Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Qupperneq 12
12 | Fréttir 14. janúar 2011 Helgarblað
Seðlabanki Íslands hefur kært fjög-
ur meint brot á lögum um gjaldeyris-
mál til efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra frá því síðastliðið sumar.
Þá fékk bankinn heimild til þess með
lagabreytingu að kæra meint brot á
gjaldeyrishaftalögum beint til lög-
reglunnar. Þetta kemur fram í skrif-
legu svari frá Seðlabanka Íslands við
fyrirspurn DV um rannsóknir og kær-
ur vegna meintra brota á lögum um
gjaldeyrismál frá bankahruninu 2008.
Fyrir þessa lagabreytingu þurfti
bankinn að tilkynna meint brot til
Fjármálaeftirlitsins sem síðan tók
ákvörðun um hvort kæra ætti málin
til lögreglu eða ekki. Seðlabankinn
hafði kært 28 meint brot á gjaldeyris-
haftalögum til Fjármálaeftirlitsins frá
setningu gjaldeyrishaftalaganna í lok
nóvember 2008 og þar til þessi laga-
breyting var gerð í fyrra. Níu af þess-
um 28 málum voru kærð til lögregl-
unnar en 19 mál voru send aftur til
Seðlabankans.
Öll kærð á síðasta
ársfjórðungi 2010
Samkvæmt heimildum DV voru öll
málin fjögur kærð til lögreglunnar á
síðasta ársfjórðungi síðasta árs. Seðla-
bankinn vill ekki gefa svör við því
hvers eðlis þessi meintu brot eru og
því er ekkert hægt að fullyrða um það.
Hins vegar hefur verið greint frá
því í fjölmiðlum að gjaldeyriseftir lit
Seðlabanka Íslands hafi verið með til
skoðunar mál nokkurra fyrir tækja og
eignarhaldsfélaga sem hugsan lega
voru talin hafa farið á svig við regl-
ur bankans um gjaldeyrismál. Rann-
sóknin snérist um það að kanna hvort
viðskipti þessara félaga með aflands-
krónur hefðu verið ólögleg en öll áttu
þau það sameiginlegt að hafa keypt
skuldabréf innlendra fyrirtækja með
aflandskrónum sem geymdir voru á
svokölluðum Vostro-reikningum.
Magma og félag Heiðars
til skoðunar
Ákveðin undanþága var í reglunum
um gjaldeyrismál sem heimilaði er-
lendum fjármálafyrirtækjum að
kaupa fjármálagerninga, til dæm-
is skuldabréf, með aflandskrónum.
Þessi undanþága var í reglunum til að
liðka til fyrir erlendri fjárfestingu hér
á landi. Undanþágan virðist hafa ver-
ið misnotuð og hóf Seðlabankinn því
rannsókn á þessum viðskiptum í kjöl-
farið. Í nóvember svaraði Seðlabank-
inn því játandi þegar DV sendi bank-
anum fyrirspurn um hvort slík mál
væru til rannsóknar hjá bankanum:
„Seðlabanki Íslands hefur mál eins og
þau sem um er rætt í fréttinni til skoð-
unar en ekki liggur fyrir niðurstaða
þeirrar athugunar.“
Meðal þeirra fyrirtækja sem Seðla-
bankinn rannsakaði vegna meintra
brota af þessu tagi var orkufyrirtækið
Magma Energy, eigandi HS Orku, og
eignarhaldsfélag Heiðars Más Guð-
jónssonar, Ursus Capital.
Ekki er hægt að fullyrða að mál
þessara aðila eða af þessu tagi hafi
verið send frá Seðlabanka Íslands
til lögreglunnar en ljóst er að með-
al þeirra mála sem bankinn skoðaði
voru slík viðskipti með aflandskrónur.
Ásgeir kemur af fjöllum
DV hafði samband við Ásgeir Mar-
geirsson, forstjóra Magma Energy
á Íslandi, til að spyrja hann út í það
hvort hann hefði vitneskju um að
viðskipti Magma með aflandskrónur
væru komin til rannsóknar hjá lög-
reglunni. Ásgeir segist ekki vita til
þess. „Ég veit alls ekki til þess að lög-
reglan hafi eitthvað komið að okk-
ar málum,“ segir Ásgeir en DV hefur
áður greint frá því að Magma hafi fjár-
magnað kaup sín á HS Orku með af-
landskrónum.
DV sendi Heiðari Má fyrirspurn
um það í tölvupósti hvort hann vissi til
þess að rannsókn á viðskiptum hans
væri komin til lögreglunnar. Blað-
ið fékk ekki svar við fyrirspurn sinni.
Líkt og DV hefur greint frá er afar lík-
legt að Seðlabankinn hafi dregið að
selja tryggingafélagið Sjóvá til Heiðars
Más og meðfjárfesta hans vegna þess-
arar athugunar bankans á viðskiptum
Heiðars með aflandskrónur. Heiðar
Már og viðskiptafélagar hans drógu
sig svo út úr söluferlinu á Sjóvá í nóv-
ember síðastliðnum þegar salan hafði
tafðist um of að þeirra mati.
Efnahagsbrotadeild lögreglunnar
segist ekki geta greint frá því hvers
eðlis málin eru sem eru til rannsókn-
ar né hverjir það eru sem verið er að
rannsaka. „Mörg málanna eru um-
fangsmikil og teygja anga sína til út-
landa,“ segir í svari efnahagsbrota-
deildarinnar við fyrirspurn DV.
Ekki er því hægt að fullyrða neitt
um það hvaða fjögur meintu brot á
gjaldeyrishaftalögum það eru sem
send hafa verið til efnahagsbrota-
deildar lögreglunnar. Ljóst er hins
vegar að um fjögur nýleg mál er að
ræða.
MEINT GJALDEYRISBROT
KÆRÐ TIL LÖGREGLUNNAR
n Seðlabanki Íslands sendi fjögur mál til lögreglunnar á seinni helmingi síðasta
árs n Snúast öll um meint brot á gjaldeyrishaftalögum n Bankinn hafði verið
með mál tengd Magma Energy og Heiðari Má Guðjónssyni til rannsóknar„Ég veit alls ekki til
þess að lögreglan
hafi eitthvað komið að
okkar málum.
Svar Seðlabanka Íslands:
n „Fyrir lagabreytinguna síðasta sumar
höfðum við tilkynnt 28 mál af þessu tagi
til FME. Níu þeirra voru kærð til lögreglu
og 19 komu aftur til okkar. Frá því að lög
nr. 78/2010, um breytingu á lögum um
gjaldeyrismál og tollalögum, með síðari
breytingum, tóku gildi 30. júní 2010,
en með þeim fékk Seðlabanki Íslands
heimild til að kæra meint brot á lögum
um gjaldeyrismál og reglum settum
á grundvelli þeirra til lögreglu, hefur
bankinn kært fjögur mál til lögreglunnar.“
Útskýring Seðlabankans
á undanþágunni:
n „Engin undanþága er í gjaldeyris-
reglunum sem heimilar kaup á
fjármálagerningum með aflandskrónum.
Hins vegar er ákveðin ívilnun veitt
í leiðbeiningum með reglunum til
handa erlendum fjármálafyrirtækjum.
Erlendum fjármálafyrirtækjum er
heimilt að kaupa fjármálagerninga (sem
Seðlabanki Íslands hefur metið hæf til
tryggingar í viðskiptum við bankann, sbr.
11. gr. reglna nr. 553/2009 um viðskipti
fjármálafyrirtækja við Seðlabanka
Íslands) útgefna í innlendum gjaldeyri og
greiða fyrir þau kaup með millifærslu af
svokölluðum Vostro reikningum sínum.
Í því felst að fyrirtækjunum er heimilt að
greiða fyrir slíka fjármálagerninga með
aflandskrónum.“
Til lögreglunnar
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Til rannsóknar Viðskipti Heiðars Más
og eignarhaldsfélags hans Úrsusar hafa
verið til rannsóknar hjá Seðlabanka Íslands.
Fjögur mál hafa nú farið frá bankanum til
efnahagsbrotadeildar ríkislögreglustjóra.
Send til lögreglunnar Fjögur meint brot
á gjaldeyrishaftalögum hafa verið send til
lögreglunnar. Málin voru öll send á síðasta
ársfjórðungi síðastliðins árs. Már Guðmunds-
son er seðlabankastjóri. Mynd róBErT rEyniSSon