Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Page 34
34 | Viðtal 1.–3. júlí 2011 Helgarblað
Í eins frjálslyndu, opnu og
„jafnréttissinnuðu“ samfé
lagi og hér er óþolandi hvern
ig konum er markvisst haldið
frá almannarýminu með ógn
inni um nauðgun. Það er ekki
nóg með að þær séu meðvit
aðar um það þegar þær ganga
einar heim að þeim gæti verið
nauðgað, heldur eiga þær líka
á hættu að fá nauðgunarhótun
ef þær tjá skoðanir sínar. Yfir
leitt vegna þess að þær eru að
segja að það sé ekki eðlilegt
að ofbeldi sé beitt í jafnríkum
mæli og er hér.“
Hótað nauðgun
Halla þekkir það af eigin raun.
„Ég hef séð ofbeldi og ég skil
hvernig það virkar. Og ég hef
fengið svona hótanir. Ljótasta
athugasemdin barst eftir um
ræðu um staðgöngumæðrun.
Mér fannst það mjög merkilegt
því sú hótun var í þeim anda
að femínistar fengju ekki að
ríða og það yrði þess vegna að
nauðga þeim.
Ég gæti reyndar eytt mörg
um orðum í þetta. Í fyrsta lagi
hef ég ekki orðið vör við að fem
ínistar lifi kynlífi í minna mæli
en aðrir þjóðfélagshópar og í
öðru lagi þá get ég ekki séð að
það sé réttlætanlegt að nauðga
fólki sem ekki lifir kynlífi!
En hvað um það þá var þetta
samhengi merkilegt. Þegar við
vorum að berjast gegn vændi
skildi ég samhengið og vissi að
einhverjir yrðu brjálaðir þegar
við vorum að tala um nauðg
anir því þeim fannst eins og
við værum að saka þá um eitt
hvað vont.
En mér var lífsins ómögu
legt að skilja hvernig umræð
an um staðgöngumæðrun gat
endað þarna. Er það ósjálfrátt
þannig að ef sett er fram gagn
rýni á misnotkun á líkömum
kvenna þá sé viðkomandi á
móti kynlífi? Ég næ þessu ekki.“
Kynlífið betra í
jafnréttissamfélagi
„Ekki það, ég hef oft talað fyr
ir því að kynlífið verði betra
ef okkur tekst að koma á jafn
réttissamfélagi. Þá líður öllum
betur og við hættum að blanda
kynlífi saman við valdaójafn
vægi. Ég efast allavega um
að margir séu á þeirri skoð
un að það sé eftirsóknarvert
kynlíf þegar annar drottn
ar og hinn er undirgefinn. Ég
held að flestir sem hafa próf
að hitt myndu alltaf velja það.
En svona ummæli eiga nátt
úrulega ekkert skylt við kynlíf
heldur ofbeldi.
Það er mjög óþægilegt að fá
svona hótun. Þessi stöðuga ógn
sem konur lifa við er ofbeldi í
sjálfu sér. Ég held að allar konur
upplifi nauðgun sem raunveru
lega ógn og ég þekki margar
sem óttast að vera einar á ferli.
Þær upplifa sig ekki öruggar í
almannarýminu. Ef ég fæ hót
anir þegar ég segi hvað mér
finnst þá upplifi ég mig ekki
örugga í almannarýminu. Í
þessari ógn felst hin raunveru
lega stjórnun. Þetta er hluti af
tilraun til að halda konum niðri
með því að kúga þær.
Mér finnst mikilvægt að láta
ekki taka af mér frelsið. Mér
þætti skárra að deyja en að láta
taka af mér frelsið.“
Hægt að vinna úr áfallinu
Áður en Halla lagði ein af stað
í bakpokaferð til Asíu drógu
margir úr henni og sögðu að
eitthvað gæti gerst.
„Enginn sagði það beint en
það sem eftir stóð var að mér
gæti verið nauðgað. Ég er viss
um að þessi ótti hefur stopp
að margar konur. Og auðvit
að hugsaði ég um það að ef
eitthvað myndi gerast ætti ég
jafnvel eftir að kenna sjálfri
mér um alla ævi, því ég var svo
sannarlega vöruð við.
En ef ég hefði ekki far
ið hefði ég látið ógnina um
ofbeldi svipta mig frelsinu. Þá
held ég að það sé skárra að
verða fyrir ofbeldi.
Þetta er kannski kaldrana
leg afstaða því ofbeldi hefur jú
gengið af fólki dauðu, en það
er líka margt fólk sem lifir það
af. Í flestum tilfellum er hægt
að vinna úr áfallinu, eins og
öðrum áföllum, svo sem nátt
úruhamförum eða slysum.
Langflestir þolendur sem
leita til Stígamóta lýsa skömm
sem einni af erfiðustu afleið
ingum kynferðisofbeldis. Það
er samfélagslegt vandamál.
Sköminn á að vera hjá þeim
sem beita ofbeldinu og þá
verður um leið auðveldara fyrir
þolendur að vinna úr áfallinu.“
„Ekki líf sem ég vil lifa“
Til að slá á óttann hefur Halla
nálgast þetta út frá tölfræð
inni. Samkvæmt tölfræðinni
eru miklu meiri líkur á því að
konu sé nauðgað heima hjá sér
en úti á flakki og af manni sem
hún þekkir en af ókunnugum.
„Konum stafar mest ógn af
þeim sem standa þeim nærri.
Það eru þeir sem eru líkleg
astir til að beita þær ofbeldi. Ef
kona deyr fyrir aldur fram og
dánarorsökin er ekki einhver
sjúkdómur er einna líklegast
að hún hafi verið myrt af nú
verandi eða fyrrverandi maka.
Þetta er veruleikinn.
Ætla ég þá að fara þá leið
að treysta aldrei neinum? Nei.
Það er ekki líf sem ég vil lifa.
Ef við gerum það að einu leið
inni til að verjast ofbeldi verð
ur samfélagið ömurlegt. Því
hvað þýðir það? Jú, það þýð
ir að kona á ekki að sitja fund
ein með karlkyns samstarfs
félaga. Það þýðir að kona á ekki
að fara í eftirpartí með góðum
vini sínum. Það þýðir að kona
má ekki ganga heim samferða
kunningja sínum. Viljum við
þannig samfélag?“
Ömurleg tilfinning
Nýja uppáhaldsorð Höllu er
upp á enska tungu, „vulner
a bility “. „Það snýst um það
að gefa af sér og treysta fólki,
heiminum og aðstæðum. Mér
þykir það eftirsóknarvert. Það
getur verið freistandi að gera
það ekki og loka sig af en þá
verður lífið ekki eins gott og ég
legg síður mitt af mörkum til
að gera heiminn betri. Það er
mér mjög mikilvægt að þora
að viðurkenna bæði veikleika
mína og styrkleika.
En með því að þora að vera
„vulnerable“, auðsærð og á ein
hvern hátt berskjölduð, þá
fylgir auðvitað hætta á að verða
særð. Ég hef upplifað höfnun
og hún hefur slegið mig út af
laginu. Það er ömurleg tilfinn
ing. En ég má ekki festast þar.
Auðvitað hef ég gengið í
gegnum ýmislegt sem ég hefði
viljað losna við og átt samskipti
sem ég hefði aldrei viljað eiga,“
segir Halla einlæg um leið og
hún skenkir vatni í glas, fær sér
vænan sopa og heldur áfram:
„En þetta gerði mig að því
sem ég er í dag og ég vil ekk
ert breyta því. Ef ég færi aftur í
tímann og tæki út tíu hluti sem
ég hefði viljað sleppa hvernig
væri ég þá í dag? Ég væri ekki
sama manneskjan og ég væri
ekki að gera það sem ég er að
gera í dag.“
Eðlislægt að vera
hamingjusöm
Og hún hefur svo sannarlega
breyst.
„Þegar ég var yngri var ég
frekar lokuð tilfinningalega. Ég
var alltaf hress en ég þurfti að
læra að ná á dýptina. Því lyk
illinn að því að líða vel er að
rækta sig tilfinningalega, and
lega og líkamlega og upplifa sig
sem hluta af stærra mengi, við
urkenna vanmátt sinn gagnvart
fólki og aðstæðum. Æðruleys
isbænin er mín mantra því hún
hjálpar mér að skilja hverju ég
get breytt og breyta því, það
þarf kjark til þess. Og gefur mér
æðruleysi til að sætta mig við
það sem ég get ekki breytt.
Það er mér eðlislægt að vera
hamingjusöm og í kringum
mig er oft mikill göslaragangur.
Ég er það glöð að ef ég finn að
það er farið að ganga á gleðina
og ég er oftar óhamingjusöm
en hamingjusöm reyni ég að
bregðast við því. Ef samband
eða starf er farið að taka meira
frá mér en það gefur mér reyni
ég að losa mig út úr því. En það
getur tekið tíma.“
Undirróðurinn magnaðist
Höllu var til dæmis farið að
líða illa á Morgunblaðinu áður
en hún lét af störfum þar. Ferill
hennar sem blaðamaður hófst
þegar hún var aðeins 22 ára
gömul en hasarinn byrjaði fyrst
fyrir alvöru þegar hún varð
þingfréttaritari, enda var hún
fyrsti þingfréttaritari Morgun
blaðsins sem hafði opinberað
vinstrisinnaðar skoðanir sínar.
„Afstaða mín stressaði
marga, ekki síst í Sjálfstæðis
flokknum þar sem sumir töldu
að fyrst verið væri að skipta um
þingfréttaritara á annað borð
ætti hann að vera hliðhollur
þeim. Forveri minn var ópóli
tískur en sé leitað lengra aftur
í tímann þá voru þingfréttarit
arar Morgunblaðsins hluti af
flokknum og sátu þingflokks
fundi.
Mér leið vel sem þingfrétta
ritari. Þar gat ég sameinað
áhuga minn á pólitík og ástríð
una fyrir að skrifa. Á heildina
litið held ég að mér hafi tek
ist ágætlega til við að fjalla
um störf þingsins af sanngirni
gagnvart ólíkum flokkum og
ólíkum sjónarmiðum.
En svo kom hrunið. Og þeg
ar það urðu ríkisstjórnarskipti
gerði Sjálfstæðisflokkurinn
það sem hreyfingum hættir til
að gera þegar þær hafa ver
ið lengi við völd og leitaði út
á við til að finna sökudólginn
í stað þess að horfa inn á við.
Og hverjum var um að kenna?
Öðrum. Og ég var ein af þeim.
Þá magnaðist undirróður
inn gegn mér, sem hafði þó
verið töluverður fyrir. Á meðan
Styrmir var ritstjóri stóð hann
alltaf með mér. Svo hætti hann
og allt í einu, skömmu eftir
hrunið, fann ég að ritstjórinn
stóð ekki lengur með mér. Þá
fór mér að líða illa í vinnunni.
Svo þegar völdin í íslensku
samfélagi færðust úr fjármála
lífinu og aftur inn í pólitík
ina var staða þingfréttaritara
Morgunblaðsins lögð niður og
mér sagt upp störfum. Ég leyfi
mér að efast að það hafi verið
faglegt mat sem þar réði för.“
Fór í gegnum sorgarferli
vegna Morgunblaðsins
Skömmu síðar tóku nýir eig
endur við blaðinu og Davíð
Oddsson var ráðinn ritstjóri.
„Davíð hefur verið við völd
nánast alla mína ævi. Ég var
eins árs þegar hann varð borg
arstjóri, síðan varð hann for
sætisráðherra, utanríkisráð
herra og Seðlabankastjóri og
þegar hann varð ritstjóri Morg
unblaðsins þótti mér nóg um.
Ég fór í gegnum sorgarferli við
að horfa á blað sem ég hafði
tekið þátt í að byggja upp taka
þessum breytingum.
Hér áður fyrr varði ég
Moggann því mér þótti vænt
um hann. Ég átti hlutdeild í
honum og upplifði það þann
ig að skrif mín væru hluti af því
að sýna fram á að við værum
breiður hópur fólks að fjalla
um alls kyns viðfangsefni með
sanngjörnum hætti.
Það var ekki alltaf auðvelt
og stundum tókumst við á um
áherslur eins og gerist á öllum
fjölmiðlum. Við vorum mörg
sem lögðum allt í þetta.
En með pólitískum upp
sögnum sem hófust fyrir rit
stjóraskiptin og hafa haldið
áfram, sem og flokkspólitískum
ráðningum, hefur Mogganum
hnignað að mínu mati. Þar er
enn margt hæfileikaríkt fólk en
stefnan er einstrengingsleg.
Þannig að ég held að ég sé
ekkert sú eina sem gekk í gegn
um sorgarferli, ég held að við
séum mörg sem höfum gert
það, hvort sem við störfum enn
á Morgunblaðinu eða ekki.“
Leitaði að sjálfsöryggi í
viðurkenningu annarra
Það er farið að líða á daginn
og tekið að kólna og við fær
um okkur inn. Setjumst upp á
efri hæðina þar sem við höfum
næði, enda er gestunum tek
ið að fækka. Flestir örugglega
farnir heim í mat. Þar á meðal
fyrrverandi kærasti Höllu sem
sat á næsta borði.
„Menning okkar einblín
ir mjög á að við finnum ham
ingjuna í parsambandi. Að
þar finni maður eitthvað sem
maður ætti að finna innra með
sjálfum sér. Mér hefur hætt til
að leita að eigin sjálfsöryggi og
sjálfsvirðingu í viðurkenningu
annarra.
En það er magnað að fá
tækifæri til að finna þetta inni
í sjálfri sér. Lausnin er andleg.
Hún felst ekki í því að komast
í samband, einhverja stöðu
í vinnunni eða eignast börn.
Þetta snýst um það að finna
sáttina í sjálfum sér. Ég er auð
vitað ekki alveg búin að því,“
segir hún og hlær.
„En ég hef fundið þetta að
hluta til. Ég geri engum gagn ef
ég er ekki í lagi sjálf. Í því felst
að ég þarf að elska sjálfa mig,
eins klisjukennt og það kann
að hljóma.“
Stórkostleg gjöf að leggja
svipuna niður
„Það eru grimm örlög að elska
manneskju sem elskar sig ekki
sjálf. Þeir sem gera það ekki
eru haldnir sjálfseyðingarhvöt
sem brýst oft út í einhvers kon
ar stjórnleysi. Þessi tilraun til
að vera í virku ástarsambandi
með sjálfri mér er það næsta
sem ég hef komist andlegri
lausn,“ segir hún og brosir blítt.
„Það felst meðal annars í því
að vera sitt eigið foreldri, hlúa
að sér og sinna þörfum sínum.
Það er mitt að sjá til þess að ég
hvílist og borði vel, fari til lækn
is ef það er eitthvað að og sinni
mér tilfinningalega með því að
gera uppbyggilega hluti og vera
með mér í liði en ekki á móti.
Reyna að hætta að dæma mig.
Okkur hættir mjög mörgum
til þess að vera með svipuna
á okkur sjálfum. Það að fá að
leggja hana niður er stórkost
leg gjöf. Ég er ekki að segja að
mér takist þetta alltaf en hluta
af þessu hef ég fengið og öðru
get ég stefnt að.“
Og það er fleira sem Halla
stefnir að. Hana langar að læra
tungumál og búa í útlöndum.
Amma hennar þrýstir mjög á
hana að fara í doktorsnám og
hefur fengið prófessor með sér
í lið. En næstu tveimur árum í
það minnsta vonast hún til að
verja í innanríkisráðuneytinu
og á þar margt ógert enn. „Svo
veit ég ekki hvað ég geri. Ég
hef aldrei reynt að skipuleggja
framtíðina um of, ég hef trú á
því að lífið gerist.“
ingibjorg@dv.is
„Ég hef
líka beðið
mann sem nauð g
aði vinkonu minni
um að fara úr
partíi. Hann bað
ekki um neinar
skýringar
á því, fór bara.
„Ég var til dæmis alltaf að fá
Barbiedúkkur eða Barbieföt
í jólagjöf þótt ég hefði engan áhuga
á Barbie. Mig dreymdi um að eignast
HeMan kall en fékk hann aldrei.