Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Qupperneq 4
4 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
– Afslátt eða gott verð?
Reykjavík - Reykjanesbæ
Akureyri - Húsavík
Vestmannaeyjum
Stál og plast þakrennur
Allir fylgihlutir fáanlegir
Frábært
verð!
„Teinarnir stungust inn í handlegg-
inn á honum og hann hékk bara á
honum og hann tættist allur upp,“
segir Eva Dís Björgvinsdóttir, móðir
hins 14 ára gamla Ómars Smára Ótt-
arssonar. Síðastliðinn föstudag varð
hann fyrir því óhappi að hægri hand-
leggurinn á honum kræktist í tein á
girðingu við Ásvelli, íþróttasvæði
Hauka í Hafnarfirði, þegar hann
stytti sér leið þar yfir.
Teinarnir eiga að vísa niður
DV greindi frá því á miðvikudaginn
að Aðalsteinn Svan Hjelm hefði fyr-
ir ári misst fingur þegar trúlofunar-
hringur hans flæktist í teini á sams
konar girðingu við Áslandsskóla í
Hafnarfirði. Hann hafði verið í fót-
bolta með syni sínum við skólann
þegar boltinn festist í tré á bak við
markið. Hann prílaði upp á girð-
inguna til að losa boltann úr trénu
og þegar hann stökk niður festi hann
hringinn í girðingunni. Hann hefur
gagnrýnt að girðingum sem þessum
sé snúið þannig að teinarnir vísi upp,
en mögulegt er að snúa þeim þannig
að þeir vísi niður. Hann vill meina að
girðingarnar séu slysagildra. Eva Dís
er sammála Aðalsteini. „Mér skilst
að það standi í leiðbeiningum með
þessum girðingum að þar sem eru
börn að leik eða fólk á ferð að þá eigi
þessir gaddar ekki að snúa upp.“
Slapp ótrúlega vel
„Ómar þurfti að gangast undir eins
og hálfs tíma aðgerð eftir slysið og
Eva Dís segir skurðlækninn hafa sagt
að það væri ótrúlegt að hann hefði
sloppið við að skærist á slagæðina
því skurðurinn var alveg við hana.
„Það var heljarinnar púsluspil að
koma þessu saman og mikill sauma-
skapur. Þetta náttúrulega stakkst inn
í vöðvann og reif hann. Það þurfti því
að sauma vöðvann saman í nokkr-
um lögum upp að húð,“ segir Eva
Dís þegar hún lýsir áverkum Ómars
og hvernig gera þurfti að meiðslum
hans. „Hann slapp nú við tauga-
skemmdir og slíkt sem var bót í máli.“
Tröppur upp girðinguna
Eva Dís segir mjög algengt að börn
og unglingar príli yfir girðinguna á
þessu svæði. „Krakkarnir príla þarna
yfir til að stytta sér leið. Sonur minn
var á íþróttadegi í skólanum og príl-
aði þarna yfir, en innan á þessari
girðingu við Ásvelli, þar sem hann og
fleiri krakkar fóru yfir, eru járnstoðir
og spýtur sem eru eiginlega bara eins
og tröppugangur upp girðinguna,“
segir Eva Dís sem vill ekki hugsa
þá hugsun til enda ef sonur henn-
ar hefði verið einn á ferð. Hún seg-
ir Ómar í fyrstu hafa haldið að hann
hefði fest sig á armbandinu sínu en
svo leit hann á lausa handlegginn og
þá var armbandið þar. „Á hverju er
ég eiginlega fastur?“ hugsaði hann
og fann nánast ekki fyrir neinum
sársauka. „Svo kom vinur hans og
lyfti honum upp til að losa höndina
og spurði hvort allt væri í lagi. „Já,
það er allt í lagi,“ sagði hann og gekk
af stað en þá kom sársaukinn.“ Eva
Dís segir krakkana sem voru með
syni hennar heldur ekki hafa gert sér
grein fyrir alvarleika málsins og töldu
að hann hefði flækt einhverja flík í
girðingunni.
Tíminn leiðir í ljós hvort Ómar
nái sér
Eva Dís segir að tíminn verði að
leiða í ljós hvort vöðvinn í hand-
legg sonar hennar nái að jafna sig
og hvort hann nái fullum styrk á
nýjan leik. Ómar æfir handbolta
og verður alla vega frá æfingum
fram á haust og þar sem áverkarnir
eru á hægri handleggnum þá kem-
ur þetta til með að há honum tölu-
vert fyrst um sinn, alla vega á með-
an vöðvinn er að gróa. Eva Dís vill
að saga sonar hennar ásamt sögu
Aðal steins verði til þess að girð-
ingunum verði snúið við og settar
þannig upp í framtíðinni að tein-
arnir vísi niður.
slasaðist illa
á járngirðingu
n Ómar Smári var að stytta sér leið yfir girðingu og festi handlegginn n Lán
að ekki skarst á slagæð n Var púsluspil að koma handleggnum aftur saman
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
blaðamaður skrifar solrun@dv.is
Slasaðist illa
Ómar Smári var að
stytta sér leið yfir
girðingu við Ásvelli
í Hafnarfirði þegar
hann festi handlegg-
inn. mynd SigTryggur Ari
Slysagildra Girðing sömu gerðar og Ómar
prílaði yfir.
Áverkarnir Vöðvinn rifnaði mjög illa og Ómar þurfti að gangast undir eins og hálfs tíma
aðgerð þar sem handleggnum var tjaslað saman.
Miðvikudaginn 1. júní.
Sundlaugin á Selfossi uppfyllti ekki
reglugerð um öryggi á sundstöð-
um þegar fimm ára gamall drengur,
Vilhelm Þór Guðmundsson, lenti í
alvarlegu slysi í innilauginni þar 21.
maí síðastliðinn. Vilhelm Þór lést á
sjúkrahúsi daginn eftir. Sundlaug-
arvörður sem átti að sinna laugar-
gæslu í innilauginni var að sinna
öðrum störfum samhliða gæslunni
en það er með öllu óheimilt sam-
kvæmt reglugerðinni sem tók gildi
í október á síðasta ári. RÚV greindi
frá þessu.
Haft var eftir Elísi Kjartanssyni,
lögreglufulltrúa á Selfossi, að þrír
starfsmenn hefðu verið að störfum
í sundlauginni, og hefur rannsókn
leitt í ljós að starfsmanni í afgreiðslu
var falið eftirlit með innilauginni en
hann virðist ekki hafa haft tök á því
vegna anna í afgreiðslustörfum.
DV fjallaði um öryggi á sundstöð-
um í síðustu viku. Þar kom fram að
það væri vandamál í smærri laugum
úti á landi að sami starfsmaður-
inn sinnti laugargæslu, baðvörslu
og afgreiðslu. Herdís Storgaard
framkvæmdastjóri Slysvarnarhúss-
ins benti á að þetta væri alvarlegt
vandamál og sagði slíkar laugar ekki
eiga að fá að starfa. „Það segir sig
sjálft að þegar menn eru að byggja
þessar laugar, með innilaugum, úti-
laugum, busllaugum, sánu og öllu
þessu, þá þarf fleiri starfsmenn og
það þarf að skilgreina starfsmenn-
ina. Þetta er aldrei tekið með inn í
heildarkostnaðaráætlun þegar farið
er af stað í þessar byggingar. Svo er
þetta svo dýrt í rekstri að það er lág-
marksfjöldi starfsmanna,“ sagði Her-
dís í samtali við DV.
Myndavélar hafa nú verið settar
upp í innilauginni á Selfossi en
ákvörðun um uppsetningu þeirra
var tekin fyrir slysið.
Banaslys í sundlauginni á Selfossi:
Sinnti öðru
samhliða
gæslunni