Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Page 48
48 Lífsstíll 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Klassík með tvisti
Nafn: Ástríður Viðarsdóttir
Aldur: 26 ára
Starf: Dagskrárgerðarmaður á RÚV
Hvernig myndir þú lýsa stílnum
þínum? „Ég myndi lýsa honum sem klass-
ískum með tvisti.“
Áttu þér einhverjar tískufyrir-
myndir? „Mamma mín virðist alltaf vera
með þetta og hefur yfirleitt rétt fyrir sér
þó svo að ég vilji ekki alltaf viðurkenna það
svona fyrst um sinn.“
Hvar kaupir þú helst föt? „Ég brjálast
yfirleitt í búðum í útlöndum þar sem úrvalið
er meira. Hér heima finnst mér gaman að
fara í Nostalgíu, GK og Kúltúr.“
Uppáhaldsflíkin?„Er appelsínuguli Stine
Goya-kjóllinn minn, ég kemst alltaf í mikið
stuð er ég klæðist honum.“
Ómissandi í fataskápinn? „Flottir
jakkar, hælar og kjólar til að henda sér í.“
Uppáhaldssnyrtivörur? „Varalitir og
ilmvötnin í Aurum.“
Bestu kaupin í fataskápnum? „Hlýjar
peysur.“
Verstu kaupin? „Marc Jakobs-skór sem
ég keypti í New York um árið. Jeremías á
jólaskónum, þeir eru svo óþægilegir að ég
hef einu sinni notað þá og ég hélt ég þyrfti
að fara í fótaaðgerð eftir að hafa verið í
þeim í tvo tíma.“
Uppáhaldsfylgihlutir? „Gullhringur sem
mamma gaf mér og hringurinn sem Halldóra
Jónsdóttir vinkona mín gaf mér um síðustu jól.“
Hvað eyðir þú miklu á mánuði í föt
og/eða fylgihluti?„Ég kýs að svara
þessari spurningu ekki.“
Er eitthvað sem þú verður að
eignast fyrir sumarið? „Föt í litum ég
virðist eiga svolítið mikið í svörtu.“
viktoria@dv.is
Uppáhaldskjóllinn Ástríður í uppáhaldskjólnum: „Ég kemst alltaf í mikið stuð er ég klæðist honum.“ MyNd: SigtryggUr Ari JÓHANNSSoN
Með bros á vör Ástríður á varaliti í fallegum litum.
Kragi og kjóll Loðkragi, jakki og kjóll
saman.
Í fínu fjöri Ástríður notar þessi föt við fínni tilefni.
Uppáhaldsfylgihlutirnir
Hringarnir frá mömmu og frá
Halldóru vinkonu Ástríðar eru
í miklu uppáhaldi.
n Ástríður Viðarsdóttir opnar fataskápinn sinn n Brjálast í búðum