Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 44
44 | Fókus 3.–5. júní 2011 Helgarblað
Fjölbreytt skemmtidagskrá úti á Granda:
Hátíð hafsins um helgina
Hátíð hafsins verður haldin hátíðleg
í þrettánda skipti nú um helgina í til-
efni sjómannadagsins á sunnudag-
inn. Hátíðin fer fram úti á Granda þar
sem hún er í nálægð við höfnina og
öll helstu fyrirtækin sem sinna útgerð
og sjómennsku í bænum. Líkt og áður
er áhersla hátíðarinnar sett á allt sem
tengist hafinu og menningu tengda
sjómennsku. Þétt dagskrá er bæði
laugardag og sunnudag þar sem all-
ir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi.
Meðal annars verður hægt að fara í
hvalaskoðun, fylgjast með kappróðri
og reiptogi, skoða furðufiska, horfa á
fjölbreytt skemmtiatriði og skella sér í
siglingu svo eitthvað sé nefnt. Í gömlu
verbúðunum á Granda og Geirsgötu
verður fjölbreytt starfsemi. Þar verða
vinnustofur listamanna, verslanir,
veitingastaðir, gallerí og fleira. Dagskrá
er hægt að finna á hatidhafsins.is.
Hvað ertu að gera?
mælir með...
TÖLVULEIKUR
L.A. Noire
„L.A. Noire fyrir alla tölvuleikjaunnendur;
hann er frábær skemmtun og rígheldur í
þig.“ Einar Þór Sigurðsson.
TÖLVULEIKUR
Tiger Woods PGA
Tour 12 - Masters
„Allir geta spilað, ég
tala nú ekki um ef
menn eiga PlaySta-
tion Move eða önnur
sambærileg hreyfitól.“
Sigurður Mikael
Jónsson.
KVIKMYND
Thor
„Thor er frábær
sumarafþreying þar
sem blandast saman
skemmtileg hasaratriði, góðir leikarar og
hressandi húmor.“ Jón Ingi Stefánsson
KVIKMYND
Route Irish
„Myndir á borð við
Saving Private Ryan og
Hurt Locker eru stór-
kostlega útlítandi en
innihaldið er sjálfhverft
og rýrt. Hér eru brellur og útlit á sínum stað
en myndin hefur svo miklu meira fram að
færa.“ Erpur Eyvindarson
LEIKVERK
Húsmóðirin
„En söguefnin eru þunn
sem sé. Harla þunn – og
textinn eftir því. Að vísu
er það eilítið misjafnt
eftir kynslóðum.“ Jón Viðar Jónson
Jón Atli Helgason Hárdoktor og
plötusnúður.
Hvaða bók ertu að lesa?
Se og hör
Hvaða tónlist er í uppáhaldi þessa
dagana?
Human Woman
Hvert ferðu út að borða ef þú mátt
ráða?
Út á land.
Hvaða bíómynd sástu síðast og
hvernig líkaði þér hún?
Whip it, sæt.
Hvað ætlar þú að gera um helgina?
Marínera lax sem ég ætla að grilla, Dj-a
endalaust og grilla í vinum og gæjum og
gellum!
Marínerar lax
og grillar í vinum
B
irgir Þórarinsson eða Biggi
veira er aðalsprauta raftón-
listargrúppunnar GusGus.
Birgir hefur ásamt Stephan
Stephensen verið rauði þráðurinn
í farsælum ferli þessarar mögnuðu
sveitar sem var að senda frá sér sína
áttundu breiðskífu, Arabian Horse.
Ásamt þeim er Daníel Ágúst Har-
aldsson í aðalhlutverki á nýju plöt-
unni. Hann slóst aftur í lið með sveit-
inni fyrir plötuna 24/7 sem kom út
árið 2009, aðdáendum GusGus til
ómældrar ánægju.
Frá því að fyrsta platan kom út
árið 1995 hefur GusGus leitt hlust-
endur sína um ólíka en magnaða
hljóðheima. Nú hefur GusGus þróað
nýjan hljóm sinn enn frekar og hófst
það með 24/7. Arabian Horse hefur
fengið frábæra dóma og hafa gagn-
rýnendur jafnvel sagt hana bestu
plötu sveitarinnar hingað til. Birgir er
ánægður með dómana þótt hann sé
hógvær. „Já, dómarnir hafa verið frá-
bærir,“ segir Birgir, en hér heima hafa
þeir flestir ef ekki allir hljóðað upp á
fimm stjörnur. „Maður er hræddur
við að það sé verið að hæpa þetta of
mikið,“ bætir hann við og hlær.
Arabíuhestur Daníels
Nafn og plötuumslag nýju plötunnar
hefur vakið athygli en þar sést hinn
glæsilegi arabíuhestur á hlaupum.
En hvaðan er nafnið komið. „Það
er tekið úr einu laginu á plötunni.
Daníel hafði samið mjög sérstak-
an texta sem ég veit nú ekki alveg
hvernig kom til. Hann fjallar um það
að vera týndur úti í eyðimörkinni.
Hljóðheimar GusGus
Birgir Þórarinsson er heilinn á bak við magnaða hljóðheima GusGus. Hann hefur ásamt Stephan
Stephensen þróað hljóm sveitarinnar sem hefur að margra mati aldrei verið þéttari en á nýútkominn plötu,
Arabian Horse. Tvímenningarnir hafa þó alls ekki verið einir á þessari vegferð og hefur sveitin verið skipuð
mörgum frábærum tónlistarmönnum. Sá nýjasti til að leggja sveitinni lið er Högni Egilsson en hann kemur
feikisterkur inn á nýju plötunni.
Biggi veira Er hokinn af reynslu þegar kemur að raftónlist.