Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Síða 42
42 | Sakamál Umsjón: Kolbeinn Þorsteinsson kolbeinn@dv.is 1.–3. júlí 2011 Helgarblað
L
eonard Lake fæddist 20. júlí
1946. Það stolt sem móðir
hans reyndi að innræta hon-
um, ungum að árum, gagn-
vart mannslíkamanum átti
eftir að taka á sig afar ýkta og afbrigði-
lega mynd. Móðir hans hvatti hann til
að taka ljósmyndir af nöktum stúlk-
um og á meðal þeirra sem sátu fyr-
ir hjá honum voru systur hans og
frænkur. „Stoltið“ breyttist með tíð og
tíma í klámfíkn og á unglingsárunum
neyddi hann systur sínar til kynmaka
gegn því að hann verði þær fyrir Do-
nald, ofbeldisfullum yngri bróður
þeirra. Á sama tíma opinberaði Leon-
ard hrifningu á því að halda þræla.
Leonard gekk í bandaríska herinn
1966 og fór til Víetnam þar sem hann
starfaði sem ratsjármaður og á sama
tíma undirgekkst hann sálfræðimeð-
ferð vegna óskilgreindra geðrænna
vandamála og var burtskráður úr
hernum 1971.
Að herþjónustu lokinni flutti hann
til San Jose, kvæntist og gat sér orð-
stír sem kynóður byssuáhugamaður.
Í sérstöku uppáhaldi hjá Leonard var
að kvikmynda senur sem inniheldu
fjötrakynlíf með öðrum konum en
eiginkonunni, og þess var skammt
að bíða að þau skildu. Árið 1980 fékk
Leonard eins árs skilorðsbundinn
dóm fyrir stuld á byggingarefni og ári
síðar flutti hann ásamt annarri eigin-
konu sinni til sambýlis í Ukiah í Kali-
forníu. Á býlinu var iðkaður „endur-
reisnar“-lífsstíll og gekk fólk þar um
í miðaldaklæðnaði og reyndi jafn-
vel að búa til einhyrninga með því að
framkvæma skurðaðgerðir á geitum.
Skömmu eftir komu sína til Ukiah lágu
saman leiðir Leonards og Charlies Ng.
Slæmur félagsskapur
Charlie fæddist í Hong Kong 1961,
var sonur auðugra foreldra, sífellt í
vandræðum og hafði verið rekinn úr
tveimur skólum með skít og skömm.
Í seinna skiptið úr dýrum einkaskóla
á Englandi. Eftir að hafa verið gripinn
við búðarhnupl fór hann til Kaliforníu
og skráði sig í herinn eftir að hafa log-
ið til um fæðingarstað sinn, sem hann
sagði vera Bloomington í Indiana-ríki.
Charlie var sérfræðingur í sjálfs-
varnarlist og leit á sig sem „ninja“-
stríðsmann sem væri fæddur til að
berjast og umræðuefni hans tengd-
ust ávallt ofbeldi í einni eða annarri
mynd.
Síðla árs 1979 var hann handtek-
inn eftir að hafa látið greipar sópa um
vopnageymslu bandaríska hersins
á Hawaii. Honum tókst að flýja rétt-
arhöld vegna málsins og var skráður
sem liðhlaupi. Um þetta leyti svaraði
hann auglýsingu í hernaðartímariti.
Auglýsingin var frá Leonard Lake.
Þrátt fyrir kynþáttafordóma Leon-
ards náðu kumpánarnir vel saman og
má ætla að fordómar Leonards hafi
eingöngu tengst þeldökku fólki. Þeir
hófu að safna vopnum í gríð og erg
og í apríl 1982 voru þeir handteknir í
kjölfar leitar alríkislögregl-
unnar á býlinu í Ukiah.
Leonard var sleppt gegn
tryggingu og fór undir
eins í felur og þvældist um
Kaliforníu undir hinum
ýmsu nöfnum, en önnur
eiginkona hans hafði sagt
skilið við hann eftir hand-
tökuna.
Charlie Ng var skráður
sem liðhlaupi og flótta-
maður og var neitað um
lausn gegn tryggingu.
Hann náði engu að síður samkomu-
lagi við ákæruvaldið; játaði sig sekan
um þjófnað gegn því að hann afplán-
aði aðeins þrjú ár af fjórtán. Hann sat
inni í átján mánuði og slapp við að
verða vísað úr landi með því að vísa í
uppdiktaðan fæðingarstað í skýrslum
hersins. Charlie beið ekki boðanna og
fór rakleiðis til Kaliforníu til fundar við
Leonard Lake.
Ef þú elskar eitthvað...
Þegar þar var komið sögu var Leon-
ard búinn að koma sér fyrir í skóg-
lendi skammt frá Wilseyville og hafði
með aðstoð nágranna byggt víggirt
byrgi þar sem hann geymdi ólögleg
vopn og stolinn myndbandsbúnað.
Hann skráði allar hugdettur sínar í
dagbækur og þeirra á meðal „Aðgerð
Miranda“ sem snérist um að koma
upp safni þræla sem skyldu sinna öll-
um hans þörfum í kjölfar kjarnorku-
stríðs. Á meðal þess sem hann skrifaði
í dagbækurnar var: „Guð ætlaði kon-
um að elda, þrífa og til kynlífs. Og þeg-
ar þær eru ekki í notkun ætti að loka
þær inni.“
n Leonard Lake var frá San Francisco n Móðir hans vildi vekja með honum hrifningu á
mannslíkamanum n Leonard komst í kynni við Charlie Ng og saman myrtu þeir fjölda manns
Leonard og CharLie
Eitt sem iðulega kom fyrir í dag-
bókunum var setning sem hófst á
kunnuglegum nótum: „Ef þú elskar
eitthvað gefðu því frelsi.“, en endaði á
„Ef það kemur ekki til baka skaltu elta
það uppi og drepa það.“
Beinagrindur í skápnum
Það var ekki fyrr en eftir dauða Leon-
ards Lake að í ljós kom hvað hann hafði
verið að bardúsa við. Dauða hans bar
reyndar að með undarlegum hætti því
2. júní 1985 hringdi starfsmaður timb-
urverslunar í San Francisco í lögregl-
una og tilkynnti um búðarhnupl; mað-
ur, austurlenskur í útliti, hafði yfirgefið
verslunina með töng án þess að greiða
fyrir hana. Hann hafði sett töngina í
farangursrými Honda-bifreiðar þar
skammt frá og síðan flúið. Hondan var
enn á staðnum þegar lögregluna bar
að og við stýrið sat skeggjaður hvítur
maður sem framvísaði skilríkjum með
nafninu Robin Stapley. Myndin líktist
manninum ekki hið minnsta og í far-
angursrýminu fann lögreglan töngina
og skammbyssu.
Í varðhaldi forðaðist „Stapley“ að
svara spurningum lögreglunnar og
eftir nokkrar klukkustundir bað hann
um vatnssopa. Vatnið notaði hann til
að skola niður blásýrutöflu sem hann
hafði falið í beltissylgjunni. Hann var
í dái í nokkra daga á spítala og dó síð-
an drottni sínum. Fingraför leiddu í
ljós að um var að ræða Leonard Lake
og ökuskírteinið sem hann hafði fram-
vísað tilheyrði manni sem ekkert hafði
spurst til í nokkrar vikur. Hondan til-
heyrði manni að nafni Paul Cosner,
bílasala sem horfið hafði í nóvember
1984. Rannsókn leiddi lögregluna til
aðseturs Leonards í Wilseyville þar
sem fundust pyntingartæki, dagbæk-
ur og myndbandsupptökutæki sem
skráð voru á Harvey Dubs, ljósmynd-
ara frá San Francisco sem hafði horfið
ásamt eiginkonu og barnungum syni í
júlí 1984.
Óviljugar leikkonur
Lögreglan fann óhugnanlegar kvik-
myndir sem sýndu ungum konum
hótað, nauðgað og misþyrmt; einni
svo hrottalega að ómögulegt var að
hún hefði lifað af. Aðalstjörnur kvik-
myndanna voru Leonard Lake og
Charlie Ng, en lögreglunni tókst fljót-
lega að bera kennsl á eitt fórnarlamb-
anna; Deboruh Dubs, eiginkonu ljós-
myndarans Harvey Dubs.
Síðar kom í ljós að ein hinna óvilj-
ugu leikkvenna var Brenda O'Connor
sem hafði búið skammt frá Leonard
ásamt eiginmanni og syni.
O'Connor-fjölskyldan ku hafa þekkt
Leonard undir nafninu Charles Gunn-
ar. Gunnar þessi hafði reyndar verið til,
hann hafði verið svaramaður í brúð-
kaupi Leonards og seinni konu hans og
hafði síðast sést á lífi árið 1983. Sagan
segir að Brenda hafi óttast „Gunnar“ og
sagt vinum sínum að hún hefði séð til
hans þar sem hann gróf lík í skóginum.
Í stað þess að hafa samband við lög-
regluna hafði eiginmaður hennar beð-
ið áðurnefndan Robin Stapley að búa
hjá þeim, þeim til verndar. Öll fjögur
hurfu í maí 1985.
Enn ein kvennanna á upptökum
Leonards var 18 ára stúlka, Kathleen
Allen, sem hafði kynnst Leonard og
Charlie í gegnum félaga Leonards úr
hernum, Mike Carroll. Leonard hafði
komið á vinnustað Kathleen og tjáð
henni að Mike hefði orðið fyrir skoti og
væri særður og hann skyldi fara með
hana til hans. Það var það síðasta sem
til hennar sást.
Fjöldi fórnarlamba
Lögreglan fann einnig ljósmyndir af
21 ungri konu. Sex kvennanna fund-
ust síðar á lífi en til hinna hefur ekkert
spurst. Leit lögreglunnar færðist með
tíð og tíma frá byrgi Leonards út í skóg-
lendið. Þar fannst bifreið sem skráð var
á mann sem hafði horfið. Í júníbyrjun
fundust hlutar fjögurra beinagrinda
skammt frá byrginu og um miðjan
mánuð leifar fimmta fórnarlambsins.
Einnig fundust brunnar beinaleifar,
þar á meðal ungbarnstönn. Líkams-
leifar sjötta fórnarlambsins fundust 19.
júní og varð lítið lát á. Þegar upp var
staðið taldi lögreglan að Leonard Lake
og Charlie Ng hefðu verið viðriðnir
hvarf 25 manns, þeirra á meðal Mikes
Carroll sem hafði samþykkt að klæð-
ast hommalegum fatnaði og útvega
með þeim hætti Charlie fórnarlömb til
að myrða. Þegar Charlie þreyttist á því
drap hann Mike.
Talið er að fyrsta fórnarlamb Leon-
ards hafi verið hans eigin bróðir, Do-
nald, því ekkert hafði til hans spurst
síðan hann heimsótti Leonard í júlí
1983.
Hinn 29. nóvember, 1988, úrskurð-
aði kanadískur dómari að Charlie Ng
skyldi framseldur til Bandaríkjanna
svo unnt yrði að rétta yfir honum vegna
19 ákæruatriða í Kaliforníu. Charlie
áfrýjaði úrskurðinum en hafði ekki er-
indi sem erfiði.
Charlie var sakfelldur fyrir ellefu
morð og dæmdur til dauða. Hann er
nú á dauðadeild í ríkisfangelsinu í San
Quentin.
Þjáist af sjaldgæfum kvilla:
Nauðgaði í svefni
Stephen Davies, 43 ára Breti,
hefur verið ákærður fyrir að
nauðga sextán ára gamalli
stúlku. Davies neitar hins
vegar sök í málinu því hann
segist þjást af sjaldgæfum
kvilla sem lýsir sér þannig að
hann sækir í kynlíf meðan
hann sefur – óafvitandi.
Davies, sem býr í Pembro-
keshire í Wales, er ákærður
fyrir að nauðga stúlkunni
þann 7. september 2009.
Stúlkan hafði lagst til svefns
í rúmi Davies seint að nóttu til en vaknað
þegar Davies hafði mök við hana. Ekki
kemur nákvæmlega fram í frétt Daily Mail
hvort eða hvernig Davies þekkti stúlkuna
eða hvers vegna hún lagðist til svefns í
rúmi hans.
Málið er nú fyrir dómstólum í Swansea
í Wales og segist Davies hafa þjáðst af
umræddum kvilla í fjöldamörg ár. Tveir
fyrrverandi makar hans báru meðal
annars vitni fyrir dómnum og staðfestu
framburð Davies – að hann hefði átt það
til að sækja í kynlíf meðan
hann var í djúpum svefni.
Chris Idzikowski, sérfræð-
ingur í svefnröskunum, bar
einnig vitni fyrir dómnum
og sagði að sexsomnia falli
í sama flokk og svefnganga
sem fjögur prósent full-
orðinna þjást af. Mun færri,
eða um eitt prósent, þjáist
af þeirri svefnröskun sem
Davies segist vera haldinn.
Fullorðnir karlmenn – sem
sofa mjög djúpt – sýni helst
umrædd einkenni, að sækja í kynlíf í
svefni. Saksóknari í málinu segir hins
vegar að brotavilji Davies hafi verið
einbeittur. Hann hafi talað við stúlkuna
meðan á nauðguninni stóð og kallað
hana „graða tík“ samkvæmt frétt Daily
Mail. Þá hafi hann farið úr rúminu, hitað
sér vatn í hraðsuðukatli, áður en hann
kom aftur og nauðgaði stúlkunni. Það
sýni að Davies hafi allan tímann vitað
hvað hann var að gera. Dómur í málinu
verður kveðinn upp á næstu vikum.
„Guð ætlaði
konum að
elda, þrífa og til
kynlífs. Og þeg-
ar þær eru ekki í
notkun ætti að
loka þær inni.
Charlie Ng og Leonard Lake Í sameiningu frömdu þeir óhugnanleg illvirki í byrgi Leonards.