Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Síða 48
48 | Lífsstíll 1.–3. júlí 2011 Helgarblað
A
rnbjörg Linda Jóhanns-
dóttir nam grasalækningar
og síðar kínverskar lækn-
ingar og nálastungulækn-
ingar á Englandi. Hún
hefur starfað við grasa- og nála-
stungulækningar um árabil og hefur
nú gefið út bókina Íslenskar lækn-
ingajurtir í endurskoðaðri útgáfu
með viðbót um kínverskar lækning-
ar.
Arnbjörg segir viðbæturnar gera
notkun lækningajurtanna mark-
vissari. „Uppruni grasafræðanna er
í Austurlöndum, í þeim fræðum er
talað um eðli jurtanna en ekki efnin
í þeim og virkni þeirra á líkamann.
Staðreyndir um eðli jurtanna skipta
máli þegar þær eru notaðar til lækn-
inga,“ segir Arnbjörg.
Hún tekur brenninetlu sem
dæmi. „Brenninetlan er kælandi
jurt, þvert á það sem margir halda.
Hún er notuð við gigt og heitum út-
brotum svo sem ofnæmisviðbrögð-
um. En hún dugar ekki fyrir fólk sem
þjáist af exemi á veturna. Þá þarf
vermandi jurt með svipaða eigin-
leika.“
Í bókinni er mikinn fróðleik að
finna um íslenskar lækningajurt-
ir og margt kemur á óvart. Hvern
hefði til dæmis grun-
að að söl virkuðu vel
gegn timburmönn-
um, beitilyng gegn
svefnleysi og að nota
mætti fallega blómið
gleymmérei á bruna-
sár. Unnur segir fjár-
sjóð íslenskrar nátt-
úru mikinn. „Það er
fjölmargt sem má
finna í íslenskri nátt-
úru sem er hægt að
nýta til lækninga.“
kristjana@dv.is
Söl notuð gegn
timburmönnum
Bananabrauð með kaffinu um helgina:
Fitulítið en
freistandi
Þetta gómsæta bananabrauð er fitu-
lítið en freistandi. Hollustunni má
þó auðveldlega spilla með klípu af
smjöri sem er gott viðbit með brauð-
inu. Fyrir þá sem huga að línunum
er það líka gott eins og það kemur
fyrir.
4 meðalstórir bananar, mjög vel
þroskaðir
2 egg
200 ml eplamauk
1 msk. olía
1 tsk. vanilludropar
500 g hveiti
2 tsk. lyftiduft
1 tsk. matarsódi
1/2 tsk. kanill
1/4 tsk. negull
150 g sykur
Hitið ofninn í 175 gráður og smyrjið tvö lítil
jólakökuform. Maukið banana og hrærið
eggjum, eplamauki, olíu og vanilludropum
saman við. Sigtið saman hveiti, lyftiduft
og krydd, blandið sykrinum saman við
og hrærið blöndunni saman við banana-
maukið.
Ekki hræra of mikið. Setjið deigið í formin
og bakið neðarlega í bökunarofninum í um
það bil 45 mínútur eða þar til prjónn kemur
hreinn upp úr brauðinu.
Látið kólna í forminu í smástund, hvolfið á
grind og berið fram. Njótið.
Bananabrauð með smjörklípu Það má spilla hollustunni með smá smjöri!
n Ný bók um íslenskar lækningajurtir n „Fjölmargt sem má finna í íslenskri náttúru“
Síð pils
Skósíð pils eru móðins um þessar
mundir. Þau eru þægileg á heitum
sumardögum og passa flestum. Það
er hægt að fá þau í alls kyns litum
og gerðum. Hippaleg eða kvenleg,
hvernig sem er. Þægilegt og flott.
Pop-Up á Trúnó
Pop-up markaður verður haldinn á
skemmtistaðnum Trúnó á Lauga-
vegi 22 á laugardaginn. Fjölmargir
hönnuðir selja hönnun sína á mark-
aðnum. Þeir eru Mundi, Hlín Reyk-
dal, IBA-The Indian In Me, Helicop-
ter, Sonja Bent, Elva, Begga-Design,
Dýrindi, Another Scorpion, Babette
og Svava Halldórs. Það verður vafa-
laust hægt að gera góð kaup á mark-
aðnum sem fer fram milli klukkan
14 og 19.
Íslenskar
lækningajurtir
með austurlenskri
viðbót Arnbjörg
hefur bætt austur-
lenskri þekkingu við
fræði um íslenskar
lækningajurtir.
Með timburmenn?
Söl eru gagnleg gegn
timburmönnum.