Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Síða 8
8 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað
Mátti fara nakinn í pottinn
n Hæstiréttur sýknar Isavia af kröfu konu sem starfaði þar
H
æstiréttur sýknaði á fimmtu-
dag fyrirtækið Isavia af kröfu
konu sem starfaði hjá fyrirtæk-
inu. Í Héraðsdómi Reykjaness
voru konunni dæmdar átján hundr-
uð þúsund krónur í bætur og ógreidd
laun vegna málsins. Konan sagðist
hafa orðið fyrir kynferðislegri áreitni
af hálfu háttsetts yfirmanns innan
Isavia. Þá sagði konan að breytingar
hefðu verið gerðar á starfi sínu þannig
að hún gæti ómögulega sinnt því.
Fékk hún því átján hundruð
þúsund krónur dæmdar í bæt-
ur hjá Héraðsdómi Reykjaness en
Hæstiréttur sneri þeim dómi við á
fimmtudag sem fyrr segir. Hæsti-
réttur hafnaði því að að hegðun yf-
irmannsins hafi verið kynferðisleg
áreitni í garð konunnar, út frá skil-
greiningu hugtaksins samkvæmt
lögum um jafna stöðu og jafnan rétt
karla og kvenna.
Forsaga málsins er sú að konan
fór ásamt yfirmanni sínum, fram-
kvæmdastjóra öryggissviðs Keflavík-
urflugvallar, og yfireftirlitsmanni fyr-
irtækisins í sumarbústað í Grímsnesi.
Tilgangur ferðarinnar, sem var farin í
mars árið 2009, var að fara yfir breyt-
ingar á starfi hennar sem áttu meðal
annars að fela í sér aukna ábyrgð.
Eftir að hafa lokið störfum fóru
framkvæmdastjórinn og yfireftirlits-
maðurinn í heitan pott sem var við bú-
staðinn. Framkvæmdastjórinn reyndi
ítrekað að fá konuna í pottinn en þar
sem hún var ekki með sundföt neitaði
hún. Fyrir áeggjan mannanna fór hún
með stól út til að sitja við pottinn en
tók þá eftir því að framkvæmdastjór-
inn var nakinn í pottinum.
Hæstiréttur taldi einnig að ekki
hafi verið sýnt fram að konan hafi ver-
ið beitt óréttlæti í starfi með tilliti til
starfsöryggis og starfskjara.
F
yrirtæki og eignarhaldsfélög
sem tengjast Bjarna Bene-
diktssyni, formanni Sjálf-
stæðisflokksins, beint skulda
rúmlega 150 milljarða króna
í íslenska bankakerfinu. Að minnsta
kosti rúmlega 66 milljarðar króna af
þessum skuldum hafa nú þegar ver-
ið afskrifaðir og frekari skuldir verða
afskrifaðar síðar. Skilgreiningin í út-
reikningunum á tengslum Bjarna
Benediktssonar og viðkomandi fé-
laga er á þá leið að hann hafi annað-
hvort setið í stjórn þeirra eða að þau
hafi verið í eigu félaganna sem hann
sat í stjórn í.
Meðal þessara félaga eru olíu-
félagið N1 og móðurfélag þess, BNT,
en Bjarni var stjórnarformaður þeirra
beggja þar til í desember 2008. Þá var
Bjarni stjórnarmaður í Fjárfestingar-
félaginu Mætti þar til í lok þess árs.
BNT og Máttur voru hluthafar í fjöl-
mörgum félögum sem fjárfestu með-
al annars í hlutabréfum í Glitni og
Icelandair. Eignarhaldsfélag föður
Bjarna, Hafsilfur ehf., er til að mynda
ekki flokkað þar á meðal, jafnvel þó
Bjarni eigi óbeinna hagsmuna að
gæta í félaginu.
Bjarni harmar tap annarra
Bjarni Benediktsson tjáði sig um tap
lífeyrissjóða og fjármálafyrirtækja
af fyrirtækjum sem tengdust hon-
um í Kastljósþætti í vikunni. Í við-
talinu sagðist Bjarni harma það að
lánastofnanir og lífeyrissjóðir hefðu
tapað á fyrirtækjum sem tengdust
honum. „Mér finnst það hræðilegt;
mér finnst það mjög slæmt að nokk-
ur einasti maður hafi tapað á fyrir-
tækjum þar sem ég hafði aðkomu að
stjórnuninni. Mér finnst það mjög
vont. Þar töpuðu hluthafar, bankar
og lífeyrissjóðir líka. En við skulum
bara horfast í augu við það að þátt-
taka mín í atvinnulífinu var ekki
byggð á neinum svikum og prettum.“
Þegar spyrill Kastljóssins sagði
við Bjarna að árangur þeirra fyrir-
tækja sem hann stýrði hefði ekki ver-
ið mjög góður sagði Bjarni: „Árang-
urinn er sá, Helgi, af því verkefni sem
við fyrst og fremst vorum að stýra,
það er að segja að kaupa Esso gamla
og búa til nýtt og öflugt félag, var ein-
faldlega frábær.“ Hann útskýrði þessi
orð sín með því að rekstur N1 væri
góður og hefði farið fram úr vænt-
ingum þeirra en að lánin sem fé-
lagið tók hefðu stökkbreyst í aðdrag-
anda hrunsins og eftir það, líkt og lán
margra annarra félaga á Íslandi.
Bjarni sagði aðspurður að hann
teldi ekki erfitt að vera stjórnmála-
leiðtogi og hugsanlega síðar for-
sætisráðherra í ljósi viðskiptasögu
sinnar. „Nei, ég skammast mín ekki
fyrir mína atvinnuþátttöku. Ég kem
reynslunni ríkari eftir að hafa tekið
þátt í atvinnulífinu. [...] Félagið sem
ég var í forsvari fyrir var ekki eina
félagið sem lenti í erfiðleikum á Ís-
landi; kauphöllin á Íslandi þurrkað-
ist út. [...] Ég ætla að leiða flokkinn
minn aftur til forystu í íslenskum
stjórnmálum,“ sagði Bjarni.
Félög tengd
Bjarna skulda
150 milljarða
N1 Bjarni stjórnarformaður
22 milljarðar – óljóst með afskriftir.
BNT Bjarni stjórnarformaður
17,6 milljarðar – allt afskrifað.
Umtak Fasteignafélag N1
25 milljarðar – óljóst með afskriftir.
n Olíufélagið N1, móðurfélag
þess, BNT, og fasteignafélagið
Umtak, skulda samtals tæplega
65 milljarða króna. N1 skuldaði
rúma 22 milljarða króna í árslok
2010 og Umtak skuldaði rúma 25
milljarða á sama tíma. Heildarskuldastaða BNT
liggur ekki fyrir þar sem félagið hefur ekki skilað
ársreikningi síðan árið 2007. Heimildir DV herma
hins vegar að þessar skuldir nemi 17,6 milljörðum
króna og að þær hafi verið afskrifaðar úr bókum
kröfuhafa félagsins. Lánardrottnar N1, Arion
banki, Íslandsbanki og skuldabréfaeigendur,
yfirtóku það í apríl í fyrra. Áætlaðar heildaraf-
skriftir vegna skulda þessara félaga liggja ekki
fyrir en áætla má að þær verði á bilinu 40 til 50
milljarðar króna í heildina.
Máttur Bjarni stjórnarmaður
21 milljarður
Tæplega 21 milljarður afskrifaður
eftir gjaldþrot.
n Eignarhaldsfélag í eigu Milestone og eignar-
haldsfélaga Einars og Benedikts Sveinssona,
Hrómundar og Hafsilfurs. Áður hafði Íslands-
banki átt hlut í félaginu. Máttur átti meðal
annars hlutabréf í Icelandair og BNT. Íslands-
banki leysti til sín hlut félagsins í Icelandair í
maí 2009. Félagið var úrskurðað gjaldþrota í
lok árs 2010. Kröfuhafar félagsins lýstu kröfum
upp á 21 milljarð í búið en þar af var Íslandsbanki
með kröfu upp á 20,8 milljarða. Í skýrslu sem
skiptastjóri Máttar, Jóhannes Ásgeirsson, vann
um starfsemi félagsins fyrir kröfuhafa þess í
fyrra kom fram að rekstur Máttar hefði verið
glórulaus að hans mati. „Í stuttu máli verður að
segja að rekstur félagsins hafi verið glórulaus.
Þáttur lánveitandans, Íslandsbanka hf., er með
ólíkindum og er réttmæt ástæða til að efast um
dómgreind yfirmanna bankans, en sumir hverjir
eru enn við störf. Að veita há erlend lán til kaupa
á ofmetnum íslenskum hlutabréfum, eingöngu
með veði í bréfunum sjálfum, er ámælisverð
háttsemi, svo vægt sé til orða tekið.“ Tekið skal
fram að Íslandsbanki, síðar Glitnir, var um tíma
hluthafi í félaginu, þar til árið 2007, auk þess sem
Milestone og Einar og Benedikt Sveinssynir voru
meðal stærstu hluthafa bankans þar til í apríl
2007. Þessi staðreynd skýrir að hluta hin miklu
tengsl félagsins við Íslandsbanka og þau háu
lán sem félagið fékk frá honum: Eigendur Máttar
voru meðal stærstu hluthafa Íslandsbanka og
sátu í stjórn bankans.
Þáttur International
BNT og Máttur meðal hluthafa
24 milljarðar
Allt afskrifað eftir gjaldþrot.
n Kröfuhafar Þáttar International lýstu 24
milljarða króna kröfum í þrotabú félagsins
árið 2010. Þáttur International var félag þeirra
Wernersbræðra, Karls og Steingríms, og Engey-
inganna Einars og Benedikts Sveinssona sem
stofnað var til að halda utan um hlutabréf þeirra
í Glitni. Þáttur var úrskurðaður gjaldþrota í lok
janúar 2010 en eina eign félagsins var 7 prósenta
hlutur í Glitni. Því var nokkuð ljóst að félagið yrði
gjaldþrota í kjölfar bankahrunsins þegar hlutur
félagsins í Glitni varð verðlaus.
IAG Holding ehf.
áður Naust ehf. Var í eigu BNT og
Máttar meðal annars
3,5 milljarðar
3,5 milljarðar afskrifaðir eftir gjaldþrot.
n Eignarhaldsfélagið IAG Holding ehf., áður
Naust ehf., var tekið til gjaldþrotaskipta í maí
2009. Skiptum á félaginu lauk í febrúar 2011.
Um 25 milljónir króna fengust upp í ríflega
3,5 milljarða króna kröfur sem
Landsbankinn lýsti í búið.
Afskriftir vegna Nausts námu
því ríflega 3,5 milljörðum króna.
Stærstu hluthafar Nausts voru
eignarhaldsfélagið BNT með
50 prósenta hlut og Fjárfestingar-
félagið Máttur með 30 prósenta hlut. Aðrir
hluthafar voru eignarhaldsfélögin Hrómundur,
sem er í eigu Einars Sveinssonar, og Hafsilfur,
sem er í eigu Benedikts Sveinssonar. Bjarni var
stjórnarformaður BNT þar til í desember 2008 og
stjórnarmaður í Mætti þar til í lok sama árs. Fé-
lagið var stofnað árið 2011 til að kaupa tæplega
15 prósenta hlut í Icelandair. Landsbankinn leysti
hlut þess í Icelandair til sín um mitt ár 2009.
Földungur áður Vafningur. Var í
eigu BNT og Máttar meðal annars
37,5 milljarðar
Yfirtekið af skilanefnd Glitnis. Megnið af
skuldum afskrifað.
n Vafningur tók við milljarða
króna lánum frá Glitni og Sjóvá
í ársbyrjun 2008 til að endur-
greiða lán sem Þáttur Inter-
national og Racon Holding, félag
í eigu Milestone, átti útistandandi
við bandaríska fjárfestingarbankans Morgan
Stanley. DV hefur fjallað ítarlega um þátt
Vafnings við endurfjármögnunina á láni Þáttar
International hjá Morgan Stanley og aðkomu
Bjarna Benediktssonar að því. Félagið skuldar
37,5 milljarða króna og hefur verið yfirtekið af
skilanefnd Glitnis. Skuldirnar eru við Glitni og
Sjóvá.
Samtals skuldir
150,6 milljarðar
Afskrifað hingað til hið minnsta
66,1 milljarður
n Búið að afskrifa 66 milljarða n Bjarni Benediktsson harmar tapið
Skuldir eignarhaldsfélaga sem Bjarni Benediktsson tengist beint (félög þar sem hann sat í stjórn eða félög sem voru í eigu þeirra félaga)
66 milljarðar afskrifaðirIngi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Í stuttu
máli verður
að segja að rekstur
félagsins hafi
verið glórulaus
Milljarða skuldir og
afskriftir Lánardrottnar
félaga sem Bjarni Benedikts-
son tengist hafa afskrifað um
66 milljarða króna af skuldum
þeirra. Útistandandi skuldir
nema um 150 milljörðum
króna. Bjarni harmar tap
banka og lífeyrissjóða vegna
félaga sem hann stýrði.
Keflavíkurflugvöllur Framkvæmda-
stjórinn starfaði á öryggissviði Keflavíkur-
flugvallar en atvikið í heita pottinum varð í
sumarbústað í Grímsnesi.