Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Page 18
18 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
www.snakk.is Fitness popp er á
HEILBRIGÐI ER LÍFSTÍLL
Létt og trefjaríkt
Hreyfing - Næring - Jákvæðni
Mikið uppnám ríkir nú í hvalveiðum
á Íslandi vegna náttúruhamfaranna
í Japan, risajarðskjálftans, og flóð-
bylgjunnar sem reið yfir landið í kjöl-
far hans, í mars. Þann 10. maí síðast-
liðinn tilkynntu forráðamenn Hvals
hf. að ákveðið hefði verið að fresta
hvalveiðum og munu hvalveiðiskip
fyrirtækisins því ekki leggja úr höfn
fyrr en í ágúst í fyrsta lagi. Í fyrra stóð
vertíðin yfir frá byrjun júní og fram
í september og voru um 150 manns
við störf hjá Hval hf. þegar best lét. Í
vetur hafa verið „örfáir“ starfsmenn,
að því er Kristján Loftsson, forstjóri
Hvals, segir í samtali við DV. Því er
ljóst að fjölmargir sem höfðu góð-
ar tekjur af hvalveiðum í fyrra þurfa
nú að leita á önnur mið hvað atvinnu
varðar.
Náttúruhamfarir og
særð þjóðarsál
Kristján segir í samtali
við DV að óhjákvæmi-
legt hafi verið að fresta
veiðum eins og stað-
an var orðin. Í kjöl-
far náttúruhamfar-
anna í Japan hafi
eftirspurnin eftir
íslensku hvalkjöti
orðið að engu.
„Það eru fjór-
ir þættir sem
felast í þessum hamförum. Í fyrsta
og öðru lagi er það vitanlega risa-
skjálftinn sjálfur og flóðbylgjan sem
kom í kjölfarið. Flóðbylgjan var sér-
staklega skæð, þar sem japanskar
byggingar eru yfirleitt byggðar með
það fyrir augum að þola svona risa-
skjálfta. Tjónið sem varð af völd-
um flóðbylgjunnar var hins vegar
gífurlegt. Í þriðja lagi er það meng-
unarhættan í Fukushima-kjarn-
orkuverinu – sem var
auðvitað bein af-
leiðing náttúru-
hamfaranna. Í
fjórða lagi virð-
ist það vera svo, að
japönsk þjóðarsál
er að syrgja. Jafnvel
í norður- og suð-
urhluta lands-
ins, sem sluppu
svo að segja vel,
heldur fólk að sér höndum. Fólk fer
ekki á veitingastaði og heldur sig
frekar heima við. Það er ekkert að
djamma og djúsa eins og við segj-
um á íslensku. Neysla hefur dregist
saman og það eru auðvitað fleiri en
við sem sitja í súpunni. Ég var þarna
í apríl og þar sögðu mér kunnug-
ir menn að um 600 þúsund hótel-
herbergi hefðu verið afbókuð, og
það einungis af Japönum sjálfum.
Ferðamannaiðnaðurinn er reyndar
einnig algerlega í molum.“
Vonum það besta
Kristján segir að hann vonist til
þess að markaðurinn fari að taka við
sér. Eins og staðan er núna á Hvalur
birgðir af óseldu hvalkjöti og því mik-
ilvægt að markaðurinn fari að taka
við sér. „Við þurfum auðvitað að eiga
birgðir, við þurfum að eiga vöruna
sem við erum að reyna að selja. Við
vonumst auðvitað til þess að hlutirn-
ir fari að nálgast eðlilegt horf.“
En eru þá einhverjar tekjuhorfur
fyrir Hval hf? „Þetta var auðvitað að
ganga ágætlega, áður en hamfarirnar
dundu yfir. Það var erfitt að komast
aftur inn á þennan markað eftir svona
langt hlé, en það var að ganga vel.
Þetta er vissulega bakslag, og við för-
um ekki að veiða til þess eins að veiða.
Við erum í rekstri og við erum að selja
vöru. Um leið og eftirspurnin fer að
aukast þá förum við aftur í gang.“
Áfall fyrir Vesturland
Þegar best lét árið 2010 voru um
150 manns við vinnu hjá Hval hf.
Ljóst er að mun færri gata sótt at-
vinnu þangað í ár. Þeir fáu sem
starfa þar núna fást aðallega við
viðhald á skipum og vinnslustöðv-
um. „Þetta er helvítisstaða og ekk-
ert grín. Við sáum bara engan ann-
an möguleika en vonum auðvitað
að þetta lagist sem fyrst.“
Blaðamaður DV hafði samband
við Vilhjálm Birgisson, formann
Verkalýðsfélags Akraness, en hann
sagði að augljóslega væri um mikið
áfall að ræða fyrir atvinnumarkað-
inn á Vesturlandi. „Þetta er auðvi-
tað mikið áfall. Samkvæmt launa-
könnunum sem voru gerðar fyrir
árið 2010 sáum við að fólk sem var
í vinnu hjá Hval hf. var með meðal-
tekjur upp á rúmlega 700 þúsund
krónur á mánuði. Þar á meðal var
mikið af námsfólki sem fékk þarna
góða sumarvinnu. Þetta er mikið
áfall fyrir Vesturland og eina sem
ég get sagt er að ég vona að Krist-
ján Loftsson láti ekki deigan síga,
og að markaðurinn taki við sér hið
fyrsta.“
Kristján Lofts-
son „Fólk fer ekki
á veitingastaði og
heldur sig frekar
heima við. Það er
ekkert að djamma
og djúsa eins og við
segjum á íslensku.“
Engin eftirspurn
eftir hvalkjöti
„Það er ekkert að
djamma og djúsa
eins og við segjum á
íslensku.
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
n Óljóst er með hvalveiðar í sumar eftir að eftirspurn frá Japan varð að engu í kjölfar náttúru-
hamfaranna í mars n Kristján Loftsson, forstjóri Hvals, vonast til að hefja hvalveiðar í lok sumars
Dreginn á land Hvalur verður ekki verkaður fyrr en í ágúst hið fyrsta.