Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 42

Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Blaðsíða 42
Hvað er að gerast? Laugardagur Föstudagur Sunnudagur 28 apr 27 apr 29 apr Jane Eyre í Bíó Paradís Eftir erfiða æsku ræður Jane Eyre sig sem ráðskonu á hið virðulega herrasetur Thornfield Hall. Þar kynnist hún herra hússins, hinum skapþunga, kaldlynda og hranalega Rochester. Náin vinátta tekst með þeim þrátt fyrir þungt geð Rochesters. Jane verður ást- fangin af honum og hamingjan virðist blasa við. Mun hið skelfilega leyndarmál Rochester kollvarpa nýfundinni hamingju Jane að ei- lífu? Byggt á hinni frægu skáldsögu Charlotte Brontë. Hefur hlotið fjölda verðlauna og tilnefninga, sérstaklega fyrir leik Michael Fass- bender. Tengdó í Litla salnum Leikhópurinn CommonNonsense hefur vakið athygli fyrir nýstár- legar sýningar sem ramba á barmi myndlistar og leikhúss. Hann hefur áður meðal annars sett upp Hrærivélina, CommonNonsense og Forð- ist okkur. Hópnum hefur bæst liðstyrkur með leikstjóranum Jóni Páli Eyjólfssyni. Upp í sveit með Sinfó Bernharður Wilkinson stjórnar tónleikunum Úti í náttúrunni - Litli tónsprotinn. Tónleikarnir eru í Eldborgarsalnum á laugardaginn klukkan 14. Einleikari í köflum úr Árstíðum Vivaldi er Sif Tulinius, aðstoðarkonsertmeistari Sinfóníunnar. Útgáfutónleikar Klezmer Kaos Í tilefni nýrrar plötu sveitarinnar Froggy verða útgáfutónleikar fransk-íslensku verðlaunahljóm- sveitarinnar Klezmer Kaos á Nasa. Sveitina skipa Heiða Björg Jóhannsdóttir klarínett/söngur, Pierre Polveche harmónikka, Charles Rappoport fiðla/mand- ólín, Sylvain Plommet bassi og Laurent Lacoult trommur. Húsið verður opnað kl. 20.30 og sér hin fjöruga hljómsveit Varsjár- bandalagið um upphitun. Vortónleikar Karlakórs Kópavogs Á 10 ára afmælisári Karlakórs Kópavogs ákvað kórinn að blása til sóknar og efla og bæta kórinn. Kórinn hefur lítið komið fram í vetur, en er nú tilbúinn í vor- tónleika. Á dagskrá verða rússnesk þjóðlög, norsk karlakórslög og íslenskar söngperlur. Tónleikarnir verða haldnir í Salnum. 42 27.–29. apríl 2012 Helgarblað „Lágstemmd en áhrifamikil baráttusaga íslenskrar náttúru“ „Sýning sem þið megið alls ekki missa af“Menning m e n n i n g @ d v . i s | d v . i s / m e n n i n g Baráttan um landið eftir Helenu Stefánsdóttur. Tengdó eftir Val Frey Einarsson Fyrri dagurinn Svartfjallaland Rambo Amadeus flytur lagið Euro Neuro Amadeus er þekktur tónlistarmaður í Júgóslavíu sem var. Hann er þekktur fyrir húmor, áhugaverða texta og ófyrirsjáanlega framkomu á sviði. Rambo, sem heitir í rauninni Antonije Pusi, hefur sent frá sér 19 plötur og unnið til fjölda verðlauna, þar á meðal á Grand Prix-kvikmyndaverðlaunahátíðinni á Spáni fyrir tónlistina í kvikmyndinni Boomerang. Ísland Greta Salóme og Jónsi flytja lagið Never Forget Jónsi snýr aftur í keppn- ina átta árum eftir að hafa tekið þátt fyrir Íslands hönd í Istanbúl með laginu Heaven. Með honum í ár er hin 26 ára hæfileikaríka Greta Salóme sem spilar á fiðlu en hún samdi lag og texta. Grikkland Eleftheria Elefther- iou syngur lagið Aphrodisiac Eleftheriou, 23 ára, öðlaðist frægð í heimalandi sínu eftir að hafa tekið þátt í X-Factor árið 2010. Þótt hún hafi ekki unnið hæfileikakeppnina hefur hún átt mikilli velgengni að fagna og túrað með einhverju af frægasta tónlistar- fólki Grikklands. Eleftheriou er mikill Eurovision-nörd og ákveðin í að gera sitt allra besta á sviðinu í Bakú. Lettland Anmary flytur lagið Beautiful Song Anmary fæddist árið 1980 en textinn í laginu hefst einmitt á þessa leið: „She was born in a distant 1980, in the year that Johnny Logan won …“ Textinn fjallar um hana sjálfa og drauma hennar um að verða stórstjarna í tónlistarheiminum. Albanía Rona Nishliu flytur lagið Suus Nishliu er þekkt poppsöngkona og djasstónlistarkona í Albaníu, Kosovo, Makedóníu og Svartfjalla- landi. Hennar sterkustu eiginleikar eru breitt raddsvið og sterk túlkun. Nishliu hefur látið að sér kveða í mannúðarmálum á heimaslóðunum. Rúmenía Mandinga flytur lagið Zaleilah Hljómsveitarmeðlimir Mandinga eru sjö talsins en aðeins sex þeirra munu stíga á svið í Bakú. Sveitin hefur spilað í tíu ár og er fræg í heimalandi sínu. Hún hefur sent frá sér fjórar plötur en sú fimmta er á leiðinni. Sviss Sinplus flytur lagið Unbreakable Bræðurnir Ivan og Gabriel Broggini, sem mynda Sinplus, hlustuðu á Queen, Bob Marley og U2 þegar þeir voru að vaxa úr grasi. Bræðurnir voru snemma ákveðnir í að verða tón- listarmenn og voru báðir farnir að spila í hljómsveitum um 13 ára aldur. Sinplus er þessa dagana á tónleika- ferðalagi um Evrópu. Belgía Iris syngur lagið Would You? Hin 17 ára Iris er næstyngsti belgíski keppandi Eurovision frá upphafi. Sú yngsta var Sandra Kim sem vann keppnina með laginu J’aime la vie árið 1986 þegar hún var aðeins 13 ára. Iris var „uppgötvuð“ árið 2010 af hljómplötufyrirtækinu sem stóð að baki Tom Dice sem lenti í sjötta sæti í Eurovision árið 2010 með lagið Me and my guitar. Finnland Pernilla flytur lagið När jag blundar Bróðir Pernillu, Jonas Karlsson, sem er þekktur lagasmiður í Finnlandi, samdi lagið til móður þeirra sem er mikill aðdáandi keppninnar. Pernilla, sem er 21 árs, býr á sænskumælandi svæði í Finnlandi og syngur lagið á sænsku. Áhugamál hennar eru tónlist og handbolti. Ísrael Izabo flytur lagið Time Bandið Izabo sendi frá sér plötuna The Fun Makers árið 2003 og fékk í kjölfarið samning við Sony BMG. Bandið hefur verið að túra um Evrópu frá árinu 2006. Platan Superlight kom út í Ísrael og Frakklandi árið 2008. Bandið gerði samning við 100% Records sem stendur til dæmis að baki Moby og Placebo. San Marínó Valentina Monetta flytur lagið The Social Network Song (Oh Oh–Uh–Oh Oh) Monetta hefur spilað með mörgum af stærstu nöfnunum í Evrópu. Lagið sem hún syngur hét upphaflega Facebook Uh, Oh, Oh. Samkvæmt reglum Eurovision-keppninnar mega textarnir ekki innihalda auglýsingar svo textahöfundurinn varð að breyta textanum til þess að lagið yrði ekki útilokað frá keppninni. Kýpur Ivi Adamou flytur lagið La La Love Hin 18 ára Ivi Adamou vakti fyrst athygli þegar hún tók þátt í gríska X Factor. Eftir keppnina gaf hún frá sér plötuna Kalokeri Stin Kardia en platan San Ena Oniro kom út í fyrra. Danmörk Soluna Samay syngur lagið Should’ve Known Better Samay, 21 árs, hafði unnið fyrir sér sem götutónlistarmaður á strætum Kaupmannahafnar og annarra stórborga Evrópu. Soluna er fædd og uppalin í Gvatemala en flutti til Danmerkur með fjölskyldu sinni þegar hún var tíu ára. Soluna talar fimm tungumál og lítur á sig sem borgara heimsins. Rússland Buranovskiye Babushki flytur lagið Party For Everybody Ömmurnar frá Udmurtia sigruðu stjörnur á borð við fyrrverandi Eurovision-farann Dima Bilan. Elsti meðlimur hópsins verður 77 ára í haust. Hópurinn vakti fyrst athygli árið 2008 en ömmurnar syngja lög þekktra hljómsveita á borð við Bítlana og Queen. Hópurinn lenti í þriðja sæti í forkeppninni árið 2010. Ungverjaland Compact Disco flytur lagið Sound Of Our Hearts Bandið Compact Disco samanstendur af fjórum með- limum sem hafa spilað saman frá árinu 2005 en um eina vinsælustu hljómsveit Ungverjalands er að ræða. Fyrsta platan þeirra kom út árið 2005. Austurríki Trackshittaz flytur lagið Woki Mit Deim Popo Rappararnir Lukas Plöchl og Manuel Hoffelner mynda bandið Trackshittaz. Dúettinn vakti fyrst athygli með lagið Alloa bam Fraunz á YouTube. Lagið Woki Mit Deim Popo fjallar um djamm í borginni. Moldóva Pasha Parfeny syngur lagið Lutar Tónlist hefur alltaf verið hluti af lífi Pasha. Tón- listarmaðurinn, sem er 34 ára, var í hljómsveitinni Sunstroke Project sem tók þátt í forkeppninni árið 2009 með lagið You Should Like. Pasha hefur unnið til Grand Prix- verðlauna og stóð uppi sem sigur- vegari í International Music Festival Þessi epp í eurovision Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin í 57. skiptið í maí í Aserbaíd- sjan en það voru Ell og Nikki, með lagið Running Scared, sem heilluðu Evrópubúa í fyrra. Söngvakeppnin er ein af elstu sjón- varpsviðburðum sögunnar. Fyrsta keppnin var haldin árið 1956. Greta Salóme og Jónsi flytja lagið Never Forget fyrir Íslands hönd og verða önnur í röðinni fyrra undanúrslita- kvöldið, þann 22. maí. Síðari undanúrslitin fara fram þann 24. maí en stóra úrslita- stundin verður laugardagskvöldið 26. maí. Ell og Nikki frá Aserbaídsjan fagna sigri í Þýskalandi 2011.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.