Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 45
„Ég ætla svo ekki að spila neitt meira
fyrr en nýja platan er tilbúin,“ segir
Barði Jóhannsson, forsprakki hljóm-
sveitarinnar Bang Gang. Tónlist.is
stendur fyrir tónleikum Bang Gang á
Græna Hattinum, Akureyri föstudag-
inn 3. júní og svo tónleikum Bang
Gang, Cliff Clavin og Our Lives á
Nasa 4. júní. Barði segir þessa tvenna
tónleika vera einu tónleika sína í
sumar því hann sé að undirbúa nýja
plötu. „Ég stefni að því að gefa út nýja
plötu í október en ég veit ekkert hvað
gerist, stefni alla vega að því,“ segir
hann. Nýja platan er þó ekki það eina
sem hann er með á sínum snærum
um þessar mundir. „Ég er líka að gera
tónlist fyrir sjónvarpsþættina Heims-
endi. Það eru nýir þættir sem Raggi
Braga, sem gerði Nætur- og Dagvakt-
ina, er að gera.“ Barði og félagar ætla
að taka alla helstu smelli Bang Gang
á tónleikunum. Auk þess mun Barði
taka nýtt lag á tónleikunum á Nasa.
„Ég ætla að taka nýtt lag sem ég var
að gera með Bjarna í Cliff Clavin.
Bjarni verður ekki fyrir norðan en
við tökum það í bænum.“ Aðdáend-
ur sveitarinnar ættu því ekki að láta
þessa tónleika framhjá sér fara þar
sem dágóður tími er í þá næstu.
Fókus | 45Helgarblað 3.–5. júní 2011
Barði einbeitir sér að nýrri plötu og tónlist fyrir sjónvarpsþætti:
Hvað er að gerast?
n Klúbburinn
Frumsýning á sviðsverkinu Klúbbnum,
en hann skipa þeir Björn Borko Kristjáns
son, Björn Thors, Gunnlaugur Egilsson,
Huginn Þór Arason, Ingvar E. Sigurðsson og
Ólafur Egill Egilsson. Sýningin er á Litla sviði
Borgarleikhússins og miðaverð er 3.900
krónur.
n Jazz- og blúshátíð Kópavogs
Aðaltónleikarnir að þessu sinni fara fram
í Salnum í Kópavogi klukkan 20.00. Fram
kemur Kópavogsakademían sem er skipuð
Birni Thoroddsen gítarleikara, Björgvini
Björgvinssyni gítarleikara, Snæbirni Gauta
Snæbjörnssyni saxófónleikara, Jóni Rafns
syni bassaleikara og Gísla Páli Karlssyni
trommuleikara. Miðaverð er 2.990.
n Ég veit þú kemur!
Tónleikarnir Ég veit þú kemur! í Eldborgar
salnum í Hörpu. Sigríður Thorlacius og
Sigurður Guðmundsson syngja uppáhalds
lögin með Sinfóníuhljómsveit Íslands.
Miðaverð er 2.000–6.500 krónur.
n Bang Gang á Nasa
Barði Jóhannsson heldur tónleika á Nasa
en honum til halds og trausts verða Barði
Jóhannsson, Arnar Guðjónsson, Hrafn
Thoroddsen, Arnar Þór Gíslason og Skúli
Z Gestsson. Húsið opnar klukkan 23.00 og
miðaverð er 1.000 krónur.
n Flétta í Hallgrímskirkju
Nýtt kór og hljómsveitarverk eftir Hauk
Tómasson í flutningi Schola cantorum,
Mótettukórs Hallgrímskirkju og Kammer
sveitar Reykjavíkur
Stjórnandi er Hörður Áskelsson. Tónleikarnir
hefjast klukkan 17.00 og er miðaverð 3.500
krónur.
n Solaris
Krakásinfóníettan flytur Solaris, nýtt verk
eftir Ben Frost og Daníel Bjarnason, með
þátttöku þeirra og fleiri tónlistarmanna.
Einnig er um að ræða kvikmyndverk eftir
Brian Eno og Nick Robertson. Klukkan 20.00
í Silfurbergi í Hörpu. Miðaverð er 3.500
krónur.
n Barbara Bonney á Listahátíð
Bandaríska sópransöngkonan Barbara
Bonney kemur fram á einsöngstónleikum
á Listahátíð klukkan 20. Þar mun hún flytja
ljóðaperlur eftir Schumann, Strauss og
Grieg við undirleik píanóleikarans og hljóm
sveitarstjórans Thomas Schuback.
n Húslestur hjá Birgi
Birgir Sigurðsson býður upp á húslestur á
heimili sínu að Bergstaðastræti 74a klukkan
14. Húslesturinn er hluti af dagskrá Listahá
tíðar. Birgir ætlar að lesa upp úr ritverkum
sínum; sögur, ljóð, brot úr síldarsögum
þjóðarinnar og brot út leikritum. Það kostar
1.000 krónur inn á húslesturinn og aðeins
nokkur sæti eru í boði.
2
JÚNÍ
Föstudagur
3
JÚNÍ
Laugardagur
4
JÚNÍ
SunnudagurEinu tónleikar Bang Gang í sumar
Hljóðheimar GusGus
Sem hægt er að túlka á margvíslegan
myndrænan hátt. Hvaða eyðimörk er
þetta? Svo fékk lagið þennan titil og
okkur fannst það á endanum mest
lýsandi fyrir þessa plötu. Svo kom
plötuumslagið og negldi þetta allt í
samhengi.“
Nafnið á einu lagi á plötunni sker
sig nokkuð úr. Það er fyrsta lagið sem
ber nafnið Selfoss. „Þegar það var
kominn tími til þess að byrja á þess-
ari plötu þá stakk Stebbi upp á því
að við færum upp í sumarbústað og
tækjum okkur nokkra daga í að vinna
þetta. Hann fékk lánaðan bústað í
Grímsnesinu hjá bróður sínum. Við
mættum með það sem við höfðum
verið bauka hver í sínu horninu. Ég
með ýmsar hljómapælingar, Daníel
með fulla tölvu af textum og Stebbi
með nokkrar græjur sem hann vildi
prófa. Við snerum svo í bæinn með
slatta af lögum. Sex af þeim rötuðu
á plötuna og eitt þeirra var Selfoss.
Enda er Selfoss líka bær sem er okk-
ur mjög hugleikinn. Hann tengir á
mjög skemmtilegan hátt menningu
og ómenningu, dreifbýli og þéttbýli.“
Birgir segir að það hafi verið smá
Suðurlandsþema yfir lagasmíðun-
um í Grímsnesinu. „Við vorum með
nokkur lög sem voru ekki komin með
texta og við nefndum þau eftir kenni-
leitum á Suðurlandi. Eitt hét til dæm-
is Hveragerði og annað Señor South-
coast.“
Dekkri GusGus
Liðskipan GusGus hefur verið mjög
fjölbreytt í gegnum árin. Í upphafi
voru meðlimirnir fimmtán en hafa
svo farið alveg niður í tvo. Alltaf hafa
þeir Birgir og Stebbi haldið hóp-
inn og þróað hljóm sveitarinnar. Í
kringum árið 2000 munaði minnstu
að sveitin hefði lagst alfarið af þegar
Daníel Ágúst og fleiri hættu.
Áfram snerust hjólin þó og Gus-
Gus öðlaðist nýtt líf þegar Urður Há-
konardóttir gekk til liðs við sveitina.
Hún var í aðalhlutverki á plötunum
Attention sem kom út árið 2002 og
Forever sem kom 2007. Urður sagði
svo skilið við sveitina og Daníel sneri
aftur.
„Þegar Urður hætti var tekin
meðvituð ákvörðun um að breyta
tónlistinni. Við fórum kannski nær
einhverjum svona teknóáhrifum.
Þetta varð allt dekkra og dýpra ein-
hvern veginn. Allt sem við gerðum
með Urði var mjög dansvænt og
aðeins léttara en á 24/7 fórum við
meira út í trega og dimmu. Það má
svo segja að Arabian Horse hafi ver-
ið unnin upp úr þeim grunni sem
þar var lagður.“
Þó svo að Urður hafi sagt skilið
við sveitina fyrir nokkru þá kem-
ur hún samt við sögu á nýju plöt-
unni. „Daníel hafði miklar áhyggj-
ur af því í byrjuninni á þessu ferli
að þetta yrði svolítið mónótónískt
með honum einum. Þannig að mjög
snemma var það ljóst að við vildum
fá Urði til að hjálpa okkur eitthvað.
Að minnsta kosti syngja bakraddir.
Og þótt hún syngi bara bakraddir
eins og í Arabian Horse og Over þá
í raun og veru er hún búin að eigna
sér þessi lög. Hún er svo ótrúlega
góð. Hún neglir alveg viðlögin.“
Og svo kom Högni
Það er ekki hægt að fjalla um plöt-
una Arabian Horse án þess að nefna
hlut Högna Egilssonar sem jafnan er
kenndur við Hjaltalín. Hann kemur
gríðarlega sterkur inn og gefur Gus-
Gus enn eina víddina með sérstakri
rödd sinni.
„Stebbi og Högni kynntust bara
þannig séð fyrir tilviljun. Þeir fóru
eitthvað að spjalla á börunum og
urðu miklir vinir,“ segir Birgir um
hvernig samstarfið kom til. „Síðan
voru Stebbi og Daníel að gera smá
gigg í Færeyjum og Stebbi bauð
Högna með. Bara til að hafa gam-
an og hlusta á nokkur demó með
GusGus. Þegar þeir komu til baka
voru þeir búnir að leggja grunninn
að söngnum í Within You.“
Uppselt fyrir löngu
Eins og yfirleitt þegar GusGus held-
ur tónleika hér á landi selst upp á
þá á skammri stundu. Sveitin held-
ur útgáfutónleika sína á NASA laug-
ardaginn 18. júní og er uppselt fyrir
nokkru. Það er þó á dagskrá að bæta
við tónleikum. „Við ákváðum að
hafa tónleikana nokkuð snemma að
þessu sinni. Þar sem við höfum ver-
ið mikið inni í þessari danssenu þá
hafa tónleikarnir okkar yfirleitt verið
að byrja frekar seint.
En út af því að það er uppselt þá
erum við að skoða að halda aðra
tónleika strax á eftir þeim fyrri. Byrja
kannski að spila um níu og svo aft-
ur seinna um nóttina á þeim tíma
sem við erum vanari. Þá geta þeir
sem treysta sér ekki til að vera langt
fram á nótt samt mætt á tónleika og
skemmt sér.“
Birgir segir að nokkuð hafi bor-
ið á því að fólk sem eigi miða á fyrri
tónleikana vilji jafnvel skipta og
koma á þá seinni. Það ætti því að
vera eitthvað í boði fyrir alla aðdá-
endur.
Það er þýska plötufyrirtækið
Kompakt sem gefur GusGus út en
nokkuð hefur borið á því að verið sé
að dreifa plötunni ólöglega á netinu.
„Kompakt er með fyrirtæki í vinnu
við að skjóta niður svona tengla en
okkur er sagt að platan sé víst mjög
vinsæl í ólöglegu niðurhali um þess-
ar mundir. Það er auðvitað ánægju-
legt að fólk hafi áhuga á tónlistinni
en ég vona að það sýni okkur þá
virðingu að kaupa plötuna frekar.“
asgeir@dv.is
Gus Gus (1995)
Polydistortion (1997) — UK #130
This Is Normal (1999) — UK #94
Gus Gus vs. TWorld (2000)
Attention (2002)
Forever (2007)
24/7 (2009)
Arabian Horse (2011)
Breiðskífur GusGus
Takkasérfræðingurinn Segir lögin á Arabian Horse vera dekkri og tregafyllri en fyrra efni. MyNDIR RÓBERT REyNISSoN