Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Síða 18
18 | Fréttir 1.–3. júní 2011 Helgarblað
Árið 1995 var veðurathugunarstöðin
á Hornbjargsvita í Látravík á Strönd-
um gerð sjálfvirk. Sama ár yfirgaf síð-
asti vitavörðurinn, Ólafur Jónsson,
þennan afskekkta stað. Tíu árum síð-
ar tóku hjón úr Mosfellsbæ, þau Ævar
Sigdórsson og Una Lilja Eiríksdóttir,
upp á því að gera upp húsin í Látra-
vík með það að markmiði að opna
gistiaðstöðu á svæðinu. Frá árinu
2005 hafa þau eytt sjö til átta vikum
á hverju sumri á þessum nyrsta odda
Íslands og boðið gestum og gangandi
svefnpokagistingu gegn vægu gjaldi.
Þetta er hins vegar síðasta sumar-
ið sem þau verða á Hornströndum en
næsta sumar tekur Ferðafélag Íslands
við starfseminni.
Þann 17. júní héldu Ævar og Una
ásamt vinafólki sínu norður á Horn-
bjargsvita. Sumarið hófst eins og áður
með árlegri vinnuferð þar sem tekið
var til hendinni og dyttað að húsum
og öðru á svæðinu. Blaðamaður var
svo heppinn að fá að fara með í slíka
ferð í fyrrasumar og varð, eins og svo
margir sem koma á þennan stað,
uppnuminn af náttúrufegurðinni.
Nú ræðir hann við Ævar og bróður
hans, Ísar Guðna Arnarson, sem hef-
ur frá upphafi aðstoðað þau hjón við
uppbyggingu og viðhald á svæðinu.
Bræðurnir eru sammála um að það
séu sannkölluð forréttindi að fá tæki-
færi til að dvelja á Hornströndum á
sumrin.
Veðrið og skapið
„Fyrst var þetta náttúrulega bara æv-
intýramennska í manni en svo varð
þetta sífellt skemmtilegra. Núna líður
manni bara eins og maður sé að fara
heim þegar maður fer vestur. Þarna
er maður auðvitað gríðarlega mikið
úti í náttúrunni, þetta er mikil útivist
og hreyfing, það er þannig sem þessi
staður er. Svo breytist veðrið auð-
vitað ótrúlega hratt á þessum slóð-
um, kannski svolítið eins og skap-
ið í manni sjálfum, og maður kann
kannski sérstaklega vel við sig þarna
út af því,“ segir Ævar og hlær við.
Hann segir staðinn frá upphafi
hafa höfðað sterkt til þeirra hjóna.
Hugmyndin að því að setja upp
gistiaðstöðu á þessum stað kviknaði
þegar Una og Ævar voru á ferðalagi
um þessar slóðir árið 2004. Þau voru
á siglingu á Sædísinni með Reimari
Vilmundarsyni skipstjóra þegar þau
viðruðu hugmyndina við hann. Reim-
ar var ekki lengi að svara því til að ef
þau myndu gera upp húsin við Horn-
bjargsvita myndi hann aðstoða þau
með siglingum fram og til baka. Síðan
þá hafa þau notið aðstoðar Reimars
við að koma vistum og öðrum nauð-
synjum á staðinn.
Mikil fjölbreytni
Ísar Guðni Arnarson, bróðir Ævars.
hefur undanfarin ár verið leiðsögu-
maður á svæðinu og gengið með ófáa
gönguhópa um svæðið. Hann segir
gistiaðstöðuna í Hornbjargsvita hafa
opnað möguleika fyrir fleira fólk að
ganga um Hornstrandir. Fólki hafi
með þessu verið gert kleift að ganga
alla leiðina frá Hornvík og yfir í Reykja-
fjörð, með gistingu vísa hverja einustu
nótt. „Þetta var ekki hægt áður. Það eru
svo margir sem vilja fara í svona göng-
ur en eru ekki til í að ganga með allt
á bakinu. Þess vegna opnaðist þetta
svæði fyrir ansi mörgum þegar Ævar
og Una byrjuðu þarna,“ segir Ísar.
Aðspurður hvað sé svona sérstakt
við gönguferðir á Hornströndum seg-
ir Ísar: „Það sem mér finnst skemmti-
legast við gönguferðir á þessu svæði er
til dæmis að þegar þú gengur úr einni
vík yfir í aðra, þá ertu alltaf að sjá eitt-
hvað nýtt. Mér finnst fjölbreytnin svo
skemmtileg þarna.“ Þá segir hann æð-
islegt að sjá þegar jurtirnar brjótast
snöggt fram í byrjun sumars. Ísar seg-
ir fuglalífið í bjarginu einnig vera í al-
gjörum blóma á þessum tíma árs.
„Þegar maður horfir inn í bjargið þá
eru syllurnar oft svo þétt setnar að það
er með ólíkindum. Þarna eru stutt-
nefjan og múkkinn, en þau eiga hvor
sinn staðinn í bjarginu og eru algjör-
lega aðskilin. Það er virkilega gaman
að fylgjast með því.“ Ísar segist stund-
um gleyma því hversu mikil forréttindi
það séu að geta dvalið í Látravík. Ný-
lega hafi bandarískur kunningi hans
þó minnt hann á það. „Hann sagði
að svona ferðir væru það sem marga
dreymdi um en fæstir næðu að fara.“
Hornstrandir á háum hælum
Þrátt fyrir að oft sé mikið um gesti í
húsinu við Hornbjargsvita koma dag-
ar þar sem Ævar og Una eru alveg ein.
Aðspurður hvort hann hafi upplifað
mikla einangrun þegar svo er segir
Ævar: „Nei, aldrei nokkurn tímann,
en maður finnur stundum virkilega
fyrir því hversu einn maður er á þess-
um stað. Við njótum þess oft að vera
ein, þá er báturinn bara settur á flot og
við siglum í einhverja vík eða göngum
upp á fjöll. Það eru endalaus verkefni
og aldrei leiðist manni nokkra stund.“
Ævar segist stundum hugsa til þess
hversu erfitt hafi verið að búa á þess-
um stað allan ársins hring á árum áður,
það séu hins vegar forréttindi að fá að
eyða sumrinu á þessum stað. „Mað-
ur nýtur þess að vera svo fjarri öllu
sem við teljum vanalega ómissandi og
finnur svo vel að ekkert af þessu drasli
er ómissandi, það er bara þannig.“
Ævar hvetur fólk til þess að koma
norður á Hornstrandir enda sé það
mun auðveldara nú en á árum áður,
þar sem hægt sé að fá gistingu á ýms-
um stöðum á svæðinu.
„Nú þarf fólk ekki að vera mara-
þongöngugarpar til þess að koma á
Hornstrandir. Nú getur fólk komið og
notið þess að vera hér,“ segir hann. En
getur fólk bara spígsporað um svæð-
ið á háum hælum? „Já, það er nán-
ast þannig, maður er nú búinn að sjá
ýmislegt,“ segir Ævar léttur í bragði og
bætir við:
„Fyrir marga eru Hornstrandir óyf-
irstíganlegur þröskuldur en við höfum
fengið rosalega margt fólk sem hafði
ekki gengið nokkurn skapaðan hlut
áður en það kom hingað. Það fólk er
búið að sanna fyrir sjálfu sér að það
geti farið á Hornstrandir.“
n Hjón úr Mosfellsbæ eyða sumrunum á einum afskekktasta stað landsins n Forréttindi að
dvelja á Hornströndum á sumrin n Líður eins og þau séu að fara heim þegar þau fara vestur
Dvelja árlega í
Hornbjargsvita
„Fyrst var þetta
náttúrulega bara
ævintýramennska í
manni en svo varð þetta
sífellt skemmtilegra.
Jón Bjarki Magnússon
blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is
Hornbjargsviti Árið 1995 yfirgaf síðasti
vitavörðurinn, Ólafur Jónsson, þennan
afskekkta stað.
Una og Ævar Eyða sjö til átta vikum á hverju sumri á nyrsta odda Íslands.
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun