Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 26

Dagblaðið Vísir - DV - 31.08.2012, Side 26
26 Umræða 31. ágúst–2. september 2012 Helgarblað Vinsæl ummæli við fréttir DV.is í vikunni „Ég var reyndar á ferð í borginni og fannst alveg nóg af spikfeit- um ungum konum en hefur Jónas ekki tekið eftir því hvað eru áberandi fleiri hrokafullir sjálfskipaðir besservisserar í Reykjavík en annarstaðar?“ Þráinn Brjánsson um frétt sem segir frá bloggfærslu Jónasar Kristjánssonar en þar segir hann að það að koma út á land sé eins og að koma til Bandaríkj- anna. Margt fólk sé mjög áberandi illa farið af offitu, einkum konur. „Djöfull eru margir harðir hérna, að finnast það í lagi að börn horfi upp á blæðandi afhausað hreindýr á palli. Þetta hefur svo ekkert með kjötborð matvöruverslana að gera. Þvílíkur bjánagangur.“ Franz Gunnarsson um umræð- ur sem spunnust út frá frétt um hauslausan hreindýrsskrokk sem bundinn var á fjórhjól sem Toyota-jeppi var með í eftirdragi á Egilsstöðum. Á kerrunni sjálfri var síðan alblóðugt höfuð skepnunnar bundið svo horn þess stóðu út af. „Geta þessar bryddur ekki frekar einbeitt sér að því að safna og dreifa gögnum um dæmda kynferðisafbrotamenn og barnaníðinga heldur en einhverja karla sem kaupa sér blíðu (hjá konum sem jafnvel kjósa sér þetta að starfsgrein?) Það þætti mér verðugri málstaður.“ Teresa Dröfn Njarðvík um frétt þess efnis að samtökin Stóra systir auglýsi eftir fólki til að taka þátt í baráttu samtakanna og spyr hvort fólk viti um vændisstarfsemi og það hvatt til þess að senda myndir, skjáskot eða önnur gögn á netfang samtakanna. „Maðurinn er kominn með vinnu á stað sem ég er að reka og hann er hörkuduglegur – svo duglegur að aðrir hafa orð á því!!!! Hann sótti um vinnuna sama dag og hann fékk leyfi til að vera á landinu ef mér skjátlast ekki og svo er hann í íslenskunámi ... Nei heyrðu við skulum bara senda hann úr landi í þrælahald þótt að hann geri allt til að vera góður borgari sem borgar sína skatta og legg- ur sitt af mörkum en horfum framhjá Íslendingum sem vinna svart og eru á bótum ...Guð forði okkur frá því að fá gott fólk í landið ... Já og kannski má bæta því við til gamans að EKKI EINN Íslendingur sótti um vinnuna sem hann er í !!!!“ Bjarndís Líf Friðþjófsdóttir um umfjöllun um frétt um að flóttamaðurinn Mouhamed Lo sé frjáls ferða sinna. „Já, þetta er mikill léttir, þá er loksins lokið ellefu ára leit að grínara sem efast um skýr- ingarnar á 11. sept ...“ Valgarður Guðjónsson um þá frétt að grínistinn Þorsteinn Guðmundsson hafni opinberu sögunni um ellefta september. 37 28 142 105 Einar Sigurðsson: Þarf Landspítalinn enn að stóla á velunnara sem gefið hafa tæki og tól reglulega á undanförnum árum?  Björn Zoëga: Já, við höfum sem betur fer átt góða að. Erna Arnardóttir: Hefur þú ekki áhyggjur af flótta úr læknastétt af LSH?  Björn Zoëga: Við erum alltaf að fylgjast með því máli og stöðuna hjá öðrum stéttum, en hef ekki áhyggjur, við erum að reyna að vinna okkur út úr erfiðri stöðu. Kristjana Guðbrandsdóttir: Konur á kvenlækningadeild búa við þrengsli og óásættanlegar aðstæður, hvernig er gert ráð fyrir kvennadeild í heildar- skipulagi Landspítalans?  Björn Zoëga: Ef þú átt við á nýjum spítala er það ekki fullfrágengið. Aðstaða sjúklinga og starfsfólks er ekki viðunandi í dag og m.a. þess vegna stefnum við að endurnýjun húsnæðis okkar á næstu árum. Fundarstjóri: Arnar Gíslason spyr í tölvupósti sem barst á ritstjorn@dv.is: Hvað gerir forstjóri LSH til að „höndla“ það mikla álag sem væntanlega fylgir starfinu, ekki síst um þessar mundir? Og hefur spítalinn einhver ráð til að aðstoða annað starfsfólk við að gera það sama eða halda álagi í skefjum?  Björn Zoëga: Spítalinn hefur ýms- ar leiðir sem það býður starfsfólki sínu þegar álag verður of mikið, of langt mál að telja það upp. En við reynum að fylgjast með álaginu reglulega, m.a. með starfsum- hverfiskönnunum Darri Ólason: Hvernig hangir það saman að planleggja Hátæknisjúkrahús og hinsvegar að berjast í bökkum með núverandi sjúkrahús?  Björn Zoëga: Það er verið að skipu- leggja endurnýjun húsnæðis okkar til að létta undir með okkur í rekstri. Nýtt húsnæði verður töluvert ódýrara í rekstri. Ómar Valdimarsson: Hvað gæti Landspítalinn gert við 100 milljarða, sem væru eyrna- merktir tækjakaupum?  Björn Zoëga: Við þurfum ekki svo mikla peninga til að endurnýja tæki okkar, góð byrjun væri 3 milljarðar, þá gætum við endurnýjað mjög mörg helstu tæki okkar. Sunna Gunnarsdóttir: Á göngudeild fyrir blóðtökur kemur stór hluti sjúklinga Landspítalans í blóðtöku. Á Hringbraut eru 4 stólar í notkun og biðstofan gluggalaus. Stendur til að bæta þessa aðstöðu?  Björn Zoëga: „Blóðtökuferilinn“ allur er í endurskoðun og þar með aðstaðan. Atli Fanndal: Áttu von á erfiðum aðhaldsaðgerðum hjá Landspítalanum í fjárlögum næsta árs?  Björn Zoëga: Ég á ekki von á „erfiðum“ aðhaldsaðgerðum, en þó fjárlög 2013 myndu ekki lækka til okkar hafa orðið ýmsar breytingar á rekstarumhverfi okkar sem verða til þess að við þurfum að beita aðhaldi. Alexander Jóhönnuson: Umræða um gömul og léleg tæki hefur átt sér stað, er hægt að verða að liði (þótt fátækur námsmaður sé) og setja smá aur í sérstakan tækjasjóð?  Björn Zoëga: Þakka þér fyrir, ég vona að þú getir styrkt eitthvað af þeim mörgu félögum og félagssamtökum sem eru að safna fyrir tækjum, eða eru að fara byrja á söfnun. Hrafn Malmquist: Fljótlega eftir hrun var hallarekstur LSH ræddur mikið í samhengi við gengi krónunnar og kostnað innfluttra lyfja og tækja. Guðlaugur Þór lagði áherslu á að lækka lyfjakostnað. Eru lyf enn of dýr?  Björn Zoëga: Lyfjakostnaður okkar hefur lækkað mjög mikið seinustu 3 ár, en það sem hefur haft mest áhrif hjá okkur, sérlega strax eftir hrun var fall íslensku krónunnar. Ómar Valdimarsson: Hvernig finnst þér það ríma að eiga í erfiðleikum með að endurnýja helstu tæki og tól, sem ætti að vera hægt að gera fyrir 3 milljarða, á sama tíma og til stendur að byggja nýtt hús fyrir 100 milljarða?  Björn Zoëga: Þessa tölu þekki ég ekki, 100 milljarða fyrir endurnýjun á húsnæðinu en ég veit að við getum sparað okkur a.m.k. 100 milljarða á næstu 40 árum með endurnýjun húsnæðis. Guðmundur Franklín Jónsson: Ertu með eða á móti sjálfstætt starfandi sérgreinalækningum?  Björn Zoëga: Landspítalinn á oftast mjög gott samstarf við sjálfstætt starfandi sérfræðinga og margir þeirra vinna hlutastarf á LSH, það segir sig sjálft að ég er ekki á móti þeim! Sigrún Steingrímsdóttir: Hvers vegna sér Landspítalinn ekki um tannlæknaþjónustu? Er þetta ekki spítali allra landsmanna? Hvað með þá landsmenn sem eru bara veikir í tönnunum?  Björn Zoëga: Það er pólitísk stefnumótun seinustu áratuga sem ráðið hefur því hvaða lækningar eru á Landspítalanum. Hanna Ólafsdóttir: Er ekki mótsögn í þeim aðgerðum að loka langlegudeildum á geðsviði á meðan ekki er hægt að útskrifa sjúklinga af geðsviði þar sem ekki eru úrræði til staðar fyrir þá? Og það kostar spítalann peninga.  Björn Zoëga: Sjúklingar með langvinna geðsjúkdóma hafa rétt eins og aðrir að þurfa ekki að hafa lögheimili á spítala heldur komast í sjálfstæða búsetu. Það að þeir komast ekki fljótlega í það kostar peninga. Þorsteinn Halldórsson: Hvað finnst þér um staðsetningu nýja spítalans og er ekki betra að vera með hann nær miðri byggð, segjum upp á Hálsi.  Björn Zoëga: Staðsetning var ákveðin fyrir u.þ.b. 10 árum síðan. Síðan þá hefur líka komið í ljós að sú staðsetning sem valin var, er ódýrasti kostur sem höfum nú í endurnýjun húsnæðis. Eyþór Jóvinsson: Sem forstjóri Landspítalans, hver er þín afstaða varðandi flugvöll í Vatnsmýri? Myndi það ógna öryggi og þjónustu við landsbyggðina ef að flugvöllurinn er ekki í námunda við Landspítalann?  Björn Zoëga: Sem forstjóri Landspítalans reyni ég að fara varlega með orð eins að ógna öryggi. Ég hef ekki enn myndað mér skoðun á málinu. Helgi Þór: Telur þú þörf á að blása til sóknar í forvörnum og uppáskrifaðri þjálfun og hreyfingu nú þegar lífsstílssjúkdómar á borð við vægan háþrýsting, sykursýki 2, offitu og stoðkerfisvandi þeim tengd aukast?  Björn Zoëga: Já, ég er mikil stuðn- ingsmaður slíkra úrræða. Hannes Sigmarsson: Hvað kostar að byggja nýja spítalann i þessum 2–3 áföngum? Heildarverð?  Björn Zoëga: Heildarverð liggur enn ekki fyrir, langstærsti áfanginn, sá fyrsti, kostar milli 52–54 millj- arða með tækjum. Bjarnheiður Elísdóttir: Þarf ekki að vinna betur að per sónu vernd innan spít alans? T.d. eru prentarar oft ætlaðir fyrir persónulegar útprentanir stað settir allt annarsstaðar en sá sem er að prenta út og gögnin þá sýnileg óviðkomandi.  Björn Zoëga: Við erum alltaf að huga að persónuvernd. Með nýju fyrirkomulagi í prentun hjá okkur núna þarf sá sem prentar út að standa við prentara til að prenta sín gögn út. Viktoría Hermannsdóttir: Eru mörg læknamistök sem rekja má til vinnuálags starfsfólks á spítalanum?  Björn Zoëga: Við teljum að svo sé ekki. Það er alltaf erfitt að meta hvers vegna hlutir ganga ekki alltaf upp og mistök verða. En það er alltaf skoðað ef óhöpp verða. Fundarstjóri: Kjartan Kjartansson spyr á tölvupósti sem barst á ritstjorn@dv.is: Veist þú hversu stór hluti starfsmanna LSH er með laun undir neysluviðmiði velferðaráðuneytisins? Eftir skatt eru þau 225 þúsund (einstaklingur) 255 þúsund (m.v. 2 fullorðnir með 2 börn)  Björn Zoëga: Ég get því miður ekki svarað því. Þetta hefur ekki verið skoðað sérstaklega innan spítalans. Hrafn Malmquist: Verður þú var við að lyfjarisarnir (JNJ, PFE, Roche, GSK, o.fl.) hafi óþægilega sterka samningsstöðu gagnvart LSH?  Björn Zoëga: Nei, við verðum ekki vör við það, enda eru nær allir okkar samningar við þessi félög eftir útboð. Erna Arnardóttir: Stendur til að kaupa PET skanna á LSH?  Björn Zoëga: Það að kaupa PET skanna er mjög dýrt, m.a. vegna þess að það þarf að byggja sérstaklega í kringum skannann. Reiknað er með PET skanna í nýjum Landspítala. Kolbrún Óskarsdóttir: Telur þú rétt að viðvaningur þ.e. maður sem ekki er sérfræðingur í t.d. axlarbrotum, geri aðgerð á axlarbrotnum einstaklingi?  Björn Zoëga: Ég vona að við séum ekki með viðvaninga í vinnu! Mín skoðun er sú að best sé að reyndasta fólkið sinni hverju sinni flóknustu tilvikunum með minna reyndu fólki til kennslu. Helga Jónsdóttir: Af hverju er maturinn úr eldhúsi LSH svo óhollur að sykursjúkir og hjartveikum er ráðið frá að borða hann?  Björn Zoëga: Ég kannast ekki við þessa meintu óhollustu. Samsetn- ing matar í eldhúsinu okkar er unnin í samstarfi við næringarfræðinga. Linda Jóhannsdóttir: Mér er alveg hulin ráðgáta hvernig á að halda risa spítala gangandi og manna stöðurnar í öllum niður skurðinum. Getur þú svarað því?  Björn Zoëga: Ef þú ert að tala um nýja Landspítala sem risa spítala, þá er það þannig að skv. áætlun okkar þarf minna af fólki í vinnu þar en er í vinnu hjá okkur í dag. Hanna Ólafsdóttir: Eru einhverjar aðgerðir í gangi til að létta álagið á bráðadeild- um og bæta aðgengi fólks að heilsugæslu til dæmis með að lengja þann tíma sem læknavaktin er opin?  Björn Zoëga: Ég get engu svarað um þetta, skipulag heilbrigðis- þjónustunnar í heild er ekki á okkar könnu. Tryggvi Þórarinsson: Er ekki forgangsverkefni ríkisstjórnar að endurnýja gömul úrelt tæki í stað byggingar spítala?  Björn Zoëga: Við verðum að endurnýja tæki og endurnýja húsnæði, starfsemin til lengri tíma gengur ekki upp öðruvísi. Styrkár Hallsson: Er ekki kominn tími á að breyta eins og nafninu á geðsjúkrahúsinu Kleppi í eitthvað annað vegna fordóma sem loða við nafnið „Kleppur‘“  Björn Zoëga: Þetta hefur verið skoðað og ákveðið að halda nafn- inu m.a vegna langrar sögu staðar- ins sem er ekki bara neikvæð. Kristín Tryggvadóttir: Hvernig stendur á að ekki er hægt að panta tíma skv. fyrirsögn læknis á deild 11, eins og áður? Það er erfitt að bíða eftir bréfi og hlýtur að vera dýrara að senda póst?  Björn Zoëga: Þekki ekki það mál. Garðar Garðarsson: Sæll, nú hef ég notið barnadeildar í mörg ár, eða 14 ár þar til yfir lauk, á síðasta ári hef ég upplifað mikinn niðurskurð. Er ekki komin endapunktur með fækkun starfsmanna.  Björn Zoëga: Jú ég er sammála þér það er vonandi komið á endapunkt. Guðmundur Franklín Jónsson: Ertu með eða á móti ferðatengdri læknisþjónustu?  Björn Zoëga: Landspítalinn hefur unnið með mörgum aðilum sem hafa svona hugmyndir. Einar Sigurðsson: Framkvæmir þú aðgerðir á sjúklingum samhliða starfi þínu sem forstjóri?  Björn Zoëga: Já, seinast í morgun. Garðar Garðarsson: Þegar fólki er sagt upp i hagræðingu er fólki þá sagt upp á skrifstofum líka?  Björn Zoëga: Já, við höfum fækkað meir hjá fólki sem er í s.k. stoðþjón- ustu en hjá þeim sem starfa beint við sjúklinga. Eiríkur Magnússon: Sæll Björn. Finnst þér eðlilegt að læknar, sérfræðingar, geti unnið vaktir og verið svo með sjálfstæðan rekstur samhliða 100% starfi ?  Björn Zoëga: Læknar mega ekki vera í 100% starfi og síðan með eigin rekstur, s.k. stofur, en þeir þurfa að taka vaktir. Fundarstjóri: Björn hefur nú svarað spurningum lesenda í rúma klukkustund. Við þökkum honum kærlega fyrir og lesendum fyrir samfylgdina og spurningarnar. Beinni línu er lokið í dag. Björn á síðasta orðið hjá okkur:  Björn Zoëga: Þakka ykkur öllum fyrir þetta tækifæri til að eiga þetta samtal með ykkur. Björn Zoëga, forstjóri Landspítala, sat fyrir svörum á Beinni línu DV á miðvikudag. Mætti endurnýja öll tæki fyrir 3 milljarða Nafn: Björn Zoëga Aldur: 48 ára Menntun: Bæklunarskurðlæknir Starf: Forstjóri Landspítala 35

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.