Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Qupperneq 40
40 | Fókus 14. janúar 2011 Helgarblað
mælir með...
mælir ekki með...
KVIKMYND
Somewhere
Plottið er úthugsað,
gengur klárlega upp og
er skýrt.
KVIKMYND
Gauragangur
Frábær frumraun
Alexanders Briem sem
stendur sig frábærlega
í hlutverki hins orð-
heppna og svívirðilega
Orms Óðinssonar.
KVIKMYND
Tron: Legacy
Jeff Bridges bjargar
deginum með góðri
frammistöðu, ásamt
tónlist Daft Punk og
glæsilegu heildarútliti.
LEIKVERK
Ofviðrið
Vissulega er þarna
sitthvað sem gleður
augað, eins og sagt
er, en það er bara
ekki nóg.
KVIKMYND
The Last Exorcism
Klikkar í engri dýpt
sinni meðan farin
er stysta mögulega
leið að uppgjörinu.
H
ögni Egilsson hóf nám í
fiðluleik aðeins fimm ára
gamall og stundaði það
fram að unglingsárum. „Ég
hóf ungur fiðlunám en hætti því á
gelgjunni. Ég nennti þessu ekki leng-
ur, hugurinn dreifði sér og ég vissi
þá ekki vel hvað ég ætlaði mér í líf-
inu. Ég held mig hafi vantað rými til
að hugsa minn gang. Pabbi er liðtæk-
ur píanóleikari og bróðir minn leik-
ur á selló í Sinfóníuhljómsveitinni og
heima hjá mömmu var ég alinn upp
við tónlist alla daga. Ég var settur í
fiðlunámið og tók því sem barn sem
sjálfsögðum hlut en á unglingsárun-
um þá fer náttúrulega fram ákveð-
in sjálfstæðisbarátta. Ég fann þó að
nokkru eftir að ég hætti fiðlunáminu
saknaði ég þess að iðka tónlist.“
Þorgerður vakti mig
Þrátt fyrir söknuðinn fannst Högna
hann ekki hafa sanna ástríðu fyrir tón-
list svo hann ákvað að fara í mennta-
skóla og sjá til hvað yrði. „Ég fékk mér
samt gítar þegar ég var 17 ára og hafði
gaman af því að leika mér að því að
spila á hann.“ Glamrið vatt upp á sig
og áhuginn fór aftur að blossa upp.
Það var þó ekki fyrr en í Menntaskól-
anum í Hamrahlíð, þar sem Högni
lærði um tónlist hjá Þorgerði Ingólfs-
dóttur og söng með Hamrahlíðar-
kórnum undir hennar stjórn, að áhug-
inn tók yfir. „Þorgerður og kórstarfið
vöktu mig,“ segir Högni. „Ég fann aftur
þessa löngun til að hella mér út í tón-
list við það að syngja. Það að syngja
kemur þér í betri tengsl við sjálfan þig
um leið og aðra, sérstaklega þegar þú
syngur í kór. Ég fann mig vel í kórn-
um, hreifst af tónlistinni sem kórinn
flutti, söngstílnum og hljómnum og
satt best að segja held ég að Þorgerður
hafi mótað mig talsvert. Með kórstarf-
inu hélt ég áfram að spila á gítarinn og
lék mér að því að semja lög.“
Latur og leiddist það
Leið Högna lá þó ekki þráðbeint í
bransann heldur lagði hann lykkju
á leið sína og gekk í Myndlistarskóla
Reykjavíkur að loknu stúdentsprófi.
„Ég var þó fljótur að finna að ég átti
að sinna tónlistinni. Ég hef mikinn
áhuga á myndlist en fyllist ekki orku til
að klára hlutina eins og ég geri þegar
ég vinn að tónlist. Ég var eiginlega lat-
ur og leiddist það. Ég tók því ákvörðun
um að læra tónsmíðar og gerði það í
Listaháskóla Íslands þar sem ég lærði
ýmislegt gagnlegt, meðal annars hjá
Atla Ingólfssyni, Kjartani Ólafssyni og
Hróðmari Inga Sigurbjörnssyni.“
En var það þar sem Hjaltalín varð
til?
„Nei og já,“ segir Högni. „Hjaltalín
byrjaði aðeins að myndast í MH en
varð samt ekki almennilega til fyrr en
árið eftir að við lukum stúdentsprófi.
Þegar ég var kominn í Listaháskólann
þá blandaðist starfið í Hjaltalín við
námið og varð stór hluti af því. Reynsl-
an við það að skrifa tónlist fyrir svo
stóran hóp tónlistarmanna var ómet-
anleg og líka að spila og gefa út plötur.“
Lærdómur í leikhúsinu
Á seinni árum hefur Högni farið í all-
ar áttir í tónlistinni. Hann er lagahöf-
er ekki tilviljun
Gróska í listalífinu
Verkefni Högna eru mörg og
ólík, hann fer í sem flestar
áttir og segir það allt hið
besta mál. Leikhúsið er nýr
starfsvettvangur Högna og
reynslan þaðan hefur haft
mikil áhrif á hann en hann
samdi tónlist við uppfærslu
Borgarleikhússins á Ofviðr-
inu. Högni ræðir um listina
og hvað það þýði að lifa
listamannslífi og hvernig
kórsöngur vakti hann til
lífsins.
Kórstjórinn vakti Högna Högni Egilsson hafði gefið tón-
listarnám upp á bátinn þegar hann gekk í Kór Menntaskólans
í Hamrahlíð, þar vakti Þorgerður Ingólfsdóttir hann rækilega
til lífsins og Högni fór tvíefldur í nám í tónsmíðum.
„Hvað ertu að hlusta á?
„Í bílnum hlusta ég á Orphic oxtra,
feitustu balkanhljómsveit landsins, og
í geislaspilaranum er nýja platan hans
Valdimars, Undraland.“
Hvaða tónlist kemur þér alltaf í
gott skap?
„Mér líður vel þegar ég hlusta á lagið Haiti
með Arcade fire. það er allavega búið að
vera á rípít síðustu daga.“
Hvaða bók ertu að lesa núna?
„Glæp og refsingu eftir Dostojevskí.“
Áttu þér einhverja uppáhalds-
bók?
„Ö... get ekki valið uppáhalds.“
Uppáhaldskaffihús?
„Eymundsson í Austurstræti. Ljúft að
koma þangað hvort sem maður er einn
eða með einhverjum og glugga í blöð og
bækur.“
Hvaða tímarit lestu?
„Lifandi vísindi, Vogue og Gestgjafann. Ég
elda samt aldrei, finnst bara gaman að
skoða uppskriftirnar.“
Hildur Berglind Arndal leikkona:
Les uppskriftir
en eldar aldrei
Hvað ertu að gera?
Svo fyndin en langt yfir strikið
Ég var mjög hugsi þegar mamma mín spurði mig hvernig mér hefði líkað Klovn – The Movie.
Vildi ég beina móður minni á mynd
þar sem maður hefur sáðlát fyr-
ir misskilning á tengdamóður sína?
Vildi ég senda mömmu á mynd þar
sem grín í kringum barnaklám geng-
ur svo miklu lengra en nokkurn tím-
ann hefur sést? Raunar svo langt að
ef þeir hefðu ekki beitt tölvutækni, þá
væru þeir sennilega á leiðinni í fang-
elsi. Ef pólitísk rétthugsun fengi að
ráða afstöðu minni, þá hefði ég frek-
ar sent móður mína í messu og beðið
fyrir Frank og Casper.
En ég er ekki svo skinhelgur að ég
hafi áhyggjur af þessu. Klovn – The
Movie er einfaldlega hrikalega fynd-
in mynd. Húmorinn í myndinni er
ekki beint fyrir lengra komna. Grín-
ið snýst um homma, kynlíf, kelling-
ar, fyllerí, hassreykingar, lítil typpi og
vændiskonur, svona í einföldu máli.
Í myndinni er sagt frá ferðalagi
þeirra Caspers og Franks, sem hinn
fyrrnefndi hefur nefnt „Píkuferðina“.
Þeir neyðast til þess að taka 13 ára
frænda Franks með í ferðina, sem út
á við snýst um siglingu á kanó í guðs-
grænni náttúrunni og heimsókn á
útihátíð. Allt snýst þó í raun um að
finna sér hjásvæfur og komast á flott-
asta vændishús Danmerkur, þangað
sem aðeins sérstakir boðsgestir mega
koma. Upphefst algjörlega spreng-
hlægileg atburðarás, þar sem leitin
að hjásvæfum togast á við ábyrgðina
sem fylgir því að passa upp á óharðn-
aðan unglingspilt. Engar bremsur er
að finna hjá þeim félögum, Frank og
Casper, og því er óhætt að segja að allt
fari til andskotans!
Salurinn í Sambíóunum í Egilshöll
lá í hláturskasti og eflaust hafa ein-
hverjir fundið til í maganum. Ef þú
hefur á annað borð gaman af Klovn
og ert til í að láta ganga pínulítið fram
af þér, þá er þetta myndin fyrir þig.
Klovn – The Movie
IMDb 8,1
Leikstjóri: Mikkel Nørgaard
Leikarar: Iben Hjejle, Barbara Zatler og
Casper Christensen.
Bíódómur
Valgeir Örn
Ragnarsson