Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 6
6 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
Enn fleiri huldufélög í milljarðaskuld
n Tvö óþekkt eignarhaldsfélög fengu milljarða frá Kaupþingi
Á
hugamenn um íslenska efna-
hagshrunið eru ennþá, nærri
tveimur árum eftir útgáfu rann-
sóknarskýrslu Alþingis, að rek-
ast á umfjallanir um huldufélög í rann-
sóknarskýrslu Alþingis sem skráð eru
fyrir skuldum við íslensku bankana
upp á marga milljarða króna. Þannig
hefur sjaldan eða aldrei verið minnst á
tvö slík félög, Ab 76 og Ab 47, opinber-
lega en samtals skulduðu þau nokkra
milljarða í íslenska bankakerfinu fyrir
hrun.
Bæði félögin voru í eigu sömu að-
ila og keypti það hlutabréf í Exista og
Kaupþingi á árunum 2007 og 2008.
Meðal eigenda félaganna var lögmað-
urinn Jón Halldórsson og aðilar tengd-
ir honum. Annað félagið, Ab 76, fékk
samtals nærri 3 milljarða að láni til að
kaupa hlutabréf í Kaupþingi og Lands-
bankanum og seldi nær öll hlutabréfin
fyrir hrunið 2008. Eigið fé félagsins er
neikvætt upp á rúmlega hálfan millj-
arð í dag en það er ennþá starfandi.
Hitt félagið, Ab 47, hefur aldrei skil-
að ársreikningi frá stofnun. Félagið var
meðal stærri hluthafa Exista og átti um
tíma nærri tveggja prósenta hlut í fé-
laginu. Skuldir þess í íslenska banka-
kerfinu nema rúmlega fimm milljörð-
um króna. Félagið hefur verið afskráð
hjá Fyrirtækjaskrá og tekur með sér
umræddar skuldir. Samanlagðar
skuldir þessara tveggja óþekktu félaga
í bankakerfinu námu því um 8 millj-
örðum króna hið minnsta.
S
onur minn varð bæði reiður
og hissa. Hann meðtók þetta
ekki allt,“ segir móðir 15 ára
drengs sem seldi sig í vændi
á meðan hann var í mikilli
fíkniefnaneyslu. Drengurinn glímir nú
við alvarlegar afleiðingar af fíkniefna-
neyslu og barnavændi. Fyrrverandi
kennari var í síðustu viku dæmdur í 12
mánaða skilorðsbundið fangelsi í Hér-
aðsdómi Vesturlands fyrir að kaupa
vændi af drengnum sem þá var 14 ára.
Karlinn bar fyrir sig að hann hefði ekki
vitað hvað drengurinn væri gamall, þó
að hann hefði sjálfur verið kennari.
Hann greiddi drengnum 30 þúsund
krónur fyrir hvert skipti. Fram kemur
í dómnum að barnavændiskaupand-
inn hafi árum saman farið leynt með
samkynhneigð sína, en hafi „freistast
til þess að leita eftir samskiptum við
aðra karlmenn í netheimum“, eins og
það er orðað.
Þá er það tekið til refsilækkunar
að það hefði haft miklar afleiðing-
ar fyrir hann og fjölskyldu hans að
vera afhjúpaður. Hann hefði meðal
annars misst vinnuna. Geðlæknir
segir að engar vísbendingar séu um
að maðurinn sé haldinn barnagirnd.
Þrátt fyrir að dómurinn fjalli um nei-
kvæðar afleiðingar barnavændis-
kaupanna fyrir karlinn, þá er ekki
minnst einu orði í dómnum á þær af-
leiðingar sem það hafði á 14 ára barn
að selja sig fullorðnum karlmanni.
„Mér finnst þessi
dómur skandall“
Drengurinn er nú kominn á með-
ferðarheimili. Hann hefur að undan-
förnu þegið ýmiss konar meðferðar-
úrræði, svo sem viðtöl í Barnahúsi,
þar sem lögð hefur verið áhersla
á að þó að það hafi ekki verið rétt
hjá honum að bjóða sig svona hafi
hann verið raunverulegt fórnarlamb
glæpsins. Móðir hans segir að þessi
dómur sendi þveröfug skilaboð og
af lestri hans að dæma megi ráða að
það sé vændiskaupandinn sem sé
fórnarlambið í málinu. „Mér finnst
þessi dómur skandall, ég man ekki
eftir að hafa lesið kynferðisafbrota-
dóm þar sem gerandinn er gerður að
svona miklu fórnarlambi. Mér finnst
allt mjög skrýtið í þessu og furðu-
legt að tala um að hann hafi ekki gert
sér grein fyrir aldri hans – maðurinn
var kennari. Það var einhvern veg-
inn dregið fram að maðurinn hefði
átt svo bágt,“ segir hún og bætir við:
„Ég trúi ekki öðru en að þessu verði
áfrýjað.“
„Með alvarlega
brostna sjálfsmynd“
Fram kemur í dómnum að maður-
inn hafi framið kynferðisbrot með
því að hafa í tvö aðgreind skipti
greitt drengnum fyrir að hafa við
hann kynferðismök auk þess sem
hann hafi látið drenginn gera fleiri
kynferðislega hluti við sig.
Móðir drengsins segir að sonur
hennar hafi hringt í sig af með-
ferðarheimilinu og spurt mikið út í
dóminn og hvort það verði ekki gert
eitthvað meira í þessu máli. „Hann
skildi ekki alveg að þetta gæti verið
útkoman.“
Drengurinn glímir nú við alvar-
legar afleiðingarnar af fíkniefna-
neyslu og vændi. Móðir hans segir
þetta hafa haft heljarmikil og öm-
urleg áhrif á hann. „Hann er með
alvarlega brostna sjálfsmynd,“ seg-
ir hún og furðar sig á því að réttar-
kerfið fari svona mjúkum höndum
um barnavændiskaupanda: „Það
er mjög alvarlegt að brjóta svona á
barni.“
„Sonur minn varð
reiður og hiSSa“
n Ekki orð í dómnum um afleiðingarnar sem vændið hafði á 14 ára barn„Móðir hans seg-
ir að þessi dóm-
ur sendi þveröfug skila-
boð og að af lestri hans
að dæma megi ráða að
það sé vændiskaupand-
inn sem sé fórnarlambið í
málinu.
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Vændiskaupandi Héraðsdómur
Vesturlands taldi það hafa haft neikvæðar
afleiðingar fyrir barnavændiskaupanda
að vera afhjúpaður. Fórnarlamb hans er 15
ára. Ekkert er fjallað um afleiðingarnar af
vændinu fyrir drenginn. Myndin er sViðsseT.
Hagsmunasamtök heimilanna:
600 manns
kærð
„Við höfum lagt fram kæru á hendur
öllum bankastjórum, framkvæmda-
stjórum, stjórnum og varastjórnum
fjármálafyrir-
tækja sem veitt
hafa gengis-
tryggð lán og
innheimt á ár-
unum 2001–
2012. Yfir 600
manns,“ segir
Andrea J. Ólafs-
dóttir, formað-
ur Hagsmunasamtaka heimilanna
(HH) sem á miðvikudag kærðu
þessa aðila til efnahagsbrotadeildar
lögreglu, sem er undir embætti sér-
staks saksóknara. Hún segir listann
meira að segja vera lengri því sá
fyrirvari er á að rafrænn gagna-
grunnur fyrirtækjaskrár nær ekki
lengra aftur en til 2005. „Við lögðum
það í hendur saksóknara, ef hann
sér ástæðu til að ákæra, að leita eftir
upplýsingum um stjórnendur frá
2001–2005. Þannig að þetta eru ansi
margir,“ segir Andrea um málið í
samtali við DV.
Hún segir að samtökunum hafi
fundist tímabært og mikilvægt að
draga fólk til ábyrgðar fyrir það sem
ljóst er að sé hreint og klárt lögbrot.
Aðspurð hvort samtökin séu
vongóð um að þessar kærur skili
einhverju eða hvort aðeins sé verið
að vekja athygli á málinu í til-
efni dóms Hæstaréttar í gær segir
Andrea að þetta sé ekki táknrænn
gjörningur. „Það þarf að draga fólk
til ábyrgðar svo fjármálageirinn læri
eitthvað af þessu.“
Nú liggur fyrir að í atkvæða-
greiðslu um hið umdeilda frumvarp
á Alþingi, sem hnekkt var í Hæsta-
rétti á miðvikudag, hefði auðveld-
lega verið hægt að fella það, eða
tryggja það með orðalagi að þau
giltu einungis fram í tímann, en
ekki afturvirkt. Lögin voru samþykkt
með 27 atkvæðum, sem er minni-
hluti á löggjafarþingi, en aðeins
þingmenn Hreyfingarinnar greiddu
atkvæði gegn því. 22 greiddu ekki
atkvæði, 2 þingmenn voru með fjar-
vist og 9 fjarverandi.
Andrea setur spurningarmerki
við hvort allir þeir sem veittu
þessum lögum brautargengi séu
hæfir til setu á Alþingi. „Því það
var búið að gefa margar umsagnir
um frumvarpið, margbúið að vara
við áður en það var samþykkt,
margbúið að gera það eftir að þau
tóku gildi. Þú setur ekki lög sem
gilda afturvirkt með íþyngjandi
hætti og það eiga þeir að vita sem
sitja á löggjafarþingi. Eftirmáli
þessarar lagasetningar, en þó sér-
staklega eftirlit með endurútreikn-
ingum er eitt allsherjarklúður og
hefur haft alvarlegar afleiðingar
fyrir mjög mörg heimili og fyrir-
tæki og þeim sem hafa haldið því
til streitu að lögin ættu að vera
afturvirk, og okkur, ber að spyrja;
eru þeir hæfir?“
„Ruddaleg
og gróf árás“
Hæstiréttur hefur staðfest
fimm ára fangelsisdóm hér-
aðsdóms yfir Birki Árnasyni,
25 ára. Birkir var dæmdur fyrir
nauðgun á Þjóðhátíð í Vest-
mannaeyjum í fyrrasumar, en
þetta er í annað sinn sem Birk-
ir er dæmdur fyrir nauðgun.
Þá var honum gert að greiða
fórnarlambi sínu eina og hálfa
milljón króna í skaðabætur.
Ákæruvaldið hafði farið fram
á þyngri dóm í málinu en sem
fyrr segir staðfesti Hæstiréttur
dóm héraðsdóms.
Nauðgunin átti sér stað á
útikamri aðfaranótt sunnu-
dags um þjóðhátíðarhelgina
þar sem Birkir kom fram vilja
sínum við stúlkuna. Í dómi
Hæstaréttar segir að árás
Birkis hafi verið einstaklega
„ruddaleg og gróf“.
Fjárfest í exista og Kaupþingi
Félögin fjárfestu í Exista og Kaup-
þingi með lántökum. Myndin er frá
hluthafafundi Exista.