Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Side 38
Birna fæddist að Sölvanesi í Lýt-ingsstaðahreppi og átti þar heima fram yfir tvítugt. Hún
lauk barnaskólaprófi frá Steinsstaða-
skóla. Hún flutti síðan að Sveinsstöð-
um í sömu sveit. Árið 1969 flutti hún
að Bjarnastaðahlíð og bjó þar í fimm
ár. Eftir það bjó Birna á Sauðárkróki til
ársins 1978 er hún flutti að Krithóli og
hefur hún búið þar síðan.
Fjölskylda
Eiginmaður Birnu er Kjartan Björns-
son, f. 7.10. 1932, bóndi að Krithóli í
Skagafirði. Foreldrar hans voru Helga
Friðriksdóttir og Björn Ólafsson,
bóndi að Krithóli en þau eru bæði lát-
in.
Birna og Kjartan eru barnlaus, en
Birna átti fimm börn með fyrri sam-
býlismanni sínum, Halldóri Jakobs-
syni. Þau eru Sigurlína Halldórsdóttir,
f. 18.3. 1962, húsfreyja í Nesi í Fnjóska-
dal en maður hennar var Gunnar Val-
týsson, bóndi og vörubílstjóri að Nesi
í Fnjóskadal sem er látinn og eignuð-
ust þau þrjú börn auk þess sem hann
átti son áður; Ragnhildur Halldórs-
dóttir, f. 9.5. 1965, húsfreyja á Fitjum
í Skagafirði en maður hennar Valdi-
mar Bjarnason, trésmiður og bóndi
í Fitjum og eiga þau þrjú börn; Rósa
Borg Halldórsdóttir, f. 20.9. 1966, hár-
greiðslukona á Húsavík en eigin-
maður hennar er Þorgrímur Jónsson
vöruflutningabílstjóri og eiga þau þrjá
syni; Sigríður Halldórsdóttir, f. 28.5.
1968, húsmóðir á Akureyri en mað-
ur hennar er Rögnvaldur Andrésson
sjómaður og á hún fimm börn; Lúð-
vík Alfreð Halldórsson, f. 19.1. 1973, d.
2.4. 2006, vélamaður sem lést af slys-
förum við Kárahnjúkavirkjun og eign-
aðist hann þrjár dætur.
Birna á fimm systkini. Hjálmar
Guðmundsson, f. 28.10. 1937, d. 12.7.
2009, bóndi og vörubifreiðastjóri
að Korná í Skagafirði, var kvæntur
Birnu Jóhannesdóttur; Ragna E. Guð-
mundsdóttir, f. 23.11. 1938, d. 15.12.
2006, var starfsstúlka í Nesjavalla-
virkjun, búsett í Reykjavík; Rósa Guð-
mundsdóttir, f. 26.1. 1940, húsfreyja
í Goðdölum í Skagafirði, gift Borgari
Símonarsyni, bónda að Goðdölum;
Snorri Guðmundsson, f. 13.9. 1942,
bifvélavirki, vann lengst af hjá Vega-
gerð ríkisins, búsettur á Akureyri, var
kvæntur Halldóru Árnadóttur sem
er látin; Ólafur Guðmundsson, 13.9.
1942, plötu- og ketilsmiður, búsettur
á Akureyri, var kvæntur Önnu Lilju
Guðmundsdóttur húsmóður sem er
látin en sambýliskona hans er Auður.
Foreldrar Birnu voru Guðmundur
Sveinbjörnsson, f. 10.4. 1914, d. 11.10.
2004, bóndi og síðar starfsmaður hjá
Vörubílstjórafélagi Skagafjarðar og
Sólborg Hjálmarsdóttir, f. 9.6. 1905, d.
28.3. 1984, ljósmóðir.
Jón Geir fæddist á Hvammstanga en flutti hálfs árs til Reykjavíkur og ólst þar upp, lengst af í Hlíð-
unum. Hann var í Æfingadeild Kenn-
araháskóla Íslands og stundaði síðan
nám í prentformagerð við Iðnskól-
ann í Reykjavík. Þá hefur hann lokið
ýmsum námskeiðum og áföngum við
Tölvu- og viðskiptaskólann.
Jón Geir vann við löndun í Hafn-
arfirði og hjá Hreinsitækni með námi
og á sumrin. Hann starfaði lengi við
veitinghúsarekstur, var ýmist bar-
þjónn, skemmtanastjóri og rekstrar-
stjóri fjölda skemmtistaða í Reykjavík,
s.s. í Hollywood; í Tunglinu við Lækj-
argötu; Casablanca; Déja-Vu, á horni
Bankastrætis og Þingholtsstrætis; hjá
Astro; Kaupfélaginu, Thorvaldsen við
Austurvöll og hjá Rex í Austurstræti
svo nokkrir staðir séu nefndir. Hann
vinnur enn við innra eftirlit með
nokkrum skemmtistöðum og börum
í Reykjavík.
Jón Geir var búsettur í Kaup-
mannahöfn þar sem hann var rekstr-
arstjóri Pizza ´67 á árunum 1996–98.
Eftir heimkomuna hóf Jón Geir störf
hjá 365 miðlum þar sem hann var
kynninga- og markaðsstjóri útvarps-
miðla fyrirtækisins á árunum 1999–
2005. Þá hóf hann störf hjá Sambíó-
unum og hefur verið markaðsstjóri
þar síðan.
Jón Geir æfði og keppti í hand-
knattleik með Fram frá níu ára aldri
og upp alla aldursflokka. Hann keppti
m.a. með meistaraflokki liðsins á ár-
unum 1999–2004. Hann hefur orðið
Íslandsmeistari og Reykjavíkurmeist-
ari nokkrum sinnum með yngri flokk-
um félagsins. Þá á hann einn lands-
leik með landsliði undir 21 árs aldri.
Fjölskylda
Unnusta Jóns Geirs er Halldóra Katla
Guðmundsdóttir, f. 24.12. 1971, mark-
aðs- og starfsmannastjóri hjá Fjár-
vakri.
Dóttir Jóns Geirs og Halldóru
Kötlu er Tinna María Jónsdóttir, f.
23.3. 2011.
Börn Jóns Geirs frá fyrra sambandi
eru Helgi Gunnar Jónsson, f. 11.4.
1998 og Marsý Dröfn Jónsdóttir, f. 4.4.
2001.
Dóttir Halldóru Kötlu og stjúp-
dóttir Jóns Geirs er Kolbrún Dóra
Magnúsdóttir, f. 12.9. 1995.
Systkini Jóns Geirs eru Ingi Hlynur
Sævarsson, f. 29.10. 1965, eigandi og
framkvæmdastjóri Pixel prentþjón-
ustu, búsettur í Kópavogi; Kristín Val-
borg Sævarsdóttir, f. 15.3. 1967, leik-
skólakennari, búsett í Reykjavík.
Foreldrar Jóns Geirs voru Sævar
Frímann Sigurgeirsson, f. 4.9. 1940,
d. 23.2. 1999, bifreiðastjóri í Reykja-
vík, og Marsý Dröfn Jónsdóttir, f.
11.5. 1941, d. 6.7. 2002, bifreiðastjóri
í Reykjavík.
Jón Geir heldur upp á afmælið í
faðmi fjölskyldunnar.
38 | Ættfræði Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson kjartan@dv.is 1.–3. júlí 2011 Helgarblað
Björn fæddist í Reykjavík. Hann lauk stúdentsprófi frá MH 1971, kandidatsprófi í læknisfræði
frá HÍ 1977 og vann síðan á ýmsum
heilbrigðisstofnunum kandidatsárið
1977–78, m.a. níu mánuði við Heilsu-
gæsluna á Ísafirði.
Björn stundaði framhaldsnám í
heimilislækningum í Uppsölum í Sví-
þjóð á árunum 1979_83. Eftir heim-
komuna starfaði hann fyrst í Keflavík
en hefur starfað við Heilsugæslustöð
Kópavogs frá haustinu 1985.
Björn var formaður fræðslunefnd-
ar heimilislækna í fjölda ára. Hann
hefur gegnt ýmsum trúnaðarstörf-
um fyrir Læknafélag Íslands, var m.a.
formaður gjaldskrárnefndar. Þá sat
Björn í stjórn Heilsugæslu Kópavogs.
Fjölskylda
Björn kvæntist 23.6. 1973 Helgu Láru
Guðmundsdóttur, f. 30.10. 1951, MPI
í ferðafræðum, en Helga Lára er dótt-
ir Guðmundar Árnasonar, forstjóra í
Reykjavík, og Höllu Aðalsteinsdóttur
húsmóður sem bæði eru látin.
Synir Björns og Helgu Láru eru
Guðmundur, f. 31.10. 1977, verkfræð-
ingur, búsettur í Garðabæ en kona
hans er Þórunn Sif Garðarsdóttir og
eiga þau tvo syni; Hallgrímur, f. 2.12.
1980, viðskiptafræðingur og hagfræð-
ingur, búsettur í Reykjavík en kona
hans er Helga Guðrún Vilmundar-
dóttir og eiga þau tvö börn.
Systkini Björns eru Hildur, f. 28.7.
1943, búsett á Seltjarnarnesi, var gift
Ólafi Baldri Ólafssyni framkvæmda-
stjóra sem er látinn; Dagný, f. 16.7.
1949, kennari, búsett í Hafnarfirði, gift
Sævari Hjálmarssyni, framkvæmda-
stjóra; Edda, f. 18.9. 1958, B.Ed frá
Kennaraháskóla Íslands og kenn-
ari við Hússtjórnarskólann, gift Guð-
mundi Víði Helgasyni líffræðingi;
Gunnar, f. 9.6. 1962, læknir, búsettur
á Seltjarnarnesi, kvæntur Rakel Maríu
Óskarsdóttur, B.Ed. frá Kennarahá-
skóla Íslands.
Foreldrar Björns: Guðmundur
Björnsson, f. 9.2. 1917, d. 10.4. 2001,
augnlæknir og prófessor í Reykjavík,
og Kristín Benjamínsdóttir, f. 30.11.
1921, húsmóðir, nú búsett á Hrafnistu
í Hafnarfirði.
Ætt
Guðmundur var sonur Björns, hafn-
argjaldkera í Hafnarfirði Jóhannes-
sonar, b. á Spena Sveinssonar, frá
Nípukoti, bróður Guðmundar í Nípu-
koti, föður Sigfúsar, langafa Sigfúsar
í Heklu og Ingimundar í Heklu, síð-
ar sendiherra. Guðmundur var einn-
ig afi Páls Kolka læknis, afi Mörthu,
ömmu Helga H. Jónssonar, fyrrv.
fréttastjóra, og afi Jóns á Torfalæk,
föður Guðmundar, skólastjóra á
Hvanneyri, Björns, veðurfræðings og
læknis,og Jónasar fræðslustjóra, föður
Ögmundar innanríkisráðherra, Ingi-
bjargar fræðslustjóra og Jóns Torfa
prófessors. Móðir Björns var Elísabet
Jóhannesdóttir, Ólafssonar.
Móðir Guðmundar prófessors var
Jónína, systir Bjargmundar, rafstöðv-
arstjóra í Hafnarfirði, og Guðmund-
ar, föður Alfreðs sem var forstöðu-
maður á Kjarvalsstöðum. Jónína var
dóttir Guðmundar, b. í Urriðakoti í
Garðahreppi Jónssonar, b. í Urriða-
koti, bróður Sólveigar, langömmu
Sigurðar Ingimundarsonar alþm.,
föður Jóhönnu forsætisráðherra. Jón
var sonur Þorvarðar, b. á Völlum í
Ölfusi, bróður Þorbjörns á Yxnalæk,
langafa Vals Gíslasonar leikara, föð-
ur Vals, fyrrv. bankastjóra. Þorvarður
var sonur Jóns, silfursmiðs á Bíldsfelli
Sigurðssonar, ættföður Bíldsfellsætt-
ar. Móðir Jóns í Urriðakoti var Guð-
björg, systir Gísla á Kröggólfsstöðum,
langafa Salvarar, ömmu Hannesar
Hólmsteins Gissurarsonar, prófessors
og rithöfundar. Guðbjörg var dóttir
Eyjólfs, b. á Kröggólfsstöðum í Ölfusi
Gíslasonar, ættföður Kröggólfsstaða-
ættar. Móðir Guðmundar var Jór-
unn, systir Magnúsar, langafa Ellerts
Schram, fyrrv. ritstjóra DV, fyrrv. for-
seta ÍSÍ og fyrrv. alþm., og Bryndísar
Schram, fyrrv. dagsskrárgerðamanns.
Magnús var einnig langafi Magnúsar
H. Magnússonar, fyrrv. bæjarstjóra í
Vestmannaeyjum, alþm. og ráðherra,
föður Páls, útvarpsstjóra ríkisútvarps-
ins. Jórunn var einnig systir Guðrúnar,
langömmu Kristjönu, móður Garðars
Cortes óperusöngvara, föður Garð-
ars Thors Cortes óperusöngvara. Jór-
unn var dóttir Magnúsar, b. á Hrauni
í Ölfusi, bróður Jórunnar, langömmu
Steindórs bílakóngs, afa Geirs Ha-
arde, fyrrv. forsætisráðherra. Magn-
ús var sonur Magnúsar, hreppstjóra
í Þorlákshöfn Beinteinssonar, lrm. á
Breiðabólstað í Ölfusi Ingimundar-
sonar, b. í Hólum Bergssonar, ættföð-
ur Bergsættar Sturlaugssonar. Móðir
Jónínu var Sigurbjörg, systir Sigríðar,
langömmu Harðar Sigurgestssonar,
fyrrv. forstjóra Eimskips. Sigurbjörg
var einnig systir Ingveldar, ömmu Sig-
urðar Árnasonar skipherra og lang-
ömmu Páls Jenssonar prófessors og
Mörtu Guðjónsdóttur varaborgarfull-
trúa. Sigubjörg var dóttir Jóns, ættföð-
ur Setbergsættar Guðmundssonar, b.
í Miðdal í Mosfellssveit Eiríkssonar,
bróður Einars, langafa Sigríðar, móð-
ur Vigdísar Finnbogadóttur. Móðir
Jóns á Setbergi var Guðbjörg Jóns-
dóttir, b. í Hörgsholti Magnússonar,
ættföður Hörgsholtsættar.
Kristín, móðir Björns er dóttir
Benjamíns Eggertssonar, sjómanns
í Hafnarfirði, og Steinunnar Svein-
björnsdóttur, kaupkonu í Hafnarfirði.
Eymundur fæddist í Reykjavík en ólst upp á Hvammstanga, á Akranesi og á Neskaupstað.
Hann var í Grunnskóla Hvamms-
tanga og Brekkubæjarskóla á
Akranesi, stundaði nám við Verk-
menntaskóla Austurlands og lauk
stúdentsprófi frá Menntaskólanum
á Egilsstöðum. Hann stundaði nám
í sálfræði við Háskóla Íslands og
lauk BA-prófi í þeirri grein, stund-
aði síðan nám í kerfisfræði við Há-
skólann í Reykjavík og lauk prófum
sem kerfisfræðingur árið 2000 og
stundar nú MA-nám í fjármálum
við Háskólann í Reykjavík með fram
störfum.
Eymundur fór til sjós sextán
ára og var háseti á frystitogurum á
unglings- og menntaskólaárunum.
Hann hóf störf við tölvu- og upp-
lýsingatækni um árið 2000 og hefur
sinnt slíkum störfum síðan, s.s. hjá
Kaupþingi; Straumi – Burðarás og
loks hjá Íslandsbanka.
Fjölskylda
Eiginkona Eymundar er Guðrún
María Traustadóttir, f. 10.6. 1971, við-
skiptafræðingur hjá Verdis – Verð-
bréfaverslun.
Börn Eymundar og Guðrúnar
Maríu eru Koldís María Eymund-
ardóttir, f. 4.6. 2001; Hrafn Alex Ey-
mundsson, f. 27.7. 2006; Þórdís Tinna
Eymundardóttir, f. 13 12. 2010.
Hálfbræður Eymundar, samfeðra,
eru Stefán Már Björnsson, f. 31.7.
1976, nemi í Reykjavík; Sævar Már
Björnsson, f. 13.7. 1979, skrifstofu-
maður í Kópavogi.
Hálfsystkini Eymundar, sam-
mæðra, eru Sigurjón Ragnar Kára-
son, f. 24.5. 1965, mjólkurfræðingur
og starfsmaður hjá Actavis, búsettur í
Hafnarfirði; Ingvar Júlíus Tryggvason,
f. 9.10. 1975, starfsmaður hjá Nýherja,
búsettur í Hafnarfirði; Ragnhildur
Tryggvadóttir, f. 9.8. 1978, skrifstofu-
maður hjá Síldarvinnslunni á Nes-
kaupstað, búsett á Neskaupstað; Erla
Kolbrún Óskarsdóttir, f. 9.4. 1985,
nemi, búsett í Hafnarfirði.
Foreldrar Eymundar eru Björn Ey-
mundsson, f. 22.1. 1942, sjómaður og
trilluútgerðarmaður, búsettur á Höfn í
Hornafirði, og Sigurrós Ríkharðsdótt-
ir, f. 1.4. 1947, sjúkraliði í Hafnarfirði.
Björn Guðmundsson
Heilsugæslulæknir í Hvammi í Kópavogi
Eymundur Björnsson
Upplýsingatæknir hjá Íslandsbanka
Birna G. Guðmundsdóttir
Húsfreyja að Krithóli í Skagafirði
Jón Geir Sævarsson
Markaðsstjóri hjá Sambíóunum
60 ára á sunnudag
40 ára á föstudag
70 ára á föstudag
40 ára á föstudag