Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 2
2 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
Þjófar eyðilögðu
hveitibrauðsdagana
„Atvikið
eyðilagði
algjörlega fyrsta
daginn okkar
sem hjón,“ sagði
Lynsey Morris
við DV á mánu-
dag en Íslending-
ar hafa undan-
farið kynnst sögu
hennar og Ians, eiginmanns hennar,
eftir að brotist var inn á heimili þeirra
á meðan þau voru fjarverandi vegna
eigin brúðkaups. Atvikið varð til þess
að þau urðu að hætta við ferð til Ís-
lands sem fyrirhuguð var dagana eftir
brúðkaupið enda var vegabréfi Ians
stolið. Hjónin eru þó væntanleg til
landsins á næstunni þrátt fyrir allt
því Iceland Express hefur boðið þeim
ókeypis ferð til Íslands.
Fölsun Bjarna í
Vafningsmáli
Umboð-
in sem
Bjarni Bene-
diktsson, þáver-
andi stjórnar-
formaður BNT
og N1 og nú-
verandi for-
maður Sjálf-
stæðisflokksins,
fékk til að veðsetja hlutabréfin í
eignarhaldsfélaginu Vafningi voru
send til Glitnis klukkan 16.38 þann
11. febrúar 2008. DV greindi frá þessu
á mánudag. Umboðin voru hins
vegar veitt vegna viðskipta sem sögð
voru hafa átt sér stað þann 8. febrúar,
þremur dögum áður. Dagsetning-
in á umboðunum var sömuleiðis 8.
febrúar 2008. Faxið sannar falsanir í
skjalagerðinni í Vafningsmálinu.
Í skíðaferð í
veikindaleyfi
Jens Kjart-
ansson lýta-
læknir fór í skíða-
ferð til Austurríkis
á dögunum, sam-
kvæmt heimild-
um DV en blaðið
greindi frá þessu á
miðvikudag. Jens
er þessa dagana
í launuðu veikindaleyfi frá störfum
sínum sem yfirlæknir á lýtalækninga-
deild Landspítalans og einkarekstr-
inum á Domus Medica. Heimildirn-
ar hermdu að kurr hafi verið meðal
starfsfólks spítalans vegna utan-
landsferðar yfirlæknisins á sama tíma
og PIP-brjóstapúðamálið svokallaða
hefur verið í hámæli. Það þyki takt-
laust og óviðeigandi.
Fréttir vikunnar í DV
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 13.–14. febr
úar 2012 mánudagur/þriðjudagur
18
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Bresk brúðhjón rænd fyrir Íslandsferð„Mikið
til af
góðu fólki
Ísland eins og
önnur pláneta
n Fjöldi íslenskra fyrirtækja bauð hjálp n Lynsey og Ian væntanleg til Íslands
Viðtal
Sparaðu með því
að kaupa á netinu
n Barnavagninn allt að helmingi ódýrari á netinu
n DV birtir gögn sem staðfesta falsanir 2–3
9
Fölsun
Bjarna
í VaFningsmáli
Síðustu dagar
Whitney
Houston 12
Greta Salóme fer til Bakú
„Ég er í
skýjunum“
Yrsa og Mugison ekki ríkisstyrkt 18
Þau þiggja
ekki lista-
mannalaun
22
11
Gefur ekki
eftir nafnið
Samstöðu
Lilja á Beinni línu DV
14–15
Whitney
Houston
1963 – 2012
w
w
w
.d
v
.i
s
F r j á l s t , ó h á ð d a g b l a ð 15.–16. febrúar 20
12 miðvikudagur/fimmtudagur
19
. t
b
l
.
10
2
. á
r
g
.
l
e
ið
b
. v
e
r
ð
4
2
9
k
r
.
Jens KJartansson
Feitastur í
heimi eftir
móðurmissi
Hundaeigandi fyrir dómi 3
Ofurlaunamenn
heimta milljarða
Bankamenn vilja bætur frá þrotabúum 2–3
Andlit
EasyJet
án þess að
vita það 23
10–11
Keith vegur 368 kíló 13
LýtaLæKnir
í sKíðaferð
í veiKindafríi
n Á launum hjá Landspítala n Forstjórinn aðhefst ekkert
n Mistök í meðferð stúlku sem brenndist n „Allt gert rangt“
7–9
Úttekt
Bein línaMæltu með
Glitni en
seldu samt
n Blekkingar vegna bankans
Jón Ásgeir á Beinni línu DV
n Bentley-inn er frosinn n Hefði betur selt fyrir hrun
eKKi fLytJa
frá ísLandi
4
Bitin og
hræðist gelt
í hundum
Spurningar DV sem
Bjarni hefur ekki svarað
1 Hvenær var skrifað undir umboðsskjölin sem veittu þér umboð til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi fyrir hönd Hrómundar, Hafsilfurs og BNT?
2 Hvenær skrifaðir þú undir veðsetningarskjölin vegna lánsins frá Glitni til Vafnings? Var það fyrir eða eftir 8. febrúar 2008? Þú hefur sagt, í viðtali við DV á sínum tíma, að legið hafi á að ganga frá lánapappírunum „þennan dag“. Hvaða dagur var það?
3
Þegar þú skrifaðir undir veðsetningarskjölin vegna veðsetningarinnar á hlutabréfum Vafnings vissir þú þá að Glitnir hefði lánað Milestone beint þann 8. febrúar 2008 til að borga upp lán Þáttar International við Morgan Stanley?
4 Ef svarið við spurningu (3) er já vissir þú þá að Vafningur ætti að taka yfir lán sem Glitnir var þá þegar búinn að veita Milestone?
5 Þegar þú skrifaðir undir veðsetningarskjölin og tókst þátt í endurfjármögnuninni á Glitnisbréfum Þáttar International varstu þá meðvitaður um að starfsmenn Glitnis hefðu hugsanlega gerst brotlegir við lög í viðskiptunum, sbr. ákæruna á hendur Lárusi Welding og Guðmundi Hjaltasyni í Vafningsmálinu?
6 Var Glitnir í ábyrgð fyrir láninu sem Morgan Stanley veitti Þætti International?
7 Spilaði endurfjármögnunin á Glitnisbréfum Þáttar International, sem hér er rætt um, inn í þá ákvörðun þína að selja hlutabréf sem þú áttir persónulega í Glitni? Líkt og komið hefur fram gjaldfelldi Morgan Stanley lán Þáttar International vegna ákvæða í lánasamningi félagsins við bankann þar sem fram kom að gera mætti veðkall hjá Þætti International ef gengi bréfa í Glitni færi niður fyrir tiltekið lágmark. Þú vissir það á þessum tíma að áhætta vegna 7 prósenta hlutar í Glitni hafði nú færst yfir á bankann sjálfan vegna aðgerða Morgan Stanley.
2 Fréttir
13. febrúar 2012 Mánudagur
Fréttir 3
Mánudagur 13. febrúar 2012
G
ámur Skafta Jónssonar og
Kristínar Þorsteinsdótt-
ur var sá eini sem varð fyrir
tjóni í flutningum frá Íslandi
til Bandaríkjanna. Íslenska
ríkið borgaði samtals 74 milljónir
króna í tjónabætur vegna tjónsins en
í gámnum var hluti búslóðar þeirra
hjóna. Ríkið tók ábyrgð á flutningun-
um þar af því að Skafti, sem starfar í
utanríkisþjónustunni, var gerður að
sendiráðsnaut í íslenska sendiráðinu
í Washingtonborg.
Mikil leynd hefur hvílt yfir mál-
inu og hefur reynst erfitt að fá upp-
lýsingar um það hjá utanríkisráðu-
neytinu. Skafti og eiginkona hans
hafa líka verið þögul um málið. Eftir
stendur að íslenskir skattgreiðendur
þurfa að borga gríðarlega háar bæt-
ur. DV greindi frá því á föstudag að
ríkisendurskoðun hafi bótamálið til
skoðunar.
Þurfti að gera við skipið
Samkvæmt upplýsingum frá Eim-
skipafélagi Íslands, sem sá um
flutning á gámnum, voru tveir aðr-
ir gámar sem urðu fyrir því að sjór
flæddi inn í þá. „Já, það komst sjór
í tvo aðra gáma, varan var þess eðl-
is að hún skemmdist ekki,“ segir
Ólafur Hand, upplýsingafulltrúi
Eimskips, aðspurður hvort fleiri
gámar hafi orðið fyrir tjóni.
Gámarnir voru allir um borð í
skipinu Reykjafossi sem lagði úr
höfn á Íslandi 8. apríl 2011. Dag-
ana 10. og 11. apríl, eftir tveggja
daga siglingu, fékk skipið á sig
mjög slæmt veður og brotsjó.
„Annað ankerið slitnaði af og fór
í sjóinn, siglingaljós brotnuðu af,
festingar fyrir landgang skemmd-
ust og sjór braut sér leið í eina lest
skipsins,“ segir Ólafur aðspurður
hvort skipið sjálft hafi orðið fyrir
skemmdum vegna þessa. „Gert var
við skemmdirnar við fyrsta tæki-
færi,“ bætir hann við.
Gámurinn í nafni utanríkisráðu-
neytisins
Gámurinn sem búslóð Skafta og
Kristínar var í var fluttur í nafni utan-
ríkisráðuneytisins og var hann stað-
settur í fyrstu lest fremst í skipinu.
Eimskipafélagið hefur ekki upplýs-
ingar um hvort fleiri gámar hafi verið
fluttir á vegum ráðuneytisins í sömu
ferð en samkvæmt gögnum sem DV
hefur undir höndum er ekki annað
að sjá en að aðeins hluti búslóðar
Skafta og Kristínar hafi verið í um-
ræddum gámi.
Ríkið borgaði eins og áður segir 74
milljónir króna í tjónabætur vegna
tjónsins en samtals fengu Skafti og
Kristín 78 milljóna króna greiðslur
þar sem fjórar milljónir til viðbót-
ar við ábyrgð ríkisins voru greiddar
af tryggingafélagi sem tryggði lítinn
hluta gámsins. Tjónið er að mestu til-
komið vegna listaverka sem voru um
borð í gámnum en mörg þeirra voru
verðmetin hátt af bandaríska fyrir-
tækinu Amrestore Inc. en fyrirtækið
mat tjónið á öllum listmunum í gám-
inum fyrir ríkið.
n Búslóð sendiráðsnauts það eina sem skemmdist í Reykjafossi
Ekkert annað
skemmdist
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Gámurinn Þessi mynd var ein af þeim sem notaðar voru í skýrslu vegna tjónsins.„Annað
ankerið
slitnaði af og
fór í sjóinn
Þurfti að gera við skipið Gámurinn var
fluttur með Reykjafossi en gera þurfti við
skipið eftir ferðina vegna mjög slæms veðurs.
U
mboðin sem Bjarni Bene-
diktsson, þáverandi stjórn-
arformaður BNT og N1 og
núverandi formaður Sjálf-
stæðisflokksins, fékk til að
veðsetja hlutabréfin í eignarhalds-
félaginu Vafningi voru send til Glitnis
klukkan 16.38 þann 11. febrúar 2008.
Þetta kemur fram í afriti af faxi með
umboðunum sem Gunnar Gunn-
arsson, lögmaður Milestone, sendi
til Glitnis þennan dag og DV hefur
undir höndum. Umboðin voru hins
vegar veitt vegna viðskipta sem sögð
voru hafa átt sér stað þann 8. febrú-
ar, þremur dögum áður. Dagsetning-
in á umboðunum var sömuleiðis 8.
febrúar 2008. Faxið sannar falsanir í
skjalagerðinni í Vafningsmálinu.
Lána- og veðsamningurinn sem
umboðin voru veitt til að ganga frá
til að Glitnir gæti lánað eignarhalds-
félaginu Vafningi rúmlega tíu millj-
arða króna voru hins vegar dagsettir
þann 8. febrúar. Bjarni Benediktsson
skrifaði undir veðsamninginn sem
dagsettur var 8. febrúar. Vafningur
tók við láninu frá Glitni til að end-
urgreiða Milestone þá rúmlega tíu
milljarða króna sem félagið hafði
notað til að endurgreiða bandaríska
fjárfestingabankanum lán Þáttar
International hjá bandaríska fjár-
festingabankanum Morgan Stanley
fjórum dögum áður. Morgan Stanley
hafði veitt Þætti International lán-
ið til að fjármagna hlutabréfakaup í
Glitni. Morgan Stanley hafði gjald-
fellt lánið nokkrum dögum áður.
Dagsett aftur í tímann
Afritið af faxinu til Glitnis er enn
ein sönnun þess að skjalagerðin í
Vafningsmálinu var unnin aftur í
tímann. Í faxinu stendur: „Til Glitn-
is banka hf. - Kirkjusandi 2 - 155
Reykjavík“ og var það sent úr faxn-
úmeri „+354 4141808“, númeri á
skrifstofu Milestone á Suðurlands-
braut, af Gunnari Gunnarssyni.
Neðst á fyrstu síðu umboðanna,
sem virðast hafa verið send til
Glitnis öll í einu, stendur hvenær
faxið var sent: „11/02 2008 16:38
FAX.“ Í faxinu stendur skýrum stöf-
um að það hafi verið 22 mínútur í
fimm þann ellefta febrúar 2008.
Umboðin sem Bjarni Benedikts-
son fékk til ganga frá viðskiptunum
fyrir hönd eignarhaldsfélaga skyld-
menna sinna, Hrómundar, Hafsilfurs
og BNT, voru lykilatriði í því að hægt
væri að ganga frá láni Glitnis til Vafn-
ings. Ástæðan er sú að umrædd félög
voru hluthafar í Vafningi og þurftu
að veita samþykki sitt fyrir veðsetn-
ingunni á hlutabréfum félagsins fyr-
ir láninu frá Glitni. Fyrst umboðin
sem veittu honum rétt til að veðsetja
hlutabréfin í umræddum félögum
voru send til Glitnis síðdegis þann
11. febrúar getur ekki verið að gengið
hafi verið frá láni Glitnis til Vafnings
þann 8. febrúar, þremur dögum áður.
Þrátt fyrir þetta var lána- og veð-
samningur Glitnis og Vafnings, sem
DV hefur undir höndum, dagsettur
þann 8. febrúar 2008.
Ákæran og dagsetningarnar
Í ákæru sérstaks saksóknara í Vafn-
ingsmálinu yfir þeim Lárusi Weld-
ing, bankastjóra Glitnis, og Guð-
mundi Hjaltasyni, fyrrverandi
framkvæmdastjóra fyrirtækjasviðs
bankans, sem gefin var út um miðjan
desember síðastliðinn, kemur fram
að skjalagerðin í Vafningsmálinu hafi
verið unnin aftur í tímann. Lárus og
Guðmundur eru ákærðir fyrir um-
boðssvik í málinu.
Í ákærunni segir að Lárus og Guð-
mundur hafi veitt lánið beint til Mile-
stone þann 8. febrúar en þann 12.
febrúar hafi verið útbúin skjöl þar
sem Vafningur var sagður hafa tek-
ið lánið þann dag. Í ákærunni segir
orðrétt: „Gögn málsins bera með sér
að látið var líta út fyrir að Vafning-
ur ehf. hefði tekið lánið í stað Mile-
stone ehf. 8. febrúar 2008, með því
að dagsetja lánasamninginn milli
Glitnis og Vafnings ehf. 8. febrúar
2008. Greiðslugögn og bókhald bera
hins vegar með sér lánveitinguna til
Milestone ehf. 8. febrúar 2008 og ráð-
stöfun andvirðisins af reikningi Mile-
stone til greiðslu láns Þáttar Inter-
national hjá Morgan Stanley.“ Faxið
sem Gunnar Gunnarsson sendi er
óræk sönnun fyrir því að umræddar
undirskriftir í Vafningsmálinu, und-
irskriftirnar á umboðunum, í veð-
samningnum og lánasamningnum,
eru ekki réttar.
Vottar að réttum
dagsetningum
Í faxinu eru undirskriftir Einars og
Benedikts Sveinssona, eigenda Hró-
mundar og Hafsilfurs, og stjórnar-
manna í BNT, þeim Jóni Benedikts-
syni, Gunnlaugi Sigmundssyni
og Bjarna Benediktssyni, þar sem
Bjarna er veitt heimild til að veð-
setja hlutabréf félaganna í Vafningi
fyrir láninu frá Glitni. Í texta um-
boðsins er vísað til veðsamningsins
sem Bjarni skrifaði undir sem sagð-
ur er hafa verið undirritaður þann
8. febrúar. Nú er hins vegar vitað að
þessi texti var ekki réttur heldur að
gengið hafi verið veð- og lánasamn-
ingnum nokkrum dögum síðar. Texti
umboðanna er því líka rangur.
Í umboðunum eru einnig vottar
að réttum dagsetningum þeirra en
undir þau rita meðal annarra Bjarni
sjálfur, Hermann Guðmundsson,
forstjóri N1, og Gunnar Gunnars-
son, lögmaður Milestone sem bjó
umboðin til og gekk frá skjölunum í
málinu. DV hefur áður sýnt fram á að
umboðin sjálf sem Bjarni fékk til veð-
setningarinnar á hlutabréfunum í
Vafningi hafi verið búin til að morgni
11. febrúar 2008, þremur dögum síð-
ar en dagsetning þeirra sýndi. Miðað
við þetta voru umboðin bæði gerð
eftir 8. febrúar 2008 auk þess sem
fyrir liggur að þau voru send til Glitn-
is eftir það, eða laust fyrir klukkan
fimm síðdegis. Samt voru öll skjölin
í lánaviðskiptunum Glitnis og Vafn-
ings dagsett þann 8. febrúar 2008 og
voru því í reynd fölsuð til að láta líta
út fyrir að lánið hefði verið veitt þann
8. febrúar 2008 en ekki 12. febrúar í
sama mánuði.
Bjarni Benediktsson hefur
ekki verið reiðubúinn til að svara
spurningum DV um tímasetningu
þeirra gerninga sem hann tók þátt í
í Vafningsviðskiptunum. DV hefur
ítrekað sent honum spurningarn-
ar með beiðni um svör, nú síðast
á sunnudaginn. Blaðið hefur hins
vegar ekki fengið nein svör frá for-
manninum. n
Fax til Glitnis sannar
falsanir í Vafningsmáli
n Vafningsumboðin dagsett aftur í tímann n Skrifuðu undir fölsuð skjöl í sakamáli
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
Sent þann 11. febrúar Umboðin voru send
frá skrifstofu Milestone á Suðurlandsbraut og til
Glitnis klukkan 16.38 þann 11. febrúar. Umboðin
voru hins vegar veitt vegna viðskipta sem sögð
voru hafa átt sér stað þremur dögum áður.
Fax sannar falsanir Faxið frá Milestone
til Glitnis með umboðunum í Vafningsmálinu
staðfestir að umboðin sem Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, fékk til
að veðsetja hlutabréfin í eignarhaldsfélaginu
Vafningi voru dagsett aftur í tímann.
Framkvæmdastjóri LSR:
Upplýsir
ekkert um
boðsferðir
Haukur Hafsteinsson, fram-
kvæmdastjóri lífeyrissjóðs ríkis-
starfsmanna LSR, segist ekki sjá
ástæðu til þess að upplýsa um
dagsetningar boðsferða sem
starfsmenn sjóðsins fóru í fyrir
hrun í boði fyrirtækja. Hann
vill heldur ekki gefa upp hvaða
fyrirtæki buðu starfsmönnum
sjóðsins í ferðir. Haukur segir í
svari sínu að á árunum 2004–
2008 hafi sjóðurinn haft að jafn-
aði um tvo milljarða króna sem
honum bar að verja til fjárfest-
inga í hverjum mánuði.
„Á þessum árum fóru sex nú-
verandi og fyrrverandi starfs-
menn LSR í samtals 30 ferðir
út fyrir landsteinana þar sem
kostnaður var greiddur af öðrum
en sjóðnum. Í öllum tilfellum
var um kynningu á starfsemi eða
nýjum fjárfestingartækifærum
að ræða. Fundirnir voru haldnir
í Bandaríkjunum, Danmörku,
Englandi, Frakklandi, Hollandi,
Noregi, Rússlandi, Skotlandi,
Spáni,Tékklandi og Þýskalandi.
Skoðun á viðskiptum sjóðsins
í kjölfar þessara funda leiðir
ekkert í ljós sem tilefni gefur til
tortryggni. Á þriggja mánaða
tímabili í kjölfar hverrar ferðar
var sala hlutabréfa sem tengdust
þessum aðilum í þriðjungi til-
vika meiri en kaup. Í helmingi
tilvika voru kaup meiri en sala.
Er þetta í samræmi við það fyrr-
nefnda hlutverk sjóðsins að ráð-
stafa meiri fjármunum í hverjum
mánuði til kaupa á verðbréfum
en sölu úr eignasafni hans.“
Þá segir Haukur að stjórnend-
ur sjóðsins beri ábyrgð á fjár-
festingum hans og einnig hverjir
af starfsmönnum hans fari á
kynningarfundi vegna einstakra
fjárfestingatækifæra. Hann segir
að allar fjárfestingar hafi verið í
samræmi við lög.
Hann bendir einnig á að
afkoma sjóðsins í aðdraganda
hruns fjármálakerfisins sé í eðli-
legu samræmi við sambærilega
sjóði bæði hérlendis og víða í
nágrannalöndum. „Enda þótt
tjón sjóðsins hafi verið mikið
ber að hafa það í huga að eignir
hans voru og eru mestar allra líf-
eyrissjóða landsins og hlutfalls-
legt tap hans sambærilegt við
aðra.“
1 2 3
www.xena.is
AF ÖLLUM
BARNASKÓM
S T Æ R Ð I R 1 8 - 3 5
Opið virka daga 11-18 - laugardag 11-16
Grensásvegi 8 - Sími 517 2040
2 FYRIR 1
Í
slenska ríkið var á miðvikudag
dæmt til að greiða sambýlisfólki
skaðabætur fyrir að hafa veitt ut-
anaðkomandi aðila upplýsing-
ar um mál sem var til lögreglu-
rannsóknar.
Parið fór fram á eina milljón
hvort í skaðabætur og sögðu að að-
gerðin hefði valdið þeim og fjöl-
skyldu þeirra miklu hugarangri sem
hefði komið fram í kvíða, þunglyndi
og svefntapi. Dómurinn komst hins
vegar að þeirri niðurstöðu að þau
ættu rétt á miskabótum upp á 100
þúsund krónur hvort um sig og
gjafsókn. Lögmaður parsins, Vil-
hjálmur Hans Vilhjálmsson, fékk
greiddar 700 þúsund frá ríkissjóði.
Lokað þinghald
Við fyrirtöku málsins í apríl 2011,
fór lögmaður parsins fram á að
þinghaldið yrði lokað þegar hon-
um var ljóst að blaðamaður DV sat
í dómsal, en hann var sá eini sem
var viðstaddur þinghaldið sem
áhorfandi. Þegar dómari fór fram á
rökstuðning þess að loka ætti þing-
haldinu benti lögmaðurinn á að
parið ætti börn sem skyldi hlífa við
umfjöllun fjölmiðla. Dómari spurði
því næst blaðamann frá hvaða fjöl-
miðli hann væri og þegar svarið var
DV mundaði hann hamarinn um-
svifalaust og dæmdi þinghaldið
lokað. Blaðamanni bar því að víkja
úr salnum tafarlaust.
Málið snýst um húsleit lögreglu
sem framkvæmd var á heimili pars-
ins án þeirra vitneskju, en lögregl-
an taldi sig hafa rökstuddan grun
að þar gæti verið að finna fíkniefni.
Með í för lögreglu var myndatöku-
maður frá Kastljósi. Lögreglan kall-
aði til lögmann á heimilið sem full-
trúa sambýlisfólksins en þau voru
í flugvél á leið heim frá Spáni þeg-
ar húsleitin fór fram. Við komuna
til landsins var parið handtekið
og haldið í sólarhring áður en því
var sleppt. Húsleitin leiddi ekki til
ákæru og fundust engin fíkniefni
við húsleitina.
Liður í að upplýsa almenning
Húsleitin fór fram árið 2009 en það
ár og í lok árs 2008, upplýsti lög-
reglan fjölda mála þar sem grunur
lék á að kannabisræktun færi fram.
Einn stefnanda var skráður eigandi
húsnæðis þar sem slík ræktun fór
fram og í dómnum kemur fram að
lögregla hafði rökstuddan grun um
að sambærileg brotastarfsemi færi
fram í öðru húsnæði sem stefnend-
ur væri eigendur að.
Í dómnum kemur fram að
samvinna lögreglunnar og Kast-
ljóss hafi verið liður í því að upp-
lýsa almenning um þessa tegund
brotastarfsemi og gera almenning
meðvitaðan um ummerki slíkrar
starfsemi og stuðla að því að borg-
arar tilkynntu ef grunur væri um
slík brot. Lögreglan hafi þó sett þau
skilyrði að starfsmenn RÚV skyldu
gæta fullkomins trúnaðar um
það sem þeir yrðu vitni að og þeir
myndu haga efnisöflun sinni þann-
ig að ekki yrði hægt að greina eða
rekja það til einstaklings, húsnæðis
eða kennileita.
Lögreglan og starfsmenn Kast-
ljóss voru þó ekki sammála fyrir
dómi um hvort að lögreglan hefði
átt að eiga síðasta orðið með hvaða
myndefni yrði birt en lögreglan
krafðist þess að skoða myndefnið
fyrir birtingu þess.
Lögreglan rauf þagnarskyldu
Stefndu vildu þó meina að þagn-
arskylda lögreglu hefði verið rofin
um leið og myndatökumaður Kast-
ljóss fékk upplýsingar um heim-
ilisfang þar sem húsleitin fór fram
og bentu á að nöfn þeirra og barna
þeirra kæmu fram við útidyrahurð
og inni á heimilinu væri fjöldi fjöl-
skyldumynda. Því væri hægðarleik-
ur að komast að því hverjir byggju á
heimilinu.
Dómari komst að þeirri niður-
stöðu að lögreglu sé óheimilt að
veita utanaðkomandi aðilum upp-
lýsingar um mál sem er til rann-
sóknar án þess að slíkt sé nauð-
synlegt í þágu rannsóknarinnar.
Lögreglumaður sem bundinn
er þagnarskyldu geti sjálfur ekki
ákveðið hver eigi að fá slíkar upp-
lýsingar. Þaðan af síður geti hann
ekki tryggt að sá sem fær upplýs-
ingarnar beri sambærilega ábyrgð
og lögreglumaðurinn, sé misfarið
með upplýsingar, til dæmis með
refsiábyrgð.
n Óheimilt var að veita tökumanni Kastljóss upplýsingar um húsleit
Leynimaður fær
hundrað þúsund
„Dómari spurði því
næst blaðamann
frá hvaða fjölmiðli hann
væri og þegar svarið var
DV mundaði hann ham-
arinn umsvifalaust og
dæmdi þinghaldið lokað.
Tökumaður mátti ekki vera með Rökstuddur grunur lögreglu um að í húsnæði í
eigu parsins gæti verið að finna fíkniefni var ástæða húsleitarinnar þar sem mynda-
tökumaður Kastljóss var með í för.
Réðust á mann með felgulykli:
Ætluðu að
„sekta“ hann
Tveir karlmenn á þrítugsaldri
voru í vikunni dæmdir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur til tólf mán-
aða fangelsisvistar, þar af níu
mánaða skilorðsbundinna, fyrir
sérstaklega hættulega líkams-
árás. Þá þurfa þeir að greiða
fórnarlambinu fjögur hundruð
þúsund krónur í skaðabætur.
Mönnunum er gefið að sök
að hafa ráðist á karlmann við
bensínstöð Olís við Skúlagötu
þann 18. júlí árið 2009 og veitt
honum ákverka á höfði og fót-
um, meðal annars með felgu-
lykli. Hlaut fórnarlambið við
það ýmis sár, þar á meðal kinn-
beinsbrot vinstra megin sem
náði inn að kinnholu og augn-
tóft.
Tilefni árásarinnar mun hafa
verið að mennirnir tveir töldu
brotaþola hafa framið kynferðis-
brot gagnvart kærustu annars
þeirra. „Umrædd stúlka hafi
hringt í brotaþola og beðið hann
um að hitta sig þennan dag.
Stúlkan hafi komið að Olís og
verið ein í bifreið. Hafi brotaþoli
sest inn í bifreið til hennar. Þau
hafi rætt saman í stutta stund.
Þá hafi stúlkan sagt að kærasti
hennar ætlaði að ,,sekta“ hann
fyrir það sem gerst hafi þegar
stúlkan hafi verið 14 ára gömul,“
segir í skýrslu lögreglu frá kvöld-
inu en þannig lýsti brotaþoli at-
vikum á vettvangi. Stúlkan stað-
hæfði að hann hefði misnotað
hana en í kjölfarið komu menn-
irnir tveir aðvífandi á bifreið,
ásamt þriðja manni sem var bíl-
stjóri.
Mennirnir tveir játuðu sök að
hluta. Athyglisvert er að annar
þeirra mun, samkvæmt heimild-
um DV, hafa ráðist á karlmann á
áttræðisaldri á Þórshöfn um síð-
ustu helgi. Heimildirnar herma
að það hafi einnig verið uppgjör
vegna gruns um kynferðisbrot.
solrun@dv.is