Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 1.–3. júní 2011 Helgarblað Maður sló í bekki og var með læti við skírnarathöfn í Landakotskirkju: Með uppsteyt við skírn „Það var einhver ungur maður þarna sem vildi ekki fara út úr kirkjunni. Þeg­ ar athöfnin var búin varð hann eftir í kirkjunni og vildi ekki fara út. Hann var með einhver læti. Ég bað hann um að fara út og þá sparkaði hann í nokkra bekki en þá sá ég að eitthvað væri ekki alveg með felldu hjá honum. Ég spurði hvort ég ætti að kalla á lögregluna og þá fór hann út,“ segir séra Jakob Roll­ and, prestur hjá kaþólsku kirkjunni. Ungur maður sló í bekki með sleif að vopni inn í kirkjunni og var með læti meðan á skírnarathöfn stóð síðast­ liðinn laugardag. Gestir í athöfninni sögðu nokkra truflun hafa orðið af at­ ferli mannsins sem tengdist skírnarat­ höfninni ekki á neinn hátt. Séra Jakob segist ekki kannast við manninn. „Ég hef aldrei séð hann áður. Ég veit ekki hvort hann er sóknarbarn því ég þekki ekki öll sóknarbörnin.“ Töluverður styr hefur staðið um kaþólsku kirkjuna eftir að ásak­ anir komu fram er sneru að séra Georg, sem var prestur í kirkjunni, og kennslukonu við Landakotsskóla, Margréti heitinni Müller. Í DV á miðvikudag var sagt frá því að Valgarður Bragason hefði brot­ ið rúður í safnaðarheimili kaþólsku kirkjunnar í reiði. Þar sagði hann frá því hvernig hann áttaði sig á því eftir að hafa lesið sögu konu sem var misnot­ uð af séra Georg, að hann hefði orðið fyrir svipaðri reynslu. Jakob hafði ekki séð blaðið þegar blaðamaður náði tali af honum og var talsvert brugð­ ið þegar hann heyrði nafn mannsins. „Svona lagað snertir mig djúpt því að þetta kemur frá fólki sem maður met­ ur mikils,“ sagði Jakob og auðheyrt var að honum var mikið niðri fyrir. Hann sagði skiljanlegt að margir væru reið­ ir og hann berðist sjálfur við ýmsar til­ finningar varðandi þessi mál. Nýlegir ársreikningar fjögurra eign­ arhaldsfélaga fjárfestisins Hannesar Smárasonar sýna erfiða stöðu þeirra. Þessi félög eiga það öll sameiginlegt að Hannes skilaði ekki inn ársreikn­ ingum þeirra fyrir árið 2008; ársreikn­ ingar fyrir 2009 skiluðu sér hins veg­ ar til ársreikningaskrár í seinni hluta apríl. Félögin heita EO eignarhalds­ félag, Sveipur, Runnur 4 ehf. og Hlíða­ smári 6. Eitt af félögunum, Sveipur, sýnir til að mynda tap upp á rúmlega fimm milljarða króna á árunum 2008 til 2009. Tapið er að mestu tilkomið út af niðurfærslu á kröfum og á eignarhluta í EO eignarhaldsfélagi, áður Odda­ flugi, sem hélt meðal annars utan um hlutabréfaeign Hannesar í almenn­ ingshlutafélaginu FL Group, stærsta hluthafa Glitnis. Hannes stýrði FL Group þar til í lok árs 2007 þegar hon­ um var ýtt til hliðar vegna tapreksturs. Eignarhaldsfélagið Sveipur á 14 prósent í EO eignarhaldsfélagi en það félag tapaði rúmum 22,5 milljörðum króna árið 2008. Skuldir þess félags námu tæpum 12 milljörðum króna í lok árs 2009 og var eigið fé félagsins neikvætt um svipaða upphæð. Í árs­ reikningi þess segir: „Eignir félagsins í árslok 2009, sem voru aðallega eignar­ hlutir í félögum, hafa verið færð niður að fullu í ársreikningnum í kjölfar þess efnahagshruns sem varð hér á land­ inu á árinu 2008.“ Tæknilega gjaldþrota Íslensk eignarhaldsfélög Hannesar Smárasonar standa því afar höllum fæti. Þrjú af félögunum fjórum, EO eignarhaldsfélag, Hlíðasmári 6, og Runnur 4 ehf., eru með neikvætt eig­ ið fé og því tæknilega gjaldþrota og Sveipur tapaði áðurnefndri upphæð á árunum 2008 til 2009. Fyrrnefndu félögin þrjú eru með neikvætt eigið fé sem nemur tæpum 12 milljörðum í tillfelli EO, tæpum 130 milljónum í tilfelli Hlíðasmára 6 og rúmlega 650 milljónum í tilfelli Runns 4. Félögin eru því öll tæknilega gjaldþrota og stefna í þrot. Þá er Sveipur orðið nær eignalaust félag í kjölfar tapreksturs síðustu ára og nema eignir félagsins einungis tæpum 300 þúsund krónum. Rekstrargrundvöllur þessara fjög­ urra félaga Hannesar Smárasonar er því brostinn samkvæmt þessu. Fyrir utan þessi fjögur félög á Hannes fé­ lagið FI fjárfestingar, áður Primus, sem var stærsta félag Hannesar og móðurfélag hinna félaganna fjögurra sem rætt er um hér. Félagið hefur ekki skilað ársreikningi frá árinu 2007 en samkvæmt þeim reikningi var félagið orðið tæknilega gjaldþrota strax í árs­ lok 2007. Eigið fé FI fjárfestinga var þá neikvætt um nærri fjóra milljarða króna. Öll þessi fimm félög eru því á barmi gjaldþrots. Fjögur félög í þrot Yfirvofandi gjaldþrot þessara félaga Hannesar bætast við gjaldþrot fé­ laga sem hann átti á Bretlandi sem DV greindi frá um mitt ár í fyrra að væru orðin gjaldþrota samkvæmt bresku hlutafélagaskránni. Þetta eru félögin Novel Realisations Limited, Novel Food Provisions Limited, Focpl Limited og Novel Olive Limited sem voru öll skráð hjá skiptastjóra í Leeds um mitt ár í fyrra. Félögin störfuðu öll á sviði matvælageirans. Straum­ ur­Burðarás fjármagnaði þessi félög Hannesar og námu kröfur fjárfest­ ingarbankans á hendur þeim um sex milljörðum króna. Hannes skilur því eftir sig gjald­ þrota félög sem skulda milljarða króna í Bretlandi sem og á Íslandi, þó svo að íslensku félögin hafi ekki verið tekin formlega til gjaldþrotaskipta ennþá. n Milljarða króna tap hjá Hannesi n Eignarhaldsfélög hans stefna í þrot n Bætast við gjaldþrot félaga Hannesar á Bretlandi Öll félög Hannesar stefna í gjaldþrot „Eignir félagsins í árs- lok 2009, sem voru aðallega eignarhlutir í fé- lögum, hafa verið færð nið- ur að fullu í ársreikningnum. Ingi Freyr Vilhjálmsson fréttastjóri skrifar ingi@dv.is Gjaldþrot á Íslandi og í Bretlandi Þrjú eignarhaldsfélög í eigu Hannesar Smárasonar eru orðin tæknilega gjaldþrota eftir bankahrunið. Hannes átti einnig félög á Bretlandi sem orðin eru gjaldþrota. Hannes sést hér í Leifsstöð fyrir skömmu. Árétting Í síðasta tölublaði DV var sagt frá því að fagráð innanríkis­ ráðuneytis um kyn­ ferðisbrot innan trúar­ stofnana hafi fundað með forsvarsmönnum kaþólsku kirkjunn­ ar á mánudaginn. Nokkurs misskiln­ ings gætti hjá blaðamanni en ráðið fundaði á mánudaginn um málefni kirkjunnar en ekki með forsvars­ mönnum hennar. Þá var því einnig haldið fram að ný mál hefðu borist fagráði en það krefst skýringa. Hið rétta er að fagráð veit um nokkur mál án þess að einhver mál hafi borist ráðinu mjög nýlega. Sleginn með skiptilykli Karlmaður var sleginn með skiptilykli í höfuðið á Ingólfstorgi á miðvikudag. Að sögn lögreglunnar þá var maður­ inn fluttur með sjúkrabíl klukkan hálf níu í morgun en í tilkynningu sagði einungis að hann væri með skurð á höfði og að honum blæddi mikið. Lögreglan gat ekki veitt upplýsingar um það hvað gerðist nákvæmlega fyr­ ir manninn en vitni sem DV.is talaði við segja að hann hafi verið sleginn í höfuðið með skiptilykli. Starfsmenn Reykjavíkurborgar voru kallaðir á vettvang til þess að þrífa blóðblettinn sem var á Ingólfstorgi eftir atvikið. Þunguð kona á slysadeild eftir árekstur Harður árekstur fólksbíls og vöru­ bíls varð á Suðurlandsvegi á milli Hveragerðis og Selfoss um klukkan 14 á fimmtudag. Þunguð kona var flutt á slysadeild eftir áreksturinn en ekki er talið að meiðsl hennar séu al­ varleg. Þó var ákveðið að gæta ítrustu varúðar og hún var flutt á slysadeild í Reykjavík. Báðir bílstjórarnir voru einir í bílunum, en vörubílstjórann sakaði ekki. Styr um kirkjuna Margir eru reiðir eftir umfjöllun um misnotkun innan kaþólsku kirkjunnar. Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is – Afslátt eða gott verð? Grill í Múrbúðinni – skoðaðu verðið! Reykjavík - Reykjanesbæ Akureyri - Húsavík Vestmannaeyjum GAS GRILL 4 ryðfríir brennarar og hliðarplata. 14 kw/h. 48.000-BTU. Hitamælir. Kveikja í stillihnapp. Grillgrind er postulíns- húðuð. 44x56 cm. Extra sterk hjól v.gaskút. Þrýstijafnari og slöngur fylgja. 59.900kr.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.