Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 64

Dagblaðið Vísir - DV - 03.06.2011, Side 64
Ástin blómstraði á Kex n Margt var um manninn á Kex Hostel á miðvikudaginn þegar Stöð 2 kynnti sumardagskrá sína. Meðal þekktra andlita voru Gísli Marteinn borgarfulltrúi, Pétur Marteinsson fótboltakappi og eigandi Kex Hostel, Kolbrún Pálína Helgadóttir, ritstjóri Nýs Lífs, Bjössi í World Class og fleiri frægir. Arnar Gauti stílisti mætti einnig í gleð­ skapinn með kær­ ustuna sína, Jóhönnu Pálsdóttur, kynn­ ingarstjóra Íslenska dansflokksins. Þau munu nýlega vera farin að slá sér upp og virtist ástin blómstra hjá þeim. „Eina ástæðan fyrir því að rekstrar­ afkoman var jafn góð og raun ber vitni er að það er mikið að gera hjá okkur,“ segir Sigmar Vilhjálmsson, betur þekktur sem Simmi, einn eigenda Hamborgarafabrikkunnar aðspurður um fréttir af velgengni veitingastaðarins. Hann er ekki beint hrifinn af því að ræða um gengi staðarins og segir að það sé eins og það sé skömm yfir því að félagið skili góðri rekstrarafkomu. Simmi telur ástæðu velgengni í upphafi hafa verið góða kynningu en að ástæða þess að staðurinn haldi áfram að ganga vel sé góður matur á góðu verði. Simmi og viðskiptafélagar hans komust í fréttirnar eftir að Nauta­ félagið, sem heldur utan um rekstur veitingastaðarins, greiddi út 30 millj­ ónir í arð. „Það er mjög auðvelt að horfa á ársreikninga og arðgreiðslur en menn þurfa líka að horfa á það að hér höfum við verið að vinna myrkr­ anna á milli og greitt okkur mjög lág laun,“ segir Simmi sem virkaði nokk­ uð þreyttur. „Við erum ekki að þessu til að græða peninga heldur til þess að hafa gaman af því. Við höfum sýnt það í verki með því að leggja okkur fram við að borga allar skuldir okk­ ar tilbaka,“ segir Simmi en eigendur veitingastaðarins hafa að undan­ förnu sett peninga í endurbætur á húsakosti hans. Simmi segir að það þeir geri ekki ráð fyrir að fólk muni streyma að í jafn miklum mæli og þegar staðurinn opnaði. „Það átti engin von á þessum móttökum,“ segir Simmi sem finnst áhugavert hversu mörg störf þeir félagar hafa náð að skapa á þessum skamma tíma. Þegar mest var voru 63 í fullu starfi hjá þeim. Það er svipaður fjöldi og ætlað er að muni starfa í kísilverk­ smiðjunni að sögn Simma. Simmi seðlabúnt! Herbert heillar n Herbert Guðmundsson hefur aldrei farið troðnar slóðir í lífinu. Þessi fyrrverandi ísbúðareigandi hefur haft tónlistina að sínu aðalviðfangsefni síðustu áratugi. Í stað þess að halla sér upp að stórum plötufyrirtækjum til að kynna tónlist sína, þá er Herbert einyrki sem kynnir tónlist sína með því að ganga í hús og bjóða geisla­ diska sína til sölu. Hann þykir með eindæmum góður sölumaður enda ekki á hverjum degi sem popp­ stjarna bankar upp á hjá fólki. Því fengu hjón í Grafarvoginum að kynnast á miðvikudag. Þau réðu sér vart fyrir kæti og buðu popparanum að ganga í bæinn. Fyrr en varði var Herbert kominn með gamlan gítar í hönd og byrjaður að taka frægustu lögin fyrir hjónin sem áttu varla orð. Beðið eftir vistaskiptum n Guðmundur Steingrímsson virðist hægt og bítandi vera að einangrast í Framsóknarflokknum. Guðmundur er frjálslyndur Evrópusinni sem eitt sinn var aðstoðarmaður Dags B. Eggertssonar þegar hann var borgar­ stjóri. Með komu Ásmundar Einars Daðasonar í Framsókn hefur and­ staða við ESB enn eflst. Engum þyrfti að koma á óvart ef Guðmundur gengi til liðs við Samfylkinguna á nýjan leik. Sjálfur gaf hann sterkar vísbendingar á Eyjunni. „Ef ásýnd míns flokks er orðin þannig að maður sem ég er fremur ósammá la telur sínum áherslum best borgið innan þess sama flokks, að þá felur sú staða augljós­ lega í sér áleitn­ ar spurningar.“ Sigmar Vilhjálmsson einn af eigendum Hamborgarafabrikkunnar um góða afkomu: Svipað og í kísilverksmiðju Grunnur að góðri máltíð www.holta.is Royal bringur Kjúklingabringurnar frá Holtakjúklingi eru fersk og hrein afurð sem framleidd er af mikilli fagmennsku. Þær eru fáanlegar með tvennskonar kryddlegi - rósmarín og hvítlauk eða Texas - og henta bæði á grillið og í ofninn. Nú geta matgæðingar haft það ljómandi gott í sumar. Fréttaskot 512 70 70Áskrift 512 70 80HelgarBlaÐ 3.–5. júní 2011 64. tbl. 101. árg. leiðb. verð 595 kr. Simmi og jói Saman eiga þeir meirihluta í Hamborgarafabrikkunni

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.