Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Page 16
16 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
fyrstu hæð
Sími 511 2020
FLOTTIR ÍTALSKIR DÖMUSKÓR, TÖSKUR, JAKKAR - MARGIR LITIR - MIKIÐ ÚRVAL
MESTA ÚRVAL LANDSINS AF ÍTÖLSKUM SPORTSKÓM - MIKIÐ ÚRVAL AF SANDÖLUM
Erum á
NÝ SENDING
MARGAR TEGUNDIR
AF SKÓSKRAUTI
11.790,- 15.390,-
11.990,- 7.990,- 11.790,-
15.990,- 11.790,- 12.990,- 11.990,-
10.990,- 12.990,- 12.990,- 11.490,-
Lántakendur gengistryggðra lána
hjá Frjálsa fjárfestingarbankanum
eru settir í þá leið sem krefst mestr-
ar greiðslubyrði í upphafi endur-
greiðslutímans. Þetta gerist sjálfkrafa
séu þeir ekki tilbúnir til að skrifa
undir samning þess efnis að þeir
samþykki endurútreikning bankans
á gengistryggðum lánum. Þessa dag-
ana eru í gangi dómsmál sem geta
enn á ný haft áhrif á endanlega nið-
urstöðu gengistryggðra lána og eru
því ekki allir lántakendur tilbúnir til
að skrifa undir samninga um að þeir
samþykki endurútreikning bankans.
Viðskiptavinur bankans sem DV
ræddi við segir bankann með þessu
þvinga þá sem ekki hafi efni á leið-
inni til þess að skrifa undir samninga
sem mikil lagaóvissa ríki um. Fjórar
mismunandi leiðir eru í boði fyrir þá
lántakendur þrotabúsins sem skrifa
undir nýjan lánasamning. Skrifi fólk
undir án þess að setja sérstakan fyr-
irvara við er mögulegt að það hafi
fyrirgert rétti sínum til frekari leið-
réttinga.
Ósvífin framkoma
Ingólfur Friðjónsson framkvæmda-
stjóri löginnheimtu Frjálsa fjárfest-
ingarbankans þvertekur fyrir að við-
skiptavinir séu þvingaðir til þess að
skrifa undir lánasamninga. Hægt sé
að velja um fjórar mismunandi leið-
ir með því að samþykkja nýja samn-
inga og skrifa undir. „Menn detta
eingöngu sjálfkrafa í leið eitt ef þeir
svara bankanum ekki og hafa ekkert
samband,“ segir hann. Ingólfur segir
jafnframt að fólk sem eigi erfitt með
að greiða samkvæmt leið eitt á þess-
um tímapunkti geti til dæmis valið
um að lengja í láninu takist þeim að
semja við bankann um það.
Hæstiréttur Íslands dæmdi á
þessu ári í máli Tölvupóstsins ehf.
gegn Frjálsa fjárfestingarbankanum
en þar er viðurkennt að öll gengis-
tryggð húsnæðislán sem eru efnis-
lega samhljóða lánum Frjálsa fjár-
festingarbankans hf. beri ólögmæta
gengistryggingu. Viðskiptavinur
Frjálsa fjárfestingarbankans segir
ákveðna óvissu ríkja um lögmæti út-
reikninganna og að það sé eitthvað
sem bankinn gangist við. „Mér finnst
það því ósvífin framkoma í garð við-
skiptavina að gera þessa ýtrustu
kröfu ef fólk skrifar ekki undir,“ segir
hann.
Gerir fólki erfitt fyrir
Viðskiptavinurinn segir að um við-
skiptasamband á milli skuldara og
banka hafi verið að ræða, þar sem
annar aðilinn hafi brotið af sér og
fengið á sig dóm vegna gengistrygg-
ingar. „Það er því sérstakt að sá aðili
geti farið fram á að skuldarinn fari í
þá leið sem er með mestu byrðina í
upphafi.“ Hann segir þetta gera fólki
afar erfitt fyrir.
„Hvort sem það er tilgangur
bankans eða ekki þá virkar þessi
krafa bankans, að viðskiptavin-
ir borgi samkvæmt þessari dýrustu
leið, á þann veg að það þvingar þá
viðskiptavini til að skrifa undir, sem
ekki hafa efni á leiðinni til skamms
tíma á meðan beðið er eftir úrskurð-
inum.“ Hann segir ljóst að margir
vilji ekki vera álitnir vanskilamenn.
„Í okkar tilfelli gerir þetta okkur mjög
erfitt fyrir að standa við okkar sann-
færingu og skrifa ekki undir.“
Fólk setji fyrirvara
Aðspurður um það hvers vegna þessi
leið, sú sem krefst mestrar greiðslu-
byrði í upphafi, sé sett sem sjálf-
gefin fyrir þá sem ekki samþykkja
endurútreikning bankans segir Ing-
ólfur: „Það er öllum í sjálfsvald sett
að koma til okkar og velja eina af
þessum fjórum leiðum. Fólk þarf þá
vissulega að skrifa undir pappíra en
það getur skrifað undir þá með fyrir-
vara þannig að það hafi meiri rétt ef
lög eða dómar hníga að því síðar.“
Viðskiptavinur bankans gefur lít-
ið fyrir þær útskýringar: „Ég er ekki
sannfærður um að maður hafi jafn-
sterka stöðu síðar meir hafi maður
samþykkt þessa skilmála og þessa
útreikninga. Þess vegna finnst mér
öruggara að bíða með það.“
Aðspurður um það hvort fólk sé
látið vita af því að það þurfi að setja
sérstaka fyrirvara við þá samninga
sem það skrifar undir segir Ingólfur:
„Nú held ég að menn séu almennt
með mjög mikla fyrirvara gagnvart
bankakerfinu þannig að mér finnst
ekki ólíklegt að fólk spyrji að því
sjálft.“ Hann segist hins vegar ekki
geta fullyrt um það hvort viðskipta-
vinir séu sérstaklega látnir vita af því
að þeir geti sett fyrirvara á samning-
inn. Það sé eitthvað sem hann þurfi
að athuga frekar.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Skrifaðu undir eða borgaðu meira Frjálsi fjárfestingarbankinn býður upp á fjórar
mismunandi leiðir fyrir lántakendur, aðeins ein leið er í boði fyrir þá sem skrifa ekki
undir.
Skuldarar afSali Sér
réttindum Sínum „
Mér finnst það því ósvífin
framkoma í garð viðskipta-
vina að gera þessa ýtrustu kröfu
ef fólk skrifar ekki undir.“
n Segir Frjálsa fjárfestingarbankann þvinga viðskiptavini til þess
að skrifa undir n Fjórar leiðir í boði segir talsmaður bankans n Fólk
verður að setja fyrirvara við samninginn til að verjast lagaóvissu