Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Page 10
Hæstaréttarlögmennirnir Björn
Þorri Viktorsson og Karl Georg Sig-
urbjörnsson voru í Héraðsdómi
Reykjavíkur dæmdir til að greiða
Nýja Landsbanka Íslands 21,1
milljón króna með dráttarvöxtum
frá 15. janúar 2010. Auk þess voru
lögmennirnir dæmdir til að greiða
NBI 400 þúsund krónur í máls-
kostnað, ásamt virðisaukaskatti.
Dómurinn var kveðinn upp 26.
maí en málið var höfðað af NBI.
Málavextir eru þeir að í apríl árið
2005 stofnaði fyrirtæki lögmann-
anna M182-B ehf., áður Fasteigna-
salan Miðborg, tékkareikning við
útibú Landsbankans. Reikningn-
um var lokað í október árið 2009 en
þá námu innistæðulausar færslur á
reikninginn 23,5 milljónum króna
og var reikningnum lokað.
Karl Georg og Björn Þorri tóku á
sig sjálfskuldarábyrgð á skuld þess-
ari gagnvart Landsbankanum fyrir
allt að 21,2 milljónum króna auk
vaxta og kostnaðar við innheimtu.
Landsbankinn byggði kröfu
sína á því að Karl Georg og Björn
Þorri greiddu ekki skuld sína við
stefnanda samkvæmt sjálfskuldar-
ábyrgð þeirra, vegna innistæðu-
lausra færslna af reikningnum.
Ósanngjörn krafa vegna kerfis-
hruns
Karl Georg og Björn Þorri byggðu
sýknukröfu sína á því að þeim bæri
ekki skylda til að greiða umrædda
fjárhæð. Töldu þeir að Landsbank-
anum væri óheimilt að bera fyrir sig
umrædda kröfu því það væri ósann-
gjarnt að þeir þyrftu að bera óskipt
allar byrðar vegna þess kerfishruns
sem orðið hafi í kjölfar hruns bank-
anna.
Greint frá því í síðasta mánuði
að skiptum hefði lokið í þrotabúum
L182A ehf., áður Lögmenn Laugar-
dal ehf., og M182-B ehf., áður Fast-
eignasalan Miðborg ehf. Engar eign-
ir fundust í búunum en lýstar kröfur
náðu samtals rúmum 135 milljónum
króna í félögunum tveimur. Félögin
voru í eigu lögfræðinganna Björns
Þorra og Karls Georgs. Félögin voru
bæði tekin til gjaldþrotaskipta með
úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur 7.
október árið 2009. Félögin Lögmenn
Laugardal og Fasteignasalan Mið-
borg eru ennþá starfrækt í dag en
undir nýrri kennitölu.
Gert að greiða vegna vanskila á
korti og tékkareikningi
Þá tapaði Karl Georg einnig máli gegn
Landsbankanum. Dómur í þeim mál-
um var einnig kveðinn upp 26. maí.
Málavextir eru þeir, að Karl Georg
var með VISA-greiðslukort og tékka-
reikning frá Landsbankanum. Karl
Georg þarf að greiða 1,7 milljónir
króna ásamt dráttarvöxtum af kortinu
og 200 þúsund krónur í málskostnað.
Vegna vanskila á tékkareikningnum
þarf hann að greiða 2,1 milljón króna
ásamt dráttarvöxtum, auk 250 þús-
unda króna í málskostnað stefnanda.
Karl Georg byggði málsvörn sína á því
að Landsbankanum væri óheimilt
að bera fyrir sig umrædda kröfu, það
væri ósanngjarnt að hann bæri allar
byrðar óskipt vegna þess kerfishruns
sem orðið hafi í kjölfar hruns bank-
anna.
Fjármál fyrir dómstólum
Karl Georg tapaði svo enn einu
máli þann 26. janúar á þessu ári,
en þá féllst Héraðsdómur Reykja-
víkur á kröfu þrotabús Baugs Gro-
up um að rifta samtals 9,9 milljóna
króna greiðslum, sem hann fékk frá
félaginu í lok árs 2008. Hann hafði
fengið þessa upphæð sem bæt-
ur vegna vinnutaps, álitshnekkis
og kostnaðar sem hann varð fyrir
vegna starfa fyrir dótturfélag Baugs.
Í haust vann Arion banki svo
mál sem hann höfðaði gegn Karli
Georg og viðskiptafélaga hans
vegna láns sem tekið var hjá Spari-
sjóði Mýrasýslu árið 2005 að jafn-
virði 17,6 milljóna króna. Lán-
ið var ekki greitt, en á gjalddaga
var lántakanda fyrir mistök send
greiðslukvittun. Dómurinn féllst á
að greiðslukvittunin hefði ekki ver-
ið gild og lánið hafi því ekki verið
greitt til baka. Karl Georg sótti í vor
um greiðsluaðlögun hjá umboðs-
manni skuldara.
10 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Enn er Karl Georg
dæmdur til að borga
„Ósanngjarnt að
stefndu þyrftu að
bera óskipt allar byrðar
vegna þess kerfishruns
sem orðið hafi í kjölfar
hruns bankanna.
Birgir Olgeirsson
blaðamaður skrifar birgir@dv.is
n Björn Þorri og Karl Georg töpuðu í héraði máli gegn Landsbankanum
n Sögðu kröfuna vera ósanngjarna vegna kerfishruns
Karl Georg Þeir félagar voru dæmdir til að greiða Nýja Landsbankanum 21 milljón króna.
Björn Þorri Hann og Karl Georg byggðu
sýknukröfu sína á því að þeim bæri ekki
skylda til að greiða umrædda fjárhæð.