Dagblaðið Vísir - DV - 01.07.2011, Qupperneq 52
Deilur Samsung og Apple ná nýjum hæðum:
Vilja láta banna innflutning á iPhone
52 | Tækni Umsjón: Aðalsteinn Kjartansson adalsteinn@dv.is 1.–3. júlí 2011 Helgarblað
Justin Timberlake
eignast í MySpace
Justin Timberlake, tónlistarmaðurinn
sem lék Facebook-gúrúinn Sean Parker í
kvikmyndinni The Social Network, hefur
tekið við virkum eignarhlut í MySpace, einum
helsta keppinaut Facebook til margra ára.
Þetta kom fram í Twitter-færslu sem Mike
Jones, fráfarandi forstjóri MySpace, setti á
síðuna hjá sér á fimmtudag. Fréttavefurinn
TechCrunch greindi svo frá því að Timberlake
muni spila stóran þátt í að endurhugsa virkni
samfélagssíðunnar sem hefur tugi milljóna
notenda.
Ný Tumblr-viðbót
fyrir iPhone
Tumblr hefur sent frá sér nýja viðbót
fyrir iPhone-snjallsíma frá Apple.
Viðbót fyrirtækisins var endurhönnuð
frá grunni og skilar það sér í breyttu og
bættu viðmóti fyrir notendur. Hún gefur
líka í fyrsta skipti tækifæri á að stjórna
fleiri en einum Tumblr-aðgangi í einu,
skjárinn snýst eins og síminn, hægt er
að svara skilaboðum og vista drög að
færslum. Viðbótin notar einnig símaskrá
notenda til að hjálpa þeim að finna þá
notendur Tumblr sem þeir þekkja fyrir.
HP TouchPad
ekki nógu góð
Erlendir fréttamiðlar birtu fyrstu umfjallanir
sínar um HP TouchPad webOS3.0 sem á að
vera svar fyrirtækisins við iPad 2 spjald-
tölvunni frá Apple. Þó að einkunnagjafir
erlendra miðla á tölvunni séu flestar á bilinu
2,5 stjörnur af 5 til 7,5 stjörnur af 10 er nær
enginn sem mælir með því að fólk kaupi
frekar TouchPad en iPad. Matthew Miller,
hjá ZDNet, segir tölvuna vera fína en að
hún henti einna helst þeim sem hafi óbeit
á Apple. Segir hann einnig að ef HP ætli sér
ekki að gera stórkostlegar endurbætur á
TouchPad sé þetta bara enn ein græjan sem
styrki stöðu Apple á spjaldtölvumarkaðnum.
G
oogle svipti á þriðjudag hul
unni af nýrri samfélagssíðu
sem á að vera svar fyrirtæk
isins við Facebook. Síðan
hefur enn ekki verið opn
uð almenningi en valdir notendur
Google hafa fengið aðgang að henni
til reynslu. Síðan ber heitið Google+.
Þetta er ekki fyrsta tilraun Google til
að ráðast inn á markaðssvæði Face
book en fyrri tilraunir fyrirtækisins –
Google Wave og Google Buzz – hafa
ekki náð neinni fótfestu. Núna gæti
hins vegar eitthvað annað verið uppi
á teningnum.
„Við verðum að endurhugsa
hvernig við deilum efni á netinu,“
sagði Vic Gundotra, framkvæmda
stjóri tæknisviðs Google, í frétta
tilkynningu vegna Google+. „Aðrir
félagsmiðlar hafa gert fólki erfitt fyrir
að deila völdu efni með litlum hópi
fólks,“ bætti hann við og skaut þann
ig á tilraunir Facebook, stærstu sam
félagssíðu heims, til að leyfa fólki að
búa til vinahópa.
Fjórir einkennandi eiginleikar
Circles, sem á íslensku myndi þýð
ast sem hringir, gerir notendum
kleift að koma vinum sínum í vef
samfélaginu fyrir í sérstökum hóp
um. Þannig geta notendur sett sam
an vinahringi á auðveldari hátt en
þekkist á Facebook, sem býður fólki
að flokka vini sína sérstaklega. Fleiri
möguleikar eru þá í boði til að nota
þessa vinahringi til að stjórna hvað
hver og einn vinur á síðunni sér af
því efni sem sett er inn.
Hangouts gefur vinum svo tæki
færi til að detta inn í hópsamtöl
hver með öðrum þar sem hægt er
að tengja saman vefmyndavélar.
Þannig getur samtal varað endalaust
þó að einhverjir hætti í því og aðrir
byrji. Þannig geta heilu vinahóparn
ir hangið saman án þess að fara frá
tölvunni. Í Google+ er annað svip
að tól sem gerir fólki kleift að senda
hópskilaboð og textaspjall á heilan
vinahring.
Sparks tengir svo saman fólk úr
ólíkum áttum með tilliti til áhuga
sviða. Þannig getur Google+ nýst
fólki sem vill kynnast nýju fólki með
svipuð áhugamál.
Ekki allir sannfærðir
Þó að Google+ sé án efa strax orðin
besta tilraun fyrirtækisins til að ráð
ast inn á samfélagssíðumarkaðinn
eru ekki allir sannfærðir um að fyrir
tækinu takist ætlunarverk sitt. „Fólk
hefur þegar búið sér til félagsnet á
Facebook – að biðja það um að gera
slíkt net upp á nýtt gæti verið vanda
mál,“ segir Debra Aho Williamson,
yfirmaður hjá fyrirtækinu eMarketer,
í samtali við Associated Press.
Google hefur áður nefnilega lent í
vandræðum við að fá fólk til að nota
samfélagslausnir sínar og er ekki
langt síðan að Google neyddist til
að semja í dómsmáli sem hafði ver
ið höfðað gegn þeim vegna Google
Buzz. Fyrirtækinu var stefnt fyrir að
gera alla notendur Gmail, póstþjón
ustu Google, að notendum Google
Buzz. Ekki voru allir sammála því að
sú aðferð Google til að fá notendur á
samfélagsmiðilinn væri í samræmi
við lög.
Þriðja tilraun Google
að samfélagssíðu
n Google með metnaðarfulla tilraun til að komast inn á samfélagssíðumarkaðinn n Reynir
að búa til nýtt Facebook n Lítur betur út við fyrstu sýn en fyrri tilraunir fyrirtækisins
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Helstu eiginleikarnir Þetta er
útskýringamyndin sem Google hefur birt í
tengslum við virkni Google+.
„Við verðum að
endurhugsa
hvernig við deilum efni á
netinu.
Samsung hefur farið fram á við
bandarísk yfirvöld að þau banni
innflutning á iPhone, iPad og iPod
frá Apple. Kemur krafan í kjölfar
langvinnrar deilu á milli fyrirtækj
anna vegna einkaleyfa á tækni
lausnum sem bæði fyrirtækin nota
í vörur sínar. Fyrirtækin hafa stefnt
hvort öðru fyrir dómstóla vegna
deilunnar. Í kröfunni kemur fram
að Samsung telji Apple nota fimm
lausnir sem fyrirtækið eigi einka
leyfi á og sé þannig brotlegt við lög.
Deila fyrirtækjanna hófst í apríl
á síðasta ári þegar Apple höfðaði
mál á hendur Samsung fyrir dóm
stól í Kaliforníu í Bandaríkjunum
vegna Galaxylínu fyrirtækisins.
Vildu stjórnendur Apple meina að
Gal axylínan væri alltof lík iPhone
og iPad vörum Apple. Samsung
brást ókvæða við og höfðaði mál á
hendur Apple fyrir sama dómstóli
vegna brota á lögum um einkaleyfi.
Í síðustu viku höfðaði svo Apple mál
fyrir suðurkóreskum dómstólum, en
Samsung er með höfuðstöðvar sínar
þar í landi.
Deilurnar eru sérstaklega at
hyglisverðar í ljósi þess að Samsung
framleiðir ekki bara sín eigin tæki
heldur míkróflögur sem Apple notar
í eigin tæki. Viðskiptin á milli Sam
sung og Apple skiluðu andvirði 655
milljarða króna í kassann hjá Sam
sung. Undanfarið hefur suðurkór
eska fyrirtækið stækkað mjög hratt
og náð ótrúlega góðum árangri á
snjallsímamarkaðinum á stuttum
tíma. Spilar Galaxylínan, sem deil
urnar snúast að miklu leyti um, þar
stórt hlutverk.
Ekki eru miklar líkur á að krafan
verði samþykkt á næstunni því áður
en yfirvöld í Bandaríkj
unum geta tekið hana
til greina þurfa þau að
kanna málsrök Sam
sung í þaula. Það
gæti tekið talsvert
langan tíma þar
sem um mjög flók
ið mál er að ræða.
Þriðja tilraunin Vic Gundotra,
framkvæmdastjóri tæknisviðs
Google, tók þátt í þróun á síðustu
tilraun Google til að komast inn á
samfélagssíðumarkaðinn en það
var Google Buzz.
Skype fyrir Android
Skype, sem Microsoft hyggst kaupa fyrir
8,5 milljarða dala, kynnti á fimmtudag nýja
þjónustu fyrir Android-snjallsímanotendur.
Fyrirtækið býður viðbót við stýrikerfið sem
gerir notendum kleift að hringja frí mynd-
símtöl í aðra Skype-notendur. Með nýju
viðbótinni geta Android-notendur í fyrsta
sinn hringt myndsímtöl í Skype-notendur
sem nota iPhone-snjallsíma. „Við erum stað-
ráðin í því að koma Skype-myndsímtölum til
eins margra notenda og hægt er og eins fljótt
og auðið er,“ sagði markaðsstjóri Skype, Neil
Stevens, í yfirlýsingu.
Byrjaði allt hjá
Apple Apple hóf
deiluna með því
að fara í mál við
Samsung vegna
Galaxy-línu
suðurkóreska
fyrirtækisins
en Apple þótti
línan líkjast
iPhone og
iPad helst
til mikið.