Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 28
28 | Fréttir 3.–5. júní 2011 Helgarblað
Ármúla 40 • Sími 553 9800 • www.golfoutlet.is
Opnunartilboð á ýmsum vörum!
Erum flutt á jarðhæðina í Ármúla 40
Ryder-lið Evrópu og USA völdu Pro Quip regnfatnað
Jakkar frá aðeins 17.900
Buxur frá aðeins 13.900
Vindjakkar og vesti frá 10.800
Opnunartími:
virka daga 11 til 18
regnfatnaður
Buxur og jakki 19.900
Nýkomin golfsett, driverar,
rescue-kylfur, pokar og fleira
frá þessum þekktu framleiðendum.
Fastfold kerra
Eitt handtak, gullverðlaun í
Todays Golfer.
37.900
Stakar kylfur frá 4.800
Driverar frá 9.900
Pútterar frá 3.990
Golfbolir frá 3.990
Vatnaboltar stk. frá 80
Nýir boltar (15 stk.) frá 1.990
Golfskór verð frá 8.720
ALLT Á GÓÐU VERÐI
ERUM AÐEINS MEÐ NÝJAR VÖRUR!
Golfkerrur frá 5.990
Þriggja hjóla kerra
á stórum dekkjum 19.900
Rafmagnskerrur frá 69.900
Barna- og unglingagolfsett
Barnagolfsett frá 19.990
Stakar kylfur frá 4.300
Einnig driverar, kerrur, pokar,
og hanskar.
Golfsett í poka
Heilt golfsett án poka, grafítsköft,
dömu og herra 34.900
½ sett í poka 26.500
„Ég er Eva, hin upprunalega drusla,“
segir kona sem er klædd í fátt annað
en fíkjublað. „Ég trúi á það að konur
hafi jafn mikinn rétt og karlar til að
vera berar að ofan,“ segir önnur sem
er ber að ofan máli sínu til stuðnings.
Þó að fólk grínist er undirtónn
druslugöngunnar eigi að síður alvar-
legur. Allt hófst þetta í Toronto, stærstu
borg Kanada, í byrjun apríl. Lögreglu-
þjónn sem var að halda ræðu í York-
háskóla þar í borg lét þau orð falla að
til þess að koma í veg fyrir nauðganir
ættu konur að forðast að klæðast eins
og druslur. Þetta leiddi til mótmæla-
göngu með slagorðum eins og „Ekki
segja mér hverju ég á að klæðast,
segðu þeim að nauðga ekki.“ Nú hafa
sumir íbúar Montreal ákveðið að feta
í sömu fótspor.
Gera hugtakið „drusla“ jákvætt
Eitt af markmiðum göngunnar er að
endurheimta orðið „drusla“ (e. Slut),
og gera það að jákvæðu hugtaki í hug-
um fólks. „Þetta er orð sem kemur úr
ákveðnu valdasamhengi þar sem litið
var niður á konur,“ segir Julie Paquet,
ein af skipuleggjendum göngunnar.
En er þá rétt að nota orðið nú til dags?
„Mér finnst það í lagi að vera kölluð
drusla,“ segir Julie. „Hugtakið „queer“
er nú víða notað og þykir ekki lengur
skammaryrði fyrir samkynhneigða.
Margir af samkynhneigðum vinum
mínum kalla hver annan druslur án
þess að það þyki neitt tiltökumál. Hún
viðurkennir þó að orðið hafi líklega of
neikvæða merkingu í hugum flestra til
að verða endurheimt að fullu.
„Ég er með píku“
Þegar Parc de La Paix, eða Friðargarð-
urinn, hefur fyllst af fólki stígur Julie á
svið ásamt samstarfsfélögum sínum
úr Glam Gam, listahópi sem gjarnan
kemur fram nakinn og kallar sig „burl-
esque“. Hér heldur hún eldræðu þar
sem hún hamrar á punktinum:
„Ég var kölluð drusla frá því að
ég byrjaði að fá brjóst, ég var kölluð
drusla fyrir að vera ákveðin, ég var
kölluð drusla fyrir að vera feit, fyrir
að vera hávær og fyrir að vera há-
vær þegar ég stundaði kynlíf. Ég var
kölluð drusla fyrir að stunda kynlíf
og fyrir að tala um það. Ég skammast
mín ekki fyrir neitt af þessu. Ég hef
gaman af að stunda kynlíf og að tala
um það. Því máttu kalla mig druslu
ef þú vilt, en aldrei nota það sem af-
sökun fyrir að ráðast á mig.“
Næstur á svið er Michael
McCarthy, sem kemur fram á nær-
fötunum einum saman og ræðst
gegn þeirri tvöfeldni að aðeins
konur og samkynhneigðir fái á sig
druslustimpilinn, á meðan gagnkyn-
hneigðir karlmenn sem stunda sömu
hegðun eru kallaðir kvennamenn
eða glaumgosar.
„Ég er með píku og er ekki hrædd
við að nota hana,“ segir sú sem áður
kynnti sig sem Evu, en heitir í raun
Jessica Klein. Hún segist fást við
skriftir og hafi því mikinn áhuga
á mætti orðsins, bæði til þess að
færa fólk í fjötra og til að frelsa það.
„Breyttu því sem þú vilt sjá breytt,“
segir hún að lokum og vísar í Gandhi.
Áhorfendur hafa hingað til hróp-
að með, en stemningin verður brátt
mun þyngri. Það er ekki aðeins Glam
Gam-hópurinn sem stendur á bak
við gönguna, heldur einnig samtök
sem nefna sig Stella og The Femin-
ist Alliance in Solidarity. Báðir hóp-
arnir berjast fyrir réttindum vændis-
kvenna og lögleiðingu vændis, en
telja opinbera umræðu nær alger-
lega einokaða af þeim sem tala fyr-
ir banni. Rifjuð eru upp ummæli
fjöldamorðingja sem hélt að það
væri í lagi að myrða vændiskonur og
að slíkt myndi aldrei komast upp. Sjá
má tár í vanga sumra mótmælenda
þegar sagan er rifjuð upp. „Fólk þarf
ekki að vera hlynnt lífsstílnum, en
það á enginn skilið að vera myrtur,“
segir ung kona sem er klædd í hvítt
brúðarslör.
Lögreglumenn líta út eins og
druslur
Að ræðuhöldum loknum heldur
gangan af stað upp St. Laurents-
götu, þar sem ætlunin er að safna fé
til styrktar baráttunni fyrir lögleið-
ingu vændis. Fremstir í flokki eru
lögreglumenn á reiðhjólum sem eiga
að sjá til þess að allt fari vel fram, en
líta næstum út sem hluti af göng-
unni. „Lögreglumenn líta út eins
og druslur í augum þeirra sem hafa
áhuga á búningum,“ segir eitt mót-
mælaspjaldið.
Gangan neyðist þó til að stíga til
hliðar þegar slökkviliðsbíll með blikk-
andi ljós keyrir í gegn. Fólk er fljótt
upp á gangstétt til að hleypa bíln-
um framhjá. „Sýnið okkur slökkvi-
liðsmennina,“ hrópar einhver á eftir
honum. Slökkviliðsmennirnir halda
þó áfram upp götuna og gangan get-
ur haldið áfram. Þó ekki verði gengið
mikið lengra í dag er leiðin framund-
an þó löng og ströng, því líklega eru
fáir hópar samfélagsins jafn réttinda-
lausir og þeir sem fást við vændi.
Valur Gunnarsson
Hin alþjóðlega
drusluganga
n Druslugangan hófst í Toronto í Kanada n Jákvætt að vera drusla n Berjast
fyrir réttindum vændiskvenna n „Breyttu því sem þú vilt sjá breytt“
Drusluganga Hugtakið „queer“ er nú víða notað og þykir ekki lengur skammaryrði fyrir
samkynhneigða.
Frjálsræði Eitt af markmiðum göngunnar er að endurheimta orðið „drusla“ og gera það að
jákvæðu hugtaki í hugum fólks.
Barátta Berjast fyrir rétti vændiskvenna