Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Síða 54
54 | Sport 3.–5. júní 2011 Helgarblað „Þú vinnur ekkert með krökkum,“ eru fræg orð Alans Hanson, fyrrver- andi leikmanns Liverpool og núver- andi sérfræðings BBC um fótbolta. Þessi merku orð mælti hann fyrir keppnistímabilið 1995/1996 þegar Sir Alex Ferguson gerði sig líklegan til að ráðast á úrvalsdeildina, vopn- aður að stórum hluta ungum leik- mönnum sem höfðu komið í gegn- um ungl ingastarf félagsins og orðið bikarmeistarar ungmenna árið 1992. Þetta voru þeir David Beckham, Nicky Butt, Neville-bræðurnir og Paul Scholes. Auk auðvitað Ryans Giggs en hann var þó búinn að spila í nokkur ár. Það hefði eflaust eng- an órað fyrir því að Giggs ætti eftir að spila lengur en þeir allir en sú er raunin. Á þriðjudaginn tilkynnti ein mesta goðsögn í sögu Manchester United, Paul Scholes, að nú væri nóg komið. Hann er hættur knattspyrnu- iðkun og kvaddi því með nítjánda Englandsmeistaratitlinum. Er því að- eins einn eftir af „krökkunum“ hans Ferguson, ellismellurinn Ryan Giggs. Vildi bara spila fótbolta Paul Scholes hóf feril sinn með lát- um en hann skoraði tvö mörk í sín- um fyrsta leik með United, gegn Port Vale í deildarbikarnum tímabilið 1994/1995. Leikirnir urðu alls 676 og mörkin 150, mörg hver stórglæsileg. Hann er fjórði leikjahæsti leikmað- ur Manchester United frá upphafi, á eftir Giggs, Bobby Charlton og Bill Foulkes. Þá er hann tíundi marka- hæsti leikmaðurinn í sögu liðsins. Scholes hefur alla tíð forðast sviðs- ljósið eins og heitan eldinn en not- ið gífurlegrar virðingar, bæði innan vallar og utan. „Ég er ekki orðmargur maður,“ sagði Scholes við vef Manchest- er United eftir að hann opinberaði ákvörðun sína. Vægt til orða tekið hjá hinum rauðbirkna. „Ég get svo sannarlega sagt að fótbolti er það eina sem mig hefur alltaf langað til að starfa við og að hafa átt svona sig- ursælan feril hjá Manchester United er mér mikill heiður. Þetta var ekki ákvörðun sem ég tók léttilega en mér finnst það sé kominn tími á mig. Að hjálpa liðinu að vinna sinn 19. meist- aratitil voru mikil forréttindi,“ segir Scholes sem heldur áfram störfum hjá Manchester United og tekur að sér þjálfarastöðu. Þögull grínisti Það verður seint sagt um Paul Scholes að hann hafi gefið slúður- blöðunum efni til að fylla síður sínar. Hann hefur nánast alfarið haldið sig fjarri sviðsljósinu og er flekklaus, eft- ir því sem næst verður komist. „Paul er ótrúlegur karakter. Hann elskar fjölskylduna sína og vill alltaf vera með henni. Hann skutlar börnunum í skólann á hverjum morgni og sækir þau eftir æfingu. Ég efa að hann hafi misst úr dag nema þegar hann hefur verið á ferðalögum með okkur,“ segir liðsfélagi hans öll árin, Ryan Giggs, sem sjálfur verður nú seint kallaður faðir ársins. Þó hann sé ekki mikið í viðtölum sinnir hann pressunni nægilega vel. Hann nýtur mikillar virðingar allra, bæði innan vallar sem utan, og ekki síst blaðamannanna í Manchester. Mánuði áður en tímabilinu lauk var Scholes með fjölmiðladag þar sem hann gaf öllum stóru blöðunum með útibú í Manchester hálftíma hverju til að taka viðtal við sig. „Settist niður í hálftíma með Scholes í dag. Yndis- legur maður að tala við. Það er í lagi að halda sig fjarri sviðsljósinu þegar menn eru svona faglegir,“ sagði einn blaðamaðurinn á Twitter eftir viðtal- ið og annar bætti við: „Hálftími með Scholes í dag. Algjör goðsögn á Old Trafford. Svarar öllu hispurslaust og ber jafnmikla virðingu fyrir manni sjálfum og maður ber fyrir honum. Magnaður karakter.“ Scholes hefur sig ekki mikið í frammi í leikmannahópi Manchest- er United en bak við tjöldin er hann ekki alveg jafnhljóðlátur. „Hann er alltaf eitthvað að fíflast. Hann er svona týpan sem sparkar bolta í hausinn á þér þegar þú ert ekki að horfa. Mann grunar hann náttúru- lega aldrei. Scholes er ekki allur þar sem hann er séður. Hann segir ekki mikið en þegar hann gerir það er það oftar en ekki meinfyndið,“ segir Rio Ferdinand um Paul Scholes. Ótrúlegur leikmaður „Hvað er hægt að segja meira um Paul Scholes en ég hef sagt áður,“ segir Sir Alex Ferguson, maðurinn sem gaf Scholes tækifærið á sínum tíma og er eini stjórinn sem hann hefur haft. „Við munum sakna gjör- samlega ótrúlegs leikmanns. Paul hefur alltaf verið tryggur United og ég er hæstánægður með að hann komi í þjálfaraliðið hjá okkur á næsta tímabili. Hann hefur ávallt verið öðr- um til fyrirmyndar,“ segir Ferguson. Wayne Rooney var á þriðjudaginn fyrstur til að lofa samherja sinn í út- varpsþætti á talkSPORT. „Hans verð- ur svo sannarlega sárt saknað. Við vissum að hann var að velta þessu fyrir sér en okkur datt ekki í hug að niðurstaða fengist svona snemma. Liðið mun sakna hans virkilega. Hann er besti leikmaður sem ég hef spilað með og á móti. Hver einn og einasti United-aðdáandi mun sakna hans,“ sagði Wayne Rooney um Scholes. Yndislegur maður „Mér datt í hug að þetta myndi ger- ast núna en mikið ofboðslega mun- um við sakna hans,“ segir Bobby Charlton, einhver mesta goðsögn í sögu Manchester United og núver- andi sendiherra liðsins. Charlton er á meðal bestu miðjumanna í sögu enskrar knattspyrnu en Sir Alex Ferguson sagði í heimildamynd BBC um kappann á dögunum að hann væri besti knattspyrnumaður sög- unnar, án nokkurs vafa. Charlton hefur ávallt verið mikill aðdáandi Scholes. „Manchester United og enskur fótbolti eru ekki bara að missa mikið. Knattspyrnan er einfaldlega að missa einn sinn albesta leikmann,“ seg- ir Charlton. „Hann gerir allt svo fal- lega og auðveldlega. Það hefur verið algjör unun að horfa á hann. Það er verst hvað hann hætti snemma að spila með enska landsliðinu. En það gerði hann vegna þess að hann elsk- ar fjölskylduna sína svo mikið. Hann vildi frekar vera áfram með henni en að ferðast með landsliðinu. Hann er frábær manneskja og við munum halda áfram að hugsa vel um hann hjá Manchester United. England hefur saknað hans Það var í ágúst 2004, eftir Evrópu- keppnina í Portúgal, að Paul Scholes hætti að leika með enska landslið- inu, á hátindi ferils síns, aðeins þrí- tugur. Hann var orðinn langþreytt- ur á að spila úti á vinstri kanti svo Sven-Göran Eriksson gæti haft Frank Lampard og Steven Gerrard saman inni á miðjunni, par sem hefur væg- ast sagt ekki virkað hjá enska lands- liðinu. Hann hætti því alfarið og sagði feril sinn hjá Manchester United og fjölskylduna mikilvægari en lands- liðið. Síðan þá hefur verið mörgum verið tíðrætt um hversu mikið enska landsliðið vantar Scholes inn á mið- svæðið til að byggja upp spil og róa niður leikinn. Reyndi Fabio Capello, landsliðsþjálfari Englands í dag, mikið að fá Scholes til að taka fram landsliðsskóna og spila með á HM í fyrra. Það tók hann ekki í mál. Eng- land átti eina sína allra verstu heims- meistarakeppni og féll út í 16 liða úr- slitum. „Þrátt fyrir aldurinn er Scholes virkilega góður á boltann, mjög fjöl- hæfur og ótrúlega reyndur. Með hann innanborðs hefði ég getað not- að öðruvísi taktík sem hefði hjálpað hinum leikmönnunum gríðarlega, sérstaklega þegar þeir væru orðnir þreyttir. Hann kemur með svo mikla ró í leikinn. Án nokkurs vafa hefði Scholes hjálpað okkur mikið,“ sagði Fabio Capello við breska blaðið Daily Mirror eftir að keppninni lauk. Getur ekki tæklað Það er enginn fullkominn þó Scholes fari nú langt með það. Frá- bær fótboltamaður, tryggur sínu fé- lagi, hefur sig ekki í frammi, dyggur fjölskyldufaðir og flekklaus þó aldrei virðist mega afskrifa fíflalæti knatt- spyrnumanna of snemma. Einn ljóð- ur er þó á leik hans. Tæklingarnar. Scholes er vinnusamur miðjumað- ur og er góður í að vinna boltann af andstæðingnum. En það eru vart til verri tæklarar í ensku úrvalsdeild- inni og þó víðar væri leitað. Hann er duglegur að safna gulum spjöld- um þess vegna og hafa nokkur rauð einnig sést. „Ég hef aldrei skilið þetta. Stund- um held ég að hann sé bara að reyna þetta. Það er ekki hægt að vera svona góður í fótbolta og svona slakur tækl- ari,“ sagði Ferguson eitt sinn skelli- hlæjandi á galakvöldi ensku úrvals- deildarinnar fyrir nokkrum árum þar sem helstu goðsagnir deildarinn- ar sátu fyrir svörum úr sal. „Mér er samt alveg sama. Þau endalausu til- boð sem okkur hafa borist í Scholes í gegnum tíðina sem við höfum aldrei greint frá eru ekki til komin vegna tæklunarhæfileika hans. Það er vegna þess að hann er einn besti knattspyrnumaður í sögu Englands og Englendingar eiga að vera stoltir af því að hann hafi spilað fyrir lands- lið sitt.“Lengi að Scholes hóf ferilinn 1994. MYndir rEutErs …Og þá var eftir einn n Paul scholes hættur eftir 17 ára feril n Verður í þjálfarateymi Manchester united á næsta tímabili n Munum sakna ótrúlegs leikmanns, segir sir Alex Ferguson n Giggs sá eini af „krökkunum“ sem eftir er Titlar Enska úrvalsdeildin: 10 (1995–96, 1996– 97, 1998–99, 1999–2000, 2000– 01, 2002–03, 2006–07, 2007– 08, 2008–09, 2010–11) Enski bikarinn: 3 (1995–96, 1998– 99, 2003–04) Meistaradeildin: 2 (1998–99, 2007–08) Deildarbikarinn: 2 (2008–09, 2009–10) Heimsbikarinn: 2 (1999, 2008) Samfélagsskjöldurinn: 5 (1996, 1997, 2003, 2008, 2010) Landsleikir 66 (14 mörk) feriLL SCHOLeS Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Magnaður miðjumaður Scholes verður sárt saknað úr boltanum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.