Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Qupperneq 12
12 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað
Ólafur Ragnar
Grímsson
Aldur: 68 ára Starf: Forseti Íslands Maki: Dorrit
Moussaieff Staða á framboði: Ætlar ekki fram
n Ólafur er forseti Íslands en hann
lýkur sínu fjórða kjörtímabili í embætti
á árinu. Hann var fyrst kjörinn forseti
árið 1996. Áður hafði hann setið á þingi
á árunum 1978 til 1983 og svo aftur 1991
til 1995. Á árunum 1988 til 1991 var hann
fjármálaráðherra í ríkisstjórn Steingríms
Hermannssonar.
Sjálfur hefur Ólafur Ragnar gefið til
kynna að hann muni ekki bjóða sig fram
til áframhaldandi setu sem forseti. Til
gamans má geta þess að þegar DV kann-
aði stuðning þjóðarinnar við ýmsa ein-
staklinga fyrir forsetakosningarnar 1996
fékk Vigdís Finnbogadóttir, þáverandi
forseti, mikinn stuðning þrátt fyrir að hún
hefði þegar tilkynnt að hún ætlaði ekki í
framboð.
Ragna Árnadóttir
Aldur: 45 ára Menntun: Lögfræðingur Maki:
Magnús Jón Björnsson Staða á framboði: Óljós
n Ragna var dómsmálaráðherra í minni-
hlutastjórn Vinstri grænna og Samfylk-
ingarinnar eftir hrun. Hún lauk embættis-
prófi í lögfræði frá Háskóla Íslands árið 1991
og var sama ár ráðin sem lögfræðingur við
nefndadeild Alþingis. Árið 1995 var hún
svo ráðin sem sérfræðingur við skrifstofu
Norðurlandaráðs þar sem hún starfaði til
ársins 1999. Í dag starfar Ragna sem skrif-
stofustjóri hjá Landsvirkjun.
Lengi hefur verið talað um hugsanlegt
forsetaframboð Rögnu. Hún hefur fengið
áskoranir þess efnis allt frá því hún lét
af embætti sem dómsmála- og mann-
réttindaráðherra. Hún hefur hins vegar
alltaf verið þögul um þetta hugsanlega
forsetaframboð. „Sú hugmynd er ekki frá
mér komin, svo mikið er víst. Tilhugsunin er
mér afar framandi. Það er það eina sem ég
vil segja um forsetaembættið,“ sagði Ragna
í viðtali við DV árið 2010 um hugsanlegt
forsetaframboð.
Steinunn Ólína
Þorsteinsdóttir
Aldur: 41 árs Starf: Leikari Maki: Stefán Karl
Stefánsson Staða á framboði: Ætlar fram
n Steinunn Ólína hefur getið sér gott orð
fyrir leiklist. Í dag býr hún í Los Angeles,
Bandaríkjunum, ásamt manni sínum
Stefáni Karli Stefánssyni. Steinunn Ólína
vakti athygli í fyrra þegar hún lýsti því yfir
að hún ætlaði að sækjast eftir því að verða
forseti Íslands. Margir töldu í fyrstu að um
grín væri að ræða en Steinunn hefur full-
vissað fólk um að henni sé full alvara með
framboði sínu.
Steinunn Ólína var líklega sú fyrsta til
að lýsa yfir framboði til forseta Íslands fyrir
kosningarnar 2012. Í september 2011 upp-
lýsti hún að forsetaframboðið væri enn á
vangaveltustigi en í október var hún farin að
leita að kosningastjóra.
Páll Óskar
Hjálmtýsson
Aldur: 42 ára Starf: Tónlistarmaður
Staða á framboði: Óljós
n Tónlistarmaðurinn Páll Óskar er einn
ástsælasti popptónlistarmaður þjóðarinnar.
Páll Óskar hefur einnig vakið mikla athygli
fyrir baráttu sína fyrir mannréttindum og
gegn einelti. Hann hefur sérstaklega barist
fyrir réttindum samkynhneigðra en hann kom
út úr skápnum þegar hann var sextán ára.
Páll Óskar hefur ekki tjáð sig mikið
um mögulegt framboð en á síðasta ári
talaði hann frjálslega um skoðanir sínar á
bæði mönnum og málefnum. Það sem fór
líklega hæst voru ummæli hans á Gay Pride
sumarið 2011 þar sem hann talaði um að
svo virtist vera sem enginn annar en hvítur,
hægrisinnaður karlmaður í jakkafötum fengi
að vera í friði.
„Hann er heiðarlegur fallegur skemmti-
legur og mundi rækja sínar skyldur í ein-
lægni og elsku til verkefnanna,“ var meðal
þess sem lesendur DV höfðu um hann að
segja þegar leitað var eftir tilnefningum
fyrir kosningarnar. Annar sagði: „Það þarf að
flikka aðeins upp á forsetaembættið og Páll
Óskar getur svo sannarlega gert það. Líf og
fjör á Bessastöðum og áhersla lögð á minni
fordóma, meira jafnrétti og betra líf fyrir
alla landsmenn.“
Davíð Oddsson
Aldur: 63 ára Starf: Ritstjóri Maki: Ástríður
Thorarensen Staða á framboði: Óljós
n Davíð er einn sigursælasti og vinsælasti,
en um leið umdeildasti, stjórnmálamaður
Íslandssögunnar. Hann var borgarstjóri í
Reykjavík frá árinu 1982 til 1991, forsætis-
ráðherra Íslands frá árinu 1991 til ársins
2004, utanríkisráðherra frá 2004 til 2005
og formaður Sjálfstæðisflokksins frá árinu
1991 til 2005. Davíð gegndi stöðu aðal-
bankastjóra Seðlabankans 2005 til 2009
en hefur frá því í september 2009 stýrt
Morgunblaðinu.
Davíð hefur ekki tjáð sig mikið við
fjölmiðla eftir að hann lét af störfum hjá
Seðlabankanum þrátt fyrir að margir fjöl-
miðlamenn hafi reynt að leita viðbragða
hans. Þegar DV hafði hins vegar samband
við hann í tengslum við mögulegt forseta-
framboð var Davíð fljótur að svara þó að
hann gæfi lítið til kynna. „Nei, hef ekki spáð
í þetta. Ég er í öðru,“ sagði hann einfald-
lega. Davíð hefur margoft verið orðaður við
forsetaframboð.
Atkvæði: 745
19,30%
Flestir vilja ÓlaF áFram
Atkvæði: 498
12,90%
Atkvæði: 290
7,51%
Atkvæði: 283
7,33%
Atkvæði: 225
5,83%
a
d
a
ls
te
in
n
@
d
v.
is
n Lesendur DV segja sína skoðun á hver eigi að verða næsti forseti
„Þar sem styttist
í að ég verði forseti
þá er ekki seinna vænna
að leita að kosningastjóra
„Tilhugsunin er
mér afar framandi „Nei, hef ekki spáð í þetta„Aðstæður þjóðarinnar eru þess eðlis að ég geti
fremur verið að liði ef valið
á verkefnunum verður ein-
göngu háð mínum eigin vilja
og óbundið þeim skorðum sem
embætti forsetans setur jafn-
an orðum og athöfnum