu Birnu er því að verða leið-
togi þjóðstjórnar í krafti þ ss að
stýra stærsta f lokknum.
ÚTRÝMING
FRAMSÓKNAR
n Þótt Einar Skúlason, nýr
oddviti Framsóknarflokksins í
Reykjavík, sé ekki með yfir sér
spillingaráru
er á brattann
að sækja fyrir
hann í kosn-
ingabaráttunni.
Frambjóðand-
inn hefur ekki
náð til kjósenda
enn sem komið
er og Framsókn
í Reykjavík því í útrýmingar-
hættu. Örlög Einars velta þó á því
hvort gamlir og grónir framsókn-
armenn skili atkvæði sínu í réttan
farveg. Lendi f lokkurinn utan-
garðs verður það reiðarslag fyrir
formanninn, Sigmund Davíð
Gunnlaugsson, sem hefur reynt
að fóta sig á mölinni.
ÓNOT VEGNA
BJARNA BEN
n Staða Bjarna Benediktsson-
ar, formanns Sjálfstæðisflokks-
ins, er mjög snúin í ljósi vafn-
inga hans í
viðskiptalíf-
inu. Á meðal
óbreyttra sjálf-
stæðismanna
kraumar undir
niðri vegna
formannsins.
Hermt er að
frambjóðendur
Sjálfstæðisflokksins til borgar-
stjórnar hafi að undanförnu farið
á milli húsa til að kynna flokks-
mönnum sig og stefnumál sín. Í
nokkrum tilvikum hafa fram-
bjóðendurnir orðið fyri b inum
ónotum vegna form nsins og
fortíðar hans. Þetta veldur sjálf-
stæðismönnum áhyggjum í ljósi
yfirvofandi borgarstjórnarkosn-
inga.
KVENNASLAGUR
n Nokkur gerjun er í Sjálfstæðis-
flokknum um það hver fylli skarð
Þorgerðar Katrínar Gunnars-
dóttur og verði
varaformaður.
Hanna Birna
Kristjánsdóttir
borgarstjóri er
nefnd til sög-
unnar sem lík-
legur kandídat.
Hún nýtur fylg-
is öfgahægris-
ins í flokknum. Þá er Ragnheiður
Elín Árnadóttir, þingmaður og
fyrrverandi aðstoðarmaður Geirs
Haarde, sögð vera heit fyrir vegt-
yllunni. Einhverjir vilja sjá Ólöfu
Nordal í embættinu en hún nýtur
mikill ar virðingar innan flokks-
ins. Loks er Unnur Brá Konráðs-
dóttir þingmaður af einhverjum
talin vera vænlegur kostur. Það
virðist stefna í kvennaslag.
SANDKORN
Kröfuhafar Þáttar International h fa
lýst 24 milljarða króna kröfum í þrota-
bú félagsins. Þáttur International var
félag þeirra Wernersbræðra Karls og
Steingríms og Engeyinganna Einars og
Benedikts Sveinssona sem stofnað var
árið 2007 til að halda utan um 7 pró-
senta hlut þeirra í Glitni.
Þáttur var úrskurðaður gjaldþrota í
lok janúar á þessu ári en eina eign fé-
lagsins var hluturinn í Glitni. Því var
nokkuð ljóst að félagið yrði gjaldþrota
í kjölfar bankahrunsins þegar hlutur
þess í Glitni varð verðlaus.
Skiptastjóri þrotabúsins, Baldvin
Hafsteinsson, segist ekki búast við því
að kröfuhafar Þáttar International fái
neitt upp í kröfur sínar. „Það efast ég
um … Ei a eign félagsins var hlutur-
inn í Glitni,“ segir Baldvin.
Kröfulýsingarfresturinn í þrotabú-
ið rann út í lok mars og var haldinn
skiptafundur í þrotabúinu þann 19.
apríl síðastliðinn.
Vafningur með hæstu kröfuna
Fimm aðilar gera kröfur í þrotabúið,
samkvæmt Baldvin, og er krafa eign-
arhaldsfélagsins Földungs, áður Vafn-
ings, langhæst: Krafa Vafnings hljóðar
upp á rúma 15 milljarða króna. Það er
skilanefnd Glitnis sem lýsir kröfunni í
nafni Vafnings en bankinn hefur tekið
félagið yfir vegna skulda. „Þessi krafa
er gerð á grundvelli lánasamnings
milli Þáttar og Vafnings,“ segir Baldvin.
Ástæðan fyrir hárri kröfu Vafn-
ings er sú að félagið fékk lán frá Glitni
í febrúar 2008 sem síðan var miðlað
áfram til Þáttar. Þáttur notaði svo lán-
ið til að greiða bandaríska bankanum
Morgan Stanley upp lán sem bank-
inn hafði veitt félaginu árið 2007 til að
kaupa 7 prósenta hlut í Glitni. Morg-
an Stanley hafði gert veðkall hjá Þætti
vegna þess að gengi hlutabréfa í Glitni
fór niður fyrir 20 í byrjun árs 2008.
Bjargað undan veðkalli
Ástæðan fyrir því að þessi leið var far-
in var sú að Þáttur gat ekki sjálft tek-
ið við láninu vegna þess að í lána-
samningnum við Morgan Stanley var
ákvæði sem meinaði félaginu að taka
lán hjá annarri lánastofnun eða veð-
setja Glitnisbréfin hjá öðrum aðila.
Þess vegna þurftu eigendur Þáttar að
búa til annað félag til að taka við lán-
inu f á Glitni og nota ann ð veð n
Glitnisbréfin. Af þessum sökum voru
eignir fluttar úr Sjóvá og inn í Vafning –
um var að ræða íbúðaturn í Makaó og
breska fjárfestingasjóðinn KCAJ – og
veðsettar þar fyrir Glitnisláninu.
Líkt og DV hefur greint frá tók
Bjarni Benediktsson, núverandi for-
maðu Sjálfstæðisflokksins og þáver-
andi stjórnarformaður BNT og N1,
þátt í þessum viðskiptum því hann
fékk umboð frá sjálfum sér, Benedikt
föður sínum og Einari frænda sín-
um til að veðsetja bréf þriggja félaga í
þeirra eigu í Vafningi. Þetta var gert til
að bjarga bréfunum frá veðkalli Mor-
gan Stanley. Glitnir setti sömuleiðis
veðbann á bréf Þáttar í Glitni eftir að
endurfjármögnuninni var lokið. Bjarni
hefur sjálfur sagt að hann hafi ekki vit-
að hvaða eignir hann var að veðsetja
fyrir Glitnisláninu.
Kaupþing með
næsthæstu kröfuna
Þrátt fyrir veðbann Glitnis fékk Þáttur
frekari lán áður en bankinn hr di í
lok september. Í byrjun apríl 2008, tæp-
um tveimur mánuðum eftir að Vafn-
ingsviðskiptin voru um garð gengin,
fékk Þáttur International lán frá Kaup-
þingi upp á 30 milljónir evra, rúmlega
3,4 milljarða á þávirði. Lánið var svo
á endanum notað til að g eiða niður
hluta láns sem Sjóv hafði stofnað til
við Glitni. Veðið fyrir Kaupþingsláni u
var í hlutabréfum Þáttar International í
Glitni og var það til tveggja ára. Glitnis-
bréf Þáttar voru því á endanum veðsett
þrátt fyrir veðbann Glitnis.
Eftir bankahrunið var lán Þáttar
International flutt frá Kaupþingi og
yfir í nýja bankann sem stofnaður var
á grunni hans og fékk síðar nafnið Ar-
ion banki. Reynt var að innheimta lán-
ið nokkrum sinnum hjá Þætti Inter-
national eftir hrunið en það gekk ekki
af augljósum ástæðum: Eina eign
félagsins var orðin verðlaus og veð
Kaupþings þar með. 6,7 milljarða krafa
Ka pþings er því vegna ánsins sem
bankinn veitti Þætti í apríl 2008.
Þrotabú Milestone og skilanefnd
Glitnis gera svo talsvert lægri kröfur í
búið, samtals upp á rúmlega tvo millj-
arða króna.
„Fórnarlömb hrunsins“,
segir Baldvin
Að mati Baldvin voru eigendur Þátt-
ar International fórnarlömb hrunsins.
„Þeir urðu bara fórnarlömb hrunsins,“
segir Baldvin en vinnu hans hjá þrota-
búi Þáttar er því sem næst lokið. Hann
segist ekki reikna með því að hann
muni senda nein mál tengd búinu til
rannsóknar- eða eftirlitsaðila. „Næstu
skref verða bara að fara yfir þessa
lánasamninga og athuga hvort það
sé eitthvað misjafnt í þessu. Ef ekki
þá er þessu bara lokið,“ seg-
ir Baldvin.
„Þetta bú er mjög klippt og skorið í
sjálfu sér: Það voru tekin þessi lán til að
kaupa hlutabréf. Hlutabréfin hrundu í
verði og urðu verðlaus. Það eru engar
aðr r eignir í búinu og það er enginn
kröfuhafi sem óskar eftir því að eitt-
hvað í búinu verði rannsakað frekar,“
segir Baldvin.
Sögu Þáttar Int-
ernational er
því að öll-
um lík-
indum
lokið.
24 MILLJARÐA KRÖFUR
Í ÞROTABÚ ÞÁTTAR
INGI F. VILHJÁLMSSON
blaðamaður skrifar: ingi@dv.is
Félag þeirra Karls og Steingríms Wernerssona og Einars og Benedikts Sveinssona
skilur eftir sig skuldir upp á 24 milljarða. Skiptastjóri búsins segir að eigendur
Þáttar hafi verið fórnarlömb hrunsins. Vafningur er stærsti kröfuhafinn með 15
milljarða kröfu. Skiptastjórinn segir sögu félagsins senn á enda.
Földungur (Vafningur) sem skilanefnd Glitnis sér um 15,2 milljarðar
Arion banki 6,7 milljarðar
Þrotabú Milestone 1,4 milljarðar
Glitnir 712 milljónir
Heildarkröf r 24 milljarðar
Kröfur í þrotabú Þáttar Inter ational:
Þeir urðu bara fórn-
arlömb hrunsins.
Eigendur Vafnings Einar Sveinsson
sést hér annar frá vinstri, við hlið Bjarna
Ármannssonar, og Karl Wernersson
er sá þriðji frá hægri. Myndin er tekin
á ársfundi Íslandsbanka árið 2006 en
þá voru Einar og Karl ráðandi aðilar í
bankanum. Bjarni var þá forstjóri.
Veðsetning Vafnings Bjarni
Benediktsson, formaður Sjálfstæð-
isflokksins og þáverandi stjórnar-
formaður N1 og BNT, fékk umboð
Einars og Benedikts föður síns til
að veðsetja bréfin í Vafningi út af
lá inu frá Glitni. Bjarni hefur sjálfur
sagt að hann hafi ekki vitað hvað
var til tryggingar láninu í Vafningi
en það var lúxustu n í M kaó og
br skur fjárfestin asjóður.
Voru ráðandi í Glitni Karl Wernersson og Einar
Sveinsson, sem áttu Mátt saman, voru ráðandi
hluthafar í Glitni fyrir yfirtöku FL Group. Viðskipti
þeirra draga nú dilk á eftir sér í dómskerfinu. Þeir
sjást hér á fundi hjá Glitni á sínum tíma.