Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 21
nótum aðspurð um viðbrögð sín við
kjörinu. „Ég samgleðst henni inni-
lega en vissulega á ég eftir að sakna
hennar.“
Samferðafólk Agnesar segir kirkj-
una, tónlistina og fjölskylduna skipa
stærstan sess í lífi hennar. Agnes sé
mikil fjölskyldukona og að mikið og
gott samband sé á milli systkinanna
og þá sér í lagi hennar og Smára og
fjölskyldu hans þar sem þau búi
bæði fyrir vestan.
Dillandi hlátur og smitandi
Agnes syngur og spilar á píanó og
hefur gaman af því að sækja tónleika
en það er mikil tónlist í allri henn-
ar fjölskyldu. Auk þess er hún mikill
náttúruunnandi og hefur gaman af
gönguferðum. „Hún erfði hundinn
Aþenu og gengur um allt með hann,“
segir vinkona hennar og bætir við
að Agnes hafi einnig gaman af lestri
góðra bókmennta.
Þeir sem þekkja Agnesi best eru
sammála um að eitt af því sem ein-
kenni hana sé dillandi og smitandi
hlátur. „Agnes er alveg ofboðslega
skemmtileg. Hún hefur mikinn húm-
or, bæði fyrir sjálfri sér og öðrum, og
hún er mjög hláturmild. Gallinn er
hins vegar sá að þegar hún fer af stað
er næsta ómögulegt að stoppa – hún
hlær þangað til tárin fara að renna,“
segir Hulda og bætir við að Agnes sé
afskaplega vel liðin fyrir vestan. „Það
hefur ríkt algjör sátt um hana. Hún
hefur verið mikill sálusorgari og fólk
hefur getað leitað til hennar með sín
vandamál. Hún er prestur fólksins.“
Sigurður tekur undir þetta með
hláturinn: „Ég held að þessi smitandi
hlátur fari ekki fram hjá neinum sem
hittir hana. Þessi hlátur er alveg ótrú-
legur og getur brotist fram þegar síst
varir og þá er ekki annað hægt en að
taka þátt.“
Framboðið kom á óvart
Samferðafólk Agnesar er sammála
um að Agnes sé ekki mikið að trana
sér fram að óþörfu. Mörgum hafi
því komið á óvart þegar hún ákvað
að gefa kost á sér til biskups. Úr-
slitin komu þó fæstum á óvart. „Ag-
nes hefur styrkst í öllu þessu ferli
og hefur orðið ákveðnari og harð-
ari,“ segir einn viðmælandi blaðs-
ins og Sigurður sonur hennar tekur
undir: „Það voru margir sem hvöttu
hana og við ræddum þetta fram og til
baka – hvort þetta væri það sem hún
vildi eða ekki. Að hún skyldi svo sigra
kom mér ekki á óvart í rauninni. Eft-
ir fyrri umferðina þá fannst mér ég
skynja að línurnar væru lagðar. Mér
fannst stemningin í loftinu þannig að
hún myndi bera sigur úr bítum. Hún
ruddi braut fyrir konur. Henni var
umhugað um að sýna fram á að kon-
ur gætu þetta og lagði sig þeim mun
meira fram í starfinu.“
Hulda var hins vegar ekki hissa á
þeirri ákvörðun Agnesar að bjóða sig
fram. „Agnes er svo gott leiðtogaefni.
Ég sé það bara á því hvernig hún hef-
ur sinnt því að vera prófastur á Vest-
fjörðum, oft við erfiðar aðstæður.
Þegar Agnes tekur ákvörðun verður
hún svo beinskeytt. Hún vinnur alltaf
að hlutunum af heilum hug.“
Fráskilin kona í embættið
Agnes skildi við eiginmann sinn fyr-
ir sextán árum. Samkvæmt heimild-
um DV eru hjónin fyrrverandi í góðu
sambandi en Hannes mætti á fundi
í aðdraganda biskupskjörsins henni
til stuðnings. „Skilnaðir eru alltaf
erfiðir og það tók tíma fyrir sárin að
gróa en síðan hafa liðið mörg ár. Þau
eru í ágætis sambandi í dag.“
Einhverjir hafa haft á orði að
kjör Agnesar til embættis biskups
boði nýja og breytta tíma Þjóðkirkj-
unnar. Sigurður viðurkennir að hafa
velt fyrir sér hvort kirkjan og sam-
félagið væru tilbúin fyrir fráskilda
konu í embættið og segir niðurstöð-
una hafa komið honum ánægjulega
á óvart. Hann segist handviss um að
móðir sín eigi eftir að gera mikið fyr-
ir kirkjuna. „Ég held að hún eigi eft-
ir að breyta ímynd kirkjunnar vegna
þess, fyrst og fremst, hver hún er og
hvernig hún gengur fram. Mamma er
yfirveguð og hófsöm og gengur fram
af virðingarverðum hætti. Hún er al-
gjörlega laus við snobb, það er ekki
til í henni,“ segir Sigurður og bæt-
ir við að sú neikvæða umræða og
gagnrýni sem Þjóðkirkjan hafi fengið
síðustu misserin hafi farið illa í hana.
„Henni er annt um kirkjuna. Öll-
um sem þykir vænt um kirkjuna hafa
tekið þessa neikvæðu umræðu inn
á sig.“ Guðrún tekur í sama streng:
„Fólki hefur ekki liðið vel en kirkjan
hefur lært af því sem gerst hefur. Ég
veit fyrir víst að það er mjög gott fyrir
starfið að fá Agnesi sem biskup. Hún
er svo sterkur karakter. Hún er mjög
vinsæl hér í sókninni og ég efast ekki
um að hún eigi alltaf eftir að vera hún
sjálf. Það mun ekkert breytast þótt
hún sé komin þarna.“
Heiðarleg og vel gefin
Viðmælandi DV segir Agnesi ekki
íhaldssama en að hún haldi sig í
kirkjuforminu. „Hún heldur hátíðar-
messur en einnig léttmessur og tek-
ur mið af óskum safnaðarins. Ein-
hvern veginn tekst henni alltaf að
tengja guðspjallið við það sem er að
gerast hér og nú. Predikanir hennar
eru ávallt nærandi og góðar.“ Ann-
ar viðmælandi bætir við að Agnes
hafi aldrei tengst ákveðnum stjórn-
málaflokki. Hún sé góður hlustandi
sem sé jöfn meðal jafningja og leggi
upp úr að hlutirnir séu framkvæmd-
ir. Hún sé yfirleitt hæglát en um leið
ákveðin og fylgin sér. „Ég hef fulla
trúa á henni í þessu embætti. Það
verður bara sárt að missa hana suð-
ur,“ segir Guðrún, vinkona hennar.
Samferðafólk Agnesar lýsir henni
sem glaðlyndri og vinmargri konu
sem gott sé að leita til. Hún sé dipló-
matísk, heiðarleg, vel gefin og í alla
staði vel gerð kona. Sigurður hefur
fulla trú á móður sinni. „Hún á eftir
að standa sig vel í þessu starfi. Ein-
hverjir hafa bent á að það hafi farið
svo lítið fyrir henni en ein ástæða
þess er að það er aldrei neitt vesen
í kringum hana. Hún tekur á mál-
unum þegar þau koma upp og leysir
þau. Aldrei með látum heldur á yfir-
vegaðan hátt. Ég er viss um að hún
eigi eftir að koma að miklu gagni í því
mikla starfi sem bíður hennar. Ég er
mjög stoltur af henni.“ n
Fréttir 21Helgarblað 27.–29. apríl 2012
Góður námsmaður Agnes var dugleg í skóla og útskrifaðist af eðlisfræðibraut í mennta-
skóla.