Dagblaðið Vísir - DV - 27.04.2012, Síða 62
Samdi lag fyrir kennarann
n Dóttir Valgeirs Guðjónssonar á ekki langt að sækja hæfileikana
V
ið vildum gefa persónu-
legar gjafir til kennaranna,“
segir Vigdís Vala Valgeirs-
dóttir, sem gaf sögukenn-
aranum sínum frumsagið lag að
skilnaði.
Vigdís er dóttir hins þjóðþekkta
tónlistarmanns Valgeirs Guðjóns-
sonar.
„Þetta var grín, væminn texti
um það hvað okkur þykir vænt um
kennarann. Ég sá ekki annað en að
hún tæki þessu vel, því hún brosti
og dillaði sér.
Þetta var annars frábært síð-
asta tækifæri til að skemmta sér
með vinunum áður en próflestur-
inn hefst,“ segir Vigdís sem hefur
skráð sig í sálfræði í Háskóla Ís-
lands í haust og sinna tónlistinni
með. Mig dreymir síðan seinna
um að læra músíkþerapíu þannig
að tónlistin er mér alltaf ofarlega í
huga.“
Bekkurinn hennar Vigdísar var
í mexíkóskum klæðum og hóf dag-
skrána hjá foreldrum hennar sem
reka NemaForum á Tryggvagötu í
Reykjavík. Þar hittust þau klukkan 6
um morguninn og fengu pönnukök-
ur, smjördeigshorn og mojito. Vigdísi
fannst ekkert tiltökumál að hafa for-
eldrana með.
„Það var bara alveg frábært,
þetta er fallegur staður og pers-
ónulegt umhverfi. Þetta er eins
og að vera í heimahúsi. Mamma
sagði síðan við okkur að henni
þætti ekkert rosalega sjarmerandi
að stunda drykkju fyrir hádegi.
Mamma veit sínu viti,“ segir Vigdís
Vala og hlær.
62 Fólk 27.–29. apríl 2012 Helgarblað
Stjörnur
ganga saman
Fatahönnuðurinn vinsæli Mundi
vondi hefur hannað boli fyrir
styrktarfélagið Göngum saman
en það hefur það að markmiði að
styrkja grunnrannsóknir á brjósta-
krabbameini. Nokkrar stjörnur
hafa lagt félaginu lið og sátu fyrir í
bolum merktum Göngum saman.
Þar má nefna rithöfundinn Hall-
grím Helgason, söngvarann Villa
naglbít, sjónvarpskonuna Eddu
Hermannsdóttur, grínistann Ara
Eldjárn og sunddrottninguna
guðdómlegu Ragnheiði Ragnars-
dóttur.
Ekki á eftirlaun
Í viðtali í nýjasta hefti Monitor
segir stórsöngvarinn Helgi Björns-
son að hann hafi engan hug á að
hætta að syngja og að hann geti
vel séð sjálfan sig í bransanum
jafnlengi og Raggi Bjarna. „Hví
ekki? Ég sé allavega enga ástæðu
til að fara á eftirlaun (hlær).
Svo veit maður hins vegar aldrei
hvernig hlutirnir þróast. Ég hef
enn þá mjög gaman af þessu. Það
sem maður fær út úr þessu hefur
alltaf verið að þróast og breytast,“
segir Helgi í viðtalinu.
É
g mun vera heimavinnandi,
sinna mínum börnum og öllu
því sem ber; skipta um blei-
ur, föt og hvað eina er lýt-
ur að barnauppeldi. Ég mun
standa bak við mína konu eins og
kostur er,“ sagði Svavar Halldórs-
son á opnum fundi í Kaffihúsinu á
Eskifirði á miðvikudag. Svavar var
þar staddur ásamt eiginkonu sinni,
forsetaframbjóðandanum Þóru
Arnórsdóttur, en þau heimsóttu
Fjarðabyggð. Gestir í sal spurðu
Þóru í þaula um framboð henn-
ar og þegar spurt var um atvinnu
Svavars svaraði hann á þá leið að
hann yrði heimavinnandi. „Ég mun
ekki sinna opinberum störfum,“
sagði hann og tók fram að hann
myndi sjá um börn þeirra hjóna.
Skoða íslenska glímu
Svavar sagðist, ef tími gæfist,
kannski skoða sögu íslenskrar
glímu. „Ef tími gefst til hef ég áhuga
á að glugga í fortíð og nútíð íslensku
glímunnar.“ Hann sagðist einnig
hafa útilokað að hann myndi sinna
störfum fyrir RÚV næði eiginkona
hans kjöri. „Ég hef gefið frá mér til-
boð um sérverkefni hjá RÚV.“
Fundurinn var vel sóttur og þar
skýrði Þóra meðal annars frá ástæð-
um þess að hún ákvað að gefa kost
á sér í komandi forsetakosningum.
Hún hafi fundið fyrir mikilli og sí-
endurtekinni hvatningu fólks víðs
vegar að úr þjóðfélaginu. Fyrst um
sinn hafi hún ekki tekið þessu al-
varlega. En svo hélt straumþunginn
áfram og henni fannst hún þurfa að
taka afstöðu til þeirra sem sýndu
henni traust og trúnað – hún hefði
þurft að bregðast við og svara þeim
af eða á. Eftir vandlega umhugsun
og tal við fjölskyldu sína og fjöl-
marga vini, ákvað hún að slá til.
Áhrifalítið embætti
Þóra sagði forsetaembættið í raun
áhrifalítið embætti, nema þá helst
í kjölfar alþingiskosninga, þeg-
ar boltinn væri í höndum forset-
ans varðandi hverjum skyldi falin
stjórnarmyndun og frekari fram-
gangur um að hér á landi væri rík-
isstjórn.
Þóra bauð svo fundarmönn-
um að taka til máls og leggja fram
spurningar. Aðspurð hvers vegna,
með tilliti til hversu áhrifalítið
embætti forseta Íslands væri í raun,
hún snéri sér þá ekki frekar að póli-
tíkinni, svaraði hún því til að það
væri óvinsælt starf að vera stjórn-
málamaður á Íslandi í dag, eins og
allir vissu, og lítil virðing borin fyrir
stétt stjórnmálamanna, þannig að
hennar hugur snéri ekki að slíku.
Fannst embættið prjál
Aðspurð úr sal hvort henni þætti
rétt að leggja niður embætti forseta
Íslands, eins og margir hafa haft
á orði síðustu árin, sagði hún að
fyrr á árum hefði hún verið þeirrar
skoðunar og fundist forsetaemb-
ættið „prjál“. Síðan hefði hún séð að
embætti forseta Íslands væri verð-
ugt, og væri hægt að virkja ýmis-
legt í gegnum það. Forsetaembætt-
ið gæti margt gott látið af sér leiða
í gegnum samskipti við leiðtoga
erlendra ríkja og framgöngu leið-
toga og samskipta þeirra í millum.
Forseti Íslands ætti að styðja ís-
lensk fyrirtæki í gegnum styrkleika
forsetaembættisins. Að sögn gesta
á staðnum var mikil ánægja með
fundinn.
Svavar mun sjá
um barnauppeldið
n Þóra segir forsetaembættið áhrifalítið n Svavar myndi hætta á RÚV
Á fundinum Þóra svaraði spurningum gestanna á fundinum og Svavar stóð að baki henni.
Þóra Aðspurð segist Þóra ekki
hafa haft mikið álit á forseta-
embættinu en það hafi breyst.
Stolið frá Hörpu
Fatahönnuðurinn Harpa Einars-
dóttir lenti í því á dögunum að
hauskúpu af meri sem hún átti var
stolið af vinnustofu hennar. Haus-
kúpan var af meri sem var í eigu
föður Hörpu. Svo virðist sem ein-
hver hafi farið í óleyfi inn á vinnu-
stofu hennar og tekið hauskúpuna
en látið allt annað vera. Í við-
tali við Fréttablaðið segir Harpa
töluverðan draugagang fylgja
hauskúpunni og grunar að það sé
vegna þess að hún sé ekki á sama
stað og búkur merarinnar. Hún vill
endilega finna hauskúpuna til að
geta sameinað hana og búkinn og
bendir þeim sem eitthvað vita um
málið á að hafa samband við sig í
gegnum Facebook. Persónuleg gjöf Vigdís söng lag til sögukennara síns.
Fengu mojito hjá mömmu Vigdísi fannst ekkert tiltökumál að hafa foreldrana með í ráðum.