Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 20.01.2012, Blaðsíða 14
Þ etta er bara barátta um börnin mín. Þau vilja taka börnin af mér. Barnavernd- aryfirvöld á Íslandi og hér í Bretlandi eru að vinna sam- an í þessu,“ segir Ragna Erlendsdótt- ir, móðir Ellu Dísar, sem stendur nú frammi fyrir enn einni baráttunni í fjögurra ára martröð eins og hún lýsir því sjálf í samtali við DV. Er nú, ein á erlendri grund, fyrir dómstól- um. Blaðamaður náði tali af Rögnu þar sem hún var stödd í lest fyrir utan London á fimmtudagskvöld en þangað flutti hún með Ellu Dís og dætur sínar í síðasta mánuði. „Gengin af göflunum“ Ragna var að koma úr dómsal í ann- að sinn síðan í síðustu viku þar sem mál barnaverndaryfirvalda gegn henni var flutt fyrir dómara. Yfir- völd vilja svipta hana forræði yfir öllum börnunum. Meðal annars á þeim órökstuddu forsendum að hún sé „gengin af göflunum“ eins og hún lýsir því sjálf í samtali við DV. „Ég fór fyrir dóm í síðustu viku og aftur í dag því ég fékk að vita það seint í gærkvöldi að þau hafi sótt um fullt forræði yfir börnunum og ég andmælti því í dag. Dómarinn vísaði málinu til æðra dómstigs, Royal High Court, svo ég fengi sanngjarnan tíma til að undirbúa mig því það var bara sögð ein hlið málsins og viðurkennt að það væri flókið.“ Vilja taka Ellu og setja hana á heimili Ella Dís er enn í London þar sem hún er á spítala og fær góða aðhlynningu að sögn Rögnu. Að hennar sögn líð- ur Ellu afar vel. Hinar dætur Rögnu eru hins vegar farnar heim til Íslands vegna húsnæðisvandræða sem hún lenti í í London. „Þær voru sendar án míns samþykkis vegna þessara vand- ræða. Pabbi þeirra tók þá ákvörðun í samráði við aðra ættingja stelpnanna að redda þeim fari heim. Ella fer ekk- ert heim sko.“ Um forræðissviptingarmálið segir Ragna að það fari fyrir Royal High Court á þriðjudaginn næstkom- andi. Hún segir að um „persónuleg- ar árásir“ barnaverndar á Íslandi sé að ræða. Málið sé litað af hagsmuna- árekstrum þar sem verið sé að taka til greina álit aðila sem hún hafi staðið í baráttu við í þrjú ár, meðal annars í kærumálum. „Mér finnst að það eigi ekki að fá álit hjá manneskju sem ég er búin að standa í baráttu við í þrjú ár. Þetta er hræðilegt. Þau vilja taka hana og setja á eitthvert heimili með ókunn- ugu fólki,“ segir Ragna og bætir við. „Þetta er ljótt og ómannúðlegt og síður en svo fyrir bestu fyrir Ellu Dís og börnin mín.“ Segja Rögnu veika á geði Ragna segir að um valdamisnotkun sé að ræða af hálfu yfirvalda. Af því að hún hafi leyft sér að gagnrýna störf þeirra opinberlega þá sé hún grýtt. „Og þeir komast upp með það.“ Ragna segir að lögmaður hennar hafi lýst þessu sem kláru broti á mann- réttindum hennar. Hún segir málið einkennast af órökstuddum dylgj- um og persónulegu áliti meðal ann- ars á geðheilsu hennar sem enginn fótur sér fyrir. „Það er ekkert læknis- fræðilegt sem styður grun þeirra um að ég sé eitthvað andlega óheilbrigð, eða gengin af göflunum eins og þeir segja. Þetta eru bara dylgjur enda liggur ekki fyrir neitt geðmat. Og þess vegna er ég með sterkt mál og fékk að fara fyrir Royal High Court því dóm- arinn í dag sá hvað þetta væri flókið mál, viðkvæmt og illa rökstutt af yfir- völdum hér.“ Ekki mistök að fara til Bretlands Barnaverndaryfirvöld í Bretlandi eru þekkt fyrir að taka afar fast á málum sem þessum og þykja ströng. Að- spurð hvort hún telji það hafa verið mistök að fara út með stelpurnar er Ragna fljót að svara: „Nei. Ég er ekki í nokkrum vafa. Læknar á Íslandi voru búnir að segjast ekkert geta gert fyrir barnið. Hún er í góðum höndum hér og líður miklu betur í dag. Er bros- andi og ánægð.“ Eftir allt sem á undan er geng- ið viðurkennir Ragna að þetta hafi verið það síðasta sem hún þurfti á að halda. Að vera með veikt barn í ókunnugu landi og hinar dætur sínar á Íslandi, landinu sem hún lítur á að hún hafi verið hrakin brott af. „Eins og það sé ekki nógu erfitt að reyna að finna leiðir til að hjálpa Ellu. Þetta er fjögurra ára martröð, sem ætlar aldrei að ljúka.“ 14 Fréttir 20.–22. janúar 2012 Helgarblað Lagersala Lín Design Laugavegi 178 www.lindesign.is LAGERSALA allt að 80% afsláttur Opið laugardag & sunnudag 10-16 Rúmfatnaður, handklæði, dúkar, rúmteppi & barnarvörur Sigurður Mikael Jónsson blaðamaður skrifar mikael@dv.is „Þau vilja taka börnin af mér“ n Ragna Erlendsdóttir dregin fyrir dóm af barnaverndaryfirvöldum í Bretlandi„Þau vilja taka hana og setja á eitt- hvert heimili með ókunnugu fólki Berst fyrir börnunum Ragna flaug til London með Ellu Dís og dætrum sínum í desember. Ella er enn í London er hinar telpurnar farnar heim til Íslands. Yfir- völd hér á landi, í samstarfi við yfirvöld ytra, vilja svipta hana forræði yfir börnunum. Mynd EyþóR ÁRnaSon
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.