Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Qupperneq 10
10 Fréttir 17.–19. febrúar 2012 Helgarblað L ögmaður Gunnlaugs felldi þessa kröfu niður. Ég var að vísu búin að gera frávísun- arkröfu á skaðabótakröfuna vegna þess að ég taldi hana ekki vera réttilega gerða. Það mun hins vegar ekkert reyna á hana því hún tók sig til og felldi hana nið- ur,“ segir Sigríður Rut Júlíusdótt- ir, lögmaður bloggarans Teits Atla- sonar. Eins og komið hefur fram stefndi auðmaðurinn Gunnlaugur M. Sigmundsson, ásamt eiginkonu sinni, Teiti á síðasta ári fyrir meið- yrði. Ástæða stefnunnar var sú að Teitur fór mikinn á bloggsíðu sinni á DV.is í febrúar í fyrra þegar hann fjallaði um viðskipti Gunnlaugs með fyrirtækið Kögun sem Gunn- laugur fór fyrir á sínum tíma. Ástæður þess að fallið var frá skaðabótakröfunni eru tíundaðar nánar hægra megin á síðunni. Fór fram á milljónir Í stefnunni var meðal annars farið fram á að Teitur myndi greiða Gunn- laugi og eiginkonu hans samtals 4,5 milljónir króna í skaðabætur vegna umfjöllunarinnar, að sögn Sigríðar. Hann framhaldsstefndi síðan nýj- um ummælum inn í málið og hefur Sigríður farið fram á að þeim um- mælum verði vísað frá dómi. „Það verður flutt í næstu viku og eftir það verður sennilega ákveðin aðalmeð- ferð í málinu,“ segir Sigríður. Mál- inu er því hvergi nærri lokið. Þó svo að Teitur muni ekki þurfa að greiða Gunnlaugi skaðabætur vegna um- mæla sinna sem Gunnlaugur taldi „stórkostlega móðgandi og meið- andi“ standa eftir nokkrar kröfur. „Það sem eftir stendur er ómerking- arkrafan á ummælunum, máls- kostnaðarkrafa og gott ef það var ekki líka krafa um birtingu dóms í fjölmiðl- um.“ Teitur sáttur „Ég er bara ánægð- ur með þetta,“ segir Teitur Atlason um ákvörðun lögmanns Gunn- laugs í samtali við blaðamann. Aðspurður hvort hann sé bjartsýnn á að hann muni vinna málið segist Teitur vera miklu meira en bjartsýnn. „Ég vinn þetta mál. Það er alveg pottþétt,“ segir hann. „Það versta sem gerist héðan í frá er að ég mun sitja uppi með hans málskostnað. Og hann getur hlaupið á einhverjum millj- ónum.“ Hann á þó alveg eins von á að málið endi fyrir Hæstarétti. „Ef ég tapa þá mun ég áfrýja til Hæsta- réttar og ég er nokkuð viss um að ef hann tapar þá muni hann gera það sama.“ Teitur viðurkennir að eftir að málið kom upp sé hann mun var- kárari í bloggskrifum sínum en áður. „Það vill enginn standa í þessu. Já, ég er varkárari.“ Gerir heimildarmynd Teitur vinnur nú að gerð heimildar- myndar um málið sem hann seg- ist binda miklar vonir við. „Þetta er bara mynd um þetta mál. Það var fyrirtæki sem hafði samband við mig og lýsti yfir áhuga á þessu. Þarna verða sagðar nokkrar sögur eins og í heimildarmyndum. Ann- ars vegar er þetta sagan mín um það þegar ég bloggaði um málið og sem endaði með réttarhöldunum. Þetta er saga Kögunar og víðari skír- skotunin er sagan af einkavæðingu ríkisfyrirtækjanna,“ segir Teitur sem býst við að myndin verði að minnsta kosti 50 mínútur að lengd. „Vonandi endar hún þó í 90 mínútum.“ Milljónakrafa gegn Teiti dregin til baka n Fellur frá skaðabótakröfu n Teitur bjartsýnn á sigur„Það versta sem gerist héðan í frá er að ég mun sitja uppi með hans málskostnað. Ástæður þess að skaðabótakrafan var felld niður Snýst um ærumeiðingar, ekki peninga „Í þinghaldi í málinu þann 27. janúar sl. féllu stefnendur frá miskabótakröfum í á hendur stefnda, Teiti Atlasyni. Ástæða þess er eftirfarandi: Eins skýrt kemur fram í framhaldsstefnu í málinu hefur stefndi ítrekað haldið því opinberlega á lofti að tilgangur stefnenda með málssókninni sé einhvers konar hótun um að leggja fjárhag hans í rúst og fjárhagslegri afkomu stefnda og fjöl- skyldu hans sé verulega ógnað með málarekstrinum. Til þess að undirstrika það að mál þetta snýst efnislega eingöngu um nánar greindar grófar ærumeiðingar, en ekki um persónu stefnda sem slíka eða fjárhagsstöðu aðila og meintan að- stöðumun, hafa stefnendur ákveðið að falla frá öllum miskabótakröfum í mál- inu. Framangreind breyting á kröfugerð er gerð í þeirri von að þannig megi kjarni málsins fá aukið vægi, jafnframt því sem það ætti að ónýta tilburði stefnda til þess að reyna að ljá málssókn stefnenda á hendur sér annarlegan tilgang. Stefnendur telja sig á hinn bóginn eiga fullan rétt á miskabótum ef þau kysu að sækja þær.“ – Yfirlýsing Gunnlaugs og eiginkonu hans vegna miskabótakröfu í máli þeirra gegn Teiti. Ummæli sem stefnt er fyrir* „Höfum í huga að fjölskylda hans á allan sinn auð undir pólitískum tengslum. Faðir Sigmundar var þing- maður í nokkra mánuði og kom sér þannig fyrir að hann hafði aðgang að innherjaupplýsingum sem vörðuðu fyrirtækið Kögun sem var ríkisfyrir- tæki sem verið var að einkavæða. Sá lét konuna sína bjóða í fyrirtækið og vitandi að risa-samningur var fyrir- liggjandi við Nató, var fjármögnun auðveld.“ *Ummælin sem Gunnlaugur stefndi Teiti fyrir eru fleiri. Einar Þór Sigurðsson blaðamaður skrifar einar@dv.is Bjartsýnn á sigur „Ég vinn þetta mál,“ segir Teitur spurður hvort hann sé bjartsýnn á að vinna málið sem Sigmundur hefur höfðað gegn honum. Heldur málinu til streitu Þó að Gunn- laugur hafi fallið frá skaðabótakröfunni ætlar hann að halda áfram með málið. Í yfirlýsingu segir hann að málið snúist ekki um fjárhag Teits heldur um „grófar ærumeiðingar.“ Iceland Ex- press bætir stundvísi Stundvísi Iceland Express hefur batnað mikið eftir að fyrirtækið fækkaði áfangastöðum sínum nið- ur í tvo. Síðustu tvær vikur seink- aði aðeins einni af þeim tuttugu ferðum sem félagið fór til London og Kaupmannahafnar. Þetta kem- ur fram á vefnum turisti.is Hjá Icelandair stóðust tíma- setningar í 89 prósentum brottfara en komutímar í aðeins helmingi tilvika. Sjö af hverjum tíu ferðum félagsins, til og frá Keflavík, voru því á tíma en hjá Iceland Express var hlutfallið 83 prósent í heildina. Fjöldi flugferða á vegum félag- anna tveggja er mjög misjafn því Icelandair flýgur um átta sinnum oftar en Iceland Express til og frá landinu þessar vikurnar. Tafir á ferðum beggja fyrirtækja voru ekki miklar á tímabilinu. Fjölskylduhjálp biðlar til aflögu- færra Tugir sjálfboðaliða Fjölskyldu- hjálpar Íslands verða þrjár fyrstu helgarnar í marsmánuði með sölubása í Kolaportinu og selja allt á milli himins og jarðar en þó aðallega notaðan og nýjan fatnað til styrktar starfinu. Í tilkynningu frá Fjölskylduhjálpinni segir: „Nú biðlum við til landsmanna að fara nú í gegnum fataskápana sína og koma með það sem þeir eru löngu hættir að nota og leyfa okkur að gera matarpeninga úr því. Inn- koman fer í matarsjóð Fjölskyldu- hjálpar Íslands. Við tökum á móti alla virka daga frá kl. 10.00 til 14.00 í Eskihlíð 2–4 í Reykjavík og eftir samkomulagi.“ Fyrsta reglulega úthlutun Fjöl- skylduhjálparinnar á þessu ári fer fram 22. febrúar í Reykjavík og 23. febrúar á Reykjanesi.  Ljósmynda- skólinn tæmdur „Það er synd að einhver þurfi að lifa á einhverju svona,“ segir Sig- ríður Ólafsdóttir, betur þekkt sem Sissa ljósmyndari, skólastjóri Ljós- myndaskólans að Hólmaslóð í Reykjavík. Óprúttnir aðilar brutust þar inn aðfaranótt fimmtudags og létu greipar sópa. Þjófarnir hrein- lega tæmdu skólann af öllum verðmætum. Að sögn Sissu hurfu þarna á einu bretti 20 Apple-borðtölvur skólans, stórt safn myndavéla og linsur og skjávarpi. „Það var greinilega unnið mjög hratt. Það eru allar tölvur teknar úr sambandi og allt annað skilið eftir. Skjávarpar voru rifnir niður. Maður sér hvernig það var sópað úr hillum þar sem myndavélar eru og undir þetta allt saman notaðar töskur sem voru inni í tækjaherbergi hér.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.