Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 38
38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 3.–5. júní 2011 Helgarblað
Guðrún Snæbjörnsdóttir
Húsmóðir í Mosfellsbæ
Ragnheiður Hóseasdóttir
Fyrrv. húsfreyja í Höskuldsstaðaseli
70 ára á laugardag
90 ára á föstudag
Ragnheiður fæddist í Höskulds-staðaseli og ólst þar upp. Hún stundaði nám við Alþýðuskól-
ann á Eiðum 1938–40.
Hún var bóndakona og húsfreyja
í Höskuldsstaðaseli allan sinn starfs-
aldur. Hún er nú búsett á dvalarheim-
ilinu Uppsölum á Fáskrúðsfirði.
Ragnheiður starfaði um árabil í
kvenfélaginu Hlíf í Breiðdal.
Fjölskylda
Eiginmaður Ragnheiðar var Björg-
vin Magnússon, f. 18.4. 1903, d. 31.12.
1984, bóndi. Hann var sonur Magn-
úsar Gunnarssonar og Aðalbjargar
Stefánsdóttur sem bjuggu lengst af á
Brekkuborg.
Börn Ragnheiðar og Björgvins eru
Ingibjörg, f. 28.2. 1949, búsett á Stöðv-
arfirði en maður hennar er Krist-
björn Hans Eiríksson og eiga þau tvo
syni og sex barnabörn; Björn, f. 24.9.
1950, búsettur á Breiðdalsvík; Baldur,
f. 29.12. 1951, búsettur í Reykjavík,
kona hans er Nanna Stefanía Svans-
dóttir og eiga þau fjögur börn og fimm
barnabörn; Unnur, f. 17.7. 1956, bú-
sett á Breiðdalsvík, maður hennar er
Guðmundur Björgólfsson og eiga þau
tvo syni og tvö barnabörn.
Börn Björgvins og Stefaníu Sigur-
borgar Hannesdóttur, f. 1901, d. 1929,
eru Hannes, f. 12. 11. 1925, d. 5.11.
2005, lengi búsettur á Skriðustekk, var
kvæntur Kristínu Sigríði Skúladóttur
og eignuðust þau sjö börn; Aðalbjörg
Sigrún, f. 13.6. 1927, lengst af búsett á
Breiðdalsvík, nú í Reykjavík, maður
hennar var Helgi Þorgrímsson sem er
látinn og eru börn þeirra þrjú.
Börn Björgvins og Mareyjar Bjarg-
ar Guðlaugar Jónsdóttur, f. 1906, d.
1940, eru Bragi, f. 17.6. 1934, búsett-
ur á Breiðdalsvík, kona hans er Edda
Björg Björgmundsdóttir og eru börn
hennar þrjú; Marey Stefanía, f. 19.6.
1939, búsett í Reykjavík, maður henn-
ar er Þórður Þorgrímsson og eiga þau
tvö börn.
Systkini Ragnheiðar: Kristinn, f.
16.2. 1916, d. 8.4. 2008, sóknarprest-
ur og prófastur í Eydölum, var kvænt-
ur Önnu Þorsteinsdóttur sem er lát-
in og áttu þau tvö kjörbörn; Helgi, f.
21.11. 1919, d. 6.9. 2009, húsasmið-
ur í Reykjavík, var kvæntur Jóhönnu
Jakobsdóttur og ólu þau upp fjögur
börn; Sigrún, f. 28.4. 1924, húsmóðir í
Reykjavík, maður hennar er Sigurður
Þorsteinsson frá Víðidal og eiga þau
tvö börn.
Fóstursystur Ragnheiðar: Ragn-
heiður Ragnarsdóttir, f. 9.3. 1929,
d. 5.4. 1981, húsmóðir á Breiðdals-
vík, var gift Hauki Gíslasyni á Holti á
Breiðdalsvík og eignuðust þau fimm
börn auk þess sem hún átti dóttur
áður; Björg Hjördís Ragnarsdóttir, f.
30.4. 1930, d. 1.6. 2005, var húsmóð-
ir, búsett í Kópavogi, var gift Tóm-
asi Tómassyni og eignuðust þau þrjú
börn. Þær voru dætur Ragnars Sig-
urðssonar í Höskuldsstaðaseli og
Unnar Hjartardóttur frá Þorgríms-
stöðum.
Foreldrar Ragnheiðar voru Hó-
seas Björnsson, f. 25.12. 1885, d. 9.1.
1985, trésmiður og bóndi í Höskulds-
staðaseli og síðar í Reykjavík, og k.h.,
Marselía Ingibjörg Bessadóttir, f. 23.3.
1895, d. 19.6. 1991, húsmóðir.
Ætt
Hóseas var sonur Björns, b. í Hösk-
uldsstaðaseli Eiríkssonar, b. í Hall-
beruhúsum Einarssonar. Móðir
Björns var Margrét Guðmundsdóttir,
b. á Stórasteinsvaði Þorteinssonar og
Guðlaugar Eiríksdóttur.
Móðir Hóseasar var Kristín Mar-
teinsdóttir, b. á Skriðustekk, bróður
Sigríðar, móður Margrétar Höskulds-
dóttur í Löndum, ömmu séra Einars
Þ. Þorsteinssonar, prófasts á Eiðum.
Móðir Kristínar var Sigríður Einars-
dóttir, b. á Stórasteinsvaði Gíslasonar.
Marzelía Ingibjörg var dóttir
Bessa, b. á Brekkuborg Sighvatsson-
ar, b. á Ánastöðum í Breiðdal Bessa-
sonar, b. á Dísastöðum í Breiðdal Sig-
hvatssonar. Móðir Bessa var Guðrún
Jónsdóttir frá Hallbjarnarstöðum í
Skriðdal, dóttir Jóns Guðmundssonar
frá Gröf í Eyjafirði og Guðrúnar yngri
Sigmundsdóttur.
Þuríður Halldóra Aradóttir
Markaðs- og kynningarfulltrúi Rangárþings eystra
Þuríður fæddist á Akureyri en ólst upp á Hofi í Öræfasveit. Hún var í Barnaskólanum í Hofgarði og
í heimavist í Nesjaskóla og í Heppu-
skóla á Höfn í Hornafirði, stundaði
nám við Menntaskólann í Kópavogi
og lauk þaðan stúdentsprófi árið 2000
og lauk BS-prófi í ferðamálafræði og
þjóðfræði við Háskóla Íslands. Hún er
nú að ljúka námi í markaðssamskipt-
um og almannatengslum við Opna
háskólann í Reykjavík.
Þuríður vann við hestatamningar
og þjálfun á unglingsárum í Reykja-
vík, var leiðbeinandi við Reiðskólann
Þyril 1997–2005, hefur stundað hesta-
og fjárbúskap í Fljótshlíð frá 2005 og
hefur verið markaðs- og kynningar-
fulltrúi Rangárþings eystra frá 2007.
Þuríður æfði og keppti í frjálsum
íþróttum og í körfubolta á unglings-
árunum með Mána á Hornafirði og
ungmennafélaginu Úlfljóti. Hún hef-
ur sungið með Gospelkór Suðurlands
frá stofnun, 2009.
Fjölskylda
Systur Þuríðar eru Jónína Aradótt-
ir, f. 9.12. 1982, söngnemi við Musici-
ans Institute í Hollywood í Los Ange-
les í Bandaríkjunum; Anna Guðrún
Aradóttir, f. 24.3. 1989, háskólanemi
og landvörður í Skaftafelli.
Stjúpsystir Þuríðar er Auðdís
Tinna Hallgrímsdóttir, f. 3.2. 1988,
nemi við The International Film
School of París.
Foreldrar Þuríðar eru Ari Magn-
ússon, f. 11.2. 1944, bóndi á Torfa-
stöðum í Fljótshlíð, og Sigrún Björg
Sæmundsdóttir, f. 21.7. 1957, mat-
vælatæknir og starfar við skartgripa-
smiðju á Akureyri.
Stjúpfaðir Þuríðar er Hallgrímur
Hrafn Gíslason, f. 14.5. 1958, vélstjóri
hjá HB Granda.
30 ára á föstudag
Guðrún fæddist í Reykjavík og ólst þar upp í foreldrahúsum. Hún lauk prófi frá Verslunarskóla Ís-
lands 1959.
Guðrún stundaði skrifstofustörf
hjá Stálveri hf., kvikmyndafélaginu
Óðni hf. og við Listahátíð í Reykja-
vík auk annarra skammtímastarfa
hjá Kaupstefnunni í Reykjavík. Hún
kenndi á námskeiðum fyrir ritara sem
haldin voru á vegum Stjórnunarfélags
Íslands í samvinnu við ritarasamtök
sem hún er aðili að. Árið 1986 hóf
hún störf hjá yfirstjórn Stöðvar 2 og
starfaði þar í tíu ár en slasaðist þar á
vinnustað.
Guðrún var einn af stofnendum
Klúbbs ritara 1981 og gegndi for-
mennsku þar fyrstu fimm árin. Hún
tók þátt í stofnun Íslandsdeildar
EAPS, nú EUMA - European Manage-
ment Assistants og var formaður þar
1989–91. Hún var félagi í Soroptim-
istaklúbbi Hóla- og Fellahverfis á ár-
unum 1982–96 og er í Soroptim-
istaklúbbi Mosfellssveitar frá 1996,
gegndi embætti ritara forseta Sorop-
timistasambands Íslands 1986–88,
var varasendifulltrúi 1998–2000 og
var síðan sendifulltrúi sambandsins
auk þess sem hún hefur gegnt ýmsum
öðrum trúnaðarstörfum fyrir sam-
bandið. Þá er Guðrún félagi í Odd-
fellowreglunni, í Rebekkustúku nr. 9,
Þóru, á Selfossi.
Fjölskylda
Guðrún giftist 14.11. 1959 Guðna
Steinari Gústafssyni, f. 1.3. 1940,
löggiltum endurskoðanda. Hann
er sonur hjónanna Gústafs Adolfs
Gíslasonar sjómanns, er fórst með
togaranum Jóni Ólafssyni 1942, og
Ólafíu Sigurðardóttur húsmóður sem
er látin.
Börn Guðrúnar og Guðna eru
Halldór Egill, f. 17.1. 1960, skipstjóri,
búsettur í Mosfellsbæ, kvæntur Guð-
rúnu Erlu Sumarliðadóttur, f. 25.3.
1960, og eiga þau fjögur börn og þrjú
barnabörn; Snæbjörn Tryggvi, f. 13.1.
1961, framkvæmdastjóri, búsettur í
Reykjavík, kvæntur Úlfhildi Elísdóttur,
f. 8.2. 1962, skrifstofumanni, og á
hann fimm börn og eitt barnabarn;
Oddný, f. 21.6. 1965, framkvæmda-
stjóri, búsett í Mosfellsbæ, gift Ragn-
ari Sverrissyni, f. 16.3. 1959, veitinga-
manni og eiga þau fjögur börn og eitt
barnabarn.
Systkini Guðrúnar eru Guðfinna,
f. 1929, búsett í Garðabæ, var gift Öss-
uri Sigurvinssyni sem lést 1965; Jóa-
kim, f. 1931, d. 2007 en sambýliskona
hans var Sólveig Magnúsdóttir; Mar-
grét, f. 1933, búsett í Reykjavík, gift
Birni B. Birnir; Ólafur, f. 1935, d. 1936;
Helga, f. 1937, búsett á Álftanesi, gift
Birgi Guðmundssyni; Anna Sigríður, f.
1939, búsett í Kópavogi, gift Kristjáni
Birgi Kristjánssyni; Ólafur Tryggvi, f.
1944, búsettur á Siglufirði, kvæntur
Kolbrúnu Jónsdóttur.
Foreldrar Guðrúnar voru hjón-
in Snæbjörn Tryggvi Ólafsson, f. 2.4.
1899, d. 10.8. 1984, togaraskipstjóri
frá Gestshúsum á Álftanesi, og k.h.,
Sigríður Jóakimsdóttir, f. 12.4. 1906,
d. 9.9. 1986, húsmóðir frá Brekku í
Hnífsdal.
Ætt
Snæbjörn Tryggvi var sonur Ólafs,
útvegsb. í Gestshúsum Bjarnasonar,
útvegsb. þar Steingrímssonar, út-
vegsb. á Svalbarða og Hliði Jónssonar.
Móðir Ólafs var Sigríður Jónsdóttir,
hreppstjóra í Skógarkoti í Þingvalla-
sveit Kristjánssonar og Kristínar Ey-
vindsdóttur frá Syðri-Brú í Gríms-
nesi.
Móðir Snæbjörns Tryggva var
Guðfinna Jónsdóttir, útvegsb. í Deild
í Bessastaðahreppi Jónssonar. Móð-
ir Guðfinnu var Guðfinna Sigurðar-
dóttir, b. í Glóru í Laugardælishreppi
og síðar í Landakoti á Álftanesi
Grímssonar, og Vilborgar Jónsdótt-
ur, frá Stóru-Mástungu í Gnúpverja-
hreppi.
Sigríður var dóttir Jóakims, út-
vegsb. í Hnífsdal Pálssonar, útvegsb.
þar Halldórssonar, hreppstjóra á Gili
í Bolungarvík Bjarnasonar. Móðir Jóa-
kims var Helga Jóakimsdóttir, b. á Ís-
ólfsstöðum á Tjörnesi og síðar í Árbót
í Aðaldal Jóakimssonar.
Móðir Sigríðar var Margrét Krist-
jana Þorsteinsdóttir, verkamanns á
Ísafirði Jóakimssonar, að Búðum á
Snæfellsnesi Budenhoff, járnsmiðs á
Ísafirði Vigfússonar. Móðir Margrétar
Kristjönu var Guðrún Þórðardóttir
ljósmóðir.
Magnús Soffaníasson
Framkvæmdastjóri TSC í Grundarfirði
Magnús fæddist í sjúkrabíl á Miklubraut í Reykjavík, fór skömmu síðar sjóleiðina með
föður sínum á Grundfirðingi II til
Grundarfjarðar og hefur verið þar síð-
an.
Magnús lauk grunnskólaprófi frá
Grunnskóla Eyrarsveitar í Grundar-
firði og var einn vetur í menntaskóla.
Magnús starfaði frá tólf ára aldri
hjá föður sínum Soffaníasi Cecils-
syni sem þá rak fiskvinnslu og útgerð
á Grundarfirði. Þar var hann fyrst fisk-
verkamaður, stundaði sjómennsku
eitt sumar, var síðar vörubílstjóri,
skrifstofumaður, skrifstofustjóri,
framkvæmdastjóri og stjórnarfor-
maður fyrirtækisins til 2005. Hann
titlar sig nú sem minnihlutahafa í
fyrir tækinu.
Soffanías Cecilsson hf. gerir út þrjá
báta og rekur saltfiskvinnslu í Grund-
arfirði.
Þá var Magnús stjórnarformaður
Modernus ehf. í Reykjavík, sem hann
ásamt félaga sínum til áratuga, Jens P.
Jensen, stofnaði fyrri hluta árs 2000.
Modernus annast m.a. samræmda
vefmælingu sem birtir reglulega lista
yfir stærstu vefsvæði landsins. Í dag
hefur Modernus sameinast Isnic hf.
sem sér um skráningu á .is lénum og
situr Magnús í stjórn þess fyrirtækis í
dag.
Fjölskylda
Dætur Magnúsar og Brynju Guðna-
dóttur eru Berglind, f. 18.8. 1984,
sambýliskona Berglindar er Ásdís
Kristinsdóttir; Hulda, f. 18.10. 1985,
sambýlismaður Huldu er Halldór
Einir Guðbjartsson og eiga þau tvær
dætur, Heiðbrá Clöru, f. 16.6. 2008, og
Þuríði Brynju, f. 19.4. 2009.
Magnús kvæntist 18.6. 1994 Sig-
ríði Finsen, f. 7.11. 1958, hagfræðingi.
Foreldrar hennar eru Ólafur Carlsson
Finsen, f. 24.2. 1920, d. 16.5. 2010, for-
stjóri í Reykjavík, og Guðbjörg Aðal-
steinsdóttir Finsen, f. 10.2. 1926, fyrrv.
bankaritari og húsmóðir.
Dætur Magnúsar og Sigríðar eru
Guðbjörg Soffía, f. 7.5. 1992; Marta, f.
8.11. 1993.
Hálfsystir Magnúsar, sammæðra,
er Bára Bryndís Vilhjálmsdóttir, f.
25.1. 1957, búsett í Svíþjóð, eigin-
maður hennar er Lars Eric Andreas-
son.
Alsystur Magnúsar eru Kristín
Soffaníasdóttir, f. 27.6. 1963, búsett í
Grundarfirði, gift Rúnari Magnússyni
skipstjóra og eiga þau tvö börn; Sóley
Soffaníasdóttir, f. 20.1. 1966, búsett í
Grundarfirði, gift Sigurði Sigurbergs-
syni og eiga þau þrjú börn.
Foreldrar Magnúsar: Soffanías
Cecilsson, f. 3.5. 1924, d. 24.3. 1999,
útgerðarmaður í Grundarfirði, og k.h.,
Hulda Vilmundardóttir, f. 27.11. 1936
á Jaðri á Látraströnd í Þingeyjarsýslu.
Ætt
Soffanías var sonur Cecils, sjómanns
Sigurbjörnssonar, frá Kirkjufelli Helga-
sonar. Móðir Cecils var Soffía Jónas-
dóttir.
Móðir Soffaníasar var Oddfríð-
ur Kristín Runólfsdóttir, frá Naustum
Jónatanssonar. Móðir Oddfríðar var
Pálína, systir Haralds, afa Sveins, afa
Svavars Gestssonar sendiherra, föður
Svandísar umhverfisráðherra. Pálína
var dóttir Páls Breckmanns, sjómanns
í Suðurhlíð í Eyrarsveit Einarssonar.
Móðir Pálínu var Guðfinna Sigurðar-
dóttir, b. á Hörðuhóli Sigurðssonar,
og Guðfinnu Þórðardóttur, systur Páls
Melsteð amtmanns, langafa Torfhild-
ar, langömmu Davíðs Oddssonar, rit-
stjóra Morgunblaðsins.
Hulda er dóttir Vilmundar Guð-
brandssonar sjómanns, og Báru Hall-
grímsdóttur húsmóður.
50 ára á sunnudag