Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Blaðsíða 45
Fókus | 45Helgarblað 1.–3. júlí 2011
Hvað er að gerast?
n Íslensk einsöngslög í Hörpu
Mikil tónleikaröð er nú að fara í gang í
Kaldalóni í Hörpu þar sem flutt verður
íslensk tónlist en kynningar verða á ensku.
Á föstudagskvöldið hefst veislan með
því að nokkrar af helstu perlum íslenskra
einsöngslaga verða fluttar, sögur af tilurð
þeirra sagðar og tónskáld kynnt. Á efnisskrá
eru lög sem allir Íslendingar þekkja eins og
Draumalandið, Í fjarlægð, Á Sprengisandi
og Maístjarnan. Breytilegt er eftir dögum
hverjir flytjendurnir verða en það verða
alltaf tveir söngvarar og einn píanisti. Verð
á hverja tónleika fyrir sig er 3.000 krónur en
nánari upplýsingar má finna á midi.is.
Cliff Clavin á Bar 11
Sumartónleikaröð Tuborg og Bar 11 heldur
áfram á föstudagskvöldið en þá er komið
að rokksveitinni Cliff Clavin að stíga á stokk.
Cliff Clavin er í hópi frambærilegustu
rokksveita landsins og hefur verið það frá
því að fyrsta smáskífa sveitarinnar fór að
hljóma á öldum ljósvakans. Árið 2010 sendi
sveitin frá sér frumburðinn The Thief ś
Manual sem lagðist afar vel í rokkunnendur
landsins og hafa allar fjórar smáskífurnar af
plötunni komist á toppinn á vinsældarlista
Xins 97.7. Húsið verður opnað klukkan 21 á
föstudaginn.
n A capella í Hörpu
Íslenska tónleikaröðin í Hörpu heldur áfram
á laugardagskvöldið en þá verður íslensk
tónlist flutt a capella eða án undirleiks.
Félagar úr sönghópnum Voces Masculorum
syngja þjóðlög, ættjarðarsöngva og sálma-
lög undirleikslaust. Þeir syngja líka nokkur
erlend lög sem Íslendingar hafa eignað sér.
Þá verður farið með rímur og leikið á lang-
spil. Kynnt verður á ensku. Miðinn kostar
3.000 krónur en nánari upplýsingar má
finna á midi.is.
Góðir landsmenn á SPOT
Ballhljómsveitin Góðir landsmenn verður
á skemmtistaðnum SPOT í Kópavogi á
laugardagskvöldið og ætlar að gera allt
vitlaust. Góðir landsmenn er tiltölulega ný
hljómsveit en hefur verið að gera góða hluti
úti um allt land, hvar sem hún hefur spilað.
Þeir sem vilja skella sér á gott ball verða á
SPOT á laugardaginn. Þannig er það bara.
n Konur og íslensk tónlist
Á sunnudaginn verður viðfangsefni tónleika
í Hörpu konur og íslensk tónlist. Tónleik-
arnir fara fram í Kaldalóni. Fjallað verður
um kvenkyns tónskáld, ljóðskáld og aðrar
konur sem hafa komið að íslenskri tónlist
og lög flutt. Sungið verður á íslensku en
kynnt á ensku. Tónleikarnir hefjast klukkan
17 og kostar miðinn 3.000 krónur. Frekari
upplýsingar um tónleikaröðina og þessa
tónleika má finna á midi.is.
Mógil á Gljúfrasteini
Hljómsveitin Mógil mun koma fram á
stofutónleikum á Gljúfrasteini sunnudaginn
3. júlí klukkan 16. Tónlist sveitarinnar má
kalla þjóðlagaspunadjass og eru lögin
eftir hljómsveitarmeðlimi. Allir textar
sveitarinnar eru á íslensku og hafa skír-
skotun til íslenskrar náttúru og þjóðsagna.
Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
Leiðsögn um listasýningu
Sunnudaginn 3. júlí klukkan 14 verður
Hrafnhildur Schram listfræðingur með
leiðsögn um sýninguna Kona/femme –
Louise Bourgeois sem nú stendur yfir í
Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg. Sýningin
er hluti af dagskrá Listahátíðar í Reykjavík
og er stórviðburður því Louise er á meðal
fremstu listakvenna sögunnar.
1
júlí
Föstudagur
2
júlí
Laugardagur
3
júlí
Sunnudagur
með sprota og líktu eftir hreyfingum
hljómsveitarstjórans. Einhvern tím-
ann samdi hann dansverk þar sem
lögð var áhersla á dansverk sem væri
að detta í sundur. Þá voru dansarar
í táskóm. „Dansararnir hreyfðu sig
eins og það væri búið að eitra fyrir
þeim.“
Verkið Klúbburinn var frumsýnt á
Listahátíð í Reykjavík í ár og fékk góð-
ar viðtökur.
Gunnlaugur er beðinn um að lýsa
eigin verkum. „Meitluð dulúð.“
Orðlaus ljóð
Dansinn er starf og áhugamál. Hvað
er dansinn í huga Gunnlaugs? „Hann
er svo margt. Hann er íþrótt og list-
grein sem er bæði stöðnuð og hluti af
henni er framsækinn á einhvern hátt.
Þetta er svo lokaður heimur. Þetta er
líka svo mikil loftbóla og tekur svo
mikla orku frá manni. Ég hef alltaf
séð dansinn í víðara samhengi með
öðrum listgreinum. Það er svo mik-
ill fókus á mann sjálfan sem dans-
ara. Ég verð að standa með hlut-
verkinu sem ég dansa jafnvel þótt ég
trúi ekki á það sem getur stundum
verið mjög erfitt. Kannski er um að
ræða verk sem mér finnst vera öm-
urlegt. Þess vegna hef ég samið verk
sem ég dansa oft í sjálfur. Ef leiklist
er bókmenntir þá er dansinn ljóð.“
Hann flytur orðlaus ljóð. „Dansinn er
svo opinn og abstrakt og mér finnst
það spennandi. Það sem mér finnst
heillandi við dansinn er að fólk get-
ur horft á hann og dregið sínar eig-
in ályktanir. Ef vel tekst til getur fólk
speglað sig sjálft í verkinu og jafnvel
örvað ímyndunaraflið. Mér finnst
það mikilvægt.“
Tekur dansinn eitthvað frá hon-
um? „Þetta er náttúrlega mjög
tímafrekt. Maður þarf alltaf að vera
í formi og getur aldrei slakað al-
mennilega á. Ég var að eignast dótt-
ur og það er svo heilnæmt að taka
fókusinn af sjálfum sér; það er hollt
að setja fókusinn á barnið sitt.“
16-16-10
16 ára flutti hann út og hann hefur
búið í útlöndum í 16 ár. Hvaða aug-
um lítur hann Ísland í dag? „Það er
svo margt búið að breytast á þess-
um tíma. Þegar ég flutti út trúði ég
því að Ísland væri sérstakt og öðru-
vísi en það er búið að skemma það;
allavega fyrir mér. Ég nefni hrunið
í því sambandi og hvernig er far-
ið með umhverfið; margir sjá ekki
verðmætin í þessu óspillta um-
hverfi. Það er einmitt það sem fólk
talar um sem ég hef hitt víða um
lönd en það hefur viljað fara til Ís-
lands þar sem það vill fara á stað
þar sem það sér eitthvað sem ekki
er gert af manna höndum.“
Hann hefur komið sem gestur til
Íslands í 16 ár. Stundum í tvær vikur
á sumrin og stundum um jólin.
Gunnlaugur Egilsson kemst á
eftirlaun eftir 10 ár, þá 42 ára. „Ég
verð að vera hjá flokknum í 10 ár í
viðbót til að geta gert það. En ég get
ekki látið það stjórna mér.“
Dansarinn hlaut í sumar Grímu-
verðlaun sem besti dansari ársins
fyrir hlutverk sitt í Bræðrum í upp-
setningu Pars Pro Toto. Hvað þýða
verðlaunin fyrir hann? „Þetta er
frábær viðurkenning og gaman að
fá klapp á bakið í eigin landi. Það
er spennandi að taka þátt í grasrót-
arstarfsemi í dansheiminum á Ís-
landi.“ Svava Jónsdóttir
MeitLuð
duLúð
Gunnlaugur Egilsson „Það sem mér finnst heillandi við dansinn er að fólk getur
horft á hann og dregið sínar eigin ályktanir. Ef vel tekst til getur fólk speglað sig
sjálft í verkinu og jafnvel örvað ímyndunaraflið. Mér finnst það mikilvægt.“