Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 55
Sport | 55Helgarblað 1.–3. júlí 2011
20 ára og næstdýrasti
markvörður sögunnar
Þ
að er langt síðan íþróttaheim-
urinn beið jafnspenntur eftir
hnefaleikabardaga og hvað þá
í þungavigtinni sem hefur ver-
ið steindauð lengi. Þar hefur Úkraínu-
maðurinn Wladimir Klitschko borið
höfuð og herðar yfir alla enda hefur
kappinn ekki tapað í sjö ár. Hann er
handhafi fjögurra heimsmeistaratitla
og hefur aðeins þrívegis verið sigrað-
ur í 58 bardögum.
En einn er sá maður sem talinn er
geta skákað tröllinu. Bretanum David
Haye hefur gengið vel í þungavigtinni
undanfarin ár og hirti WBA-heims-
meistaratitilinn í september 2007.
Hann leggur sinn titil að veði á laugar-
dagskvöldið þegar Haye og Klitschko
mætast í hringnum en Úkraínumað-
urinn mætir með sína fjóra titla.
Haye er öllu fjölmiðlavænni en
hinn risavaxni Klitschko og gefur
mikið af sér, bæði inni í hringnum og
utan hans. Að sama skapi hefur Úkra-
ínumaðurinn verið sakaður um að
líkjast vélmenni bæði inni í hringnum
og utan hans. Klitschko hefði þó ekki
verið taplaus í sjö ár ef hann væri ekki
ótrúlega góður hnefaleikamaður.
Sérfræðingar um hnefaleika hafa
verið að meta bardagann og eru allir
sammála um að Úkraínumaðurinn sé
töluvert sterkari í vörn. Klitschko er
þó ekkert sérstakur í því að sækja en
það er einmitt sérgrein Hayes sem er
miklu minni og töluvert fljótari. Skyn-
samir menn myndu því veðja á risann
en Haye er til alls líklegur.
„Ég ætla mér að slökkva á vél-
menninu,“ sagði David Haye á blaða-
mannafundi á dögunum en það er
vægt til orða tekið þegar sagt er að
köppunum tveimur komi illa saman.
„Haye? Hver er það? Sprelligos-
inn þarna sem grísaðist til að vinna
einhvern einn titil? Ég myndi nú ekki
hafa miklar áhyggjur ætti ég að mæta
honum í hringnum,“ sagði Klitschko
um mótherja sinn í breskum morg-
unþætti á síðasta ári. Beðið hefur ver-
ið eftir þessum bardaga í ofvæni, sér-
staklega í Bretlandi þar sem menn
þrá að eignast annan heimsmeistara
í þungavigt.
Eins og vanalega berst Klitschko
í Þýskalandi en bardaginn fer fram í
Hamborg. Hann verður því á heima-
velli. „Það skiptir mig ekki nokkru máli
hvar ég verð óumdeilanlegur heims-
meistari í þungavigt. Bara að bardagi
fari fram svo ég fái tækifæri til að sýna
að ég sé bestur,“ sagði Haye aðspurður
um þá staðreynd að Klitschko yrði á
heimavelli.
Bardaginn verður í beinni útsend-
ingu á Stöð 2 Sport á laugardagskvöldið.
Stærsti þungavigtarbardagi í áraraðir:
Bretinn reynir við risann
Veisla í
Argentínu
Aðfaranótt sunnudags hefst sann-
kölluð knattspyrnuveisla en þá hefst
Suður-Ameríkukeppnin í fótbolta,
Copa América. Þar verða til sýnis
margir af bestu knattspyrnumönn-
um heims, menn á borð við Messi og
Tevez frá Argentínu, Forlan og Suarez
frá Úrúgvæ og Pato og hinn efnilega
Neymar frá Brasilíu. Tuttugu og fjórir
leikir eru á dagskrá og jafnan hefur
verið boðið upp á magnaða leiki í þess-
ari keppni.
Keppnin fer að þessu sinni fram
í Argentínu og ætla heimamenn sér
því stóra hluti. Þeir hafa ekki unnið
þessa keppni frá
því hún var haldin
í Chile árið 1991
en Argentína er þó
sú þjóð sem hefur
unnið Suður-Am-
eríkukeppnina
hvað oftast, alls
fjórtán sinnum.
Gríðarleg pressa
er á heimamönn-
um enda liðið með besta knattspyrnu-
mann heims innanborðs, Leo Messi.
„Ég hef sjaldan verið jafndáður í
heimalandinu. Ég hlakka ótrúlega til
að spila fyrir framan okkar fólk og að
sjálfsögðu ætlum við að vinna mótið.
Við vitum þó að það verður erfitt því
Brasilía og Úrúgvæ eru til dæmis með
frábær lið,“ segir Messi. Þjóðirnar tíu
sem standa að suðurameríska knatt-
spyrnusambandinu taka allar þátt en
auk þeirra eru Mexíkómenn gestir
eins og vanalega og nú tekur Kostaríka
einnig þátt. Japanar áttu að vera tólfta
þjóðin í ár en þeir hættu við þátttöku.
Brasilíumenn hafa unnið Suður-
Ameríkukeppnina undanfarin skipti
og fjögur mót af síðustu fimm. Kaka
verður ekki í liði Brasilíu en það verður
þó vopnað engum smáleikmönnum.
Mönnum á borð við Daniel Alves,
Maicon, David Luiz, Robinho, Pato og
ungstirnið Neymar.
Það er einmitt Neymar sem allra
augu verða á en hann varð á dögun-
um Suður-Ameríkumeistari félagsliða
með liði sínu, Santos. Chelsea er talið
gríðarlega líklegt til að landa honum
í sumar en verðmiðinn verður eflaust
engu lægri eftir keppnina.
„Ég spái ekkert í því sem er að ger-
ast í kringum mig. Nú hef ég fengið
ótrúlegt tækifæri til að vinna titil með
Brasilíu og ég ætla að gera allt hvað ég
get svo það takist. Svo spái ég í mínum
málum eftir það,“ segir hinn magnaði
Neymar.
Lionel Messi
REYKJAVÍK
Selfoss
Vestmannaeyjar
HVOLSVÖLLUR
Hella
Stokkseyri
Eyrarbakki
Laugardaginn 9. jú l í 2011
TOUR DE HVOLSVÖLLUR
HjóLREiðaHáTíðin
Tour de Hvolsvöllur verður haldin laugardaginn 9. júlí.
Þrjár vegalengdir: 110 km – 48 km – 14 km
Keppendur verða ræstir frá Reykjavík kl. 8.00, Selfossi kl. 9.30 og Hellu kl. 11.00.
Og verður hjólað sem leið liggur austur að Hvolsvelli.
Keppt er í opnum flokkum karla og kvenna á lengstu leið. Útdráttarverðlaun eru veitt fyrir allar leiðir.
Þegar á Hvolsvöll er komið taka við þrautir og skemmtun fyrir alla fjölskylduna!
Hjólahátíðin er unnin í samvinnu við íþrótta-og ólympíusamband Íslands, Hjólreiðafélag Reykjavíkur, Hjólafærni, Byko, Intersport ofl.
Kaninn fm 100.5 mun leggja þessu verkefni lið, þar sem Einar Bárðar ofl. taka þátt og verður í beinni Selfoss-Hvolsvöllur.
Þessi keppni er inni á dagskrá Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
Allar nánari upplýsingar má finna á vef Rangárþings eystra, www.hvolsvollur.is
eða hjá Upplýsingamiðstöðinni á Hvolsvelli, sími: 487 8043,
tourinfo@hvolsvollur.is
110 km – kl. 8:00
Norðlingaholt (Olís)
48 km – kl. 9:30
Selfoss (Byko)
14 km – kl. 11:00
Hella (Reykjagarður)