Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.2011, Qupperneq 44
44 | Tækni Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is 1.–3. apríl 2011 Helgarblað
H
ugbúnaðarfyrirtækið Micro-
soft hefur hafið málarekstur
gegn leitarrisanum Google
með formlegri kvörtun til
Evrópusambandsins. Í kvörtuninni
kemur fram að fyrirtækið telji Google
reyna að koma í veg fyrir samkeppni á
leitarvélamarkaðnum með skipulögð-
um hætti. Þetta er í fyrsta skipti sem
Microsoft kvartar undan öðru fyrirtæki
vegna samkeppnisbrota en sjálft á það
hlut að fjölda mála – bæði í Bandaríkj-
unum og Evrópu – sem tengjast meint-
um brotum á samkeppnisreglum. Í
kvörtuninni sem send var viðeigandi
stofnun innan Evrópusambandsins
bendir fyrirtækið á það sem þeir kalla
„aðgerðamynstur“ af hálfu Google
sem hamli samkeppni.
Þrjár aðrar kvartanir liggja fyrir
Google rekur langstærstu leitar-
vél í heimi og stjórnar um 90 pró-
sentum af leitarvélamarkaðnum í
Evrópu, sem er í eðli sínu langtum
meira en markaðshlutdeild leitar-
vélarinnar Bing sem Microsoft rekur.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem kvart-
að er undan meintum samkeppnis-
hamlandi aðgerðum Google en þrjú
minni fyrirtæki, þar af eitt sem er í
eigu Microsoft, hafa kvartað til Evr-
ópusambandsins og vinnur sam-
bandið nú að rannsókn á þeim kvört-
unum. Stjórnendur Google virðast
ekki hafa miklar áhyggjur af kvörtun-
inni og hafa ekki svarað henni eins
og fyrirtækið hefur áður gert í öðrum
málum.
Aðgerðirnar koma ekki á óvart
„Þessar aðgerðir Microsoft koma
ekki á óvart, þar sem dótturfyrir-
tæki þeirra var meðal þeirra sem
þegar hafa kvartað,“ segir talsmað-
ur Google, Al Verney, í samtali við
Reuters-fréttastofuna. „Við höldum
bara áfram samvinnu okkar við Evr-
ópusambandið og við útskýrum fyr-
ir hverjum sem er, með glöðu geði,
hvernig við stundum viðskipti.“ Evr-
ópusambandið hefur tekið við kvört-
un Microsoft og hefur opinberlega
staðfest hún verði tekin til skoðun-
ar. „Sambandið tekur kvörtunina til
skoðunar og, eins og reglur kveða
á um, tilkynnir Google um hana og
leitar eftir viðbrögðum þess. Engra
frekari upplýsinga er að vænta,“ sagði
talskona sambandsins, Amelia Tor-
res, í tilkynningu um málið.
Kvörtunin tengist YouTube
Kvörtun Microsoft snýr meðal annars
að því að lokað hefur verið á mynd-
bandasíðuna YouTube, sem er í eigu
Google, í snjallsímum sem keyra
á Windows 7-stýrikerfinu frá fyrir-
tækinu. Brad Smith, einn stjórn-
enda Microsoft, segir í langri blogg-
færslu sem hann hefur birt um málið
að óeðlilegt sé að lokað sé á síma sem
keyra á Windows-stýrikerfi á meðan
opið er á síðuna fyrir iPhone-síma frá
Apple, sem eru ekki í samkeppni við
Google á leitarvélamarkaði, og far-
síma sem keyra á Android-stýrikerfinu
frá Google.
Google ljósleiðaravæðir:
Háhraðanet
í Kansas
Tæknirisinn Google hefur hafist
handa við að fylgja eftir tilkynningu
sinni frá því í febrúar í fyrra um að
setja upp ljósleiðaranet í heilli borg í
Bandaríkjunum með möguleika á allt
að 1 Gb hraða á sekúndu – sem er 100
sinnum meiri hraði en á venjulegri
nettengingu í Bandaríkjunum í dag. Í
kjölfar tilkynningarinnar sóttu 1.100
borgir um en á miðvikudag tilkynnti
Google að fyrirtækið hefði valið Kan-
sas-borg í Kansasríki.
Á upplýsingasíðu sem sett hefur
verið upp fyrir íbúa Kansas af Google
kemur meðal annars fram að fyrir-
tækið hyggist hefja uppsetningu ljós-
leiðaranetsins fyrir lok þessa árs og að
hægt verði að þjónusta fyrstu íbúana
á fyrsta ársfjórðungi árið 2012. Ljós-
leiðaranetið á svo að lokum að ná til
allra íbúa í borginni, sem eru um 146
þúsund íbúa. Borgin verður sú fyrsta
í Bandaríkjunum sem verður búin
þéttu ljósleiðaraneti sem nær til allra
íbúa. Íbúar munu svo geta keypt sér
aðgang að netinu á því sem Google
kallar „samkeppnishæft verð miðað
við það sem fólk borgar fyrir netað-
gang í dag.“ Google hefur þó ekkert
gefið uppi um hvað þeir telja sam-
keppnishæft verð.
Í myndbandi sem annar stofnanda
Google, Sergey Brin, sendi frá sér í til-
efni tilkynningarinnar segir hann að
Kansas sé aðeins byrjunin og gaf til
kynna að vinna að ljósleiðaravæðingu
annarra borga í Bandaríkjunum gæti
hafist í náinni framtíð. Ljósleiðara-
væðing hefur ekki gengið hratt fyrir sig
í Bandaríkjunum en þetta skref Go-
ogle gæti ýtt á önnur tæknifyrirtæki að
flýta fyrir útbreiðslu ljósleiðara.
Microsoft
n Formleg kvörtun vegna Google á borði Evrópusambandsins n Google
sagt stunda skipulagðar aðgerðir til að hamla samkeppni n Google rólegt
yfir kvörtuninni n Þrjár aðrar sambærilegar kvartanir liggja fyrir hjá ESB
kvartar yfir Google
Hamlar Google samkeppni? Hugbúnaðarrisinn
Microsoft telur að Google brjóti á sér og stundi aðgerðir
sem hamli samkeppni með skipulögðum hætti. MYnd REuTERS
Apple á
eftir áætlun
Þeir sem bjuggust við því að Apple
myndi fylgja eftir útgáfu iPhone 4 í
sumar með nýrri kynslóð þessara
vinsælu snjallsíma fá ósk sína ekki
uppfyllta. Samkvæmt japanska Mac-
bloggaranum Macotakra er Apple
langt á eftir eigin áætlunum með
þróun og prófunum á næstu útgáfu
iPhone. Apple gaf út fyrri iPhone-út-
gáfur sínar yfir sumartíma en núna
gæti orðið breyting á.
NóatúNi 17 - Sími 414 1700 GLERÁRGÖtU 30 - Sími 414 1730 miðvaNGi 2-4 - Sími 414 1735 aUStURvEGi 34 - Sími 414 1745HafNaRGÖtU 90 - Sími 414 1740 REykjavíkURvEGi 66 - Sími 414 1750
Reykjavík • akuReyRi • egilsstaðiR • keflavík • selfoss • HafnaRfjöRðuR
BETRA
ALLTAF
VERÐ15,6”
FARTÖLVA
Toshiba Satellite C660-1F5
• 2.53GHz Intel Core i3-380M - Dual core
• 4GB DDR3 1066MHz minni
• 500GB SATA diskur
• 512MB AMD Radeon HD 5470 DirectX 11 skjákort
• DVD og CD-RW skrifari
• 15.6" WXGA LED skjár
• Windows 7 Home Premium 64-BIT
• Vefmyndavél
119.990