Dagblaðið Vísir - DV - 14.01.2011, Qupperneq 42
42 | Lífsstíll 14.–16. janúar 2011 Helgarblað
Hátíðarmarkaður PopUp
• Gott til að steikja úr
• Má nota í bakstur
• Gott viðbit á brauðið (smjör)
• Án transfitusýru
• Gott fyrir blóðfituna (kólesteról)
• Færri kaloríur
• Tilvalið í staðinn fyrir olívu olíu
• Án gerviefna eða rotvarnarefna
ROYaL GReen
100% lífræn kókos jurtaolía sem er laus við kókosbragð og kókoslykt
Útsölustaðir:
• Heilsuhúsið Kringlunni, Akureyri, Laugavegi, Lágmúla, Smáratorgi, Keflavík og Selfossi
• Fræið Fjarðarkaupum • Maður lifandi Borgartúni og Hæðarsmára • Heilsuver • Verslunin Vala Sólheimum.
Flestir telja að húð-
umhirða feli í sér þrjú
heilög atriði: Hreinsa,
setja andlitsvatn og
nota rakakrem. Sann-
leikurinn er sá að það
er í góðu lagi að sleppa
því að nota andlitsvatn.
„Fólk með feita húð trúir
því að með því að nota
andlitsvatn dragi það
úr olíumyndun húð-
arinnar,“ segir Ranella
Hirsh húðlæknir. „Það er
ekki rétt, ef þú hreins-
ar alla olíu af andlitinu
þá framleiðir húðin enn
meira af henni því olían
er eitt besta varnartæki
húðarinnar.“
Mýta um
húðumhirðu
Notaðu
sparikjólinn
hversdags
Þ
að er mikil synd að kaupa flíkur sem
hanga meira og minna inni í skáp þar
til þær fara úr tísku og eru sendar í end-
urvinnslu. Oft eru það dýrmætustu og
fallegustu flíkurnar sem eru minnst notaðar. En
það er um að gera að draga sparidressið fram úr
skápnum og nota það. Þú ættir meira að segja að
komast upp með að nota það alla daga ef þú kær-
ir þig um.
Með mjög einföldum hætti getur þú nefni-
lega umturnað heildarútlitinu og klætt hvaða flík
sem er upp eða niður. Með réttum aðferðum ættir
þú því að geta skapað stíl sem leyfir þér að kom-
ast upp með að mæta í vinnuna í sparikjólnum
án þess að þykja óviðeigandi. Hár, förðun, annar
fatnaður og fylgihlutir hafa allt um það að segja
hvernig flíkin kemur út. Síðermabolir, stórar peys-
ur, sokkar og þykkar sokkabuxur, grófir skór og
jakkar, húfur og treflar og hversdagslegar töskur
virka vel til þess að tóna heildarmyndina niður.
Veldu líka frekar hversdagslegt belti og tösku. Þá
ættir þú að vera góð.
Ef þig vantar innblástur er hægt að fá endalaus-
ar hugmyndir á síðum eins og lookbook.nu sem er
vettvangur fyrir stílista og aðra tískuáhugamenn
sem pósta reglulega af sér myndum og looklet.
com þar sem þú getur leikið þér að því að velja föt
sem fást núna í búðum og raða þeim saman.