Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 54

Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 54
54 | Sport 1.–3. júlí 2011 Helgarblað M anchester United gekk á miðvikudaginn frá kaup- um á markverðinum Dav id de Gea frá Atlético Madrid. Kaupin hafa leg- ið lengi í loftinu en Sir Alex Ferguson tilkynnti í lok maí að markvörðurinn ungi væri á leið til liðsins. Þrátt fyrir þau orð gaf De Gea ekkert upp um framtíð sína og einbeitti sér að Evr- ópumóti landsliða undir 21 árs, en hann varði mark Spánar sem varð Evrópumeistari eftir sigur á Sviss í úrslitaleik. Eins og aldurinn gefur til kynna er ferill De Gea ansi stuttur en hann hefur aðeins spilað eitt heilt tímabil í efstu deild á Spáni. Uppgangur hans hefur verið mikill og hraður en nú mun hann verja mark sigursælasta liðs Englands, Man chester United. Efasemdarmennirnir eru margir enda De Gea ungur en þó eru marg- ir sem telja þetta frábær kaup. Tók fram úr öðrum ungum markverði De Gea er uppalinn hjá Atlético Madrid og fór í gegnum allt ung- lingastarf félagsins. Hann er hávax- inn, 193 sm, en þykir þó full renglu- legur, allavega fyrir enska boltann. Átján ára gamall var hann settur í B- lið Atlético og spilaði allt tímabilið 2008/2009 í næstefstu deild Spánar. Sumarið 2009 fór Evrópumót landsliða undir 21 árs fram í Sví- þjóð en þar varði mark Spánar Sergio Asenjo, þáverandi markvörður Real Valladol id. Eftir keppnina sáu for- svarsmenn Atlét ico Madrid sér leik á borði og keyptu Asenjo og sáu hann frekar fyrir sér sem framtíðarmark- vörð liðsins heldur en De Gea. Þegar Asenjo var fjarverandi vegna landsliðsverkefna sat De Gea á bekknum fyrir Roberto Gago í leik gegn Porto í meistaradeildinni 30. september 2009. Robert meiddist í leiknum og spilaði De Gea þar sinn fyrsta leik fyrir Atlético, ekki orðinn 19 ára gamall. Þremur dögum síðar byrjaði De Gea sinn fyrsta leik gegn Real Zaragosa í deildinni. Hann gaf víti á 19. mínútu en bætti fyrir það með því að verja spyrnuna. Atlético vann leikinn, 2-1. Þegar Asenjo kom aftur fór hann beint í búrið en vegna nokkurra vandræðalegra mistaka og komu nýs þjálfara, Quique Sánchez Flores, var De Gea gerður að aðalmarkverði undir lok tímabilsins 2010. Hann stóð vaktina í marki Atlét ico sem vann Evrópudeildina í maí það ár og vann einnig ofurbikarinn með liðinu haustið 2010 en þá var hann endan- lega orðinn aðalmarkvörður liðsins. Hann varði einnig vítaspyrnu frá Diego Milito í sigri Atlético í leiknum um ofurbikar Evrópu. Eftir það leit De Gea ekki um öxl og lék allt síðasta tímabil sem aðalmarkvörður Atlético Madrid og U-21 landsliðs Spánar. Kannski of ungur Tveir bestu markverðir Manchest- er United undanfarin tuttugu ár eða svo eru án efa Peter Schmeichel og Edwin van der Sar. Báðir komu með mikla reynslu til félagsins, Schmeichel var að nálgast þrítugt og hafði orðið Danmerkurmeistari með BrØndby og auðvitað Evrópumeist- ari með Dönum 1992 og Van der Sar var 34 ára þegar samið var við hann. Finnst mörgum gagnrýnend- um og fótboltaspekingum De Gea of ungur til að valda svo mikilvægri stöðu. Honum eldri menn á borð við Massimo Taibi, Roy Carroll, Ric- ardo og Tim Howard reyndu allir en þurftu á endanum að yfirgefa Old Trafford. „De Gea er bara smábarn þegar talið er í árum markvarða,“ skrifar James Burton, fótboltaskríbent The Guardian. „Frá fyrsta leik verður hann undir smásjá allra sem fylgjast með leikjum United og það verður fróðlegt að sjá hvernig hann bregst við fyrsta klaufamarkinu eða fyrstu mistökunum. Þótt hann hafi aðeins spilað 84 leiki í meistaraflokki má samt ekki líta fram hjá því hversu hæfileikaríkur hann er. Þótt Manuel Neuer sé óumdeilanlega besti mark- vörður heims held ég að sá mest spennandi sé David de Gea. Þrátt fyrir að vera aðeins tvítugur hefur hann nú þegar unnið Evrópudeild- ina, ofurbikar Evrópu og Evrópu- keppni U-21 landsliða. Þessu má ekki gleyma.“ Burton bendir á til marks um aldur De Gea að viku áður en hann fæddist lék Edwin van der Sar sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Van der Sar og Gianluigi Buffon eru átrún- aðargoð De Gea. Það vill einmitt svo skemmtilega til að 18,3 millj- ón pundin sem Manchester United greiddi fyrir De Gea er hæsta verð sem nokkurt lið hefur greitt fyrir markvörð, á eftir því þegar Buffon var keyptur til Juventus frá Parma. Getur ekki beðið „Hann er ungur markvörður, mjög fljótur, heldur ró sinni og er framúr- skarandi eftirmaður Van der Sars,“ sagði Ferguson um De Gea 24. maí þegar hann tilkynnti um komu hans. Sjálfur vildi De Gea ekki ræða um framtíð sína fyrr en eftir Evr- ópumótið í Danmörku en sagði á miðvikudaginn, eftir að hafa skrifað undir fimm ára samning við félagið: „Ég er mjög stoltur og get ekki beð- ið eftir því að spila hér. Þegar risa- félag eins og Manchester Uinited er á eftir manni þá er maður augljós- lega mjög ánægður. Þegar ég vissi af áhuga United var það mér hvatning til að leggja enn harðar að mér. Það eru forréttindi að spila fyrir félag eins og United og ég ætla að sýna hvers ég er megnugur.“ „David De Gea, vertu velkom- inn, bróðir! Annar ungur og góð- ur leikmaður keyptur. Manchester United hefur gert vel á leikmanna- markaðinum í sumar,“ skrifaði Rio Ferdinand um komu markvarðarins á Twitter-síðu sína. Það er þó ekki víst að De Gea skilji það en í viðtali við MUTV-sjón- varpsstöðina talaði hann spænsku. Hann verður líklega settur í ensku- tíma enda þýðir lítið fyrir markverði að geta ekki skipað varnarmönnum sínum fyrir. Á síðasta tímabili fékk De Gea á sig ellefu mörk fyrir utan teig, fleiri en nokkur annar markvörður í spænsku deildinni. Væntanlega veit Ferguson af þessu og mun gera sitt til að bæta úr því. n Nýr aðalmarkvörður Manchester United verður 21 árs í nóvember n Aðeins Gianluigi Buffon var dýrari n Hefur aðeins spilað eitt heilt tímabil í efstu deild 20 ára og næstdýrasti markvörður sögunnar Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is Fullt nafn: David de Gea Quintana Þjóðerni: Spænskur Fæddur: 7. nóvember 1990 (20 ára) Leikstaða: Markvörður Félög: Atlético Madrid og Manchester United A-landsleikir: 0 David de Gea Tvöfaldur Evrópumeistari De Gea varð Evrópumeistari með U-17 landsliði Spánar og aftur með U-21 í sumar. MyNd REUTERs Ungur og efnilegur De Gea ver nú mark eins stærsta félags í heimi. MyNd REUTERs
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.