Dagblaðið Vísir - DV - 17.02.2012, Side 13
Halldór Blöndal
fyrrv. alþm. og
ráðherra
Fréttir 13Helgarblað 17.–19. febrúar 2012
Flæktust í sakamál
eftir átök um Glitni
n Engeyingarnir og Vafningsmálið n Misstu undirtökin í Glitni með dramatískum hætti
Wernersson eða félög tengd þeim
ráðstafa samtals hlutafé að nafn-
verði 1.041.649.091 kr. eða sem nem-
ur 7,00% af heildarhlutafé félagsins
til tengds aðila sem þeir tilnefna. Það
skal þó alfarið vera á þeirra ábyrgð
að því hlutafé verði ráðstafað og til
hvaða tengds aðila.“ Þetta var hlutur-
inn sem Þáttur International endur-
fjármagnaði hjá Glitni í febrúar 2008.
Síðar í sölutryggingarsamningn-
um kom fram að Kaupþing lagði
bann við því að þeir Karl og Einar
seldu þennan sjö prósenta hlut í
Glitni næsta árið eftir undirritun
samningsins. Fram að Vafningsflétt-
unni, og í um tvo mánuði eftir hana,
var Þáttur International því skuld-
bundið til að eiga hlutabréfin í Glitni.
Eigið fé Þáttar 14 milljarðar
Karl og Einar gengu í kjölfar þessa frá
samningi sín á milli um hvernig hald-
ið skyldi utan um hlutabréfin í Glitni.
DV hefur samninginn undir höndum
og var hann undirritaður af þeim Karli
og Einari þann 2. maí 2007. Í samn-
ingnum var ákveðið hvernig eignar-
haldið á Þætti International ætti að
vera. Fram að þessum tíma hafði fé-
lagið alfarið verið í eigu Karls Wer-
nerssonar og Milestone og hélt það
utan um nærri 9 prósenta hlut þeirra í
Glitni sem var fjármagnaður af Morg-
an Stanley. Félagið komst nú að hluta
í eigu Engeyinganna. Í samningnum
kom fram að eftir söluna á bréfunum
til Kaupþings væri eigið fé Þáttar Int-
ernational 14 milljarðar króna.
Í samningnum var hins vegar fyr-
irvari um að samningar næðust við
lánardrottna félaga Einars og Karls,
Morgan Stanley og Glitni. Morgan
Stanley hélt áfram að fjármagna
þann 7 prósenta hlut í félaginu sem
Karl og Einar héldu eftir inni í Þætti
International. Í undirrituðu skjali frá
Morgan Stanley, sem DV hefur und-
ir höndum, kemur fram að Morgan
Stanley aflétti veðum af rúmlega 270
milljónum hluta í Glitni sem Þátt-
ur International átti. Þetta var gert
vegna sölu á hluta af bréfum Þáttar
International til Kaupþings. Eftir stóð
að Þáttur International átti tæplega
milljarð hluti í Glitni sem Morgan
Stanley fjármagnaði.
Stífir skilmálar
Lánasamningurinn á milli Morgan
Stanley og Þáttar International var
gerður þann 7. febrúar árið 2007 og
var mjög stífur. Í samningnum kom
meðal annars fram að hlutabréfa-
verð í Glitni mætti ekki vera minna
en 20,175 í ákveðið marga daga í röð.
Hlutabréfaverðið sem samningurinn
byggði á var 26.90 og miðað við að
verðið mætti ekki fara undir 75 pró-
sent af því í ákveðinn tíma.
Þetta gerðist í lok janúar 2008, líkt
og Morgan Stanley tilkynnti stjórn-
endum Þáttar International með bréfi
þann 28. janúar 2008. Í bréfinu segir
að vegna þessa hafi Morgan Stanley
gjaldfellt lánið. Bandaríski bankinn
fór fram á það við Þátt International
að félagið greiddi lánið, samtals tæp-
lega 160 milljónir evra, um 16 millj-
arða króna þann 2. febrúar 2008. Fyr-
irvarinn sem Þáttur International
hafði til að ganga frá greiðslunni var
því afar skammur. Svo fór reyndar á
endanum að Þáttur International náði
ekki greiða lánið til Morgan Stanley
fyrr en þann 8. febrúar 2008. Þetta var
gert með láni sem fór beint frá Glitni
til Milestone og þaðan til Morgan
Stanley. Vafningsfléttan var svo útbú-
in þremur dögum síðar og var búið
þannig um hnútana að svo virtist sem
Vafningur hefði fengið lánið sem fór
til Morgan Stanley en ekki Milestone.
Bjarni Benediktsson tók þátt í þeim
gerningi, líkt og fjallað hefur verið um
í DV, og sæta tveir menn nú ákæru fyr-
ir lögbrot vegna hans.
Ættingjar Bjarna fóru því frá því
að vera ráðandi aðilar í Glitni og
leiða stjórn bankans yfir í að missa
yfirhöndina í bankanum til FL Gro-
up. Auðvitað þarf að taka fram að
þeir fengu mjög gott verð fyrir hluta-
bréf sín í bankanum, eða 27,82 á
hlut, sem var nokkurn veginn hæsta
markaðsverð hlutabréfa í Glitni á ár-
unum fyrir hrunið. Í kjölfarið, eftir
hrunið 2008 þegar þeir töpuðu þeim
eignarhlut í bankanum sem eftir
var, drógust þeir Einar og Bjarni inn
í sakamálarannsókn sérstaks sak-
sóknara á Vafningsmálinu vegna að-
komu sinnar að því.
Guðrún
Zoega
verkfræðingur og
fyrrv. borgarfulltrúi
Benedikt
Benediktsson
framkvæmdastjóri
Björn
Bjarnason
fyrrverandi alþm.
og ráðherra
Ólöf
Pétursdóttir
dómstjóri
Valgerður
Bjarnadóttir
alþm. Samfylkingar
Guðrún
Pétursdóttir
framkvæmdastj. og
fyrrv. borgarfulltr
Pétur
Benediktsson
alþm. og sendiherra
Ólöf
Benediktsdóttir
fyrrv. mennta-
skólakennari
Guðrún
Guðjónsdóttir
kennari
Kristjana
Benediktsdóttir
húsm. í Rvk.
Benedikt Blöndal
Hæstaréttardómari
Guðrún
Benediktsdóttir
húsm. í Rvk.
BenediktSveinsson
bankastj. alþm. og
bæjarfulltrúi í Rvk.
Guðrún
Pétursdóttir
húsm. í Rvk.
Benedikt
Sveinsson
fjárfestir og fyrrv.
stjórnarform.
Sjóvár og Eimskip
Ingimundur
Sveinsson
arkitekt
Einar Sveinsson
fjárfestir og fyrrv.
framkvæmdastjóri
Sjóvár-Almennra
Bjarni
Benediktsson
forsætisráðherra
Sveinn
Benediktsson
framkvæmdastjóri
Bjarni Benediktsson
alþingismaður
Hluti Engeyjarættarinnar
Vildu formennskuna Hannes Smárason og Jón Ásgeir Jóhannesson ásældust stjórnar-
formennskuna í Glitni á fyrri hluti árs 2008. FL Group tók bankann yfir í apríl það ár.„Ég veit ekkert um
málið enda vann
ég ekki á sölutryggingar-
sviði Kaupþings.
Flæktust í sakamálarannsókn Bjarni
Benediktsson og Einar Sveinsson flæktust
í sakamálarannsókn sérstaks saksóknara
vegna aðkomu sinnar að Vafningsmálinu.
7. febrúar 2008
n Milestone selur
væntanlegum hlut-
höfum í Vafningi
hluti í félaginu.
8. febrúar 2008
n Milestone fær lán frá Glitni upp á rúma 10 milljarða til að endur-
greiða Morgan Stanley lán Þáttar International. Lánið þarf að
greiða fyrir klukkan þrjú síðdegis. Lánareglur Glitnis eru brotnar og
áhættuskuldbindingar Milestone fara yfir lögbundið hámark. Lárus
Welding og Guðmundur Hjaltason ganga frá lánasamningnum.
11. febrúar 2008
n Bjarni Benediktsson fær um-
boð frá föður sínum og frænda til
að veðsetja hlutabréf BNT, Haf-
silfurs og Hrómundar í Vafningi.
Umboðin send til Glitnis.
12. febrúar 2008
n Vafningur fær lán
frá Glitni sem notað
er til að endurgreiða
Milestone lánið frá
8. febrúar.
9. desember 2009
n DV greinir frá aðkomu
Bjarna Benediktssonar
að Vafningi.
21. desember 2009
n DV greinir frá því að
Vafningsfléttan hafi
verið útbúin til að bjarga
Glitnisbréfum Þáttar
International.
19. október 2011
n DV greinir frá því að
Bjarni Benediktsson
hafi verið yfirheyrður
sem vitni í Vafnings-
málinu.
14. desember 2011
n Lárus Welding og
Guðmundur Hjaltason
ákærðir fyrir umboðs-
svik í Vafningsmálinu.
201120102009