Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 23
okkur algjörlega að því að tryggja að
grunnnámið sé í hæsta gæðaflokki.
Ef grunnnámið er gott fá okkar stúd-
entar inngöngu í bestu háskóla heims
í framhaldsnám og við eigum að
styrkja þá til þess,“ sagði Sigurjón Þ.
Árnason, verkfræðingur og þáverandi
bankastjóri Landsbankans í viðtali
við Viðskiptablaðið í apríl 2007. Hlaut
hann talsverða gagnrýni á þeim tíma
fyrir þessar skoðanir sínar á málefn-
um Háskóla Íslands.
„Það er auðvitað ekki raunhæft að
Ísland eigi háskóla sem nær inn á topp
100. Þess vegna eigum við að hverfa
aftur til „gamla“ kerfisins þar sem
framhaldsnám á háskólastigi var al-
mennt sótt erlendis. Við eigum aðeins
að bjóða upp á framhaldsnám á há-
skólastigi í greinum eins og íslensku,
sögu, jarðfræði og jarðhitaverkfræði,“
sagði Andri Geir Arinbjarnarson verk-
fræðingur á Eyjubloggi sínu í nóvem-
ber 2010.
„Sameina á alla „háskóla“ hér á
landi í tvær stofnanir sem eiga að hafa
útibú úti á landi. Gífurlegir möguleikar
eru til hér á landi að hagræða og bæta
íslenskt menntakerfi ef viljinn er fyrir
hendi. Það sem mun standa umbót-
um fyrir þrifum í okkar menntakerfi og
heilbrigðiskerfi er pólitísk hugmynda-
fræði VG sem byggir á gildum sem við
höfum ekki efni á lengur,“ sagði Andri
Geir í september 2009.
„Ég er ekki sammála þessari um-
ræðu. Stærstu vaxtabroddarnir hjá
okkur hafa verið í greinum þar sem
meistaranám hefur byggst upp. Hver á
síðan að ákveða hvaða greinar eigi að
bjóða upp á? Eiga stjórnvöld að gera
það,“ spyr Katrín Jakobsdóttir. Hún
er hins vegar mjög hlynnt því að fólk
haldi til útlanda til náms. „Það sækir
alltaf ákveðinn fjöldi í nám erlendis.
Þeim hefur ekkert fækkað þó háskóla-
nemendum hafi almennt fjölgað.“
Viðskipta- og lögfræði við fjóra
háskóla
Hægt er að sækja bæði grunn- og
framhaldsnám í viðskipta- og lög-
fræði við fjóra háskóla á Íslandi; Há-
skóla Íslands, Háskólann í Reykjavík,
Háskólann á Bifröst og Háskólann á
Akureyri. Í því samhengi má nefna að
innan þessara skóla bjóðast 17 mis-
munandi námsleiðir í meistaranámi
í viðskiptafræði og sjö mismunandi
námsleiðir í meistaranámi í lögfræði.
Einnig má nefna að 13 mismunandi
námsleiðir bjóðast í meistaranámi í
verkfræði innan Háskóla Íslands og
Háskólans í Reykjavík. Svo er hægt að
taka BA-gráðu í sálfræði hjá þremur
háskólum á Íslandi. Hlýtur þetta að
teljast ansi fjölbreytt námsframboð
hjá ekki stærri þjóð en Íslandi
Ásgeir Jónsson, lektor í hagfræði
við Háskóla Íslands, sagði í sam-
tali við Viðskiptablaðið árið 2007 að
töluverður fjöldi viðskiptafræðinga
sem útskrifist uppfylli ekki þær kröf-
ur sem fjármálafyrirtæki gerðu til
þeirra. Fjölgun nemenda sem legðu
áherslu á fög eins og fjármál, endur-
skoðun, hagfræði og stærðfræði
hefði ekki verið í takt við aukinn
fjölda þeirra sem legðu stund á við-
skiptafræðinám á Íslandi. Segja má
að fleiri hafi viljað sækja nám í fög-
um eins og markaðsfræði, stjórnun
og alþjóðaviðskiptum þar sem minni
áhersla er lögð á reikningsþekkingu.
„Ríkisendurskoðun hefur bent
á að þetta sé ekki góð nýting á fjár-
magni. Við höfum lagt áherslu á það
við skólana að þeir móti sér sína
eigin stefnu. Hvað á að halda áfram
með og hvar liggur sérstaða hvers og
eins,“ segir Katrín Jakobsdóttir. Að-
spurð um þetta mikla námsframboð
í meistaranámi í viðskipta- og lög-
fræði segir hún að þetta sýni hvern-
ig skólarnir hafi lagað sig að fjár-
magni. „Þetta hafa verið vinsælustu
greinarnar og þá hafa skólarnir lagt
sig fram um að ná til sín nemend-
um í þeim. Þessar greinar hafa laðað
til sín flesta nemendur og fjármagn
miðast við fjölda nemenda. Stjórn-
völd þurfa að hafa skýrari stefnu í því
hvernig að þessu eigi að standa. Mér
finnst það hins vegar líka mikilvægt
sjónarmið að háskólarnir séu fræði-
lega sjálfstæðar stofnanir sem ekki
mega gleymast þrátt fyrir kreppu,“
segir hún.
Mikil fjölgun í doktorsnámi
Doktorsnemendum á Íslandi hefur
fjölgað gríðarlega á undanförnum
árum. Má þar nefna að árið 2001
voru þeir 38 en árið 2010 voru þeir
orðnir 478. Er það nærri þrettán-
földun á einum áratug. Langflest-
ir nemendur eru í uppeldis- og
menntunarfræði eða 68, 43 í líf-
fræði og 31 í heilbrigðisvísindum.
„Doktorsnám á Íslandi er rugl nema
í íslensku og jarðfræði,“ sagði Andri
Geir Arinbjarnarson verkfræð-
ingur á Eyjubloggi sínu í septem-
ber árið 2009. Það vekur athygli að
þær greinar sem Andri Geir telur að
leggja eigi áherslu á eru ekki ofar-
lega á listanum. Þannig er jarðfræði
í níunda sæti með 14 doktorsnem-
endur og í sautjánda sæti er almenn
bókmenntafræði með níu doktors-
nemendur.
„Í fyrsta lagi þarf doktorsnám
ákveðinn fjölda til að geta staðið
undir nafni og auðvitað hefur fjölgað
í því. Við þyrftum að stefna að meiri
skipulagningu á því og að fá meira
fjármagn í það, sem hefur því mið-
ur ekki verið til staðar. Það er mjög
mikilvægt að fólk í doktorsnámi geti
stundað það eins og fullt starf og
helst að það fái styrki til þess. Það
er framtíðarsýnin að það sé hægt að
fjármagna doktorsnám með betri
hætti,“ segir Katrín Jakobsdóttir.
Að hennar mati hafa íslensk fyrir-
tæki ekki verið nægilega dugleg við
að koma með fjármagn til doktors-
náms. „Rannsóknir og þróun mætti
vera meiri hjá íslenskum fyrirtækj-
um og þá sérstaklega í samstarfi við
háskólana. Þó hafa nokkur fyrirtæki
staðið sig vel þó það sé mismunandi
á milli fræðigreina,“ segir Katrín.
„Hluti af framtíðarhorfum varð-
andi doktorsnám er að það verði
einhver sameiginleg miðstöð fyr-
ir doktorsnám á Íslandi. Það er
hluti af núverandi samstarfsmál-
um. Í doktors námi eru hlutfalls-
lega fáir nemendur og því mikil-
vægt að þeir nái saman. Þannig er
hægt að byggja upp öflugara nám,“
segir hún.
Skólagjaldalán fjármögnuð af
LÍN
Lánasjóður íslenskra námsmanna
(LÍN) gerir ráð fyrir að heildarútlán
til námsmanna skólaárið 2010–2011
verði um 16,2 milljarðar króna. Fram-
lag ríkisins til LÍN hefur stóraukist
undanfarin ár. Er gert ráð fyrir að sjóð-
urinn fái 8,2 milljarða króna frá ríkinu
árið 2011. Í því samhengi má nefna
að framlag ríkisins til sjóðsins hefur
aukist um 310 prósent undanfarinn
áratug á meðan að framlagið til Há-
skóla Íslands hefur aukist um 170 pró-
sent. Árið 2001 veitti LÍN 115 milljónir
króna í skólagjaldalán. Árið 2011 ger-
ir LÍN hins vegar ráð fyrir að veita um
2,3 milljarða króna í skólagjaldalán.
Þannig hefur þessi útgjaldaliður nærri
tuttugufaldast hjá LÍN undanfarinn
áratug. Um helmingur af þessu fram-
lagi fer til nemenda sem stunda nám á
Íslandi en restin til þeirra sem stunda
nám erlendis. Ein helsta ástæðan fyr-
ir stórauknum skólagjaldalánum er
að ásókn í einkarekna háskóla á Ís-
landi hefur aukist undanfarin ár. Má
þar nefna að Háskólinn í Reykjavík og
Háskólinn á Bifröst fá um 2,2 milljarða
króna frá ríkinu árið 2011. Stór hluti
af því sem upp á vantar hjá þessum
skólum til að geta rekið sig er rukkað
í formi skólagjalda. Langflestir þeirra
sem stunda nám í einkareknum há-
skólum á Íslandi fjármagna sín skóla-
gjaldalán með framlagi frá LÍN.
„Það er dálítið merkilegt að tala um
einkarekna háskóla á Íslandi þar sem
þeir eru að stærstum hluta fjármagn-
aðir af ríkinu. Ef við horfum til hinna
Norðurlandanna þá má segja að þar
sé meira samræmi í háskólakerfinu
óháð rekstrarformi. Þar er kveðið á um
það í lögum að skólar sem fá ákveðið
framlag frá hinu opinbera lúti sömu
lögmálum og ríkisreknir háskólar. Við
höfum verið að endurskoða lög um
háskóla með það að markmiði að sam-
ræma lagaumhverfið hérlendis,“ seg-
ir Katrín Jakobsdóttir. Einnig hafi það
verið rætt að setja þak á skólagjalda-
lán. Það sé hins vegar erfitt þegar vilji
er fyrir því að íslenskir nemendur sæki
háskólanám við erlenda háskóla þar
sem skólagjöld eru oft há. „Forgangs-
röðin hjá okkur núna er alveg skýr.
Það er að einbeita sér að því að styrkja
grunnframfærsluna hjá LÍN,“ segir
hún.
Fréttir | 23Helgarblað 3.–5. júní 2011
Sjúkras jóður E f l ingar-s té t tar fé lags
Efling - stéttarfélag • Sætúni 1 • 105 Reykjavík • Sími: 510 7500 • Fax: 510 7501 • Netfang: efling@efling.is • www.efling.is
Stendur með þér!
Það er gott að eiga góða að!
Slys eða veikindi gera ekki boð á undan sér. Þegar heilsan bilar þá er fyrsta hugsunin að ná bata á ný. Að takast
á við veikindi eða afleiðingar slysa er nógu erfitt þó að fjárhagsáhyggjur bætist ekki við álagið á fjölskylduna.
Markmið Sjúkrasjóðs Eflingar-stéttarfélags er að draga úr fjárhagsáhyggjum með því að greiða dagpeninga,
en auk þess vinnur félagið að heilsueflingu og fyrirbyggjandi aðgerðum sem snerta öryggi og heilsufar.
– Félagsmenn hafa verið mjög ánægðir með sjúkrasjóðinn og töldu 99% þeirra
sjóðinn nauðsynlegan þátt í starfinu í könnun sem Gallup gerði fyrir félagið.
E
i
n
n
t
v
e
i
r
o
g
þ
r
í
r
4
1
.1
0
6
Nýr kjarasamNiN u
við reykjavíkurborg
Póstatkvæðagreiðsla er hafin
Hafin er póstatkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning
Eflingar-stéttarfélags, við reykjavíkurborg.
atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn eflingar sem vinna eftir þessum
samningi og greiddu félagsgjöld í mars/apríl 2011.
Kjörgögn og kynningarefni hefur verið sent út samkvæmt kjörskrá.
Fái einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt ekki send kjörgögn, getur
viðkomandi snúið sér til skrifstofu Eflingar, Sætúni 1 og fengið sig færðan
á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem
sanni afdregin félagsgjöld í mars/apríl 2011.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00
miðvikudaginn 15. júní en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
athugið. Til þess að tryggt sé að atkvæðið berist kjörstjórn fyrir lok tíma-
frests þá er nauðsynlegt að póstleggja svarumslagið í síðasta lagi
föstudaginn 10. júní. En þeir sem það vilja geta skilað svarumslaginu á
skrifstofu félagsins til kl. 12.00 miðvikudaginn 15. júní.
Reykjavík, 30. maí 2011.
kjörstjórn
eflingar-stéttarfélags
Efling-stétt rfél g
HÁSKÓLARNIR BLÁSA ÚT„Við eigum að-
eins að bjóða upp
á framhaldsnám á há-
skólastigi í greinum eins
og íslensku, sögu, jarð-
fræði og jarðhitaverk-
fræði.
Merkilegt að tala um einkarekna
háskóla Katrín Jakobsdóttir, mennta- og
menningarmálaráðherra, segir að það sé
merkilegt að tala um einkarekna háskóla á
Íslandi þar sem þeir séu að mestu fjármagn-
aðir af hinu opinbera.
Doktorsnám rugl í öðru en íslensku
og jarðfræði Andri Geir Arinbjarnarson
verkfræðingur hefur lýst þeirri skoðun sinni
að einungis eigi að bjóða upp á doktorsnám
á Íslandi í jarðfræði og íslensku. Annað sé
rugl.
Allir til útlanda í framhaldsnám
Sigurjón Þ. Árnason, verkfræðingur og
þáverandi bankastjóri Landsbankans, lýsti
þeirri skoðun sinni árið 2007 að efla ætti
grunnnám í háskólunum á Íslandi. Síðan
ættu allir að fara utan í framhaldsnám.