Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Qupperneq 8

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Qupperneq 8
8 Fréttir 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Byggja skóla án fjárheimilda n Sveitarstjórnin í sumarfríi n 170 milljónir fram úr fjárhagsáætlun F ramkvæmdir sveitarfélags- ins Skagafjarðar við Árskóla, grunnskólann á Sauðárkróki, eru hafnar þrátt fyrir að áætl- aður kostnaður fari langt fram úr fjárhagsáætlun bæjarins og bæj- arráð hafi ekki samþykkt viðbót við áætlunina. Umframkeyrslan er 170 milljónir króna ef marka má mat bæjarins. Málið verður til umfjöll- unar á næsta fundi bæjarstjórnar þar sem gert er ráð fyrir að viðbót við fjárhagsætlun verði samþykkt. Kaup- félag Skagfirðinga hefur heitið bæn- um að lána verðtryggt en vaxtalaust fyrir framkvæmdinni en enginn slík- ur samningur hefur þó verið undir- ritaður. Framkvæmdirnar njóta stuðnings Framsóknarflokks og VG sem sitja í stjórn en auk þeirra hafa sjálfstæðismenn stutt áformin. Full- trúi Samfylkingarinnar sem og full- trúi Frjálslynda flokksins hafa lagst gegn framkvæmdunum á núverandi forsendum. Sveitarstjórnin í sumarfríi Stefán Vagn Stefánsson, formaður byggðarráðs Skagafjarðar, segir við- bót við fjárhagsáætlun bæjarins ekki hafa verið samþykkta í sveitarstjórn vegna sumarleyfa. „Sveitarstjórn var í sumarfríi og byggðarráð fer þá með fjárheimildir sveitarstjórnar nema í málefnum er varða mikil fjárútlát. Þetta flokkast undir það. Þar af leið- andi gat byggðarráð ekki gert þenn- an viðauka við fjárhagsáætlun.“ Það var í mars síðastliðnum sem sveitarstjórn Skagafjarðar ákvað að hefja framkvæmdir við grunnskól- ann. Í samþykkt bæjarins kemur fram að áætlaður kostnaður vegna framkvæmdanna nemi 518 milljón- um króna. Ekki var gert ráð fyrir öll- um kostnaðinum í fjárhagsáætlun bæjarins. Í fundargerð byggðarráðs frá 22. ágúst kemur fram að hækka þurfi fjárfestingalið eignasjóðs um 170 milljónir króna árið 2012 til að mæta kostnaði vegna framkvæmd- anna. Þá segir að útgjöldunum verði mætt með nýjum lántökum. Í sam- þykkt bæjarstjórnar frá því í mars kemur einnig fram að samþykktin sé með fyrirvara um fjármögnun. „Fyr- ir liggur að Kaupfélag Skagfirðinga hefur boðist til að lána fjármagn til verksins, án vaxta og afborgana, á meðan á byggingartíma stendur.“ Óundirrituð fjármögnun Þær upplýsingar fengust hjá sveitar- félaginu að enn hefði ekki ver- ið ákveðið hvort gengið yrði frá samkomulagi við Kaupfélag Skag- firðinga og af þeim sökum hefði samningur ekki verið undirritaður. „Við erum með lánsloforð frá Kaupfé- lagi Skagfirðinga eins og hefur marg- sinnis komið fram,“ segir Stefán þrátt fyrir þær upplýsingar og bætir við að drög séu tilbúin. Þar sé gengið út frá því að lánið verði verðtryggt. „Að sjálfsögðu er það í grunninn þannig að framkvæmdir eiga að rúmast inn- an þeirra heimilda og áætlana sem gerðar eru,“ segir Stefán aðspurð- ur hvort hann geti vottað um vinnu- brögð kjörinna fulltrúa í Skagafirði sem góða stjórnsýslu. Hvorki fyrsta né síðasta skipti „Alltaf getur komið upp einstakt brýnt verkefni sem þarf að fara í. Það er ekkert einsdæmi og þetta er hvorki fyrsta né síðasta skipti sem það verð- ur gert að menn fari í framkvæmd- ir þótt ekki hafi verið fyrirséð í upp- hafi árs, þegar fjárhagsáætlun var gerð, að það yrði farið í framkvæmd- ina.“ Um hvort hann þekki mörg dæmi þess að framkvæmdir á veg- um sveitarfélagsins fari fram á skjön við samþykktir og án lánasamnings segir Stefán: „Ég vil svo sem ekki tjá mig um það. Það er allavega þannig í þessu máli. Drögin liggja fyrir og við vitum nokkurn veginn hvern- ig þetta mun líta út. Þetta hefur leg- ið uppi á borðum lengi og allir verið meðvitaðir um það hvernig þetta er hér.“ DV leitaði upplýsinga í Ráðhúsi Skagafjarðar um hvort Árskólafram- kvæmdir færu fram samkvæmt venju. Hjá Ráðhúsinu var því neit- að að slíkt tíðkaðist. Þá óskaði blað- ið eftir áliti Margeirs Friðrikssonar, sviðsstjóra stjórnsýslu- og fjármála- sviðs, á vinnubrögðum kjörinna full- trúa við fjárútlát úr sjóðum bæjarins. „Ég vinn bara eftir því sem fyrir mig er lagt og þetta er pólitíkin sem ræð- ur þarna ferðinni.“ Innanríkisráðuneytinu að kenna Athygli vekur að sveitarstjórnarfull- trúar gerðu breytingar á þriggja ára áætlun sveitarfélagsins til samræmis við breytingarnar en sáu sér ekki fært að samþykkja viðauka við fjárhags- áætlun til samræmis við ákvörðun sína. Spurður hvort ekki teljist til fag- legra vinnubragða að heimila fjár- útlát áður en samþykkt er að fram- kvæma segir Stefán að það hafi ekki verið hægt vegna tafa í innanríkis- ráðuneytinu. „Ég er að reyna að segja þér að það var ekki hægt. Í fyrsta lagi vissum við ekki hvernig þessi við- auki átti að líta út. Það voru nú að koma frá ráðuneytinu á mánudag upplýsingar um það hvernig þess- ir viðaukar áttu að líta út. Síðan var sveitarstjórnin í sumarfríi.“ Hvorki Ráðhús Skagafjarðar né innanríkis- ráðuneytið vildi kannast við þá skýr- ingu. „Við höldum að hér sé einhver misskilningur á ferð. Sjáum engin merki um samskipti innanríkisráðu- neytis og Sveitarfélagsins Skagafjarð- ar,“ segir í svari ráðuneytisins. n Viðbygging Framkvæmdir við viðbyggingu Árskóla, grunnskólans á Sauðárkróki, eru hafnar þrátt fyrir að kostnaðarmat sé langt umfram heimildir fjárhagsáætlunar. „Drögin liggja fyr- ir og við vitum nokkurn veginn hvernig þetta mun líta út. Verðtryggt en vaxtalaust Kaupfélag Skagfirðinga hefur lofað sveitarfélaginu láni fyrir framkvæmdunum. Ákvörðun um hvernig skuli fjármagna verkið hefur ekki verið tekin. Stefán Vagn Stefánsson Formaður byggðarráðs segir sveitarstjórnina ekki hafa getað samþykkt viðbót við fjárhagsáætlun vegna sumarleyfa. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is „Nöturlegur raunveruleiki“ „Nú þegar metfjöldi nýnema streymir inn í Háskóla Íslands bíð- ur þeirra nöturlegur raunveruleiki. Stúdentum er gert að lifa á 140.600 kr. eða 26.576 kr. minna en atvinnu- leysisbætur og endurgreiða með vöxtum og verðtryggingu eftir að námi lýkur.“ Þetta kemur fram í ályktun sem Stúdentaráð Háskóla Íslands sendi frá sér á fimmtudag vegna Lánasjóðs íslenskra náms- manna. Í ályktuninni kemur fram að lánasjóðurinn sé einn af hornstein- um íslenska menntakerfisins enda eigi hann að tryggja aðgengi allra að námi, óháð efnahag. „Til þess að lánasjóðnum takist að sinna lög- bundnu hlutverki sínu þarf grunn- framfærslan að vera með þeim hætti að námsmaður geti lifað í íslensku samfélagi. Grunnfram- færslan þarf að tryggja þeim sem minnst hafa milli handanna tæki- færi á því að stunda háskólanám,“ segir í ályktuninni. Miðað við þá upphæð sem stúd- entum er gert draga fram lífið á, gengur dæmið ekki upp, að sögn Stúdentaráðs. „Hver einasti aðili sér að þessi formúla er ekki beint hvetj- andi fyrir einstakling sem langar í háskólanám. Stúdentaráð hvetur stjórnvöld í eitt skipti fyrir öll að stíga skref- ið til fulls og hækka fjárframlög til Lánasjóðs íslenskra námsmanna umfram atvinnuleysisbætur. Þá fyrst getur Lánasjóðurinn sinnt lögbundnu hlutverki sínu og að- stoðað stúdenta í gegnum náms- árin.“ Fjöldi eftirskjálfta Margir eftirskjálftar mældust á mælum Veðurstofu Íslands á fimmtudag eftir að jarðskjálfti upp á 4,6 reið yfir um hádegis- bilið. Upptök skjálftans voru á um sex kílómetra dýpi rétt norð- an við skíðasvæðið í Bláfjöll- um á Reykjanesskaga. Skjálftinn fannst vel á höfuðborgarsvæð- inu og hristust húsgögn til víða. Þá bárust einnig tilkynningar um að skjálftinn hefði fundist á Sel- fossi, Hveragerði og á Hvolsvelli. Nokkrir eftirskjálftar, allir um og undir tveimur að stærð, fylgdu í kjölfarið og riðu yfir fram eftir fimmtudeginum. Upptökin eru á norður- suðursprungu á flekaskilunum á Reykjanesskaga. Nokkur smá- skjálftavirkni var á þessu svæði í síðasta mánuði.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.