Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Síða 32
32 | Viðtal 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
og mikill einfari og vel mér fáa og
góða vini til að umgangast.“
Ekki ánægð með útlitið
Anna Mjöll hugsar mikið um heilsuna
en hugsar hún líka mikið um útlitið?
Er það krafan í bransanum?
„Það er ekki krafan, en ég sé að
fólk reynir að hugsa vel um sig og
líta eins vel út og það getur. Það geri
ég líka og vegna þess að það er bara
skemmtilegra, það geta allir í heim-
inum litið aðeins betur út ef þeir gera
eitthvað í því. Ég geri eins vel og ég
get í því. Kannski sérstaklega af því að
ég persónulega hef alltaf verið með
komplexa yfir útlitinu. Þegar ég var
að byrja í bransanum var ég alltaf að
reyna að draga athyglina frá því með
því að geifla mig og glensa. Ég hef
hætt því en hætti ekki að hugsa um
útlit og heilsu. Hvort tveggja er mér
mikilvægt.“
Erfið tónleikaferðalög
Ferill Önnu Mjallar tók kipp þegar
hún var ráðin sem bakraddasöngkona
hjá söngvaranum Julio Iglesias og hélt
af stað í þriggja ára tónleikaferðalag.
Á tónleikaferðunum lenti hún í ótelj-
andi ævintýrum auk þess sem þau
voru erfið. Anna Mjöll segist lifa sí-
gaunalífi þegar hún sé á slíkum ferða-
lögum. „Þetta er ekkert glæsilíf, heldur
hörkuvinna. Við sofum þegar við sjá-
um kodda og borðum þegar við sjáum
mat og oft vissi ég ekki hvort ég var að
lenda eða taka á loft í millilandaflugi.
Ég hef meira að segja hlaupið inn á
svið á inniskónum við síða kjólinn,
misst eyrna-mónitorinn minn í kló-
settið rétt fyrir sýningu, læst mig út
úr búningsherberginu mínu í næst-
um því engum fötum á meðan Ju-
lio reyndi að brjóta hurðina upp fyrir
mig og áhorfendur voru að klappa úti
í sal því að sýningin átti að vera byrj-
uð, villst ein í neðanjarðarlestum Tók-
ýó rétt fyrir tónleika, sofnað sitjandi á
sviði og verið boðið að kaupa alvöru
rússneskan hermannafrakka af hvísl-
andi húsverði uppi á háalofti innan
Kremlinmúranna!“
Þetta er augljóslega mikið hasarlíf,
hvernig fer hún að því að halda söns-
um?
Anna segir mikilvægast að halda
heilsu í þessum aðstæðum. „Í brans-
anum er mikilvægt að huga að and-
legri heilsu, ég geri það með því að
hugsa vel um voffana mína og er svo
heppin að eiga góða fjölskyldu. Það
eru ekki allir eins heppnir og ég og
þurfa að redda sér sjálfir. Foreldrar
mínir eru alltaf til staðar og grípa mig
ef ég fell. Þá er líka krafa um að vera
alltaf í stuði, það duga engir dívustæl-
ar.“
Hefði endað úti í skurði
Ævintýri Önnu eru hreint út sagt
mergjuð. Hún hefur hitt hefðarfólk,
stjórnmálamenn og goðsagnakenndar
manneskjur eins og Michael Jackson
og Hugh Hefner. Í augnablikinu eru
henni minnisstæð kynni af Alexand-
er, forseta Hvíta-Rússlands. „Það er
svo merkilegt, að á meðan á því stend-
ur finnst manni aldrei maður vera að
lenda í neinum sérstökum ævintýrum.
Ég hitti Alexander í Hvíta-Rúss-
landi. Það var rétt áður en hann var
búinn að kjósa sig sjálfur í fyrsta skipti
og við spiluðum fyrir hann á tónleik-
um. Hann var góður vinur Milosevic,
sem við spiluðum reyndar einnig fyr-
ir seinna á tónleikum. Hann og hans
ráðamenn sátu svo langt frá sviðinu að
þeir hljóta að hafa haldið að við mynd-
um bíta.
Alexander átti það sameiginlegt
með Milosevic að vera mjög góður í að
láta fólk hverfa vinstri, hægri og hann
bauð okkur eftir sýningu upp á vodka.
Ég sat á milli hans og Julios og þarna
voru líka nokkrir ráðherrar við borðið.
Þeir voru greinilega hræddir, eldrauð-
ir og skjálfandi. Ég hef aldrei séð svona
hrætt fólk á ævinni.
Alexander lét hella vodka í staup
fyrir alla við borðið. Ég tók svona pínu-
lítinn sopa úr staupinu og áfengið
brenndi niður í maga. Alexander sagði
að það væri móðgun við Hvíta-Rúss-
land ef við kláruðum ekki úr staup-
unum. Við hlýddum en hann lét hins
vegar fylla aftur í glösin og Julio sagði:
„Nei. Ég bara get það ekki. Ég bara
dey ef ég drekk einn sopa í viðbót!“ Þá
skulfu allir við borðið, en Julio er sterk-
ur persónuleiki og náði að milda Alex-
ander.
Alexander vildi svo fá að taka okk-
ur stelpurnar með í ferðalag til Kúbu í
nóvember og Julio reddaði okkur út úr
því. Við hefðum sennilega ekki komið
aftur. Værum enn á Kúbu í einhverjum
skurði.“
Fræg er heimsókn Önnu Mjallar á
setur Hughs Hefner sem kenndur er
við Playboy. Hvernig var sú heimsókn?
„Fyrsta heimsókn mín á Playboy-
setrið var mjög skemmtileg. Mér var
boðið ásamt tveimur vinkonum í kjöt-
kveðjuhátíðarpartí. Í þessum partíum
eru alltaf mörg mjög þekkt andlit, að-
allega karlmenn. Áður en fólk kem-
ur inn skrifa allir undir samning um
að nefna ekki nein nöfn. Það var tekið
mjög vel á móti okkur og okkur var sagt
að vera bara eins og við værum heima
hjá okkur. Húsið er mjög flott og mjög
stórt. Inni er risastórt bókasafn sem
inniheldur öll Playboy-rit frá upphafi.
Það eru margar athyglisverðar mynd-
ir á veggjunum. Þjónustustúlkurnar
eru yfirleitt naktar, en það sést ekki af
því að það eru málaðir búningar á þær.
Þær eru mjög flottar.
Það er alltaf mjög góður andi í hús-
inu og allir í stuði. Allir eru hvattir til að
henda sér í laugina þegar líður á. Ég sá
að þeir voru að stilla upp myndavélum
þar sem ég sat að fá fótanudd frá ein-
hverjum Adonis-gæja sem hafði skutl-
að mér niður á stól orðalaust, tekið af
mér skóna eins og ég væri öskubuska
og byrjað að gefa mér besta fótanudd
í heimi á meðan ég sötraði kampa-
vínið mitt. Allt í einu gengu inn sex
eða sjö stelpur, allar ljóshærðar og
voða sætar, og þeim var raðað í hálf-
hring við hringborð. Niður tröppurnar
kom Hugh í sloppnum sínum. Hann
skutlaði sér niður við borðið, talaði
við stelpurnar í fimm mínútur og lyfti
glösum fyrir myndavélarnar, stóð síð-
an upp og heilsaði upp á nokkra gesti.
Ég var svo heppin að vera ein af þeim.
Hann er voða góður gæi, mjög hlý-
legur, og hann kom til mín, bauð mig
ávallt velkomna og kyssti mig. Síðan
fór hann aftur upp tröppurnar og var
þá búinn að sinna skyldum sínum það
kvöldið.“
Áhyggjuleysi skiptir máli
Anna Mjöll segist hafa hugsað um
heimsókn sína á búgarð Michaels
Jackson eftir sviplegt andlát hans. „Ég
held að hamingjan felist bara í því að
rækta tengsl við ástvini sína og ávallt
að meta það sem maður hefur,“ seg-
ir hún. „Þegar ég hitti Michael Jack-
son hitti ég fyrir mann sem var aleinn
í heiminum og sennilega búinn að
missa skynbragð á raunveruleikann.
Það var skrýtin tilfinning á búgarðin-
um hans, það var verið að spila lög úti
í garði og þar var flott tívolí en yfir öllu
var svolítið dimmt yfirbragð. Ég held
að stundum geti peningarnir orðið
meira böl en hamingja og þá einangr-
ist fólk.
Áhyggjuleysi skiptir miklu máli og
ef maður hefur nægilegt fé til að hafa í
sig og á, þá er maður á besta staðnum.“
Hamingjusöm og ferillinn á
uppleið
Margt hefur breyst á síðustu árum í lífi
Önnu Mjallar sem sem gerir það að
verkum að hún hefur fundið hamingj-
una. „Ég var alltaf að reyna að vera ein-
hver sem ég var ekki og gera hluti sem
voru ekki mínir eigin. Mér fannst ég
aldrei vera nógu góð í neitt og glímdi
við mikið óöryggi.
Í dag er ég hamingjusamari en ég
hef verið lengi. Að miklu leyti af því að
líf mitt er einfaldara og léttara vegna
skilnaðarins og vegna þess hve vel mér
gengur úti. Ég er sátt við mig núna.
Ég er mjög stolt af báðum diskunum,
Shadow of Your Smile og Christmas
JaZZmaZ, sem ég hef gefið út núna á
einu ári með frábærum útsetningum
pabba sem hafa vakið mikla og góða
athygli úti í L.A. Ég var kosin á lista
sem ein af fimm bestu djasssöngkon-
um heims og komst þar á lista með Di-
önu Krall, sem mér þótti skemmtilegt.
Þá var nýja jólaplatan mín kosin
jólaplata aldarinnar af Arnaldo De-
Souteiro og mér fannst agalega gott að
fá það klapp á bakið. Fram undan er
svo mikil vinna því ég stefni á að semja
eigið efni og gefa út síðar á árinu. Það
efni verður allt öðruvísi en áður hefur
heyrst frá mér.“ kristjana@dv.is
Lögð í einelti í Réttarholtsskóla
Anna Mjöll segir höfnunina hafa verið
sára en hún hafi komist í gegnum erfið-
leikana með stuðningi fjölskyldunnar.
mynd sigtRygguR aRi
„Ég hef alltaf
gefið ranga mynd
af sjálfri mér. Ég gaf mig
út fyrir að vera opin og
glaðlynd. Alltaf að
glensa og grínast en
ég er ekki þannig.