Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Page 50
50 | Lífsstíll 3.–5. júní 2011 Helgarblað
G
önguleiðin yfir Fimmvörðu-
háls hefur alltaf verið vinsæl
meðal útivistarfólks. Yfir háls-
inn hafa þúsundir manna lagt
leið sína hvert sumar árum saman.
Sérstaklega hafa Jónsmessugöng-
ur Útivistar verið vinsælar en þá
er gengið yfir hálsinn hina töfrum
slungnu Jónsmessunótt og morgun-
ljósið á brúnum Bröttufannar yfir
Goðalandi gleymist engum sem séð
hefur. Stundum hafa nokkur hundr-
uð manns tekið þátt í þessum göng-
um og endað ógleymanlega göngu-
ferð niðri í Básum þar sem Útivist á
glæsilega skála og góða aðstöðu. Þar
er hefð að grilla og gleðjast yfir vel
unnu verki.
Nýtt aðdráttarafl
Síðastliðið ár bættist Fimmvörðu-
hálsi nýtt aðdráttarafl þegar skamm-
vinnt gos varð á hálsinum í aðdrag-
anda gossins í hinum heimsfræga
Eyjafjallajökli. Frá tveimur gíg-
um skammt ofan Bröttufannarfells
streymdu eldfossar bráðins hrauns
niður í Hrunagil og Hvannárgil og
heimsbyggðin stóð á öndinni yfir
myndum af þessum einstöku nátt-
úruundrum. Hrauntungurnar runnu
yfir gönguleiðina yfir Fimmvörðu-
háls en fljótlega eftir að gosi lauk var
stikuð leið yfir hið nýrunna hraun
meðfram gígunum gegnum hið ný-
skapaða land.
Nú gefst göngumönnum ein-
stakt tækifæri til að ganga um heitt
hraun, komast í návígi við nýmynd-
aða klepra- og gjallgíga sem urðu til
í gosinu og hrífast af krafti náttúr-
unnar. Gígarnir bera nöfnin Magni
og Móði og eru heiti þeirra komin úr
norrænni goðafræði.
Þessir nýju gígar hafa enn auk-
ið aðdráttarafl Fimmvörðuháls og í
fyrrasumar var stöðugur straumur
fólks upp að gosstöðvunum. Ekkert
lát verður á þessu í sumar og má bú-
ast við meiri umferð á þessum slóð-
um en nokkru sinni fyrr.
Hversu erfitt er að ganga yfir
hálsinn?
Segja má að tveir möguleikar standi
til boða þeim sem vilja ganga að
nýju gosstöðvunum. Annars veg-
ar sá að aka inn í Þórsmörk í Bása
og ganga frá Strákagili upp Kattar-
hryggi, um Heiðarhorn og Morins-
heiði og Bröttufönn. Þetta er um sjö
kílómetra ganga fram og til baka en
gígarnir eru í 1.000 metra hæð svo
talsverð hækkun er á leiðinni.
Hin leiðin er að hefja gönguna við
Skóga undir Eyjafjöllum. Þá er geng-
ið um Skógaheiði upp með Skógá
sem fellur í 23 fossum ofan fjallið.
Þeir eru hver öðrum fallegri og tign-
arlegri. Sumir eru með steinbogum
og gluggum, aðrir breiðir og tignar-
legir og enn aðrir háir og hrikalegir.
Þessi leið er 24 kílómetra löng frá
Skógum að Strákagilskjafti innan við
Bása. Hæst er farið í 1.050 metra hæð
á hryggnum efst á hálsinum þar sem
drifhvítir jöklarnir Mýrdalsjökull og
Eyjafjallajökull standa hvor til sinnar
handar.
Er hægt að gista þarna uppi?
Á Fimmvörðuhálsi eru tvö hús. Efst
á hálsinum er Fimmvörðuskáli í eigu
Útivistar. Hann er reisulegt hús og
þar er hægt að leita gistingar við góð-
ar aðstæður. Þannig er hægt að skipta
þessu verkefni í tvennt og njóta nátt-
úrufegurðar hálsins við margvísleg
birtuskilyrði. Skálinn stendur þar
sem Fjallamenn Guðmundar Ein-
arssonar frá Miðdal reistu sinn fyrsta
fjallaskála árið 1940.
Í tæplega 1.000 metra hæð sunn-
an í Fimmvörðuhálsi stendur svo
Baldvinsskáli sem er í eigu Ferða-
félags Íslands. Skálinn er orðinn
allhrörlegur og engum manni þar
boðleg næturvist sem stendur en
endurbætur munu vera í farvatninu.
Hvernig er ástandið núna?
Í hinu nýafstaðna snarpa Gríms-
vatnagosi dreifðist aska víða um
Suðurland og
Suðausturland.
Fimmvörðu-
háls fór ekki
varhluta af
því en aska úr
Grímsvötnum
barst á svæðið.
Síðuhöfund-
ur leiddi hóp
af fólki frá Há-
skóla Íslands
yfir Fimm-
vörðuháls um
síðustu helgi.
Engin óþæg-
indi höfðu
göngumenn af Grímsvatnaösku en
sáu hana liggja eins og brúna slikju
yfir öllum fönnum þótt hennar yrði
ekkert vart utan þess. Svarta ask-
an úr Eyjafjallajökli liggur enn eins
og þykkt teppi yfir allri Skógaheiði
og Fimmvörðuhálsi og liggja skafl-
ar í lægðum og skorningum. Í ám
og lækjum má glöggt sjá stöðugan
sandburð þar sem náttúran vinnur
ötullega að því að koma öskunni til
sjávar.
Fyrir vikið getur verið erfitt að
finna tært og girnilegt vatn á leiðinni
og rétt að hafa það í huga þegar lagt
er af stað.
Mikill snjór var á Fimmvörðu-
hálsi um helgina og má segja að
gengið hafi verið í samfelldum snjó
frá því skammt neðan við Baldvins-
skála í um 800 metra hæð og allt nið-
ur á Morinsheiði. Snjórinn var blaut-
ur og þéttur og tafði ferðalanga ekki
að ráði. Efst á hálsinum má segja að
þrjú litbrigði hafi verið allsráðandi.
Einn liturinn er hinn svarti sandur
eða aska sem kom úr Eyjafjallajökli
í fyrra, annar er hin brúna slikja úr
Grímsvötnum sem féll í vor og svo
lá drifhvítt nýsnævi yfir stórum hluta
landsins. Þetta gaf umhverfinu afar
sérstakan svip og minnti útsýnið á
köflum á grafíkmynd.
Gígar vöktu hrifningu
Hópurinn sem fylgdi síðuskrifara yfir
hálsinn um helgina var léttur á fæti
og lauk göngunni á 10 tímum sem
telst í góðu meðallagi. Við héldum
hópinn alla leið og eyddum miklum
tíma í áningar og rannsóknir við nýju
gígana þar sem nokkur leit var gerð
að ankaramíti í nýrunnu hrauni sem
bar þó ekki árangur.
Það er einstök tilfinning að standa
við nýtt land eins og það sem ligg-
ur undir fótum göngumanna við
Magna og Móða. Svo tók Brattafönn
við þar sem menn og konur renndu
sér skríkjandi af kæti niður brattar
brekkur í nýjum snjó. Nokkuð var um
andköf utan í Heljarkambi þar sem
þræða þurfti snjógötu utan í snar-
bröttum kambinum og þótti mönn-
um nokkuð hátt niður í Hvannár-
gilið. Keðjan sem venjulega veitir
göngumönnum sálarstyrk var á kafi
í fönninni. Svo ösluðu göngugarp-
ar krapatjarnir á sléttri Morinsheiði
og hertu huga sinn á hinum tæpu
Kattarhryggjum. Grillað lambakjöt
í Langadal um kvöldið rann ljúf-
lega niður og svo lauk kvöldvökunni
með keppni í stígvélakasti sem er fá-
gæt jaðaríþrótt sem byggir á flókinni
tækni.
Fréttir af Fimmvörðuhálsi
Fínt lag af brúnni Grímsvatnaösku þekur fannir.
Nýjar rannsóknir síðuskrifara í Þórsmörk
leiddu í ljós að þar ilmar birkið eins og
það hefur alltaf gert. Þegar rótað er í
grasinu má víða finna svarta ösku úr
Eyjafjallajökli en brúna askan úr Gríms
vötnum sést hvergi. Ótrúlegt er að sjá
hve gróðurríkið í Þórsmörk hefur náð sér
vel á strik og svæði sem sýndust svört
og lífvana í goslok í fyrra eru skrúðgræn
og ilmandi í vor.
Óhætt er að mæla með ferðalagi í
Þórsmörk til að rifja upp gömul kynni
eða upplifa þá fágætu töfra sem þessi
einstaki staður býr yfir.
Vegurinn inn í Þórsmörk er í góðu ástandi
og má telja vel fært fyrir fjórhjóladrifs
bíla af öllum stærðum í Bása. Til þess að
komast í Langadal og Húsadal þarf að
aka yfir Krossá sem er varhugavert vatns
fall og breytilegt eftir dögum.
Engin aska sjáanleg
í Þórsmörk
Göngumenn
Komnir í fulla hæð á Fimmvörðuhálsi um helgina.
Svandís Svavarsdóttir umhverfisráðherra
staðfesti verndaráætlun Vatnajökuls
þjóðgarðs í vetur. Nokkrir urðu til þess
að gera athugasemdir við fáein ákvæði í
áætluninni. Í kjölfarið fól ráðherra stjórn
garðsins að setja á fót samráðshóps
sem vinna skyldi að sátt um verndar
áætlunina. Þessi hópur hefur nú tekið til
starfa og er skipaður níu fulltrúum ólíkra
aðila sem allir eiga hagsmuna að gæta.
Samráðshópurinn mun að loknu starfi
skila tillögum til stjórnar þjóðgarðsins
um það hvernig best sé að ná víðtækri
sátt og samstöðu um verndaráætlun
þjóðgarðsins.
Sáttahópurinn hefur þegar fundað
einu sinni en samkvæmt heimildum
síðuskrifara telja menn þar talsvert starf
fyrir höndum og ólíklegt að því ljúki fyrr en
í haust. Hópurinn er skipaður eftirtöldum
aðilum:
Vélknúin umferð: Elín Björg Ragnarsdóttir
Samút: Guðrún Inga Bjarnadóttir
Fulltrúi ferðaþjónustunnar: Gunnar Valur
Sveinsson
Göngu og hjólreiðamenn: Þórður
Höskuldsson
Hestamenn: Ragnhildur Sigurðardóttir
Sveitarfélög: Eydís Indriðadóttir
Umhverfissamtök: Elín Erlingsdóttir
Náttúrufræðistofnun: Trausti Baldursson
Vatnajökulsþjóðgarður: Kári Kristjánsson
Sáttahópurinn
hefur störf
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Útivist
Náttúrufegurð
Fagrir fossar í Skógá.
Gufuský
Í heitu hrauni við Magna og Móða efst á hálsinum.
Göngumenn
Feta sig yfir Heljarkamb neðan Bröttufannar.
Skáli Útivistar
Í brúnflekkóttum fönnum efst á hálsinum.