Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Side 22

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Side 22
A ðeins tuttugu og einn einstaklingur hefur lát­ ið lífið vegna lyfjafíknar samkvæmt opinberum tölum Hagstofu Íslands. Það eru þó líklegast talsvert fleiri sem hafa verið háðir lyfjum sem hafa látið lífið vegna fíknar sinn­ ar. Samkvæmt upplýsingum frá SÁÁ sem sinnir meðferðarúrræð­ um fyrir lyfjafíkla deyja árlega tugir manna ótímabærum dauðs­ föllum. Á síðustu fimm árum, frá 2006–2010 hafa árlega á bilinu 32 til 37 einstaklingar úr hópi þeirra sem hafa farið í meðferð á Vogi dáið fyrir fimmtugt. Fjórir þeirra hafa verið yngri en 20 ára. Margvíslegar dánarorsakir Dánarorsakir þessara einstak­ linga kunna að vera margvísleg­ ar en margir fíklar falla fyrir eigin hendi. Ekki eru til opinberar tölur yfir þá einstaklinga sem fallið hafa fyrir eigin hendi og hafa verið eit­ urlyfjafíklar. Fleiri ástæður kunna einnig að vera á bak við ótímabær dauðsföll fíkla. Lyfin hafa margvís­ leg áhrif á líkamann og er því ekki hægt að útiloka að þau hafi dreg­ ið talsverðan fjölda fólks til dauða sem skráð er hafa látist úr ýmsum sjúkdómum. DV skoðaði sögur nokkurra lyfjafíkla sem látist höfðu fyrir ald­ ur fram. Nokkrir þeirra höfðu ver­ ið eiturlyfjaneytendur um langt skeið. „Unga fólkið er svo útsett fyrir slysum, átökum og voða­ verkum og yfirskömmtum auðvit­ að,“ segir Þórarinn Tyrfingsson, yfirlæknir á meðferðarheimilinu Vogi, aðspurður um hvað dragi unga fíkla til dauða. Reyna að ná til ungs fólks Sú gagnrýni kom fram hjá nokkr­ um af aðstandendunum sem DV ræddi við að ekki væru nógu góð úrræði fyrir ungt fólk í neyslu. „Það er eiginlega þveröfugt. Öll meðferðarúrræði eru stíluð inn á ungt fólk. Bæði eru það úrræðin sem Barnaverndarstofa er með og svo erum við með unglingadeild,“ segir Þórarinn. „Þeir sem koma í fyrsta skipti í meðferð eru á aldr­ inum 18 til 22 ára.“ „Þú getur séð á þessum töl­ um að það var aukning í dauðs­ föllum hjá þeim sem voru undir þrítugu á ákveðnu tímabili. Árin 2000, 2001 og 2002. Sá hópur er stór. Þetta eru morfínyfirskammt­ ar, ég held að það sé nokkuð ljóst. Ég var að missa sjúklinga mína á þessum tíma vegna yfirskammta af morfíni,“ segir Þórarinn. „Þá var viðhaldsmeðferðin ekki kom­ in í gagnið, hún byrjaði 1999 en var ekki farin að virka. Þessir sjúk­ lingar voru í mikilli hættu á þeim tíma.“ Íslendingar eiga dauðamet Í nýlegri skýrslu Heilbrigðisstofn­ unar Sameinuðu þjóðanna kem­ ur fram að Ísland er í hópi þeirra Evrópuríkja sem hefur hvað hæsta tíðni dauðsfalla fíkla fyrir aldur fram. Segir í skýrslunni að Ísland sé í hópi með löndum á borð við Úkraínu, Írland og Lúxemborg þar sem fleiri en 100 af hverjum millj­ ón einstaklingum deyja af völdum lyfja. Aðspurður um skýrsluna seg­ ist Þórarinn ekki hafa hugmynd um hvaðan þessar tölur komi og segir að þetta sé ekki alveg í takt við það sem hann sér hjá SÁÁ. „Þetta kemur mér á óvart því 22 | Úttekt 1.–3. júní 2011 Helgarblað fólkið sem dópið drap n Stór hluti þeirra sem deyja fyrir aldur fram eru fíklar n Það má spyrja hvort við gerum nóg í meðferðar- og forvarnarmálum, segir Þórarinn Tyrfingsson Hanna Ólafsdóttir blaðamaður skrifar hanna@dv.is Aðalsteinn Kjartansson blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is n Undir 20 ára n 20–29 ára n 30–39 ára 9 11 11 12 25 17 17 10 14 20 16 17 14 18 17 9 9 11 6 11 5 8 6 8 9 10 2 5 10 2 13 11 1 8 2 1 6 2 1 12 6 2 7 5 2 11 4 2 5 1 5 5 2 3 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 228 fíklar dánir Mörg hundruð hafa látist fyrir aldur fram: Samkvæmt tölum SÁÁ um fjölda ótímabærra dauðsfalla meðal sjúklinga sem hafa verið á Vogi hafa 228 ein- staklingar af tæplega 22 þúsund látist fyrir 40 ára aldur. Tölurnar sýna glöggt hvernig þróunin hefur verið undanfarin ár en þær eru aldursgreindar á tímabilinu 1996 til 2010. Talsverður fjöldi ungs fólks, eða 101 einstaklingur hefur látið lífið fyrir 30 ára aldur. Rétt er að taka fram að ekki liggur fyrir hvort þessir einstaklingar hafa dáið af ofskammti fíkniefna en augljóst er að þetta er nokkuð hátt hlutfall af öllum þeim ungmennum á aldrinum 18 til 29 ára sem létust á sama tímabili. Af þeim einstak- lingum á aldrinum 18–29 ára sem létust fyrir aldur fram á tímabilinu 1996–2010 höfðu 23,82 prósent verið á Vogi. að svo á hinn veginn erum við, til dæmis miðað við Skandinava, með miklu færri dauðsföll af völd­ um ópíumefna en aðrir. Það er miklu meira um það að menn yf­ irskammti annars staðar en hérna hjá okkur og menn eru að koma að utan til að spyrja hvað við höf­ um gert sem veldur því að þetta er svona lítið hjá okkur.“ Alltaf hægt að gera betur „Það má spyrja hvort við gerum nóg í meðferðarmálum og for­ varnarmálum, en ég tel að bæði meðferðin og forvarnirnar miðist nú frekar að ungu fólki en gömlu,“ segir Þórarinn. „Ég held að ef þú lítur hlutlaust á málið þá sjáir þú að þannig er kerfið uppbyggt.“ Þórarinn segir að Íslendingar séu að gera góða hluti í meðferðar­ málum miðað við aðrar þjóðir sem við berum okkur saman við. Það sé þó alltaf hægt að spyrja sig hvort hægt sé að gera betur. „Það er samt alltaf verið að horfa á þau tilfelli sem ekki nást. Það er ekki horft á hitt, að helm­ ingurinn af öllum þeim sem koma hingað til okkar á Vog hafa bara verið þar einu sinni. Það er ekki talað um allan fjöldann sem nær árangri. Enda er það ekkert mönn­ um til huggunar þó að einhver annar nái árangri. Þetta er alltaf sama tragedían.“ adalsteinn@dv.is „Það má spyrja hvort við gerum nóg í meðferðar- og forvarnarmálum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.