Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 28
28 | Erlent 1.–3. júlí 2011 Helgarblað Michele Bachmann tilkynnti form- lega í vikunni um framboð sitt í for- vali Repúblikanaflokksins fyrir for- setakosningar í Bandaríkjunum 2012. Hún tilkynnti ákvöðun sína fyrir utan æskuheimili sitt í Waterloo í Iowa en fyrstu kosningar í forvalinu fara fram í Iowa og þykir það henta henni vel. Kosningabaráttan hófst óformlega fyr- ir um mánuði með óformlegum sjón- varpskappræðum í New Hampshire. Þar fór Bachmann ranglega með stað- reyndir eins og að frelsisstríð Banda- ríkjanna hefði hafist í New Hampshire, sem þykir einkar kaldhæðnislegt fyr- ir manneskju úr Teboðshreyfingunni sem kennir sig við þýðingarmikinn atburð í baráttu Bandaríkjanna fyrir frelsi. Þrátt fyrir það nýtur Bachmann mikillar velgengni og virðist vera að steypa Söruh Palin, sem enn hefur ekki gert endanlegan upp hug sinn um forsetaframboð, af stóli sem for- ingi Teboðshreyfingarinnar. Í könn- un sem gerð var á meðal íbúa í Iowa- fylki mældist hún með 22 prósent fylgi, einu prósentustigi á eftir Romney. „Íraska ríkið Islam, eða eitthvað í þá áttina“ Michele Bachmann þykir um margt skrautleg persóna. Hún gekk í laga- skóla sem byggir grunn sinn á lögum Biblíunnar og fór svo í framhalds- nám í skattalögfræði þrátt fyrir að vera harður andstæðingur skatta. Maður hennar sagði henni að sér- hæfa sig í skattalögfræði og taldi hún Guð vera að senda þau skilaboð til sín að fara þessa leið enda stæði það í Biblíunni að konur ættu að vera undirgefnar mönnum sínum. Fleiri atvik hafa vakið enn frekar athygli á henni. Í viðtali árið 2007 sagðist hún vita um áætlanir Írana um að kljúfa Írak og stofna „Íraska ríkið Is- lam, eða eitthvað í þá áttina“ sem átti að vera griðasvæði fyrir hryðju- verkamenn. Ári síðar kallaði hún, í viðtalsþættinum Hardball, eftir rannsókn á hvaða þingmenn væru á móti Bandaríkjunum og í öðrum viðtölum benti hún meðal annars á að í báðum svínaflensufaröldrunum sem herjað hafa á Bandaríkin var demókrati á forsetastóli, hún sagði ríkisstjórn Obama vera glæpagengi, hélt því fram að andstæðingar heil- brigðisumbóta Obama myndu lenda á svörtum lista og fá enga lækna- þjónustu. Þá hefur Bachmann ver- ið gripin glóðvolg við njósnir á bar- áttufundi samkynhneigðra en hún hefur áður lagt fram tillögu um bann við hjónabandi samkynhneigðra í stjórnarskrá. Varað við að taka hana ekki alvarlega Þrátt fyrir glappaskot sín þykir hún mjög sterkur frambjóðandi og sem dæmi um styrk hennar komst hún á þing í kosningunum 2006, þegar re- públikönum gekk sem verst, og sigr- aði þar mun reyndari frambjóðanda demókrata. Hún þykir höfða vel til tuga milljóna Bandaríkjamanna sem trúa ýmsum kreddum og halda að Guð hafi áhrif á allar gjörðir sínar og ákvarðan- ir, meira að segja léttvægar eins og að velja sér álegg á hamborgara. Eftir því sem fleiri vandræðalegar sögur ber- ast af henni fær hún meiri athygli fólks sem finnur sér samsvörun í henni. Af þeim sökum hafa stjórnmálaskýr- endur varað við því að taka hana ekki nógu alvarlega. Þá eigi stjórnmála- maður greiða leið að almenningi sé hann nógu „klikkaður á skemmtileg- an hátt“ eins greinarhöfundur Rolling Stone sagði og „geðveikur“ á sama hátt og Kim Jong-Il, eilífðarforseti Norður- Kóreu, var á efri árum. Bachmann þykir þó full öfgasinnuð fyrir flokkseigendaklíku repúblikana sem vilja hófsaman frambjóðanda. Mitt Romney þykir þó full frjálslynd- ur fyrir þeirra smekk en gæti þó notið stuðnings þeirra bjóðist enginn ann- ar valkostur. Þá er óttast að Romney og Tim Pawlety, fyrrverandi ríkisstjóri Minnesota, muni eiga harða baráttu um atkvæði hófsamari repúblikana og kljúfa þannig meirihluta repúblikana sem munu ekki kjósa hana. n Michele Bachmann tilkynnir framboð n Segir guð hafa sent sér skilaboð um að verða skattalögfræðingur n Komst á þing þegar repúblikönum gekk sem verst StyrkiSt á meðan hlegið er að henni Björn Reynir Halldórsson blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is www.markisur.com Veðrið verður ekkert vandamál. Dalbraut 3, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar í síma 567-7773 og 893-6337 um kvöld og helgar Viltu skjól á veröndina? Eigum við ekki að hætta þessari þrjósku. Forsætisráðuneyti Bretlands hefur staðfest að tæplega helmingi skóla í landinu hafi verið lokað, ýmist al- veg eða að hluta til, vegna verk- falls opinberra starfsmanna sem nú stendur yfir. Fulltrúi breska kennara- sambandsins segir að yfir 80 prósent skóla hafi orðið fyrir barðinu á verk- fallinu sem snertir yfir tvær milljónir nemenda. Yfir 750.000 opinberra starfs- manna eru nú í verkfalli og segja stjórnvöld að um helmingur félags- manna taki þátt í aðgerðunum. Starfsmennirnir mótmæla launa- lækkunum og eru ósáttir við að efnahagskreppan sem þeir ollu ekki bitni nú á þeim en David Cameron sagði hins vegar þessar launalækk- anir vera sanngjarnar en verkalýðs- forkólfar segja engin merki um að ríkisstjórnin vilji koma til móts við opinbera starfsmenn. Ed Miliband, leiðtogi Verkamannaflokksins, sagði verkfallsaðgerðirnar ósanngjarnar þegar samningaviðræður stæðu yfir en hann gagnrýndi þó einnig ríkis- stjórnina og sagði fulltrúa hennar hafa komið fram á ögrandi og skeyt- ingarlausan hátt. Þannig hefðu bæði ríkisstjórnin og opinberir starfs- menn brugðist fólkinu. Aðgerðirnar ná yfir allt Bretland og hafa víðtæk áhrif. Yfir 90 pró- sent lögreglustarfsfólks sem sér um að svara almenningi mættu ekki til vinnu og 75 prósent lögregluvarða við Westminister-höll mættu ekki á vakt. Truflanir hafa einnig verið á réttarhöldum vegna verkfalla starfs- manna í dómshúsum. Þá hafa starfs- menn skoska þingsins lagt niður vinnu, öll söfn í Wales eru lokuð og tafir á flugi til Norður-Írlands eru lík- legar vegna verkfallanna. Bretland: Opinberir starfsmenn í verkfall: Skólar lokaðir Opinberir starfsmenn Bretar mótmæla skertum kjörum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.